Dagur - 31.07.1990, Side 4

Dagur - 31.07.1990, Side 4
a „ ai in An nnoi- '.i 4 - DAGUR - Þriöjudagur 31. júlí 1990 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRfMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SIMFAX: 96-27639 „Ódýrasti“ kosturinn í álversmálinu Friðrik Sophusson, alþingismaður, ritaði kjallaragrein sem birtist í DV á föstudaginn undir fyrirsögninni „Klúður í stóriðjumálum. “ Þar rekur hann gang álvið- ræðna undanfarin þrjú ár frá sínu sjónarhorni, en stór hluti greinarinnar eru skammir út í ráðherra ríkis- stjórnar Steingríms Hermannsonar. Niðurstaða Frið- riks er sú að ráðherrarnir hafi veikt samningsstöðu íslendinga gagnvart erlendu samningsaðilunum, og að þannig hafi verið haldið á málinu að togstreita sé komin upp milli landshluta í kapphlaupinu um nýtt álver. Rauði þráðurinn hjá Friðriki Sophussyni er sá að ekkert vit sé í öðru en að staðsetja nýtt álver á suð- vesturhorni landsins. Röksemdafærsla hans er á þessa leið: Atlantalverkefnið var upprunalega miðað við nýtt álver í Straumsvík, en val þess staðar hafi byggst á því að álitið var að fjárfesting sparaðist í aðstöðu sem þegar var fyrir hendi, s.s. hafnaraðstöðu, uppskipunartækjum, geymslutönkum o.s.frv., enda hafi Alusuisse boðið upp á slíka samnýtingu. Um Atlantalverkefnið segir Friðrik: „Þegar lagt var af stað með þetta verkefni var litið á álverið sem landsmál en ekki byggðamál, enda stóð valið um atvinnufyrirtæki fyrir íslendinga eða hvort álfyrirtækin byggðu annars staðar og nýttu erlenda orku og vinnu- afl. “ Friðrik segir síðan frá því að á síðasta ári hafi tvö álfyrirtæki hætt könnunarviðræðum í Atlantalhópn- um, en Alumax komið inn í þær. Eftir að Alumax gerð- ist aðili að viðræðnunum hafi orðið ljóst að áhuginn beindist að annarri staðsetningu en Straumsvík, þótt viðurkennt væri að að sú staðsetning væri „ódýrasti" kosturinn. Þetta hafi gerst fyrir tilstilli iðnaðarráð- herra, sem hafi lagt til að ný staðsetning yrði valin. Einstakir ráðherrar hafi komið málum svo fyrir að er- lendir viðsemjendur telji sig geta „fengið nokkra milljarða í meðgjöf ef staðarvalið verður að ósk ráð- herranna,“ í formi skattaívilnana og lægra orkuverðs, ef nýju álveri verði valinn staður utan suðvesturhorns- ins. Rúsínan í pylsuendanum er svo þessi setning: „Það stóra álver sem nú er verið að semja um, fer að- eins á einn stað á landinu og verður því engin allsherj- arlausn á byggðaþróunarvanda þjóðarinnar. Aðrir staðir verða jafnilla settir og áður. “ Hér sjá menn svart á hvítu það sem marga hefur grunað um afstöðu þungavigtarmanna Sjálfstæðis- flokksins í þessu máli. Friðrik Sophusson segir að nýtt álver sé landsmál en ekki byggðamál. Hvernig er hægt að tala um landsmál og byggðamál sem aðskilda málaflokka? Hann segir réttilega að álverið geti að- eins farið á einn stað á landinu, en bætir líka við að staðarvalið verði engin allsherjarlausn á byggðavand- anum, því aðrir staðir verði jafnilla settir og áður. Er atvinnumálum á suðvesturhorni landsins svo illa kom- ið að réttlætanlegt sé að láta byggðir landsins sporð- reisast, með hörmulegum afleiðingum fyrir landsbyggð- ina