Dagur - 31.07.1990, Page 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 31. júlí 1990
hér & þar
-------------------------------------------N
•• AKUREYRARB/ER ||f~~
Akureyrarbær - Öldrunarþjónusta
Forstöðumaður
sambýli fyrir aldraða
Öldrunardeild Akureyrarbæjar auglýsir hér með
til umsóknar nýja stöðu forstöðumanns í sambýli
fyrir aldraða, sem tekur til starfa á komandi
hausti. Sambýlið verður rekið af Öldrunarþjón-
ustu Akureyrarbæjar og geta búið þar 8-9 manns.
Við leitum að einstaklingi sem getur stjórnað
stóru heimili og hefur frumkvæði og hugmynda-
auðgi til að vinna að mótun starfsins frá upphafi.
Hér er um starf fyrir fólk og með fólki að ræða. Því
þarf væntanlegur starfsmaður að vera gefandi og
eiga létt með samstarf við aðra.
Upplýsingar um starfið gefur deildarstjóri Öldrun-
ardeildar Akureyrarbæjar á skrifstofu sinni í Hlíð,
sími 27930.
Upplýsingar um launakjörgefurstarfsmannastjóri
Akureyrarbæjar.
Umsóknareyðublöð fást einnig hjá honum.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk.
Deildarstjóri.
Átak Slysavamafélagsins:
Pabbi kemur
í loftköstum
Slysvamafélag íslandsér
með sérstakt átak í gangi í sum-
ar. Þetta er gert til að vara fólk
við hættum sem geta fylgt
ferðalögum innanlands. Átakið
hefur fengið nafnið „Komum
heil heim".
Eklurinn gýs upp og breiðist út á svipstundu um tjaldið. Pabbi kcmur i loftköstum og bjargor straknum á
siðustu stundu.
Tjaldlð brennur til kaldra kola og atlt sem I þvl er Ferðln verður öðruvisl en SPtlað var Þetta hefðl gelað
farlð enn verr. Förum gætliega með eld Gastækl eru hættuleg og tjöld og vlðlegubunaður eru buln til ur
eldflmum efnum örlitll gætnl getur skipt sköpum og skllið mllli lils og dauða
í
Stundar íþróttir - fótalaus!
Mörgu fólki reynist það nógu erf-
itt að hlaupa, skokka eða stunda
aðra líkamsrækt með alla útlimi í
lagi. En Roger Charter frá
Nebraska lætur sh'kt ekki aftra
sér frá því að hlaupa, spila golf
eða stunda glímu - og það fóta-
laus!
Roger er sá fyrsti sem misst
hefur báða fætur ofan við hné en
komist upp á lag með það að
hlaupa á gervifótum. Roger sem
er 34 ára gamall missti báða fætur
í alvarlegu slysi 1973 er hann
varð fyrir vöruflutningabíl sem
nánast klippti af honum báða fæt-
urna ofan við hné. Hann var þá
að undirbúa sig undir nám við
íþróttaháskóla svo slysið var
þeim mun meira áfall.
„Ég er alinn upp á kristnu
heimili, en þegar læknarnir sögðu
mér að ég mundi missa báða fæt-
urna, fannst mér jafnvel að Guð
hefði yfirgefið mig. Og þegar ég
vaknaði eftir aðgerðina fótalaus
fannst mér lífið ekki þess virði að
lifa því, og ég vonaði að ég
mundi deyja.“ Ifyrstu fékk hann
gervifætur úr tré, en það var eins
og martröð að nota þá því hvor
þeirra var um 8 kg að þyngd. Þá
fékk hann gervifætur frá Okla-
homa sem eru úr mjög léttu efni
og starfa nánast eins og venjuleg-
ir fætur, og það nánast gjörbylti
allri hans framtíð.
í dag starfar hann sent af-
greiðslustjóri hjá járnbrautafyrir-
tæki, en utan vinnu snýst lífið í
dag mikið kringum íþróttir því
hann þjálfar unglinga í fótbolta
og fjölbragðaglímu. Einnig
hleypur hann um 200 metra á
dag, spilar golf, og hefur mjög
gaman af því að dansa.
„Líf mitt líkist nú eins lífi
ófatlaðra og mögulegt er. Þegar
fólk sér mig úti á götu, þá trúir
það því varla að ég gangi á gervi-
fótunr. Mér finnst ég geta gert
hvaðeina sem hugurinn stendur
til,“ segir Rpger Charter.
Hélt strætisvagni í jaftivægi
með Hkamanum
- bjargaði lífi 9 samferðarmanna
í 40 mínútur héngu 10 strætis-
vagnafarþegar í borginni Cape
Town í Suður-Afríku milli lífs og
dauða nánast í þess orðs fyllstu
merkingu er vagninn sem þeir
voru í ók út af á brú og hékk í
handriðinu.
Er strætisvagninn sem var að
koma úr miðborg Cape Town
árla morguns með 10 farþega fór
út á brúna lenti hann í olíupolli
með þeim afleiðingum að hann
lenti út af en festist í handriðinu.
Um 40 metrum undir brúnni ligg-
ur fjölfarin hraðbraut og hefði
vagninn fallið niður hefði ekki
þurft að spyrja að leikslokum fyr-
ir farþegana og ef til vill fjölda
fólks sem, leið átti um hraðbraut-
ina á þessum tíma.
Einn af farþegunum var Cat-
herine Nefdt sem sagðist hafa
dottið úr sæti sínu við árekstur-
inn við brúarhandriðið og oltið
fram á milli sætanna, en við það
hefði hún fengið svo þungt högg
fyrir brjóstið að fyrst í stað hefði
hún ekki náð andanum. „Fyrst í
stað ríkti dauðaþögn í vagnin-
um“ segir Catherine, „en síðan
komst ekkert annað að en kom-
ast út úr vagninum, en þegar ég
reyndi að færa mig valt vagninn
eins og bátur í stórsjó. Ég leit út
og æpti upp af skelfingu er ég sá
að strætisvagninn hékk aðeins í
handriðinu og ef einhver hreyfði
sig værum við öll dauðans
matur.“
Catherine henti sér flatri á gólf-
ið og tókst að halda vagninum í
jafnvægi með líkamsþyngd sinni
einni saman, en aðrir farþegar
sátu eða lágu kyrrir. Vegna
mikillar umferðar í morgunsárið
komust björgunarmenn ekki á
staðinn fyrr én eftir 40 mínútur
og gátu fest vagninn og komið
slösuðum á sjúkrahúsið.
En hin hugrakka 57 ára gamla
amma Catherine Nefdt var óvé-
fengjanlega hetja dagsins í Cape
Town þennan föstudagsmorgun.