Dagur - 31.07.1990, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 31. júlí 1990 - DAGUR - 5
Fjölskyldudagur Pórs ’90:
Hinir jjölmörgu þátttakendur
skemmtu sér hið besta
íþróttafélagið Þór hélt heljar-
mikla fjölskylduskemmtun á
félagssvæði sínu við Glerár-
skóla s.I. laugardag. Þar voru
saman komnir Þórsarar á öll-
um aldri. svo og aðrir velunnar
félagsins. Yeðrið lék við þátt-
takendur skemmtunarinnar,
sem tókst í alla staði mjög vel.
Dagurinn bar yfirskriftina;
Fjölskyldudagur Þórs ’90 og var
boðið upp á ýmislegt til skemmt-
unar. Má þar nefna reiðhjóla-
þrautir, þrautaboðhlaup, skóflu-
boðhlaup, skallablak og tröllafót-
bolta, þar sem leikið var með
risastóran bolta.
Inn í skemmtunina fléttaðist
leikur Þórs og Fram í undanúr-
slitum 2. flokks í bikarkeppni
KSÍ og urðu úrslit leiksins ekki
nógu góð fyrir Þórsara. En nánar
um það á íþróttasjðu.
Á svæðinu var selt gos og sæl-
gæti, grillaðar pylsur, kaffi og
vöfflur og kunnu gestir vel að
meta það. Þá afhenti Guðmund-
ur Svansson starfsmaður Sport-
búðarinnar í Strandgötu, leik-
mönnum 6. flokks A og B viður-
kenningar frá búðinni, boli og
sokka, fyrir frábæran árangur í
sumar. En eins og kunnugt er sigr-
aði 6. flokkur A í sínum flokki í
Pollamóti KSÍ og Eimskips fyrir
skömmu og 6. flokkur B sigraði í
sínum flokki á Tommamótinu í
Eyjum nýlega og hafnaði í 4. sæti
á Pollamótinu.
Aðstandendur skemmtunar-
innar voru að vonum ánægðir í
lokin, enda mættu hinir fjöl-
mörgu þátttakendur með já-
kvæðu hugarfari á svæðið og voru
greinilega staðráðnir í því
skemmta sér og öðrum vel á þess-
um degi. - Og þar voru þeir eldri
engin undantekning. -KK
Sigurvegararnir í rciptuginu fagna sigri, eftir að hafa dregið andstæðinga
sína yfir miðjulínuna á knattspyrnuveilinum.
Fjölmargir Þórsarar og aðrir vclunnarar félagsins tóku þátt í fjöiskyldudeg-
inum sem heppnaðist í alla staði mjög vel.
Strákarnir í 6. flokki A, fengu boli að gjöf frá Sportbúðinni Strandgötu, fyrir góðan árangur á knattspyrnuvellinum
í sumar. Strákarnir í 6. flokki B hafa einnig staðið sig mjög vel og þeir fengu sokka að gjöf frá búðinni. Þá má ekki
gleyma þætti þjálfaranna, þeirra Jónasar Róbertssonar og Gísla Bjarnasonar. Það var Guðmundur Svansson starfs-
maður Sportbúðarinnar sem færði knattspyrnuhetjunum gjafirnar.
Liðin tvö sem þátt tóku í tröllaknattspyrnuleiknum. Rétt er að taka fram að nafnið er dregið af stærð knattarins en
ekki leikmanna. Liðið í aftari röð sigraði mjög örugglega 2:0. Nói Björnsson hinn röggsami dómari leiksins situr á
boltanum sem leikið var með.
Þórunn Sigurðardóttir á fullri ferð í skófluhlaupinu. Eitthvað var stefnan hjá
henni í ólagi og átti Ijósmyndarinn fótum fjör að launa. Myndin kk
Tónleikar á Akureyri og í Aðaldal:
Iistamenn frá Þýskalandi og íslandi
Margrét Bóasdóttir sópran,
þýsku hjónin Beate Echtler-
Kaller messosópran og Step-
han Kaller píanóleikari halda
tvenna tónleika á Noröurlandi
nú í vikunni. Fyrri tónleikarnir
veröa í sal Tónlistarskólans á
Akureyri og hefjast kl. 20.30,
miðvikudaginn 1. ágúst. Síðari
tónleikarnir veröa að Ýdölum í
Aðaldal fimmtudaginn 2. ágúst
og hefjast kl. 21.
í maí sl. hélt listafólkið tón-
leika í nokkrum borgum Vestur-
Þýskalands og mun það flytja að
mestu leyti sömu efnisskrá á
fyrirhuguðum tónleikum. Á
efnisskránni eru íslensk sönglög,
m.a. eftir Pál H. Jónsson og
Eyþór Stefánsson, ljóð eftir
norsk, þýsk og spönsk tónskáld
og einnig dúettar.
Síðustu árin sem Margrét bjó í
Þýskalandi voru þau Stephan
samkennarar en þá var Beate enn
við söngnám. IM