Dagur


Dagur - 25.08.1990, Qupperneq 14

Dagur - 25.08.1990, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Laugardagur 25. ágúst 1990 Hljómdiskaumbúðir valda deilum - tónlistarmenn óánægðir Nýlega bárust umsjónarmanni Poppsíöunnar í hendur tveir hljómdiskar sem keyptir voru fyrir hann í Bandaríkjunum. Er það í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að umbúð- irnar sem utan um diskana voru, eru vægast sagt óþarflega miklar og um leið óvenjulegar. ( stað þess að vera einungis í hinu þar- tilgerða, ferhyrnda harðplasthylki sem síðan er sett plast utan um, er búið að pakka disknum í einar umbúðir til, þ.e.a.s. utan um plasthylkið er langt pappahylki eða pappabox sem prentað hef- ur verið á útlit viðkomandi disks í stækkaðri mynd. Varð umsjónar- maður hálf hvumsa yfir öllum Umsjón: Magnús Geir Guömundsson þessum umbúðum og hugsaði sem svo að eitthvað væri þetta í mótsögn við fyrirætlanir um aukna umhverfisvernd sem uppi eru í heiminum, og þá ekki hvað síst í Bandaríkjunum. Sú hefur líka orðið raunin að mikil and- staða hefur vaknað í Bandaríkj- unum gegn þessari sóun og hafa nú verið stofnuð samtök gegn henni. Hafa stór nöfn í tónlistarheim- inum á borð við The Ramones, The B-52s, Crosby, Stills og Nash, David Byrne, (höfuðpaur Talking Heads) 10.000 Maniacs, John Hiatt o.fl. lagt málefninu lið og hvatt til þess að pappaboxin verði bönnuð og þá ekki aðeins vegna sóunarinnar heldur einnig vegna aukins kostnaðar á fram- leiðslu boxanna. í þessu sem öðru eru menn þó ekki allir alveg sammála og hefur t.d. Bruce Hornsby notað boxið til að koma á framfæri ýmsum skilaboðum um umhverfisvernd án þess að poppsíðan MonKf?H* Land Svona lítur pappaboxið út sem svo umdeilt- er. Svo getur hver fyrir sig dæmt um notagildi þess. lýsa sig sérstaklega á móti pappaboxunum. Hvar er verðlagseftirlitið' Við íslendingar og aðrir Evrópu- búar erum sem betur fer lausir við að þurfa að hafa áhyggjur af áðurgreindum hljómdiskaum- búðum, þar sem þær eru tak- markaðar við Bandaríkin. Hitt er áhyggjuefni að á tímum þjóðar- sáttar og aðhalds í verðlagsmál- um, þar sem ætlast er til að allir leggi sitt að mörkum til að kveða niður verðbólgudrauginn, skuli íslenskir hljómplötuinnflytjendur, að því er virðist, geta hækkað verð á vörum sínum um rúm 14% (ein plata úr 1200 kr. í 1400 kr.) án nokkurra vandkvæða. Þegar þess er farið á leit við ferðaskrifstofur að þær taki aftur hækkanir sem ekki eru nema örfá prósent, hlýtur það að vera eðlileg krafa að þessi vægast sagt óeðlilega hækkun verði tek- in til endurskoðunar og það án tafar. Það er svo ekki hægt ann- að en að spyrja hvar Verðlagseft- irlitið sé, því þessi hækkun á hljómplötum er óskiljanleg. IpORSHAMARHF. Vtð t .ihf.iut Akurcui Simt BÍLASALA Hefur Berry nú verið kærður fyrir vikið og einnig fyrir að hafa undir höndum reykfíknilyfið marijuana sem upp komst í kjölfarið. Guns ’N’ Roses Nú er það endanlega komið á hreint að Steven Adler er ekki lengur trommuleikari í Guns ’N’ Roses. Eins og áður hefur komið fram hér á Poppsíðunni hefur Adler átt við ofneyslu eiturlyfja að stríða (eins og reyndar aðrir meðlimir hljómsveitarinnar) sem honum hefur ekki tekist að sigr- ast á og því hefur hann verið lát- inn hætta. (staö Adlerser kominn náungi að nafni Matt Sorum sem m.a. lék með The Cult á síðasta tónleikaferðalagi hennar. Hljombordsleikari allur Hljómborðsleikari einnar af fræg- ari hljómsveitum hippatímabils- ins, Grateful