Dagur - 04.09.1990, Page 10
ht at tc%*n nnoí* y4*HiíT*otfi«'> h» nmí?hiiiAi'«<j
10 - DAGUR - Þriðjudagur 4. september 1990
íþróttir
Ólíkt er aðhafst í Iiverpooi
- Everton í neðsta sæti en Liverpool á toppnum
Eftir leiki síðustu viku í 1.
deild ensku knattspyrnunnar
hefur Liverpool nú hreiðrað
um sig í efsta sætinu og reynsla
fyrri ára segir að erfitt verði að
koma því þaðan. Liðið er nú
það eina sem ckki hefur tapað
stigi í 1. deild, en nágrannar
þeirra Everton eru hins vegar á
botninum og er eina liðið í 1.
deild sem ekki hefur enn hlotið
stig. Þá hefur framganga ný-
liða Leeds Utd. komið mörg-
um á óvart. En þá eru það leik-
ir helgarinnar.
Liverpool og Aston Villa áttust
við í hörkuleik á Anfield þar sem
ekkert var gefið eftir og meistar-
arnir máttu hafa sig alla við til að
vinna sigur í lokin. Peter Beards-
ley kom Liverpool yfir í fyrri
hálfleik með fallegu marki, lék á
varnarmann Villa og sendi síðan
boltann í markið með þrumu-
skoti á 14. mín. David Platt náði
að jafna fyrir Aston Villa á 26.
mín. með föstum skalla sem
Bruce Grobbelaar í marki
Liverpool réð ekki við.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í
fyrri hálfleiknum sem var mjög
vel leikinn og Paul McGrath mið-
vörður Villa bjargaði tvívegis
naumlega. Leikmenn Villa börð-
ust hetjulega í síðari hálfleikn-
um, staðráðnir í því að fara heim
með stig, en þrátt fyrir það urðu
þeir að játa sig sigraða í lokin.
Þegar aðeins 3 mín. voru til leiks-
loka átti John Barnes, sem lék
mjög vel að þessu sinni, þrumu-
skoti í þverslá Villa-marksins,
boltinn hafnaði aftan í Nigel
Úrslit
1. deild
Arsenal-Tottenham 0:0
Coventry-Nottingham For. 2:2
Crystal Palace-ShelTield Utd. 1:0
Derby-Wimbledon 1:1
Leeds Utd.-Norwich 3:0
Liverpool-Aston Villa 2:1
Manchester City-Everton 1:0
Q.P.R.-Chelsea 1:0
Southampton-Luton 1:2
Sunderland-Manchester Utd. 2:1
2. deild
Blackburn-Newcastle 0:1
Brighton-Wolves 1:1
Bristol Rovers-Charlton 2:1
Millwall-Barnsley 4:1
Notts County-Oxford 3:1
Oldham-Portsmouth 3:1
Plymouth-Middlesbrough 1:1
Port Vale-Leicester 2:0
Sheffield Wed.-Hull City 5:1
W.B.A.-lpswich 1:2
West Ham-Watford 1:0
Swindon-Bristol City 0:1
Úrslit í vikunni
1. deild
Crystal Palacc-Chelsca 2:1
Leeds Utd.-Manchester Utd. 0:0
Livcrpool-Nottingham For. 2:0
Southampton-Norwich 1:0
Sunderland-Tottenham 0:0
Arsenal-Luton 2:1
Coventry-Everton 3:1
Derby-Sheffield Utd. 1:1
Q.P.R.-Wimbledon 0:1
2. deild
Blackburn-Hull City 2:1
Oldham-Leicester 2:0
Plymouth-Watford 2:0
Port Vale-Wolves 1:1
Swindon-lpswich 1:0
West Ham-Portsmouth 1:1
Spink, markverði Villa, og þaðan
í netið. Liverpool byrjar því
tímabilið vel og hefur fullt hús
stiga eftir þrjár umferðir.
Erkifjendurnir Arsenal og
Tottenham áttust við í miklum
baráttuleik sem endaði með
markalausu jafntefli. Áhorfend-
ur urðu þó fyrir nokkrum von-
brigðum með leikinn sem ein-
kenndist af baráttu á miðjunni og
var fátt um góð marktækifæri.
Stuðningsmenn Arsenal voru
ekki ánægðir með dómarann sem
þeir töldu hafa haft tvær víta-
spyrnur af liðinu en úrslitin voru
sanngjörn. Paul Gascoigne náði
sér ekki á strik hjá Tottenham og
var honum skipt út af undir lokin
við lítinn fögnuð aðdáenda
liðsins. Guðni Bergsson átti hins
vegar góðan leik fyrir Iiðið og
náði að halda hinum hættulega
útherja Arsenal, Svíanum
Anders Limpar, vel í skefjum.
