Dagur - 09.10.1990, Síða 1
73. árgangur Ákureyri, þriðjudagur 9. október 1990 193. tölublað
LACOSTE
Peysur • Bolir
jm
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
- mjög hraðfleyg og búin jafnþrýstibúnaði
Flugfélag Norðurlands
kaupir öfluga flugvél
klefinn auka mjög þægindi far-
þeganna. Vélin þarf nokkuð
langa flugbraut og er talað um
1000 metra malarbraut sem lág-
mark, en slíkar brautir etu t.d. á
Isafirði, Sauðárkróki, Húsavík
og Egilsstöðum.
Nýja vélin er hrein viðbót við
vélakost FN því ekki er ráðgert
að selja neina vél í staðinn. Pó
sagði Sigurður að það ætti eftir
að koma í Ijós hvort nýja vélin
færði félaginú aukin verkefni eða
hvort hún myndi leysa Twin Ott-
er af hólmi á einhverjum leiðum,
sem hún myndi raunar gera að
einhverju leyti.
Flugfélag Norðurlands hefur
augastað á leiðinni milli Reykja-
víkur og Húsavíkur en sérleyfi
Flugleiða rennur senn út á þeirri
leið. Þá hefur FN leyfi til áætlun-
arflugs milli Akureyrar og Kefla-
víkur og sagði Sigurður að fyrir-
hugað væri að hefja flug á þeirri
leið næsta vor. Þarna eru einmitt
leiðir sem henta vel fyrir Metro
III. SS
Loðdýrabændur:
Skuldbreyting-
unní að ljúka
í desember á síðasta ári voru
samþykkt lög um ákveðið
fjármagn til ríkisábyrgðar á
skuldum loðdýrabænda. Rík-
isskuldabréf með 60%
ábyrgð voru gefin út og
meirihlutinn af loðdýra-
bændum hafði fengið þessa
skuldbreytingu í júní. í þess-
um mánuði reiknar Fram-
leiðnisjóður síðan með að
Ijúka málinu.
Jón Guðbjörnsson, hjá
Framlciönisjóði landbúnaðar-
ins, sagðist vonast til að hægt
væri að ganga frá því síðasta í
þessum mánuði. Jón sagði að
aðeins væru eftir einstaka
bændur sem ættu eftir að
endursenda gögn til sín, en
sumir þeirra myndu sjálfsagt
ekki fara út í skuldbreyting-
una.
Þessi skuldbreyting er aðal-
lega á skuldum þar sem
fjölskyldunteðlimir voru
ábyrgðarmenn, en á stærri
skuldum þurfti einnig að 'gera
nauðungarsamninga. Ríkis-
ábyrgðin hefur það í för með
sér að ríkið tekur ábyrgð á allt
að 60% skuldar. Dálitlar tafir
urðu í skuldbreytingunni í
sumar þegar bankar neituðu
að kaupa þessi ríkisskulda-
bréf, en nú er aftur kominn
skriður á ntálið. Ekki eru allir
loðdýrabændur sent taka þátt í
þessu, en þó flestir. Öllum var
gefinn kostur, en þeir sem ein-
ungis eru með fá dýr hafa ekki
allir þurft á þessu að halda að
sögn eins forsvarsmanna loð-
dýrabænda. SBG
Sameiningarkosningarnar í hreppunum framan Akureyrar:
Hreppamir þrír í eina sæng um áramót
mikill meirihluti samþykkti sameininguna í kosningum á laugardag
„Ég er ánægður með niður-
stöðuna þó svo að kjörsóknin
hafi ekki verið mikil. Ég held
að ekki megi álykta sem svo að
menn hafi verið áhugalausir
um þetta mál þótt kjörsóknin
hafi verið þetta dræm heldur
telji margir þessa sameiningu
vera eðlilegan hlut,“ segir Sig-
urgeir Hreinsson, oddviti
Saurbæjarhrepps, um samein-
ingarkosninguna á laugardag
þar sem mikill meirihluti
þeirra sem greiddu atkvæði
samþykkti sameiningu hrepp-
anna þriggja framan Akureyr-
ar frá næstu áramótum.
