Dagur - 25.08.1990, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Laugardagur 25. ágúst 1990
Laugardagur 25. ágúst 1990 - DAGUR - 9
Hauk bónda Laxdal í Tungu á Svalbarðsströnd kannast flestir Eyfirð-
ingar við, að minnsta kosti þeir sem komið hafa nærri hestamennsku,
en hann situr jörðina Tungu og leggur stund á skipulagða hrossarækt.
Einn blíðviðrisdaginn í ágúst átti ég leið hjá Tungu og tók Hauk tali.
Tíkin Lukka, nýgotin, tók á móti mér í hlaðinu ásamt sjö afkvæmum, en í for-
stofu var harla vígalegur Séfer hundur, sem varði innganginn. „Blessaður vertu
alveg rólegur, hann er sauðmeinlaus,“ sagði Haukur, þegar hann kom til dyra
og ég var kominn til stofu. Frá árinu 1978 hefur Haukur í Tungu lagt stund á
skipulagða hrossarækt, en það ár og hið næsta á eftir keypti hann rösklega sjö
tugi hrossa af Sigurmoni Hartmannssyni í Kolkuósi í Skagafirði, flest folöld en
þó einnig nokkur trippi, veturgömul og tveggja vetra.
Ég hef oft velt vöngum
„Ég hef oft velt vöngum yfir hvaöan þessi
„hrossasótt" mín er komin, trúlega er hún arfur
frá forfeðrunum á Ströndum. Að vísu átti afi,
Jóhannes í Tungu, ágæta hesta og þá einn sér-
staklega, Pyt, leirljósan stólpagæðing. Ég minn-
ist þess að síðustu árin sem Jóhannes afi lifði, þá
talaði hann oft um hestana sína, þeir voru honum
kærir. Pannig vill nú verða um flesta sem kynnast
góðum hrossum, vel kostum búnum. „Knapinn á
hestbaki er kóngur um stund/kórónulaus á hann
lönd og álfur,“ eins og Einar Benediktsson kvað.
Jóhannes afi ræktaði ekki hross, hann átti sína
hryssu sem hann ól undan, hrossarækt var ekki
stunduð hér um slóðir í gamla daga. Hrossarækt
hófst ekki hér á Ströndinni fyrr en með Jóni í
Garðsvík og þá sérstaklega með Valdimar í
Sigluvík. Peir fóru vestur í Kolkuós og versluðu
við Hartmann gamla en um það má lesa í bókinni
S vaðastaðahrossin.
Ég fór í Laugaskóla og er útskrifaður þaðan
með landspróf. Þá er skólagöngu lauk að Laug-
um lá mín leið að Hvanneyri, á búnaðarskóla,
hvar ég lauk búfræðinni á einum vetri, var svo-
nefndur vetrungur, enda stóð hugur minn til
búskapar. Á Hvanneyri kynntist ég Gunnari
Bjarnasyni, sem hafði veruleg áhrif á mig og þau
áhrif urðu þess valdandi hvert mitt ævistarf varð.
Gunnar var og er mikill persónuleiki og haf-
sjór fróðleiks, en á skólaárum mínum að Hvann-
eyri var Gunnar aðalkennarinn í hrossaræktinni.
Gunnar hefur löngum haldið fram ágæti stofn-
ræktar og skyldleikaræktar og vegna þeirra áhrifa
sem hann hafði á mig á skólaárunum ákvað ég að
koma mér upp samstæðum stofni hrossa sem nú
er orðið. Gunnar viðurkenndi, að hann væri ekki
einn þeirra manna sem væru fæddir hestamenn,
stofninn haldist svo til hreinn síðastliðin tvö
hundruð ár. Petta eru austanvatna hross og álit-
leg á marga vísu. Ganghæfileikar stofnsins, allt
fas og prúðleiki eru mjög einkennandi. Á Fjórð-
ungsmótinu 1976 hreifst ég mjög af Þernu 4394.
Eins þekkti ég og þekki til fleiri afbragðs hrossa
úr þessari ræktun og smátt og smátt komst ég að
því að í stofninum var þess að leita sem ég sóttist
eftir, þ.e. ríkulegir hæfileikar, fegurð og svipað
svipmót og því fór ég í Kolkuós og fékk þar þann
fjölda sem byggja mætti á töluvert mikla ræktun
á skömmum tíma.