Guðni virðist nú hafa tryggt sæti
sitt í liðinu og hefur sennilega
aldrei verið betri.
Everton byrjar illa og er mikil
upplausn í herbúðum félagsins
sem ekki mun taka enda fyrr en
leikmenn verða seldir eða það
sem líklegra er að framkvæmda-
stjórinn Colin Harvey verði
rekinn. Liðið hefur nú tapað
þrem fyrstu leikjum sínum og er í
neðsta sæti. Leikur liðsins á úti-
velli gegn Man. City var illa leik-
inn og eina markið var skorað á
10. mín. fyrri hálfleiks. Adrian
Heath, einn af mörgum fyrrver-
andi Evertonmönnum hjá City,
skoraði markið og tryggði Iiði
sínu fyrsta sigurinn í deildinni.
Heath fékk færi á að bæta við
öðru marki og Neville Southall í
marki Everton kom í veg fyrir
stærra tap liðsins. Það var aðeins
undir lokin sem Everton náði að
ógna marki City.
Leeds Utd. kemur á óvart með
því að leika mjög góða knatt-
spyrnu í 1. deildinni, en leikur
liðsins í fyrra þegar liðið barðist í
2. deild þótti oft stórkarlalegur.
Liðið mætti Norwich á Elland
Road um helgina og sýndi allar
sínar bestu hliðar í 3:0 sigri sem
hefði getað orðið mun stærri.
Norwich lék þó vel og fékk sín
færi en Ruel Fox, Dale Gordon,
Tim Sherwood og Robert Fleck
misnotuðu þau, enda var John
Lukic markvörður Leeds Utd. í
miklu stuði í Ieiknum.
Lee Chapman náði forystu fyr-
ir Leeds Utd. á 13. mín. eftir
mjög góða sókn sem Lukic hóf og
hann bætti síðan öðru marki við
undir lok fyrri hálfleiks eftir
mistök í vörn Norwich. Imre
Varadi bætti þriðja markinu við í
síðari hálfleik er hann komst inn
í sendingu Mark Bowen, en fyrr í
leiknum hafði Varadi skotið yfir
nánast á marklínu og í fréttum af
leiknum var sagt að Leeds Utd.
hefði hæglega getað skorað 10
mörk í leiknum ef heppnin hefði
verið með liðinu.
Sunderland kom verulega á
óvart með því að sigra lið Man-
chester Utd., en það var þó ekki
fyrr en á síðustu mín. leiksins
sem Gary Bennett skoraði sigur-
mark Sunderland. Gary Owers
hafði náð forystu fyrir Sunder-
land í fyrri hálfleik en Brian
McClair náði að jafna fyrir Utd. í
síðari hálfleiknum. Heldur slök
frammistaða Utd. gegn nýliðum í
deildinni og fyrr í vikunni hafði
liðið náð heppnisstigi gegn Leeds
Utd. í markalausu jafntefli lið-
anna.
Lundúnaliðin Q.P.R. og Chel-
sea mættust í fjörugum leik þar
sem sigurmarkið var skorað strax
í upphafi leiks. Dæmd var víta-
spyrna á Jason Cundy, sem var
að leika sinn fyrsta leik fyrir
Chelsea, fyrir aö handleika bolt-
ann í teignum og Roy Wegerle
skoraði af öryggi úr spyrnunni.
Leikmenn Chelsea fengu einnig
vítaspyrnu síðar í leiknum fyrir
brot gegn Andy Townsend, en
það var sjálfur Kerry Dixon sem
skaut framhjá úr vítinu.
Steve Cotterill náði forystu fyr-
ir Wimbledon í fyrri hálfleik gegn
Derby á útivelli. Pað dugði þó
ekki til sigurs því Dean Saunders
jafnaði úr vítaspyrnu fyrir Derby
í þeim síðari.
Pað voru skoruð þrjú mörk úr
vítaspyrnum í leik Coventry gegn
Nottingham For., en liðin gerðu
2:2 jafntefli og komu öll mörkin í
síðari hálfleik. Brian Kilcline
náði forystu fyrir Coventry úr víti
en Nigel Jemson kom Forest í 2:1
með tveim mörkum, þar af öðru
úr víti. Brian Borrows náði síðan
að jafna undir lokin fyrir Coven-
try með enn einni vítaspyrnunni.