Á kjörskrá í hreppunum þrem
voru 635 manns og af þeim
greiddi 341 atkvæði eða 53,7%.
Sameiningu samþykktu 280 eða
82,1%, nei sögðu 57 eða 16,7%
og auðir seðlar voru 4 eða 1,2%.
Þessar niðurstöður eru mjög
áþekkar niðurstöðum skoðana-
könnunar sem fram fór um þetta
mál samhliða sveitarstjórnar-
kosningum í vor.
í Saurbæjarhreppi voru 166 á
Bílvelta í Víðidal:
þyrla sótti
slasaðan mann
Bílvelta varð á Fitjárdalsvegi í
Víðidal í V.-Húnavatnssýslu á
aðfaranótt sunnudags. Öku-
maður slasaðist mikið og var
fluttur með þyrlu suður til
Reykjavíkur. Hann er enn í
gjörgæslu.
Veltan varð með þeim hætti að
ökumaðurinn lenti út í kanti og
missti við það bílinn út af vegin-
um að sögn lögreglu. Tvennt var
í bílnum, en farþeginn var í bíl-
belti og slasaðist lítið. Ökumað-
urinn var aftur á móti ekki í bíl-
belti og kastaðist út úr bílnum
með fyrrgreindum afleiðingum.
SBG
kjörskrá og 90 greiddu atkvæði
eða 54,2%. Já sögðu 83 eða
92,2%, nei sögðu 6 eða 6,7% en
einn seðill var auður.
í Hrafnagilshreppi voru 209
manns á kjörskrá og þar greiddu
116 atkvæði eða 55,5%. Já sögðu
95 eða 81,9%, nei sögðu 20 eða
17,2% en einn seðill var auður.
í Öngulsstaðahreppi voru 260
á kjörskrá en 135 greiddu
atkvæði, eða 51,9%. Já sögðu
102 eða 75,5%, nei sagði 31 eða
22,9% og auðir seðlar voru 2.
Kjörfundur hófst kl. 10 á laug-
ardagsmorguninn og honum lauk
um kvöldmatarleytið í Hrafnagils-
hreppi og Saurbæjarhreppi en
um kl. 20 í Freyvangi. Talið var á
þremur stöðum og lágu fyrr-
greind úrslit fyrir um kl. 22.
I skoðanakönnun um nafn
fékk nafnið Eyjafjarðarbyggð flest
atkvæði þó að mjótt hafi verið
á munum milli fjögurra efstu
nafna. Þessari skoðanakönnun
eru gerð frekari skil á bls. 3.
Sigurgeir Hreinsson segir að
nú liggi fyrir sveitarstjórnunum
að koma sér saman um nafn og
það verði gert sem fyrst. Þá
munu sveitarstjórnirnar tilnefna
fulltrúa á sameiginlegan lista fyrir
sveitarstjórnarkosningar þann
17. nóvemberen framboðsfrestur
rennur út 2,'nóvember. Þá munu
sveitarstjórnirnar einnig fjalla
um tillögur samstarfsnefndar um
sameininguna og gera þær sam-
þykktir sem þarf til að af samcin-
ingunni geti orðið um áramót,
t.d. að sveitarsjóðirnir þrír renni
saman í einn sjóð er taki á sig all-
ar eignir og skuldir núverandi
sveitarfélaga.
JÓH
Bændaskólinn á Hólum:
Aldrei hærra hlutfall stúlkna
Bændaskólinn á Hólum í
Hjaltadal var settur í gær í
Hóladómkirkju eins og venja
er. Hærra hlutfall kvennem-
enda er í skólanum þetta áriö
en verið hefur og eins er hrossa-
ræktin farin að sækja í sig
veðrið aftur. Aðsókn í skólann
var meiri en hægt var að anna
líkt og undanfarið, en nemend-
ur verða 50 taisins í vetur.