Ræktunin hófst hér heima í Tungu og fyrsti
hesturinn sem ég notaði var Hóla-Blesi. Hann
reyndist afskaplega vel. Trippin komu fljótt í
tamningunni, viljamikil og hin gjörvilegustu og
hafa reynst með ágætum. Ef Hóla-Blesi hefði
ekki verið vanaður að undirlagi Þorkels Bjarna-
sonar, hrossaræktunarráðunautar, þá hefði ég
viljað nota hann aftur, en sú varð nú ekki raunin.
Ákveðnir ræktunarmenn höfðu falað hestinn til
kaups, þar á meðal Sigurður Bergþórsson í
Höfða og Þorkell setti sig ekki á móti því þá.
Gott verð var í boði en svo var hesturinn vanaður
án þess að við nokkurn mann væri talað. Þar var
vanaður gullklumpur eins og Gunnar Bjarnason
hefur nefnt hann. Tíminn og reynslan hafa síðan
leitt í Ijós, að þarna var örugglega framtíðarstóð-
hestur vanaður, því þessi örlitli möguleiki sem
hesturinn fékk hefur skilað afbragðs reiðhrossum
og vinsælum stóðhestum, svo sem Ljóra frá
Kirkjubæ. Úr sama árgangi og Ljóri er Glitfaxi,
fæddur Kirkjubæjarbóndanum. Glitfaxi var seld-
ur til Austurríkis og fékk þar fyrstu verðlaun
með glans, þá 143 cm. I sumar komu fram á sjón-
arsviðið tvær fyrstu verðlauna hryssur undan
Glitfaxa og trippi hef ég séð undan honum, sem
aðurinn hefur lyft hrossaverði mikið. Stöðugt
fjölgar þeim sem vilja halda íslensk hross og
rækta. Eftirspurnin eykst ár frá ári. Því er ég
kominn á þá skoðun að útflutningurinn sé rétt-
lætanlegur. Röksemdir Gunnars Bjarnasonar
fyrir útflutningi hafa sannað sig.
Flestar stofnhryssurnar hér í Tungu eru tamd-
ar og sýndar. Mitt vandamál er sem margra ann-
arra, að skortur á peningum kemur í veg fyrir að
ég geti haldið í trippin fram á tamningaraldur.
Þeir stóðhestar, sem hafa verið í Tungustóðinu
eftir að Hóla-Blesa sleppti, eru vissulega af
Svaðastaðastofninum, svo sem Kórall frá Tungu,
sonur Harðar 591 þess þekkta graðhests frá
Kolkuósi, en hestinn notaði ég lítillega. 1982 not-
aði ég Feyki 962 frá Hafsteinsstöðum og Sóma
frá Kolkuósi en jafnframt fór ég með tvær hryss-
ur undir Hlyn 910 frá Báreksstöðum. Aðeins
einni hryssu var haldið 1983 en 1984 og 1986 not-
aði ég ískristal, sem er í minni eigu, hann er und-
an Herði 591 og Gránu Harðardóttur frá Kolku-
ósi. Hann er því hreinskyldleikaræktaður. Með
ískristal notaði ég Skinfaxa frá Hólum í Hjalta-
dal, en hann er sonur Rauðs 618 og Musku 3446.
Árið 1985 er Töfri frá Kolkuósi í stóðinu, hann
var í minni eigu.
Bylur 892 frá Kolkuósi kom til sögunnar 1986
en nokkrar hryssur voru settar til hans. Bylur og
Tunguhryssurnar hafa skilað mjög álitlegum
trippum.
Sindri, sonur Hóla-Blesa, var notaður 1987 en
móðir hans er Laufa 4414, sem stóð efst á fjórð-
ungsmótinu á Melgerðismelum 1976.
Þá er amman ekki minna þekkt, því Bára 3114
var efst á Landsmótinu 1966, með hæstu einkunn
sem kynbótahross hefur fengið, 8,59.
Vorið 1988 notaði ég Stjarna frá Vatnsleysu.