og ekki síður alvarlegum vandamálum fyrir höfuð- borgarsvæðið? Nei, landsbyggðarmenn geta ekki sætt sig við rök af þessu tagi. Niðurstaða Friðriks Sophus- sonar er ákaflega „ódýr," svo ekki sé meira sagt. EHB lesendahornið Svar við skrifum Sigurðar Gunnarssonar læknis um málefni Heilsugæslunnar á Þórshöfn: Ska.inina.stu þín Sigurður! Það er afar leitt að þurfa að launa þér dvöl þína hjá okkur á Þórs- höfn með skammargrein í dag- blaði, en sú er engu að síður raunin. En nú átt þú að skammast þín Sigurður! Það er í fyrsta lagi skammar- legt að jafn greindur maður og þú, Sigurður, skulir ekki geta skrifað skiljanlega greinargerð um ráðningu og störf hjúkrunar- fólks á Þórshöfn, þannig að sak- lausir lesendur séu einhverju nær um málið. Þess í stað kemur þú með ruglingslega og samhengis- lausa grein um mál sem eðlilegt hefði verið að kynna sér áður en skrifin hófust. í öðru lagi er skammarlegt og ámælisvert að læknir skuli fjalla opinberlega um málefni ein- stakra hjúkrunarþega, a.m.k. án samþykkis þeirra. í þriðja lagi er skammarlegt og vítavert að þú skulir leyfa þér að ráða starfsfélögum þínum frá störfum við Heilsugæslustöðina á Þórshöfn. Slíkt gæti í einhverjum tilfellum kallast atvinnurógur. í greininni, sem þú af óskiljan- legum ástæðum stílar á Ölaf Oddsson héraðslækni, er greint frá þeim launum og hlunnindum sem ónafngreindur sjúkraliði naut við störf sín hjá Heilsu- gæslustöð Þórshafnar. Til glöggv- unar fyrir þig og lesendur greiddi ríkið launin en Þórshafnarhrepp- ur greiddi hlunnindin. Þrátt fyrir að ríkinu beri að greiða allan reksturskostnað heilsugæslu- stöðva frá síðustu áramótum. Hvort sem sjúkraliðinn naut sanngjarnra kjara eða ekki, er eitt víst: Vegna ríkjandi neyðar við starfsmannahald í Heilsu- gæslustöðinni á Þórshöfn hefur sveitarfélagið yfirborgað stöður þrátt fyrir að ríkinu beri að ann- ast allar laungreiðslur. Hefði þetta ekki verið gert má ætla að Heilsugæslustöðin hefði verið óstarfhæf mánuðum saman vegna starfsmannaskorts. Að lokum þetta: Hvers vegna komst þú ekki hreint fram við okkur og ræddir af hreinskilni einkahagi ykkar beggja og barnsins ykkar í stað þess að spilla öllum möguleikum til lausna með blaðaskrifum? Ég held að þú, Sigurður minn, ættir að hætta annars flokks skrif- um á borð við greinarstúfinn í Degi 4. júlí sl. og leggja okkur þess í stað lið í baráttunni fyrir bættri heilsugæslu á Þórshöfn og nágrenni. Fyrir hönd íbúa í umdæmi Heilsugæslustöðvarinnar á Þórs- höfn leyfi ég mér að þakka Sig- urði Gunnarssyni og sjúkraliðan- um fyrir þeirra störf í þágu byggðarlagsins. Þórshöfn 25. júlí 1990, Daníel Árnason, sveitarstjóri. Kaupmaðurinn og eggin - athugasemd frá Kaupmannafélagi Akureyrar Vegna fréttar frá Neytendafélagi Akureyrar og nágrennis 25. þ.m. og túlkun fjölmiðla á efni hennar, telur Kaupmannafélagið óvægilega vegið að smásöluversl- uninni. Kaupmannafélag Akur- eyrar telur að nokkurs misskiln- ings gæti í ofangreindri umfjöll- un. í fyrsta lagi er ekki í gildi reglugerð um að það beri að geyma egg í kæli í verslunum. Að meðaltali stoppa egg aðeins þrjá til fjóra daga í verslunum og er því geymslutími verslana