Porvaldur Örlygsson lék ekki
með Forest enda á leiðinni til
íslands í landsleikinn gegn
Frökkum.
Luton er spáð falli á hverju
hausti en enn er liðið í 1. deild og
spjarar sig bara vel. Á laugardag
sigraði liðið Southampton á úti-
velli í líflegum leik þar sem Dan-
inn Lars Elstrup var í aðalhlut-
verki hjá liðinu. Hann þaggaði
niður í heimamönnum með tveim
mörkum snemma í leiknum, fyrst
með föstu skoti undir Tim Flow-
ers í marki Southampton og síð-
an með skalla er vörn Southamp-
ton var víðs fjarri. Alec Chamb-
erlain markvörður Luton varði
vel frá Matthew Le Tissier og
Paul Rideout en hann átti ekki
möguleika á 32. mín. er Rideout
skoraði eftir undirbúning Le
Tissier. Ekkert var skorað í síð-
ari hálfleik og óvæntur sigur
Luton í höfn.
Crystal Palace gerir það gott,
liðið sigraði Sheffield Utd. á
heimavelli með marki Garry
Thompson í fyrri hálfleik. Palace
er því á hælum Liverpool ásamt
Arsenal og Leeds Utd.
2. deild
• í 2. deild hefur Oldham tekið
forystu, liðið sigraði Portsmouth’
heima 3:1 og hefur 9 stig.
• Wolves gerði jafntefli á útivelli
gegn Brighton 1:1 og Steve Bull
skoraði ekki fyrir Wolves.
• Devon Whith og David
Mehew skoruðu fyrir Bristol
Rovers gegn Charlton.
• Millwall tók Barnsley létt 4:1
með mörkum Martin Allen, Alex
Rae, Jimmy Carter og Teddy
Sheringham.
• Sheffield Wed. féll í vor og
virðist allt of sterkt fyrir 2. deild-
ina. Liðið hefur unnið báða sína
leiki, nú Hull City 5:1 þar sem
David Hirst skoraði fjögur.
• Julian Dicks skoraði sigur-
mark West Ham úr vítaspyrnu
gegn Watford. Þ.L.A.
Staðan
1. deild
Liverpool 3 3-0-0 7:2 9
Leeds Utd. 3 2-1-0 6:2 7
Arsenal 3 2-1-0 5:1 7
Crystal Palace 3 2-1-0 4:2 7
Tottenham 3 1-2-0 3:1 5
Manchester Utd 31-1-13:2 4
Coventry 3 1-1-1 5:5 4
Luton 3 1-1-1 4:4 4
Sunderland 3 1-1-1 4:4 4
Southainpton 3 1-1-1 3:3 4
Q.P.R. 3 1-1-1 2:2 4
Wimbledon 3 1-1-1 2:4 4
Chclsea 3 1-0-2 3:4 3
Manchester City 21-0-12:3 3
Norwich 3 1-0-2 3:6 3
Derby 3 0-2-1 3:4 2
Nottingham For 3 0-2-13:5 2
Aston Villa 2 0-1-1 2:3 1
Sheffield Utd. 3 0-1-2 2:5 1
Everton 3 0-0-3 3:7 0
2. deild
Oldham 3 3-0-0 8:3 9
Shellield Wed. 2 2-0-0 7:1 6
Millwall 2 2-0-0 6:2 6
Bristol City 2 2-0-0 5:2 6
Notts County 2 2-0-0 5:2 6
Newcastle 2 2-0-0 3:0 6
Swindon 3 2-0-1 3:2 6
West Ham 3 1-2-0 2:1 5
Wolves 3 1-1-1 5:5 4
Oxford 2 1-0-1 6:5 3
Bristol Rovers 2 1-0-1 4:4 3
Port Vale 3 1-0-2 5:7 3
Blackburn 3 1-0-2 4:6 3
Barnsley 2 1-0-1 3:5 3
Ipswich 3 1-0-2 2:4 3
Leicester 3 1-0-2 3:6 3
Middlesbrough 2 0-2-0 1:1 2
Portsmouth 3 0-2-1 3:5 2
Plymouth 3 0-2-1 2:4 2
Brighton 2 0-1-1 2:3 1
W.B.A. 2 0-1-1 2:3 1
Watford 3 0-1-2 2:4 1
Charlton 2 0-0-2 2:3 0
Hull City 3 0-0-3 3:9 0
Daninn Lars Elstrup skoraði bæði mörk Luton gegn Southampton.