Hann er brúnstjörnóttur og ekki skortir ættgöfg-
ina. Faðirinn er heiðursverðlaunahesturinn Þátt-
ur 722 frá Kirkjubæ, og móðirin hin fræga Yngri-
Mósa 3348 frá Kolkuósi, móðir Kristals þess
þekkta gæðings Gylfa Gunnarssonar, sem stóð
efstur klárhesta á Landsmótinu að Hellu 1986.
Nú í vor, þegar ég og kunningjar vorum að
taka út trippin undan Stjarna, þá leist okkur
heldur vel á, sýnu best á mertrippin, en einum
fola held ég gröðum undan Hóla-Blesa dóttur.
í folaldsárganginum. sem fæddist í vor, eru
nokkur undan Töfra en hann var notaður á dætur
sínar. Folöldin eru álitlegri en mæðurnar voru á
Höskuldsstöðum ásamt fleirum.
Magni í Árgerði eignast einnig afburða
hryssur, svo sem Snældu.
Leifur í Keldudal eignast hryssuna Nös frá
Stokkhólma sem allt byggist á og að þessu athug-
uðu og mörgu öðru, sem reynsla áranna hefur
kennt mér, þá finnst mér leyndardómurinn leyn-
ast í að hitta á sterka hæfileikaríka hryssu.
Menn vilja eiga samstæðan hóp og einhvern
veginn vilja erfðirnar dreifast meira og skolast,
sé ræktað frá einum og sama stóðhestinum. Þetta
er mín skoðun þegar ég lít yfir farinn veg.
Hvert skal stefna?
Árum saman hef ég leitast við að kynnast hryss-
unum mínum sem best. Fyrstu afkvæmin eru nú
átta vetra gömul en því miður voru þau ekki
nægilega mörg.
Alltaf eru að koma upp efnilegir einstaklingar
en manni helst illa á þessu, það er dýrt að vera
fátækur. Úrvals reiðhestar eru um allt land ætt-
aðir úr stóðinu í Tungu. Nótt frá Tungu er þekkt
sýningarhross í Bandaríkjunum og á þýsku kyn-
bótasýningunni 1989 stóð hryssan Von, dóttir
Valkyrju úr ræktuninni í Tungu, í efsta sæti fimm
vetra flokki hryssa.
Þannig eru Tunguhrossin stöðugt að skjóta
upp kollinum vítt og breitt um lönd og álfur.
Þýskir kynbótadómar eru langtum markvissari
en þeir íslensku, samanber útskrift kynbótadóma
sem birtist í Das Islandspferd nr. 10 frá því í
september 1989.
Þjóðverjar eru komnit langt á undan okkur í
kynbótadómum, því þeir fylgjast mun betur með
afkvæmunum. Strax á fyrsta ári eru þeir farnir að
dæma ungviðið og fylgja þeim ár frá ári með
dómum. Þannig fá þeir betri mynd af ræktunar-
starfinu og sjá hvar ber að leggja áherslurnar.
Þetta skilar sér markvisst, er mér sagt af vinum
mínum erlendis.
í vor hefur verið mikið uppistand vegna dóma
og dómara kynbótahrossa og sýnist sitt hverjum.
Þessi óánægja er ekki ný af nálinni en þessi alda
mótmæla hefur aldrei risið svo hátt sem nú.
Dómarastörfin í vor eru ekki þess valdandi ein
og sér, nei öðru nær, þetta er uppsafnaður vandi
margra ára.
Satt best að segja þá hafði ég afskaplega mikla
trú á kynbótadómum og tók allt alvarlega í byrj-
un en frá árinu 1985 hef ég efast. Þetta ár var
Haukur Laxdal. Mynd: ój
júní 1990, ættu að lagfæra vandann að mínu mati
og þeirra sem fundinn sátu.“
Tillögur að breyttum vinnubrögðum, byggðar á
frumdrögum Jónasar og Kristínar í Litla-Dal
Fundur áhugamanna um hrossarækt, haldinn í
Skeifunni á Akureyri 24. júní 1990, telur að eftir-
farandi atriði yrðu til framfara við dóma kyn-
bótahrossa:
1. Héraðsdómnefndir séu skipaðar skv. áður
gerðum samþykktum.
2. Á stærri mótum, eins og sameiginlegum
héraðssýningum fyrir stór svæði, fjórðungsmót-
um og landsmótum, starfi fimm manna dóm-
nefndir en leyfilegt sé að hafa þriggja manna
dómnefndir við umfangsminni dóma.
