Dagur - 25.08.1990, Page 13

Dagur - 25.08.1990, Page 13
Laugardagur 25. ágúst 1990 - DAGUR - 13 Nú fer víst aö renna upp úrslitastundin í slagnum um álverið. Ég hef lengst af fylgst meö gangi mála úr hæfilegri fjar- lægð i Danaveldi, en undanfarnar vikur hef ég fengiö þetta beint í æð, og getað fylgst með umræðum úr návígi. Ekki aðeins í fjölmiðlum heldur líka í kaffi- stofunni því eins og í svo mörgum öðr- um kaffistofum hefur þetta mál verið þar mjög ofarlega á baugi. Eins og ýmsir hafa bent á þá tel ég augljóst að álver á Keilisnesi muni auka búferlaflutninga til suðvesturhornsins umfram þá sem þegar eru orðnir, um- fram það sem landsbyggðin þolir og það sem meira er, umfram það sem þjóðar- búið í heild hefur gott af. Það er ekkert hollt fyrir eitt land þegar allt sem heitir uþpbygging og gott atvinnuástand verð- ur einkaeign þeirra sem byggja höfuð- borgina og nágrenni hennar. Nú segja sumir að það að treysta á álver sé uppgjöf og dæmi um skort á frumkvæði. Það eigi að byggja upp ann- an iðnað, fjölbreyttan smáiðnað og meðalstóran; það sé hollara fyrir við- komandi svæði að vera ekki algerlega háð einu álveri heldur byggja á „öðru". Fyrir nú utan hvað það sé miklu hollara fyrir náttúruna og þann landbúnað sem hér er. Þetta meö mengunarhættuná veröur auðvitað að skoða mjög gaum- gæfilega. Álver nú er hins vegar ekki það sama og álver fyrr. Það er hægt að takmarka mengun frá álveri svo mikið að hún sé ekkert verri en frá „öðru“. Það á auðvitað að gera. ( öllum hamaganginum um það hvort álver verður byggt hér eða þar megum við síst af öllu verða uppvís að einhverj- um undirlægjuhætti hvorki hvað varðar kröfur um mengunarvarnir eða aðra þætti og þetta er ég fullviss um að full- trúum okkar er Ijóst. Það er hins vegar ekkert athugavert við það þótt samn- ingamenn okkar reyni eins og allir þeir sem standa f samningaviðræðum, að auglýsa „vöru“ sína og bjóða betur en keppinauturinn. En hvað er þetta „annað“ sem menn segja að sé betri kostur en álver? Það veit enginn, enda sést það best á því að á þessum árum sem liðin eru frá því umræða um álver var síðast í gangi, hefur afar lítil atvinnuuppbygging orðið á Akureyri. Ég kalla það ekki atvinnuupp- byggingu þó að byggðar séu nýjar og glæsilegar bensínhallir, og við lifum heldur ekki öll á því þó að fyrirtæki á borð við Samherja hafi byggst upp með glæsilegum hætti. Buxnaverksmiðja stöðvar heldur ekki fólksfióttann til suð- vesturhornsins. Tilkoma álvers, hefur eins og allir vita, í för með sér mörg hundruð ársverk, beint og óbeint. Þessi störf eru ekki öll varanleg og auövitað verðum við að vera undir það búin þegar uppbygging- unni lýkur, en standa ekki eins oa glópar og vita ekkert hvað á að gera. Álver er ekki nein endanleg lausn heldur bara einn liöur í þeirri uppbyggingu sem er nauðsynleg til aö viðhalda jafnvægi i byggð landsins. Smáiðnað og meðal- stóran iðnað þarf að byggja upp sam- hliða álverinu og síðan í framhaldi af því. Þá verður vonandi aðlaðandi fyrir mig og marga aðra að koma heim aftur. Eggert Tryggvason vísnaþátfur Þura í Garði orti næstu vísurnar tvær. Hún vann við M.A. á stríðsárunum. Ekki kom ég yfir heiðar í austanrumbu og þorrasnjó á menntaskólamannaveiðar, miklu hærra vonin fló. Krákan heima sat er svelti, sú fær gnægð er burtu fer. Bjarma afgulli bresku ég elti og borðalagðan offíser. Hjörleifur á Gilsbakka, Jóns- son, kvað út af vísum Þuru: Pura í Garði gáðu að þér, þó glepji þig offíserinn geymdu það sem íslenskt er, eins og krækiberin. „Ástandið“ er afar Ijótt, ýmsa truflar herinn. Pau eru nokkuð eftirsótt ensku og skosku