Dagur - 27.07.1990, Blaðsíða 7

Dagur - 27.07.1990, Blaðsíða 7
Föstudagur 27. júlí 1990 - DAGUR - 7 Þeir eru léttir í iundu, Geirmundur og félagar, enda landskunnir stuðboltar. þurrka af sér svitann án árangurs eiga Geiri og Eiki nóg með að tala við aðdáendur og vini. Kiddi vaktar tækin á meðan og sér um að spólan snúist, en Sóli er ein- hvers staðar frammi í sal að tala við vini og vandamenn, enda Austfirðingur að ætt og uppruna. Seinni hálfleikur hefst, kraftur- inn er mikill og bókstaflega hver einasta hræða er farin að dansa. Það líður að því að klukkan verði þrjú, allir eru komnir með hend- ur á loft og klappa í takt við lögin. Þetta er farið að líkjast meira tónleikum hjá stórhljóm- sveit, heldur en dansleik. Klukk- an verður þrjú og yfirdyravörður- inn fer að tvístíga, en það er bara ekki hægt að hætta þegar svona stuð er í salnum. Þetta er það sem veitir hljómsveitum ánægju, fullur salur af dansandi, syngj- andi, klappandi og brosandi fólki. Ljósin eru kveikt, en skar- inn heimtar meira. „Geiri!... Geiri!...Geiri!“ og þeir halda áfram að spila þó að yfirdyra- vörðurinn sé farinn að tvístíga svo mikið að það minni orðið á steppdans. Loksins klukkan um tuttugu mínútur yfir enda allir á því að syngja saman: „Því nú er ballið búið, ég býð þér með mér heim.“ Geiri er orðinn hás, Sóli útkeyrður, sömu sögu er að segja af Eika og Jóa, en nú er röðin komin að Kidda, þó að hann hafi tekið þátt í mörgum lögum með skellitrommunni sinni. Snúrur gerðar upp, trommum pakkað niður, allt tekið saman og staflað út í bíl á mettíma, meðan spilar- arnir örþreyttu reyna að auka vökvamagnið í líkamanum aftur með ýmsum ráðum. Að síðustu er farið í svefnstað sem er tvö herbergi í Menntaskólanum, en hann er hótel á sumrin. Núna lendi ég með „gömlu hjónunum" í herbergi og slepp því við hrotu- konserta að mestu leyti. Daginn eftir er risið um hádeg- ið og menn sturta sig sem mest þeir mega. Síðan er komið við í Söluskála KHB og maginn fylltur áður en lagt er í hann heim á leið. En hverjir haldiði að séu svo í Söluskálanum, engir aðrir en túr- istarnir sem Eiki hélt opnu fyrir í Fjallakaffi daginn á undan. Við sitjum í mest makindum að snæðingi við borð nálægt útidyr- unum. Allt í einu tökum við eftir því að maður stendur fyrir utan dyrnar, horfir til okkar eins og hann bíði eftir því að opnað sé fyrir sér, baðar síðan út öllum öngum í látbragði sem sýnir bar- áttu við hurð í roki. Eiki lítur til hans með augnaráði eins og hann telji manninn eitthvað skrýtinn, á meðan við hinir skellihlæjum. Haldið er af stað, Eiki settur frammí svo ég kemst að í röð skyttnanna þriggja. Þreyta er greinilega komin í mannskapinn og Geiri kallinn orðinn hvíslandi hás. Menn sofa töluvert þangað til að Fjallakaffi er komið, en þar er auðvitað stoppað og sjóðandi heitt kaffið lífgar menn við. Nú er grafin upp úr hafurtaskinu bók, sem alltaf er víst með í för, úr einhverjum ástarkiljuflokki sem heitir Sjúkrahúsið í frum- skóginum. Eiki er auðvitað feng- inn til að lesa og það er leiklest- ur. Öll hljóð tekin og meira til, „Hættu þessu, eða ég rek þér einn á hann,“ öskrar ein sögu- hetjan og Kiddi greyið sem hafði verið að dreyma um konu og barn hrekkur upp og heldur að heimurinn sé að farast. Auðvitað verður að koma að- eins við hjá Helga við Mývatn, því að nú skín sólin og alveg tilvalið veður er fyrir ísát. ísinn fáum við og hann er virkilega svalandi, enda ísvélin hans Helga ein sú dýrasta á landinu eftir því sem hann segir. Þó að sólin skíni er samt fremur gjóstið svo þeir ferðamenn sem á ferli er klæðast skjólgóðum flíkum, við aftur á móti hoppum út úr þeim rauða á stuttbuxum og hlírabolum. Augnaráðin sem við fáum minna líka mörg hver á það sem Eiki sendi í Söluskálanum. Áfram er ekið og áfram er les- ið þar til Eiki var orðinn þreyttur og fær sér smá blund eins og Jói. Með hverjum kílómetranum sem hjólin rúlla færumst við nær Skagafirði og þar með Sauðár- króki. Heldur fer nú að hýrna yfir mannskapnum, tilhugsunin um konur, börn og almennileg rúm til að sofa í, lyfta munnvik- unum á hljómsveitarmönnum, þó að þau hafi í raun aldrei sigið neitt. Ekki bíður nú samt rauður dregill eftir okkur þegar á Krók- inn er komið, en það er víst held- ur ekki vaninn að heiðra ballút- gerðarmenn með slíku. Út úr Benzinum tínast örþreyttir menn hver af öðrum og blaðamaður einnig á endanum. Kidda verk er síðan að landa úr bílnum. Klukkan er átta á sunnudags- kvöldi, sólin mjakast framhjá Tindastólnum í átt til hafs og Drangey rís úr lygnum sjónum. Blaðamaður losar takið á mynda- vélatösku sinni og svefnpoka. Helgin er á enda runnin, ferðin með fimm hressum tónlistartind- átum og milljóna króna tækjum þeirra kominri á upphafsreit. Niðurstaðan er sú að svona útgerð er erfið, úthaldið þarf að vera í lagi ef menn ætla sér ein- hverja stóra hluti og að sjálf- sögðu þarf að hafa góða skapið við höndina. Að sjá hvernig hægt er að stjórna hundruðum manna með tónlist er ótrúleg sýn og ljóst að ekki er öllum gefið slíkt vald. Sagan um flautuleikarann er sönn. SBG Fjörið skín af hverju andliti, gleðin er algjör. Fólk af öllum stærðum og gerðum með hendur á lofti og klappar í takt við lögin. Hvílík stemmning! Otrúlegt úrval kjötrétta á útigrillið Hrísalundi Laugardagskvöldið 28. júlí Hin vinsæla hljómsveit Geirmundar Valtýssonar í syngjandi sveiflu fram eftir nóttu Ath. síðasti dansleikur Geirmundar á Hótel KEA í sumar Gunnar Gunnarsson leikur fyrir matargesti fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld Nýr glæsilegur sérréttaseðill. ★ Borðapantanir fyrir matargesti í síma 22200. | Hótel KEA j fyrir vol heppnaba veislu HOTEL KEA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.