3. Skráningagjöldum sé stillt í hóf í samræmi
við aðrar búgreinar.
4. Við dóma starfi hver dómari sjálfstætt og
gefi séreinkunnir. í fimm manna dómnefndum,
séu hæstu og lægstu einkunnir strikaðar út.
Meðaleinkunn annarra dómara gildi sem eink-
unn hrossins og skal hún gefin með einum auka-
staf og ekki breytast, fyrr en þá í fyrsta lagi á
næsta móti. Frávik milli einkunna hlaupa þá á 0,1
stigi en ekki 0,5, eins og nú er.
5. Meðan á dómstörfum stendur hafi dóm-
nefnd einungis upplýsingar um aldur, lit og mál
hrossins. Heíst skal mæla bæði bandmál og stang-
armál hjá öllum hrossum.
6. Við dóma á vilja og geðslagi sé farið á bak
hrossunum.
7. Athuga skal hvort einkunnir fyrir bak og
lend skuli aðskildar og einnig einkunnir fyrir
háls, herðar og bóga.
8. Dýralæknir dæmi fótagerð og hófa.
9. Teknar séu myndir af öllum hrossum sem til
dóms koma og birlar í ættbók.
10. Sérstakir starfsmenn leiði hrossin fyrir
byggingadóm.
11. Umsögn sé getið um hvert hross við alla
dóma og sé hún sameiginleg frá dómnefndinni.
12. Hvað vinnulag varðar skal varast að ætla
dómnefndum að dæma of mörg hross á dag.
Ljúka skal dómstörfum hvers dags jafnóðum og
er ekki óeðlilegt að nota myndbandaupptökur
við samræmingu á umsögn og við umræður um
frávik á dómsniðurstöðum.
13. Ekki skal leggja eins mikla áherslu á notk-
- segir Haukur Laxdal í Tungu á Svalbarðsströnd
heldur varð hann að tileinka sér margt af bókinni
og eins og oft hefur komið fram hjá honum, að
vera með opinn huga og læra af þeim samferða-
mönnunum sem voru afbragðs hesta- og tamn-
ingamenn. Þetta vantar hjá þessum yngri mönn-
um sem vinna sem hrossaræktarráðunautar. Þeir
þykjast vera alvitrir strax í byrjun síns starfsferils
og sinna ekki starfinu með þessu opna og leitandi
hugarfari.
Eg á gullklumpa
Afi Jóhannes lést árið 1979 en löngu áður var ég
tekinn við jörðinni því 1966 hóf ég búskap í
Tungu en þá var ég 18 ára. í upphafi míns
búskapar bjó ég kúabúi en svo fór að veikindi
sóttu að mér og ég var farinn að hökta um sem
gamalmenni og því leist mér ekki á framhaldið,
heilsulaus ungur maður. Á þessum árum, 1973-
1974, hafði ég byggt stóra hlöðu og teikningar
lágu fyrir af fimmtíu kúa fjósi og lánsloforð var
fyrir hendi. Ég kippti að mér höndum, byggði
ekki, hætti kúabúskap og söðlaði um, fyrst í
kartöflurækt og fjárbúskap og síðar hrossa-
búskap. Á þessum árum var óðaverðbólgan að
rjúka upp og vinstri stjórnin fyrri sem sat að
völdum, gerði fjölda fólks, sem átti peninga í
bönkum eignalaust á fáum árum. Ég er fæddur
með þessum gömlu íhaldssömu sjónarmiðum, að
eitthvert lag verði að vera á fjármálum og ekkert
rugl, en þarna á þessum árum missti ég af lestinni
hvað viðkemur veraldlega auðinum. Trúlega
kemur annað í staðinn ég á gullklumpa þar sem
hrossin eru, a.m.k. erfðafræðilega séð. Nú er ég
í basli frá degi til dags, þótt heilsunni næði ég
aftur. Enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Þeir sem
byggðu á þessum árum og fóru í offjárfestingar,
sem þá var látið viðgangast, búa að hlutunum í
dag og verða alltaf ríkari og ríkari. Ójöfnuðurinn
í landinu er mikill og eykst ár frá ári, sundrungin
hrjáir landann, því flest það fólk sem talið er ríkt
í dag nýtur auðæfa sinna á fölskum forsendum.
