Dagur - 04.09.1990, Síða 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 4. september 1990
S.Á.Á.-N. Fræðslunámskeið Fræðslunámskeið fyrir alkóhólista hefst þriðju- daginn 11. september. Á námskeiðinu verður boðið upp á: Fyrirlestra, grúppu- vinnu, tjáningaræfingar, vinnuverkefni úr fyrirlestrum og fl. og fl. Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni sími 27611.
PústþjónustcT Pústkerfi undir flestar tegundir bifreiða. Pakkningar, klemmur, upphengjur. Fast verð fyrir pústkerfaskipti. Höfum fullkomna beygjuvél. Ryðvarnarstöðin sf. Fjölnisgötu 6e • Sími: 96-26339 ■ 603 Akureyri.
Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, á neðangreindum tíma: Knarrarbergi, Öngulsstaðahreppi, tal- inn eigandi Gísli Sigurgeirsson, föstud. 7. sept. '90, kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru: Islandsbanki, Fjárheimtan hf. og Veð- , deild Landsbanka íslands. Lundargötu 6, Akureyri, talinn eigandi Jóna Vignisdóttir, föstud. 7. sept. ’90, kl. 14.45. Uppboðsbeiöendur eru: Gunnar Sólnes hrl. og Veðdeild Landsbanka (slands.
Áshlíð 1, Akureyri, þingl. eigandi Kári Larsen, föstud. 7. sept. ’90, kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er: Ólafur Gústafsson hrl.
Oddagötu 11, rish., Akureyri, þingl. eigandi Jónatan Guðjónsson, föstud. 7. sept. '90, kl. 15.30. Uppboðsbeiðandi er: Gunnar Sólnes hrl.
Gefjun, Gleráreyrum, Akureyri, þingl. eigandi Álafoss hf., föstud. 7. sept. '90, kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru: Iðnþróunarsjóður, Iðnlánasjóður og Skúli J. Pálmason hrl.
Óseyri 8, Akureyri, þingl. eigandi Fjölnismenn hf„ föstud. 7. sept. ’90, kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi er: Iðnlánasjóður.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Óseyri 3, Akureyri, þingl. eigandi Plasteinangrun hf„ föstud. 7. sept. ’90, kl. 15.30. Uppboösbeiðendur eru: Iðnþróunarsjóður og Iðnlánasjóður. Skarðshlíð 22 e, Akureyri, þingl. eig- andi Jóhanna Valgeirsdóttir, föstud. 7. sept. '90, kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er: Ólafur Gústafsson hrl.
Nauðungaruppboð annað og síðara, á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, á neðangreindum tíma:
Skáldalæk, Svarfaðardal, þingl. eig- andi Hallur Steingrímsson, föstud. 7. sept. '90, kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl„ Búnaðarbanki íslands - Stofnlánadeild, Veödeild Landsbanka íslands og Kristinn Hall- grímsson hdl.
Brekkugötu 3, efsta h., Akureyri, tal- inn eigandi Pálmi Björnsson, föstud. 7. sept. ’90, kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., Bæjarsjóður Akureyrar, Óskar Magnússon hdl., Benedikt Ólafsson hdl., Veðdeild Landsbanka íslands, Sveinn Skúla- son hdl. og Ævar Guðmundsson hdl. Hringtúni 5, Dalvík, þingl. eigandi Magnús I. Guðmundsson, föstud. 7. sept. '90, kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., Örlygur Hnefill Jónsson hdl., Veðdeild Landsbanka Islands, Brynjólfur Eyvindsson hdl., Guðni Haraldsson hdl. og Jón Þór- oddsson hdl.
Strandgötu 31, Akureyri, ásamt vél- um og tækjum, þingl. eigandi Dags- prent hf. ofl„ föstud. 7. sept. '90, kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur eru: Iðnþróunarsjóður, Skúli J. Pálmason hrl„ Fjárheimtan hf. og Iðnlánasjóður. Sunnuhlíð 12, Þ og I hl„ Akureyri, þingl. eigandi Skúli Torfason o.fl., föstud. 7. sept. ’90, kl. 15.45. Uppboðsbeiðandi er: Ingvar Björnsson hdl.
Viðjulundur 2a, nyrðri hl„ Akureyri, þingl. eigandi Halldór Hauksson, föstud. 7. sept. ’90, kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl„ Klemens Eggerts- son hdl„ Óskar Magnússon hdl„ inn- heimtumaður ríkissjóðs, Reynir Karlsson hdl. og Fjárheimtan hf.
Höfðahlíð 3, 1.h. og ris, Akureyri, þingl. eigandi Þórarinn Stefánsson, föstud. 7. sept. '90, kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er: Veðdeild Landsbanka íslands.