Jón Bjarnason, skólastjóri,
sagði mestu breytinguna í kynja-
skiptingunni vera í því að hópur-
inn sem kemur nýr inn skiptist í
15 stúlkur og 11 stráka. Þar með
verða í skólanum 29 strákar og 21
stúlka sem er hæsta hlutfall
kvenkynsins í Bændaskólanum
sem verið hefur.
Eitthvað virðist fiskeldisviðið
vera að missa athyglina, því að
færri nemendur verða á því en
undanfarin ár.
„Sú almenna breyting sem er
að verða á náminu hjá okkur er
það aö við krefjumst aukins
undirbúnings. Það verður gert í
aföngum og stefnt að því á næstu
- skólinn settur í gær
1-2 árum að inntökuskilyrði
verði minnsta kosti tveir vetur í
framhaldsskóla eða mikil starfs-
reynsla. Þá verður hægt að út-
skrifa nemendur héðan með eins-
konar framhaldsskólaréttindi,“
sagði Jón skólastjóri.
Tveir nýir starfsmenn koma til
starfa við skólann í haust. Egill
ísólfsson mun sjá um kennslu í
reiðlist og tamningum og Skúli
Skúlason er ráðinn bæði af
Bændaskólanum og Veiðimála-
stofnun til að sjá um fiskrækt.
Sigurður Guðmundsson vígslu-
biskup sá um helgistund við setn-
inguna og síðan var setningarat-
höfn. í gærkvöld fór inntaka
nýrra nemenda í samfélag skól-
ans svo fram og að venju voru
nýnemar látnir standa upp og
segja frá sjálfum sér. SBG
Síldveiði hófst sl. sunnudag:
Silfur hafsins lætur
enn lítið á sér kræla
Fremur lítil veiði er enn sem
komið er á síldarmiðunum fyr-
ir austan land, en vertíðin
hófst á hádegi sl. sunnudag.
Nokkrir bátar eru komnir á
miðin, en hafa lítið fengið.
Þó hafa Halldóra HF og Ham-
ar SH fengið um þrjátíu tonn
hvort af fallegri stórri síld, sem fer
í frystingu á Japansmarkað. Síld-
ina fengu bátarnir í Berufjarðar-
ál.
Bátar af Norðurlandi tínast nú
einn af öðrum á síldarmiðin. Eft-
ir því sem Dagur kemst næst er
Sigþór ÞH kominn á miðin og þá
er Arnþór, bátur G.Ben. á
Árskógsströnd, í startholunum.
Hann var í slipp, en fer einhvern
næstu daga austur. óþh
Flugfélag Norðurlands hefur
fest kaup á Fairchild Metro III
skrúfuþotu og er vélin væntan-
leg til landsins í nóvember-
mánuði. Þessi flugvél tekur 19
farþega, hún er búin jafnþrýsti-
búnaði og er mjög öflug,
t.a.m. hraðfleygari en Fokker
vélar Flugleiða. Vélin er fram-
leidd árið 1982 og er keypt af
amerísku flugfélagi fyrir 75
milljónir króna.
Að sögn Sigurðar Aðalsteins-
sonar, framkvæmdastjóra Flug-
félags Norðurlands, er Metro III
vélin hentug á lcngri leiðum
innanlands og einnig í milli-
landaflugi. Hraðinn og jafnþrýsti-
Fimm bílar skullu saman á Hörgárbraut á Akureyri síðdegis í gær. Óhappið varð með þeim hætti að ökumaður
bifreiðar stöðvaði fyrir gangandi vegfaranda á gangbraut en þá skall önnur bifreið aftan á henni og þá þrír bílar hver
aftan á öðrum. Ein stúlka var flutt á slysadeild en hún var talin hafa hlotið minni háttar meiðsli. Eignatjón var hins
vegar mikið í þessum árekstri. Mymi: kl