Af hrossum -
Frá HóIa-BEesa til Byls
Ég rækta hér í Tungu þann stofn hrossa sem
kenndur er við Kolkuós, en í Kolkuósi hefur
eru upp til hópa álitleg og falleg. Þannig verða
mistökin, sem seint er hægt að bæta. Eitt rangt
spor í ræktunarmálum er afdrifaríkt og slíkt ber
að varast. Þorkell er sekur hvað Hóla-Blesa
varðar. Rangt mat Þorkels kom til, og einnig hef
ég á tilfinningunni að Glitfaxi hafi farið út að
hans tilstuðlan, beint eða óbeint, þar sem hann
var undir máli, aðeins 139 cm fjögurra vetra
gamall. Stóra málið var með Glitfaxa, sem önnur
hross úr skyldleikaræktuninni, að hrossin eru að
taka út vöxt og andlegan þroska allt til sex vetra
aldurs og ekki á að leggja of hart að þeim og
dæma of snemma, tíminn vinnur með þeim,
þeirra er framtíðin, ef aðeins ráðunautarnir vildu
opna augun og leitast við að skilja eðli stofnsins,
svo og margur tamningamaðurinn.
Að Glitfaxi sé notaður í Austurríki og trúlega
víðar í Evrópu vekur upp spurninguna: Er
útflutningur kynbótahrossa réttlætanlegur?
Gunnar Bjarnason var talsmaður útflutnings
hrossa og kynbótahrossa en þá var ég á öndverð-
um meiði og vildi stöðva algjörlega útflutning
kynbótahrossanna. Þorkell Bjarnason, hrossa-
ræktarráðunautur, hefur verið talsmaður þess að
útflutningur kynbótahrossa verði bannaður en
hann er tæplega í stakk búinn til að gera slíkt, því
sé ættbókin skoðuð kemur í Ijós, að ailt frá 1960
hefur hann selt fjölda graðhesta til útlanda úr
ræktun sinni á Laugarvatni, graðfola sem eru ætt-
bókarfærðir. Athyglivert er að í lögum um út-
flutning kynbótahrossa eru ákvæði um að skyldu
beri til að auglýsa öll fyrstu verðlauna kynbóta-
hross á innlendum markaði og þetta er sjálfsagð-
ur öryggisventill til að við Islendingar missum
síður úr landi afbragðs kynbótahross. Þetta
ákvæði er brotið stöðugt og ætti að taka á þessum
málum, annað er ekki hægt. Hastarlegt er einnig
þegar kynbótabú ríkisins að Hólum selur út
framúrskarandi kynbótahryssur án þess að rækt-
unarmönnum sé gefinn kostur á kaupum. Þorkell
rak sig á sem aðrir, að það kostar peninga að
stunda hrossarækt og þeirra verður að afla. Háu
upphæðirnar fást ekki nema eftirspurn sé fyrir
hendi, að tekist sé á um hrossin, að fleiri séu um
hituna. Ef kynbótahross hefðu ekki selst til
útlanda þá væri verð þeirra lágt. Erlendi mark-
sínum tíma. Nokkur folöld eru undan Tvisti frá
Hvestu, en hann er undan Harðardóttur 591 og
Feykissyni 962. Þau eru reist, ganglipur og minna
í framgöngu og umgengni mjög á folöldin úr
Kolkuósi sem komu til mín í upphafi. Flest eru
folöldin undan Leyni Sigurbjarnar Bárðarsonar,
en Leynir er undan Hrafni 802 og Hrönn 4660 frá
Kolkuósi og hesturinn er bróðir Hjörvars 1013
frá Reykjavík, sem stóð efstur í eldri flokki kyn-
bótahesta á Evrópumótinu í Danmörku 1989.
Þar sem Bylur 892 hefur sýnt og sannað að
hann passar mjög vel með Tunguhryssunum
hafði ég mikinn áhuga á að fá afnot af honum
aftur. Nú í sumar er öðlingurinn í stóðinu en
okkur Sæmundi Holgeirssyni, eiganda hestsins,
kom saman um að Bylur ætti skilið að fá mögu-
leika til að komast í sinn móður- og föðurstofn,
til að sýna svo ekki verði um villst hvað í honum
býr með stórum hópi hryssna, hvar erfðirnar eru
ríkjandi."