Kaupangi v/Mýrarveg S-hluti, þingl. eigandi Verslunarmiðstöðin hf„ föstud. 7. sept. '90, kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóðs, Hreinn Pálsson hdl., Ásgeir Thoroddsen hdl., Islandsbanki hf„ Bæjarsjóður Akur- eyrar, Gunnar Sólnes hrl„ Gjaldskil sf„ Óskar Magnússon hdl. og Jóhannes Albert Sævarsson hdl. Ægisgötu 13, Akureyri, þingl. eigandh Sveinar Rósantsson, föstud. 7. sept. ’90, kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl„ Benedikt Ólafs- son hdl. og Ólafur Birgir Árnason hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
„Kallið er komið
komin er nú stundin
vinaskilnaður viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund. “
V. Briem
Þessu kalli hlýddi Aðalbjörn
Gunnlaugsson þann 25. ágúst
1990. Aðalbjörn var næstelstur 7
systkina, fæddur 26. febrúar 1936
á Grund á Langanesi, sonur
hjónanna Guðbjargar Huldar
Magnúsdóttur og Gunnlaugs Sig-
urðssonar, er fluttu að Ytri-
Bakka í Kelduhverfi 1940 og
bjuggu þar til 1964.
Aðalbjörn var í Héraðsskólan-
um á Laugarvatni 1952-1954 og
fór svo í íþróttakennaraskólann
þar haustið 1955. Þar varð hann
fyrir þeirri þungu raun að veikj-
ast af lömunarveiki, sem leiddi til
þess að hann lamaðist á báðum
fótum og var bundinn við hækjur
til æviloka.
Það er mikið áfall ungum
manni sem stefnir að ákveðnu
marki að sjá framtíðardrauma
sína lagða í rúst með svo skjótum
hætti. Við þessu brást Aðalbjörn
af einstakri bjartsýni og hugrekki
og innritaðist í Kennaraskólann
og útskrifaðist þaðan 1960. Hann
hóf kennslu á Reykjum í Hrúta-
firði það sama ár og kenndi þar
til 1964. Eftir það flutti hann í
sína heimabyggð, var eitt ár
skólastjóri í Skúlagarði og flutti
síðan að Lundi í Öxarfirði og var
skólastjóri þar fyrstu árin og síð-
an kennari til dauðadags.
2. júlí 1963 gekk Aðalbjörn að
eiga eftirlifandi konu sína Erlu
Óskarsdóttur frá Reykjarhóli í
Reykjahverfi, dugmikla konu
sem studdi við bakið á honum
með ráðum og dáð. Þau eignuð-
ust 6 mannvænleg börn sem eru:
Steinunn f. ’64, Gunnlaugur f.
’66, Hulda f. ’68, Óskar f. ’69,
Þröstur f. ’74 og Auður f. ’79.
Þrátt fyrir bæklun sína var
Aðalbjörn mikill bjartsýnismað-
ur og með ólíkindum hvað hann
gat gert. Hann var góður kennari
og vann ötullega að ýmsum
félagsmálum. Auk þess að stunda
búskap með kennslunni var hann
t.d. um skeið formaður kirkju-
kórasambands N.-Þing., formað-
ur framsóknarfélags N.-Þing. og
formaður bygginganefndar sýslu-
bókasafns. Aðalbjörn var mikill
æskulýðsleiðtogi, hann var í
forsvari fyrir Ungmennasamband
N.-Þing. um árabil og átti stóran
þátt í því að móta þá stefnu sem
fram var fylgt í þessu héraði bæði
í íþrótta- og æskulýðsmálum.
Þar sem og í öðrum störfum sem
Aðalbjörn tók að sér, stóðu þau
Erla og börnin að baki honum og
komu fram sem samhent fjöl-
skylda.
Ef ég ætti að lýsa manninum
Aðalbirni í stuttu máli þá kemur
mér fyrst í hug hlýtt viðmót, bjart
og oft glettið bros, hjá manni sem
bar framtíð okkar fagra en
strjálbýla héraðs fyrir brjósti og
vildi hag þess sem mestan og
bestan, manns sem vildi greiða
götu samferðafólks hverju sinni
og var elskaður og virtur af
nemendum sínum og stórri fjöl-
skyldu.
Kæra Erla, ég og fjölskylda
mín vottum þér og fjölskyldu
þinni, móður hans, Guðbjörgu
og öðrum vandamönnum, okkar
dýpstu samúð og biðjum Guð að
styrkja ykkur og blessa minningu
um góðan dreng.
Sigurgeir ísaksson.
Síðastliðinn laugardag, 1. sept
1990, var til moldar borinn frá
Skinnastað í Öxarfirði, Aðal-
björn Sigurður Gunnlaugsson,
kennari frá Lundi í Öxarfirði.
Aðalbjörn var fæddur 26.
febrúar 1936 að Grund á Langa-
nesi, sonur hjónanna Gunnlaugs
Sigurðssonar og Guðbjargar
Magnúsdóttur. Aðalbjörn ólst
upp í foreldrahúsum, fyrst að
Grund og síðan að Bakka í Keldu-
hverfi. 2. júlí 1963 kvæntist hann
eftirlifandi eiginkonu sinni, Erlu
Óskarsdóttur frá Reykjarhóli í
Reykjahverfi.
