Dagur


Dagur - 31.07.1990, Qupperneq 1

Dagur - 31.07.1990, Qupperneq 1
73. árgangur Akureyri, þriðjudagur 31. júlí 1990 144. tölublað Ásbyrgi hefur í áraraðir verið mjög vinsæll áningarstaður ferðamanna á leið um landið og er yfirstandandi sumar eng- in undantekning frá því. Aðsóknin er jöfn og þétt og er mun meiri en í fyrra, raunar hefur hún alltaf aukist ár frá ári. „Það er búinn að vera stöðugur straumur í sumar, yfirleitt 400- 500 manns stanslaust og það ligg- ur við að sé svipaður fjöldi um helgar og virka daga en það fer eftir veðri,“ sagði Hafdís Sig- marsdóttir, landvörður í Ásbyrgi, er Dagur grennslaðist fyrir um ferðamannastrauminn. „Um síðustu helgi var t.d. ekkert meira en vanalega, nema hvað íslendingar voru í miklum meiri- hluta, eins og reyndar alltaf, en það komu heldur fleiri íslending- ar en hafa gert hingað til,“ sagði Hafdís ennfremur. Hafdís giskaði á að ferðamenn í júlí, sem væri yfirleitt besti mánuðurinn, yrðu um 2.000 fleiri en í júlí í fyrra og greinilegt að staðurinn nýtur stöðugt vaxandi vinsælda. Það eru kannski ekki allir sem vita að landverðirnir í Ásbyrgi bjóða upp á fjölbreytta dagskrá fyrir gesti. Til að mynda eru farn- ar gönguferðir af ýmsu tagi og fyrir börnin eru sérstakar barna- stundir og sagði Hafdís að þessi þjónusta væri mikið notuð og almenn ánægja með hana. -vs Netadeilur í Miðfirði: Venjulegt silunganet heldur ekki sel „Maður furðar sig á því að ver- ið sé að standa í svona löguðu að næturlagi, í stað þess að hafa samband við eigendur neta sem eitthvað er athuga- vert við og þeim gefinn kostur á að laga sína netalögn. Við teljum einnig vafasamt að reglugerðin, sem þetta er framkvæmt eftir standist lög, því að hún takmarkar það mik- ið veiði á silungi í sjó að segja má að um ákveðna upptöku á eignarétti sé að ræða, sem jarðirnar hafa haft um langan tíma,“ segir Þórður Skúlason, sveitarstjóri á Hvammstanga um netadeilur þær sem nú - segir veiðieftirlitsmaðurinn standa yfir í Miðfirði. Eins og Dagur greindi frá sl. laugardag voru fyrir helgi tekin 13 net í vörslu lögreglunnar í Húnavatnssýslum, sem að mati Eiríks Helgasonar, veiðieftirlits- manns í Miðfirði, stóðust ekki reglur þær sem krafist er að sé framfylgt í sambandi við neta- lagnir í sjó. Ekki eru allir sáttir við þessar aðgerðir og er búið að leggja fram eina kæru á hendur Eiríki fyrir stuld á netunum sem hann tók upp að viðstöddum lög- reglumanni og votti. Þegar Dagur hafði samband við viðkomandi lögreglumann og innti hann eftir því hvort hann hefði séð eitthvað ólöglegt við þessa framkvæmd veiðieftirlits- mannsins, sagði hann að sam- kvæmt erindisbréfi bæri veiði- eftirlitsmanni skylda til að fylgj- ast með netalögnum út með Vatnsnesi. Hann hefði verið sendur til að fylgjast með þessu eftir að Eiríkur hefði haft sam- band við lögregluna á Blönduósi og tilkynnt um netaathugunina eins og segir í erindisbréfinu að veiðieftirlitsmaður eigi að gera. Að sögn lögreglumannsins voru netin öll mæld og skoðuð í sam- ræmi við reglugerðina sem gefin var út í maí á þessu ári og þau sem ekki stóðust þessa athugun Húsavík: Kaupir Höfði hf. Hafþór RE? - Lengi staðið til að selja Júlíus Havsteen PH-1 Togarinn Hafþór RE-40, eign Hafrannsóknastofnunar, sem undanfarin ár hefur verið leigður Útgerð Hafþórs h.f. á ísafirði aðallega til rækjuveiða Austurdalur í Skagafirði: Banaslys við heyskap Banaslys varð síðdegis sl. sunnudag á bænum Bústöðum í Austurdal í Skagafirði þegar 5 ára drengur lenti í drifskafti milli dráttarvélar og heybagga- vélar og lést samstundis. Heyskapur stóð yfir á Bústöð- um þegar þetta hörmulega slys átti sér stað. Börn voru að leik í kringum heybaggavélina, sem var kyrrstæð á meðan verið var að hreinsa bagga aftan úr henni, og fór drengurinn þá á milli vél- anna með fyrrgreindum afleiðingum. Drengurinn, sem var gestkom- andi á bænum, var frá Sauðár- króki. Ekki er hægt að greina frá nafni hans að svo stöddu. -bjb er nú til sölu. Þetta skip var um tíma varðskip, og kom mjög við sögu í síöustu „styrjöld“ íslendinga og Breta. Fiskveiðikvóti skipsins er 600 tonn af rækju og 160 