Hrossarækt er snúin búgrein
„Hrossarækt er vandasöm búgrein þrátt fyrir
tölvur og nútíma vinnubrögð. Aðeins einn og
einn ræktunarmaður nær að stíga stóra skrefið og
þar virðist heppnin ráða hvað mestu. Heppnin
felst í því að eignast topphryssu sem er sterk í
erfðum. Hryssu sem gefur eftirmynd sína sama
hver faðirinn er. Þeir sem detta í lukkupottinn
koma sér upp á tiltölulega stuttum tíma hryssu-
stofni sem hægt er að rækta frá. Við getum nefnt
sem dæmi Þorkel Bjarnason, sem komst yfir tvær
borgfirskar hryssur og flest ef ekki öl! hross
þeirra feðga á Laugarvatni eru frá þessum hryss-
um komin. Sem ráðunautur ráðleggur Þorkell
mönnum blendingsræktun en sjálfur heldur hann
dálítið fast um skyldleikaræktunina.
Sveinn Guðmundsson, sá stórmerki ræktunar-
maður. nær sínum árangri frá Ragnars-Brúnku
móður Síðu gömlu og hefur haldið vel á málum
síðan.
Sigurður á Höskuldsstöðum í Eyjafirði fékk að
láni eða leigu hryssu frá Brennihóli. Þessi hryssa
var Lögmanns-Grána en undan henni fékk hann
tvær fyrstu verðlauna hryssur, Eldingu og Lip-
urtá, sem gætir hvað mest í ræktuninni á
Assa, Kolkuóssvipurinn leynir sér ekki.
dæmd hjá mér hryssa að nafni Kolskör. Magnús
Jóhannsson hafði tamið hryssuna og Matthías á
Brún einnig og lokaþjálfunin var Matthíasar.
Allir sem sáu hryssuna luku upp lofsorði um
fegurð hennar og sjálfum þótti mér hún óhemju
fögur og fannst hún hafa allt til að bera sem prýð-
ir Kolkuóshrossin best. Hún var með þetta
ákveðna upplit sem stakk. Þá er hún var dæmd
og tölur voru birtar, var vart hægt að trúa því sem
maður sá og heyrði. Allar tölur voru gjörsamlega
út úr þeirri mynd sem sannfæringin sagði mér. Á
þessari sömu sýningu var ég með aðra hryssu,
Heru 6222, sem ekki var eins vel byggð en haf-
sjór af hæfileikum. Viti menn, allar tölur fyrir
byggingu voru þær sömu og hjá Kolskör, meðal-
einkunn 7,69. Hvernig mátti þetta vera? Hryss-
urnar voru eins ólíkar og dagur og nótt en eftir
dómi að marka áttu þær að vera sem spegilmynd
hvor annarrar. Þetta vakti undrun, vanlíðan og
síðar reiði. Þegar mér varð ljós niðurstaða dóma
vorið 1985, þá sagði ég nú aðeins: Geta dómarar
staðið á slíku, geta þessir dómarar varið gerðir
sínar?
Hestamenn og eigendur kynbótahrossa hafa
gert athugasemdir vegna dóma og dómarastarfa
en einu svörin sem fást frá ráðunautum eru
skætingur. Þetta sýndi sig best þegar Albert
Jónsson, sá þekkti hestamaður, skrifaði blaða-
grein sem löngu er landsþekkt og tiltók sönn
atvik úr sinni reynslu sem hesta- og tamninga-
manns. í raun og veru var mikil skömm að eng-
inn skyldi taka undir með Votmúlabóndanum.
Svarið sem Albert fékk var skætingsgrein frá
Þorkatli Bjarnasyni í sama anda og vant er frá
þessum yfirmanni ræktunarmála hrossa á íslandi.
Þorkell hefur aldrei þolað, eins og siður er ein-
ræðisherra, að hann sé gagnrýndur opinberlega.