mjög skammur. Talið er að geymsluþol eggja í stofuhita sé 1 mánuöur. Væri það tilskilið að egg verði geymd í kæli í verslunum, myndi verð þeirra hækka til muna. í öðru lagi má benda á að ekki er heldur skylt að merkja egg með síðsta söludegi. Kaupmenn kaupa egg sem aðrar vörur frá framleiðendum eða umboðs- mönnum þeirra og er það því í þeirra verkahring að sjá um að uppfylla ákvæði um þær merking- ar sem tilskilið er. Kaupmannafélag Akureyrar hefur ávallt kappkostað að eiga gott samstarf við Neytendafélag Akureyrar og nágrennis og telur því að þessi málsmeðferð sé ekki í anda þess góða samstarfs. Kaupmannafélagið telur eðli- legra að kaupmenn, forsvars- menn neytenda ásamt fulltrúa Heilbrigðiseftirlits ræddu saman þau mál sem kunna að fara úrskeiðis í dreifingu matvæla í stað þess að slá þeim upp í „æsi- fréttastíl. “ Orðsending til kaupmanna á Akureyri: Gætíð betur að eggjimum Unnur Þorsteinsdóttir hringdi: „Ég vil taka undir það sem kemur fram í grein Vilhjálms Inga í Degi sl. miðvikudag. Það er ekki orðið hægt að kaupa egg á Akureyri vegna þess að þau eru meira og minna skemmd. Ég versla nánast eingöngu í Hrísa- lundi og mér finnst þetta ekki nógu gott ástand. Kaupmenn geyma eggin ekki almennt í kæli, þau standa yfir- leitt út á miðju gólfi. Þær skemmdir sem ég verð mest vör við er að skurnin er farin að gefa sig og rauðan er sigin ofan í botn- inn og situr þar föst. Það er ein- læg ósk mín til kaupmanna að þeir gæti betur að því hvað þeir eru að gera, því egg eru vand- >meðfarin.“ Burt með óhræsis grjótgarðinn Sundáhugamaður hafði sam- band: í gær fundust tveir ungar fastir í þessum óhræsis grjótgarði sem hlaðinn hefur verið upp kringum andapollinn. Við viljum beina þeirri eindregnu ósk til Umhverf- isdeildar bæjarins að garður þessi verði fluttur á braut svo fleiri ungar láti ekki lífið af manna- völdum. Nóg er samt að vargur- inn fækki þeim þó mannskepnan taki ekki þátt í þeim ljóta leik viljandi. Verðnr Vegagerðin með fyrirbyggjandi aðgerðir? Móðir hringdi: í vetur lá við að illa færi, er bifreið rann út af veginum við aðkeyrslu á brú yfir Svarfaðar- dalsá nærri bænum Búrfelli. í hálkunni var ekkert sem stöðvað gat bifreiðina í beygju sem er að brúnni. Mesta mildi var að ekki varð þarna neitt slys, en mig langar að vita hvort Vegagerðin verði þarna með einhverjar fyrir- byggjandi aðgerðir. Guðmundur Svafarsson um- dæmisverkfræðingur: Aðkeyrsla að þessari brú hefur verið skoðuð, en í fljótu bragði virðist hún ekki flokkast undir forgangsverkefni. Hún flytur auk þess mjög litla umferð, eða að- Kona á Brekkunni hafði samband: „Ég vil koma því á framfæri við kattaeigendur að þeir eigi ekki að láta dýrin ganga laus hér í bænum. Ég fór út í sandkassa Ieins að þremur bæjum, en senni- lega verða settir þarna leiðarar þegar fjárveiting fæst til verksins, sem ekki er á dagskrá í dag. með barnið mit. um daginn og þá voru kettir búnir að skíta í sandinn. Það er alltof mikið af köttum í bænum. Geta kattaeig- endur ekki haft ketti sína í bandi eða ól, eins og eigendur hunda gera?“ Kettir gera þarfir sínar

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.