Dead, fannst látinn á heimili sínu nú nýlega. Brent- Mydland sem starfað hafði með hljómsveitinni síðan 1979, var þriðji hljómborðsleikari Grateful Dead sem deyr fyrir aldur fram. Sá fyrsti, Ron „Pigeon" McKennan lést vegna ofneyslu áfengis, en sá sem var annar í röðinni, Keith Godchoux, dó í bílslysi og þá reyndar hættur í hljómsveitinni. The Waterboys Tveir meðlima skosku hljóm- sveitarinnar The Waterboys. þeir Steve Wickham tiö\u\e\kar\ og Noel Bridgemantrommuleikari, hafa nú sagt skilið við hana. Hefur enginn verið fenginn í stað Wickhams en í stað Bridgemans er kominn bandarískur trommuleikari að nafni Ken Blevins. Hefur brott- hvarf tvímenninganna ýtt undir þær sögusagnir að hljómsveitin muni breyta um stíl úr popp/þjóð- lagatónlist í mun rokkaðari tónlist. Sinead 0’Connor Söngkonan írska Sinead 0’Connor sem svo rækilega hefur slegið í gegn með sinni annarri plötu, Ido not want what I haven’t got, ætlar aldeilis ekki að láta þar við sitja því nú hefur hún nýlokið við að leika í kvikmynd og fetar hún þar í fótspor margra kollega sinna. Heitir myndin Hush-A Bye baby og gerist hún á írlandi árið 1984 en það ár var viðburðaríkt þar í landi. Leikur Sinead skólastúlku í myndinni en hún er frumraun leikstjórans Margot Harker. Foreigner Bresk/kanadíska stórhljómsveit- in Foreigner sem fræg hefur orðið fyrir lög eins og l’ve been waiting for a girl like you, Hot blooded, Urgent og / want to know what love is, hefur nú misst söngvara sinn Lou Gramm. Gramm sem gaf út tvær farsælar plötur á eigin vegum meðan hann var enn í Foreigner, hyggst nú einbeita sér af sólóferli sínum, en í hans stað í Foreigner er kominn maður að nafni Johnny Edwards sem áður söng í hljóm- sveitinni King Kobra. Brent Mydland er allur. Ljósmyndasamkeppni í tilefni af 25 ára afmæli Pedromynda á Akureyri efnir fyrirtækiö til Til solu Ijósmyndasamkeppni í samvinnu við Dagblaðiö Dag. Takið þátt í Ijósmyndasamkeppninni! Suzuki Fox Samurai árg. ’88, ekinn 5070 þús. km. Honda Accord GMEX 2000 árg. ’88, ekinn 50 þús. km. Mazda 323 GLX 150 árg. '87, ekinn 15550 km. Escort CL. Þýskur árg. ’88, ekinn 36 þús. km. MMC Colt árg. ’87, ekinn 27 þús. km. Pað má ræða verðið og þetta Chuck Berry Gamli rokkkóngurinn Chuck Berry sem orðinn er sextíu og þriggja ára gamall virðist ekki hafa róast nokkurn skapaðan hlut með aldrinum. Þannig var nefnilega um daginn að gerð var húsleit hjá The Waterboys. Nú einum færri. þeim gamla á sveitasetri hans í St. Louis vegna gruns um ólög- legt athæfi þar. Reyndist sá grunur vera á rökum reistur, því í fórum Berrys fundust ólögleg myndbönd í vafasamara lagi sem snarlega voru gerð upptæk. eru einfaldar: Öllum er heimil þátttaka. Myndefni er þátttakendum í sjálfsvald sett. Æskileg stærð mynda er 10x15 cm. Keppnin stendur yfir til 15. september nk. Tekið er á móti myndum í verslunum Pedromynda í Hafnarstræti 98 og Hofsbót 4 á Akureyri. Veitt verða tvenn verðlaun: Annars vegar fyrir „lifandi myndefni" (menn og dýr) og hins vegar fyrir landslag eða form. Dagur áskilur sér rétt til að birta þær myndir sem til álita koma, sér að kostnaðarlausu. Úrslit verða tilkynnt um miðjan október. Verðlaunin fyrir bestu mynd í hvorum flokki er myndavél af gerðinni CHINON GENESIS, með aukahlutum, að verðmæti 30 þúsund krónur. ‘T’ediðmyncftr’ Hafnarstræti 98, simi 23520 Hofsbót 4, simi 23324 Strandgötu 31, simi 24222

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.