Eins og komið hefur fram í ræðu sr. Halldórs í
Holti, þá var þetta talin eðlileg skipan mála fyrr
á öldinni, þar sem einn maður hafði svo til
alræðisvald í málefnum hrossaræktar og tiltók
hann þá sérstaklega föður sinn, fyrirrennara
Þorkels. í dag ættu að tíðkast allt önnur vinnu-
brögð og því er full ástæða til að ákveðið sam-
ræmi sé milli kynbótadóma og dóma á gæðing-
um. Allt þetta varð til þess að ég fór að skoða
eldri dóma og bera saman. Þá rak ég mig á tvo
stóðhesta í fræðunum, Feyki frá Hafsteinsstöð-
um og Kulda frá Brimnesi. Þetta eru hestar
gjörólíkir að allri byggingu, en nú ber svo við að
allar tölur eru þær sömu þegar dæmt er, meðal-
einkunn 8,13.
Getur einhver útskýrt þessi vinnubrögð? Ég
held ekki. Vinnubrögðin eru sem sagt lítt hald-
bær en svo verður oft þegar einn maður ræður að
mestu, þá kemur upp þessi staða sem kallar á
mistök. Ég er sannfærður um að ef þann dag sem
Kolskör var dæmd hefðu verið fleiri sjálfstæðir
dómarar við störf og meðaltalið látið ráða þá
hefði hryssan blakka farið í 1. verðlaun fyrir
byggingu.
Nokkru síðar seldi ég Sigurbirni Bárðarsyni
Kolskör og hún fær nafnið Eva og er dæmd til 1.
verðlauna hjá honum. Já, það er ekki sama hver
maðurinn er.
í júnímánuði 1986 hringdi Þorkell Bjarnason í
mig og spurði hvort ég hafi selt Sigurbirni Bárð-
arsyni Kolkuóshryssu, því hann og samstarfs-
menn séu að vinna að mótaskrá fyrir Landsmótið
og velti vöngum yfir hvort Eva hafi verið sýnd
áður. Ég kvað svo vera. Hryssuna hafi ég selt
Sigurbirni en þá sem Kolskör, sýnda í Eyjafirði
sumarið þar á undan. Þá segir Þorkell setningu í
mín eyru sem ég vildi gjarnan að hann hefði sagt
annars staðar opinberlega. „Hvaða dæmalaus
mistök höfum við gert.“ Slík mistök fyrir dómi,
sem of oft verða, geta haft veruleg áhrif jafnt
peningalega sem ræktunarlega og eins er oft veg-
ið persónulega að tamningamönnunum þar sem
þeir eru gerðir ómerkir orða sinna þegar umsagn-
ir þeirra um hrossin, sem gefin eru eigendum,
eru rifnar niður og þær gerðar ómerkar. Þetta
hefur síðan valdið sundrungu og sárindum.
Tamningamaðurinn, sem tekur við trippinu
ótömdu þekkir það best, kynnist því frá degi til
dags og er því hæfastur að gefa raunsæja mynd.
Síðan geta dómarar eyðilagt vetrarstarfið með
röngu pennastriki.
Þetta sumar 1985 hálf hvekktist ég. Var raunar
orðinn handviss um að ég hefði ekkert vit á bygg-
ingu hrossa. Mér var einfaldlega sagt, að sú
hryssa sem ég taldi hvað fallegasta væri jöfn
þeirri sem mér þótti hvað Ijótust í stóðinu. Því
sagði ég oft við sjálfan mig: Til hvers ert þú að
standa í þessu hrossastreði?
Á Landsmótinu 1986 fékk ég loks þá fullvissu.
að ég hafði rétt fyrir mér en hryssan var farin til
annars eiganda, Sigurbjarnar, enda hefði hún
trúlega aldrei fengið þá vegsemd sem hún fékk, í
minni eigu.
Nei, það er ekki sama hver eigandinn er.
Hvort það er bóndi norður í Eyjafirði eða þekkt-
ur hestamaður í Reykjavík. Við höfum mörg
dæmi þessa.
