Dagur - 31.07.1990, Blaðsíða 16

Dagur - 31.07.1990, Blaðsíða 16
Staða sveitarstjóra á Þórshöfn laus til umsóknar: Dauíel Ámason hættir - var boðið að halda áfram Staða sveitarstjóra Þórshafn- arhrepps hefur verið auglýst laus til umsóknar, en Daníel Arnason, ý sem verið hefur sveitarstjóri þar síðustu 4 ár, hefur ákveðið að hætta sem slíkur. í samtali við Dag sagði Daníel að óráðið væri hvað tæki við hjá sér. Eftir kosningarnar í vor var Daníel boðið að halda áfram sem ÚA togarar á veiðar Tveir togarar Útgerðarfélags Akureyringa hf. hafa haldið til veiða frá því á laugardag, en frystihúsið er enn lokað vegna sumarleyfa. Vilhelm Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri ÚA., segir að Kaldbakur hafi farið út á laugar- dag, en Harðbakur fór síðdegis í gær. Næsti togari sem fer til veiða verður Svalbakur, en ekki er víst að allir ÚA. togararnir fari út áður en sumarleyfi lýkur og frystihúsið verður opnað á ný þann 8. ágúst. EHB sveitastjóri á Þórshöfn, en hann ákvað að taka sér umhugsunar- frest. „Ég tók mér umhugsunar- frest fram yfir sumarfrí og síðan tilkynnti ég hreppsnefnd ákvörðun mína fyrir stuttu," sagði Daníel. Daníel sagði að það kæmi í ljós hvort hann myndi flytja burtu til starfa annars staðar. „Þetta hefur verið góður skóli, en ég ætla að hvíla mig á honum. Það er erfitt að slíta sig frá starfinu og ég hætti því með vissri eftirsjá. Starfið hefur veitt mér dýrmæta reynslu, enda nóg að gera, en það liggur ekki fyrir hvað tekur við,“ sagði Daníel að lokum í samtali við blaðið. Umsóknarfrestur um stöðu sveitarstjóra á Þórshöfn rennur út 15. ágúst nk. -bjb Bílaplanið á horni Gránufélagsgötu og Hólabrautar verður nú malbikað, þ.e. að hluta. Mynd: Golli Malbikunarframkvæmdir á bílastæði við Gránufélagsgötu: Bæriirn víU ekkí malbika sinn hluta - framkvæmdin ekki á áætlun Eins og vegfarendur um miðbæ Akureyrar hafa kannski tekið eftir, þá standa yfir framkvæmdir á bflaplan- inu á horni Gránufélagsgötu og Hólabrautar. Plan þetta er mikið notað af þeim sem þurfa að sinna erindum í miðbænum á daginn og af gestum Borgar- bíós á kvöldin. Einhverra hluta Kjalvegur: Lægsta tilboðið helmingur þess hæsta - gengið frá samningum í vikunni Mikill munur var á tilboðunum sem bárust í nýbyggingu Kjal- vegar vegna uppistöðulóns. Vegagerð ríkisins sá um útboð- ið fyrir Landsvirkjun og gerði kostnaðaráætlun upp á 29.170 milljónir króna, en lægsta til- boðið hljóðaði upp á heiming þess hæsta. Svavar Árnason á Selfossi átti það lægsta sem hljóðaði upp á 23.705,000 krónur, eða 81 af hundraði kostnaðaráætlunar. Ólafur Jensson, yfirstaðar- verkfræðingur við Blönduvirkj- un, sagði að ákvörðun yrði vænt- anlega tekin í þessari viku um það hver hlyti verkið og væru þeir nú að búa sig undir að tala við þá tvo sem lægst buðu. Þessi vegur nær frá Kolkustíflu 12.3 km suður Áfangafell og á verkinu að vera lokið þann 15. september næstkomandi. Hann kemur í stað gamla Kjalvegar- hlutans sem hverfur undir vatn uppistöðulónsins. SBG vegna hefur ekki þótt ástæða til að malbika þetta plan þar til nú en eins og myndin sýnir verður aðeins hluti þess mal- bikaður. Sá hluti plansins sem verið er að búa undir malbikun, tilheyrir Herradeild JMJ en afgangurinn heyrir undir Akureyrarbæ. Að sögn Jóns M. Jónssonar, annars eiganda hússins, var ákveðið að ráðast í þessar framkvæmdir, malbika planið, leggja hitalögn undir og ganga vel frá svæðinu. Hann er hins vegar ekki sáttur við að bærinn skuli ekki hafa not- að tækifærið og malbikað sinn hluta í leiðinni. „Við óskuðum