Að loknu námi í Kennara-
skólanum tók Aðalbjörn við
stöðu kennara við Reykjaskóla í
Hrútafirði. Hann var síðan skóla-
stjóri í Skúlagarði í Kelduhverfi,
en eftir það skólastjóri og síðar
kennari við Lundarskóla í Öxar-
firði. Auk kennslustarfa rak
Aðalbjörn fjárbú að Skinnastað
og var mikill áhugamaður um
sauðfjárrækt. Margvísleg störf
átti Aðalbjörn að félagsmálum.
Þar ber hæst störf hans í þágu
ungmennafélagshreyfingarinnar
og var hann Iengi formaður Ung-
mennasambands Norður-Þingey-
inga. Einnig starfaði hann fyrir
samtök fatlaðra og tók virkan
þátt í stjórnmálum.
Ekki er ætlunin hér að rekja
ævi og störf Aðalbjarnar í smá-
atriðum. Fremur hitt að reyna að
tjá með orðum það sem upp
kemur í hugann þegar leiðir
skilja svo skyndilega. Mér er
ofarlega í huga sú eljusemi og sá
dugnaður, sem einkenndi Aðal-
björn og óbilandi kjarkur, þrátt
fyrir fötlun þá er hann hlaut sem
ungur maður og skugga veikinda
á síðustu mánuðum. Ákveðnar
skoðanir hafði Aðalbjörn á þjóð-
málum og lét þær óhikað í ljósi. í
starfi sínu, jafnt sem innan
veggja heimilisins, var hann hinn
trausti og ábyrgi uppalandi. í öll-
um störfum sínum naut hann
óþrjótandi dugnaðar og stuðn-
ings eiginkonu sinnar og bera
börnin þeirra sex því órækt vitni
að hlýja, kærleikur og ábyrgð
voru ætíð í fyrirrúmi. Umhyggju-
semi Aðalbjörns birtist einnig vel
gagnvart systkinabörnum hans,
sem oftlega dvöldust í Lundi,
m.a. um sauðburðinn og áttu auk
þess sum hver kost á því að njóta
leiðsagnar hans í skóla.
Nú þegar leiðir hafa skilið vil
ég segja þetta: Þakka þér Aðal-
björn fyrir samfylgdina. Þakka
þér fyrir glaðværð þína og hug-
rekki. Þakka þér fyrir minning-
arnar, sem þú eftirlætur okkur
hinum.
Vertu sæll mágur.
Megi sá sem yfir okkur vakir
styrkja eiginkonu og böm, tengda-
syni, barnabarn, aldraða móður
og aðra aðstandendur í sorg þeirra
og söknuði.
Vignir Sveinsson.
Kveðja frá Ungmennasam-
bandi Norður-Þingeyinga
„Fögur sál í fögrum líkama“ er
forn speki og allt frá tíð Hellena
hefur mannkynið átt einstaklinga
sem lifað hafa í þeim anda -
Aðalbjörn Gunnlaugsson var
einn af þeim. En hann er frá okk-
ur horfinn svo alltof fljótt.
Hann er búinn að vera burðar-
ás ungmennafélagsstarfsemi
Norður-Þingeyinga nálega 20 sl.
1 ár og það með þeim myndarbrag
sem einkenndi öll hans störf;
kennsluna, búskapinn og heimil-
ið.
Héraðsmót Norður-Þingeyinga
í Ásbyrgi eru rnörgum minnis-
stæðar stundir. Þar fór oft saman
á fögrum stað; ánægt fólk, indælt
veður og afbragðs stjórnun frá
formanni ungmennasamfbandsins
sem var allan tímann á vísum
stað og kynnti dagskrá, lýsti
keppni og tilkynnti úrslit, allt
með sterkum rómi og svo miklum
áhuga að þar lék aldrei neitt
niður.
Af mörgum kostum Aðalbjöms
heitins vil ég hér nefna einn sér-
staklega. Hvort sem hann talaði
við barn eða fullorðinn, var hann
alltaf að ræða við jafningja sinn.
Uppskeru þannig sáðmanns
má fljótt greina. Aðalbjörn í
Lundi var virtur maður og því
meira virtur sem við kynntumst
honum meira.
Ég bið Guð að styrkja Erlu og
börnin í þeirra miklu sorg.
Stefán Eggertsson.
Birting afmælis- og
miimmgargreina
Dagur tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjalds-
laust. Tekið er við greinunum á ritstjórn blaðsins að Strandgötu 31,
Akureyri svo og á skrifstofum blaðsins á Húsavík og Sauðárkróki.
Athygli skal vakin á því að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í fimmtudagsblaði, að
berast síðdegis á þriðjudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
Þá eru minningargreinar ekki birtar í laugardagsblaði.
Meginreglan er sú að minningargreinar birtist undir fullu nafni
höfundar.