Dagur - 31.07.1990, Side 7
Þ-yfÖ'júdkö U f '3 -T! 'íötf ’
Bikarkeppni FRÍ:
Átta Eyjafjarðarmet féllu í Mosfellsbæ
- UMSE í 4. sæti í 1. deild - UMSS í 2. deild
Birgitta Guðjónsdóttir setti Eyjafjarðarmet í spjótkasti.
Bikarkeppni Frjálsíþrótta-
sambands Islands fór fram um
helgina. Keppt var í þremur
deildum á þremur stöðum á
landinu, 1. deild í Mosfellsbæ,
2. deild í Aðaldal og 3. deild í
Borgarnesi. HSK varð Bikar-
meistari í fyrsta sinn, KR sigr-
aði í 2. deild og UMSB í þriðju
deild. Árangur norðlensku
lelaganna var þokkalegur og
bar þar hæst árangur UMSE
sem varð í 4. sæti í 1. deildinni.
1. deild
Átta Eyjafjarðarmet féllu í
keppninni í 1. deild í Mosfellsbæ.
Snjólaug Vilhelmsdóttir setti met
í 200 m hlaupi á 25,43 sek., Birg-
itta Guðjónsdóttir í spjótkasti,
45,48 m, Sigurður Matthíasson í
kúluvarpi, 15,17 m, Rögnvaldur
Ingþórsson í 3000 m hindrunar-
hlaupi, 9.26,8 mín. en það verður
að teljast mjög góður árangur hjá
Rögnvaldi sem keppti í þessari
grein í fyrsta sinn. Pá settu karla-
og kvennasveitir UMSE met í
öllum boðhlaupunum.
Árangur UMSE getur ekki
annað en talist góður en félagið
kom upp úr 2. deild í fyrra. Skag-
firðingar máttu bíta í það súra
epli að falla í 2. deild en þeir
hlutu 68 stig, eins og UMSK sem
féll einnig. Er það athyglisverð
útkoma hjá félaginu sem varð
sigurvegari á Landsmótinu sem
fram fór fyrir skömmu.
Engin Islandsmet voru sett á
mótinu í Mosfellsbæ en árangur
var þó nokkuð góður í flestum
greinum og hjálpaðist þar að gott
veður og frábærar aðstæður.
Lokastaðan í 1. deildinni varð
sú að HSK hlaut 154 stig, FH
143, ÍR 142, UMSE 128 og
UMSS og UMSK 68 stig hvort.
NM drengjalandsliða:
Guömundur búinn að
leika mjög vel
- yfirburðamaður á vellinum
gegn Englandi
íslendingar byrjuðu Norður-
landamót drengjalandsliða í
knattspyrnu, sem fram fer í
Finnlandi, á tveimur ósigr-
um. Liðið tapaði 0:4 fyrir
Englandi á laugardaginn og
1:2 fyrir Finnum á sunnudag-
inn. Þórsarinn Guðmundur
Benediktsson hefur verið
besti maður íslenska liðsins
og vakið mikla athygli.
Englendingar voru mun
sterkari í leiknum á laugardag-
inn en þó vakti Guðmúndur
mikla athygli og var sagður yfir-
burðamaður á vellinum. Hann
átti einnig mjög góðan dag gegn
Finnum og fiskaði þá víta-
spyrnu sem Pálmi Haraldsson
skoraði úr. Pálmi hefur einnig
leikið rnjög vel í leikjunum
tveimur.
3. deild
3. deildin fór fram í Borgarnesi
og þar keppti Ungmennafélag
Akureyrar. Félagið hafnaði í 3.
sæti og er það ágætur árangur hjá
þessu unga félagi. Jón Stefánsson
sigraði í 5000 m hlaupinu og Cees
Van de Ven vann 110 m grinda-
hlaup og varð annar í langstökki.
Pá varð formaðurinn, Sigurður
P. Sigmundsson annar í 1500 m
hlaupi.
Mynd: KL
2. deild
Keppni í 2. deild fór fram á nýj-
um velli að Hafralæk í Aðaldal.
KR-ingar urðu hlutskarpastir,
hlutu 154 stig og fara upp í 1.
deild ásamt Armanni sem hlaut
143 stig. USAH hlaut 132 stig,
HSP 119, HSH 99 og UÍA 60.
Tvö síðastnefndu félögin falla í 3.
deild.
Á mótinu í Aðaldal bar helst
til tíðinda að Sigurður Einarsson
sigraði Einar Vilhjálmsson í
spjótkastinu. Sigurður kastaði
75,72 m en Einar aðeins 71,36 m.
Daníel Guðmundsson, USAH,
sigraði í öllum lengri hlaupunum
fjórum í karlaflokki og Helga
Halldórsdóttir vann öll hlaupin
sem hún tók þátt í.
Meiðsli hrjáði öll félögin í 2.
deildinni, sérstaklega USAH og
HSH.
Keppt var á nýjum velli í Aðal-
dalnum og voru allir ánægðir
með framkvæmdina. Verður að
teljast gott framtak hjá svo litlu
sveitarfélagi að byggja völl af
þessu tagi.
Keppendur í kvennaflokki frá
UFA eru mjög ungir að árum og
lofar árangur þeirra góðu.Máþar
t.d. benda á Elísabetu Jónsdóttur
sem varð í þriðja sæti í 100 m
grindahlaupi á 17,5 sek sem er
ágætur árangur þegar haft er í
huga að hún er aðeins 15 ára.
Lokastaðan í 3. deildinni varð
sú að UMSB hlaut 99 stig, UDN
89,5, UFA 71,5, UMFK 68 og
USVS 48.
Siguröur P. Sigmundsson forinaður UFA, varð 2. í 1500 m hlaupi í Borgar-
nesi. Félagi hans náði 3. sæti sem er ágætur árangur. Mynd. Ki.
Bikarkeppni kvenna:
KA úr leik eftir tap gegn IA
ÍA sigraði KA 2:1 í undanúr-
slitum Bikarkeppni kvenna í
knattspyrnu á Menntaskóla-
vellinum á Akureyri á laugar-
daginn. ÍA-Iiðið var betri aðil-
inn í fyrri hálfleik og skoraði
þá tvívegis en KA-Iiðið hafði
yfirhöndina í þeim seinni án
þess að ná að jafna metin.
Skagaliðið var öllu- fljótara í
gang og náði forystunni strax á 3.
mínútu með marki Júlíu Sigur-
steinsdóttur. Karítas Jónsdóttir
bætti síðan öðru marki við og
staðan í hléi var 2:0.
í seinni hálfleik tók KA-liðið
við sér og minnkaði Hjördís
Ulfarsdóttir þá ntuninn með
glæsilegu marki beint úr auka-
spyrnu. Hún skaut af 35 metra
færi og hafnaði boltinn efst í
markhorninu. Skömmu síðar
vildi KA-liðið fá víti þegar bolt-
inn fór í hönd eins varnarmanns
ÍA en dómarinn var ekki sam-
rnála og lét leikinn halda áfram.
Úrslitin því 2:1 fyrir ÍA en
miðað við gang leiksins og mark-
tækifæri hefði sigurinn getað lent
hvoru megin sem var.