Eftir þetta hef ég verið gagnrýninn á vinnu-
brögð Þorkels og hans manna og fylgst grannt
með og er þess nú fullmeðvitaður að þeir eru
ekki fullfærir til þeirra starfa sem þeir eiga að
vinna. Þeir vita vart frá degi til dags hvað þeir
hafa gert í dómum, samanber stóðhesta á
Norðurlandi vorið 1989, annars vegar í Skaga-
firði og hins vegar í Eyjafirði. Þetta má sjá á
vídeótökum af dómum, sem Matthías Gestsson
frá Akureyri hefur tekið. Þar sannast að Prúður
frá Neðra-Ási og Örn, Sigurðar Árna Snorrason-
ar, voru stórlega vandæmdir, samanber einkunn-
ir þeirra nú f sumar. Þetta er staðreynd, en æski-
legt væri að mun nánara samstarf og kunnings-
skapur milli hrossaræktenda og ráðunauta Bún-
aðarfélagsins tækist og þá á jafnréttisgrundvelli,
þar sem menn virtu skoðanir hver annars og vísa
ég þá til spjalls sem ég átti við Þorkel Bjarnason
og Anders Hansen síðastliðinn vetur að Árbakka
í Landssveit.
í vor fylltist svo mælirinn. Margir rísa upp.
Þetta er sígandi ólukka margra ára. Þegar
óánægjan er orðin slík sem nú að kynbótadómar-
ar Búnaðarfélagsins hafa ekki lengur trúnað
þekktustu ræktunarmanna landsins, svo sem
Sigurðar í Kirkjubæ, Sveins á Sauðárkróki,
Skúla í Svignaskarði, Einars á Skörðugili, Magna
í Árgerði, svo fáeinir séu nefndir, þá þykir mér
sjálfsagt að tekið sé á málum. Þetta er opinber
embættisfærsla, ranglega unnin og hana ber að
stöðva. Taka verður upp vinnubrögð sátta og
sæmdar með yfirbragði kunnáttu sem á og verður
að skila framförum, ná sáttum um vinnubrögð til
að slökkva ófriðarbálið.
Tillögur sem voru samþykktar á fundi á Akur-
eyri af áhugamönnum um hrossarækt þann 24.
un kynbótagildiseinkunna og -spár eins og nú er
gert og spurning hvort ástæða er til að birta þess-
ar tölur árlega á meðan reynslan og öryggið er
ekki meira.
„Undir þessar tillögur ritaði fjöldi ræktunar-
manna úr Þingeyjar- og Eyjafjarðarsýslu. Já,
mikið er í húfi ef takast á að halda hrossarækt á
íslandi til betri vegar, menn verða að sitja við
sama borð. Áníðsla og yfirgangur verður að
hverfa og dómaramál fyrir gæðingadómi þarfnast
jafnt athugunar og lagfæringa sem og dómar
kynbótahrossa.
Leitin mikla
Meðan allt var í suðupunkti í vor og sumar þá sat
ég heima að mínu. Störfin eru margvísleg og
vandamálin mörg sem þarf að leysa viðvíkjandi
stofnrækt.
Reksturinn er dýr, öryggið vantar til að fram-
þróa það sem stefnt er að.
Á vordögum 1989 stofnuðu áhugamenn um
ræktun Svaðastaðahrossa ræktunarfélagið Sam-
stöðu. Með tilkomu þess aukast persónuleg
kynni þeirra, sem eru að vinna að sama mark-
miði. Vonandi leiðir það til nánara samstarfs er
skili árangri hjá einhverjum Samstöðufélaga,
hvað framtíðarstóðhest varðar. Leitin mikla
heldur áfram, vonandi á stóra stundin eftir að
renna upp, að í Kolkuósstofninum í Tungu eigi
eftir að fæðast sá höfðingi og sú drottning sem
framtíðin byggir á. Tíminn, heppnin, erfðirnar
og staðföst vissa ræktunarmannsins koma því til
leiðar. Mér ber viss skylda að stefna að stóru
markmiði með hrossastofninn minn frá Kolku-
ósi. Síðustu heilræði Sigurmons voru, að ég varð-
veitti Kolkuósstóðið í Tungu best með því að
afsetja ekki hryssu fyrr en fullreynt væri hvað í
henni byggi sem kynbótahrossi. Hans reynsla
var, að oft gæfu lítilfjörlegustu hryssurnar hvað
fallegust og hæfileikamest afkvæmi, því athuga
bæri að allt væri þetta sami erfðahópurinn.
„Farðu ætíð eftir þinni bestu sannfæringu dreng-
ur minn,“ sagði Sigurmon," og þannig lauk
spjalli okkar Hauks í Tungu. ój