tonn af þorski, en rekstur skipsins stend- ur eðlilega ekki undir sér með þeim kvóta einum saman, en með úreldingu eða sölu á öðru skipi án kvóta eða tilfærslu á kvóta frá öðru skipi gæti kvóta- staða Hafþórs orðið viðráðanleg. Skipið er nýkomið úr svokall- aðri 16 ára klössun, þannig að ástand skipsins er eins gott og aldur þess gefur tilefni til, enda hafa fjölmargir leitað til Sjávar- útvegsráðuneytisins um upplýs- ingar um skipið en ráðuneytið sér um sölu þess. Það virðist því á þessu stigi ekki spurningin, hvort skipið verði selt, heldur hverjum. Fyrirspurnir hafa komið úr öll- um landsfjórðungum, og m.a. hefur það komið til tals hjá útgerð togarans Júlíusar Hav- steen ÞH-1 frá Húsavík, en tals- maður útgerðarinnar sagði málið ekki á því stigi að neinnar ákvörðunar væri að vænta á næst- unni þó vissulega væri þetta fýsi- legur kostur svona í fljóti bragði, en umræður hefðu lengi verið í gangi um að skipta á skipi. Ljóst er þó að ekki yrði hægt að gera Hafþór út án þess að selja Júlíus Havsteen kvótalausan. Júlíus Havsteen er 285 brl. smíðaður á Akranesi 1976 en Hafþór er 793 brl. smíðaður í Póllandi 1974. Kvóti Júlíusar Havsteen er nálægt 1.400 tonn af þorskígildi og 150 tonn af rækju. GG tók hann með sér yfir á Blöndu- ós. Pórður Skúlason segist standa með sínum mönnum í þessu máli. Hann segist hafa gefið þeim, sem eftir því sóttu, leyfi til að leggja net í landi Hvamms- tanga. Bærinn hefði sjálfkrafa fengið hlunnindi jarðanna Kirkjuhvamms og Syðsta- Hvamms þegar hann byggðist á þeirra landi, þar á meðal silungs- veiðiréttinn. „Maður getur látið sér detta það í hug að þessar aðgerðir, sem beinast að silungs- veiði við ströndina hér, séu ákveðinn liður í því að hrifsa þennan rétt af mönnum. Ég held að það sé einmitt sérstaklega mikilvægt að íbúar sjávarplássa hringinn í kringum landið, haldi þessum rétti sem gengið hefur kynslóð fram af kynslóð," sagði Þórður. Veiðieftirlitsmaðurinn, Eirík- ur Helgason, er skipaður af land- búnaðarráðuneytinu og segist vinna eftir lögum um lax- og sil- ungsveiði frá 1970 og reglugerð frá því í vor um þessi mál. „Eitt af mínum verkefnum er að fylgj- ast með netaveiði í sjó og í erind- isbréfi frá veiðimálastjóra er vitn- að í lög sem heitnila veiðieftirlits- manni að haldleggja ólögleg net og um slíkt var einmitt að ræða í þessu tilviki. Ég fer síðan fram á opinbera rannsókn á því hverjir eigi netin sem ómerkt voru, en það voru ekki heldur nærri því öll netin venjuleg ómerkt silunganet. Innan um voru net sem eru fullkomlega ólögleg burtséð frá því hvort þau eru merkt eða ekki. Því til staðfest- ingar þá heldur ekki venjulegt silunganet sel, eins og var dauður í einu netanna,“ sagði Eiríkur við Dag í gær. Málið er nú í hönd- um lögreglunnar og m.a. mun Tumi Tómasson koma frá Veiði- málastofnun og skoða netin ítar- lega. SBG LACOSTE Peysur • Bolir 4\ JW HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Akureyri: Margt um manninn á tjaldsvæðum bæjarins - erlendir ferðamenn í miklum meirihluta Gífurlegur fjöldi ferðamanna hefur dvalið á tjaldsvæðum á Akureyri undanfarnar vikur, og gista hundruðir manna í tjöldunum nótt eftir nótt. Er- lendir ferðamenn eru þar í miklum meirihluta, þótt Islendingar séu einnig margir. Aðfaranótt föstudagsins 27. júlí voru sex hundruð og sextíu manns í tjöldum á taldsvæðinu. í byrjun síðustu viku var ekki svo Ásbyrgi: Mikil aukning ferðamanna margt um manninn, en um þar- liðna helgi voru flestir gestir á laugardagsnóttina, tæplega sjö hundruð manns. Aðfaranótt sl. laugardags voru þrjú hundruð og fjórtán skráðir á tjaldsvæðunum, þar af hundrað áttatíu og tveir Islendingar, en vegna rigningar og kólnandi veðurs um helgina slógu færri upp tjöldum en dag- ana á undan. Ferðafólk hefur streymt til bæjarins víða af landinu í sumar, og telja margir að um merkjan- lega aukningu ferðamanna- straums til Akureyrar sé að ræða frá fyrri árum. Margir nota tæki- færið til að slá upp tjaldi á Akur- eyri, því ekki gista allir á hótel- um. Fjölbreytt strandlíf í Hrísey. Mynd: KL

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.