berin. Pura í Garði lágt er lögst, lífinu stefnt í voða offísera undirvöxt ef hún fer að skoða. Þuríður Bjarnadóttir í Árbót orti og nefnir, Fyrr og nú: í hljóði vil ég hræra strengi, það hjarta mínu veitir frið, því sumar glóðir lifa lengi þó lítið sé um eldsneytið. Enn man ég löngu liðna daga og leikbróður frá bernskutíð. Sem fagurt blóm um bleika haga er brosirgegnum storm og hríð. Svo er hún þessi endurminning, mín auðlegð, sem ei grandar ryð, þó nú sé önnur okkar kynning og á sé greint um stefnumið. Næstu vísurnar hef ég dorgað á „gömlum miðum". Höfund- ar gleymdir: Maður kveikti í vindli fyrir annan og kvað: Einum neista af neðri byggð náði ég með reykingonum, þér að birta bróðurtryggð býð ég lítinn hlut af honum. Setið að sumbli: Pröngt við vorum saman sett, suma varð að þvinga. Skálum varð að skipa rétt og skiptast á að kyngja. Hvíslað í eyra: Mikið ertu fjölluð frú, fjörið mun því valda. Kvakaðu til mfn þegar þú þarft á manni að halda. Fegurð Eyjafjarðar: Efþú ferð um Eyjafjörð eftir dægurstritið, fegri himin, hreinni jörð hefurðu ekki litið. Eggert Norðdahl kvað er hann hafði fjóra um nírætt: ÖII mín liðin ævistig eru í veður fokin. Sá, er hingað sendi mig sér um ferðalokin. Ekki veit ég fyrir hverja Gísli H. Erlendsson lagði þessa spurn: Ætli það verði enn á ný örlög vona minna að drukkna einhvern daginn í djúpi augna þinna. Þá koma tvær vísur heima- gerðar, helgaðar ferskeytl- unni: Ferskeytlan var fyrir mér fyrst sem glaður eldur. „Smekkurinn sem kemst í ker keimnum lengi heldur. “ Pegar verður guðs í geim gamlingjanum vikið una kýs ég hennar hreim hinsta augnablikið. Þessar vísur Hjörleifs Krist- inssonar á Gilsbakka þurfa ekki skýringa við: Stoðar vart að vera hryggur, en vörumst háska götunnar. Enginn veit hvort leiðin liggur til lífsins eða glötunar. Pegar byljir bresta á, best að allir megi leika sér að Ijósmynd frá liðnum sumardegi. Háaldraður maður sagði mér næstu vísu. Hugsanlegt er að Breiðfjörð hafi sjálfur ort: Saman barði bögurnar Breiðfjarðar Siggi. Engan varðar um það par þó utangarðs þær liggi. Leó Jósepsson á Þórshöfn verður ellinnar var og kveð- ur: Tíminn líður, tíminn fer og telja engir skrýtið. Vinnuþrek mitt orðið er ósköp sára lítið. Þá kemur ævagömul gaman- vísa frá Ströndum vestan: Allir hræðast Hornstrending og halda hann vera umskipting. Frúnum öllum finnst í kring fjósalykt af Kúvíking. OPIÐ Á LAUGARDÖGUM í HELLUDEILD AFGREIÐSLA OKKAR ER OPIN ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 8.00-17.00 OG NÚ EINNIG Á LAUGARDÖGUM FRÁ KL. 8.00-16.00. ALLAR GERÐIR AF HELLUM OG STEINUM TIL Á LAGER. SÖGUM ALLAR GERÐIR AF HELLUM. MÖL & SANDUR HE V/Suluveg ■ Pósthólf 618 602 Akureyri Sími 96-21255 TIL60Ð Skólafatnaður á börnin Gallabuxur margar gerðir, st. 4-16 . Gallabuxur fóðraðar, st. 4-12 . verð frá kr. 1.915 ...... kr. 2.495 Telpna og drengja kakíbuxur, st. 4-16 verð frá kr. 1.245 Akrýl peysur, st. 80-120 ! Akrýl peysur, st. 6-14 ., kr. 960 kr. 1.145 Jogging peysur, margar gerðir, st. 116-176 verð frá kr. 500 Úlpur, st. 98-128 Úlpur, st. 8-14 .. kr. 2.620 kr. 2.985 Fóðraðir skór í stærðum 28-39 . kr. 1.995 KEA Hrísalundur, VfSA kjallari auglýsingadeild • Sími 96-24222 Skilaírestur aug- lýsingasemeru 2ja dálka (10 cm) á breidd eða smáaug- lysinga er til kl. 11.00 daginn fyrir útgáfu- dag, nema í helgarblað, þá er skilaírestur til kl. 14.00 á fimmtudag. Allar stærri aug- lýsingar og lil þarf að panta með 2ja daga fyrirvara. í helgarblað jwrf að panla all- ar stærri auglýsingar fyrir kl. ll.OOá fimmtudag.________

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.