eftir því við bæinn að hann gerði þetta líka en fengum þau svör að ekki væru til peningar, þetta væri ekki á áætl- un. Það er kannski ekkert við því að segja en mér finnst þetta samt dálítið skrýtið. Ég trúi því nú ekki að þetta sé afgerandi fé fyrir bæinn,“ sagði Jón í samtali við blaðið. Hann kvaðst hafa ákveðnar efasemdir um hvernig forgangsröð verkefna væri metin hjá bænum. „Gangstéttin norðan Gránufélagsgötu, frá Geislagötu upp að Brekkugötu, er alltaf sama drullumoldin og ekki einu sinni borið ofan í hana. Einnig er stuttur partur, frá Gránufélags- götu 4 upp undir Zion, ófrágeng- inn í gangstétt. Þarna ganga þús- undir um á hverjum degi,“ sagði Jón og benti á staði sem verið væri að gera fína í bænum, sem mun minni umferð væri um. Ekki náðist að hafa tal af for- ráðamönnum Akureyrarbæjar í gær, til að bera málið undir þá. -vs Engar framkvæmdir við Strákagöng í ár: Tilboð Krafttaks 30 millj. of hátt Fimm tilboð bárust í verkið og þar af eitt frávirkt frá Hagvirki sem fól það í sér að hafa veginn breiðari, en ljúka honum ekki fyrr en á næsta ári og verðbæt- ur kæmu á hluta verksins. Hin tilboðin voru: Hagvirki með 46.693,000 krónur, Ellert Skúla- son í Reykjavík 46.152,000 krónur, Króksverk 34.520,000 og Mikill straumur ferðamanna lá í gegnum Húnavatnssýslur um helgina að sögn lögreglunnar á Blönduósi. A sunnudeginum mynduðust heilu bflalestirnar, en inn á milli voru þó eyður sem að menn freistuðust til að kitla pinnann í og varð að hafa afskipti af nokkrum vegna hraðaksturs. Á sunnudagskvöld varð umferðaróhapp á afleggjaranum út á Hvammstanga þegar öku- A fundi Vegagerðar ríkisins í gær með fulltrúum Krafttaks hf. var ákveðið að fresta fram- maður sofnaði undir stýri og lenti út af veginum. Tvennt var í bíln- um og þurfti að flytja konuna til Reykjavíkur með tvíbrotinn fót. Á Sauðárkróki var töluverð ölvun um helgina og varð lögregl- an að hafa nokkur afskipti af drukknu fólki þegar til vandræða horfði. Að öðru leyti fór allt friðsamlega fram og hvorki dans- leikir né tónleikar haldnir í Skagafirði og Húnaþingi þessa helgina. SBG kvæmdum við endurbætur á Strákagöngum í ár. Vegagerð- in hafði gert ráð fyrir að fram- kvæmdin kostaði um 60 millj- ónir króna, en tilboð frá Kraft- taki var á milli 80 og 90 millj- ónir. Verkið átti að hefjast um miðjan ágúst og var búið að opna Siglufjarðarskarðið sér- staklega vegna þess. Það var ekki gert alveg til einskis, þar sem gólfið í göngunum verður lagfært í sumar. Upphaflega voru endurbætur Strákaganga ekki á vegaáætlun fyrr en á næsta ári, en þar sem Krafttaksmenn hafa verið að störfum í Múlagöngum að undanförnu með tól og tæki ákvað Vegagerðin að athuga möguleika með framkvæmdir í ár. Sá möguleiki er nú fyrir bí en áfram verður unnið að undirbún- ingi verksins. Meginframkvæmd- ir við göngin verða því ekki fyrr en á næsta ári og samkvæmt heimildum blaðsins verður að öll- um líkindum um opið útboð að ræða. Siglfirðingar eru að vonum súr- ir með þessi málalok. Þráinn Sig- urðsson, bæjartæknifræðingur, sagði að bærinn hefði eytt nokkr- um hundruðum þúsunda króna í moksturinn yfir Siglufjarðar- skarðið. „Auðvitað nýtist skarðið eitthvað í sumar, en lagfæringar á göngunum eru orðnar mjög brýnar. Þetta er versti vegarkafl- inn á leið Siglfirðinga til Reykja- víkur,“ sagði Þráinn. -bjb Siglfirðingar verða að sætta sig við að einungis verður farið í gólf Stráka- ganga í ár, en meginframkvæmdum frestað um ár. Bflalestir í Húnaþingi - eitt umferðaróhapp

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.