Dagur - 09.10.1990, Blaðsíða 4

Dagur - 09.10.1990, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 9. október 1990 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR PÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Einleikur iðnaðarráðherra Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, kvað í síðustu viku loks opinberlega upp úr um að nýja álverið færi á Keilisnes. Þar með batt hann enda á þá óvissu sem ríkt hefur um langt skeið um staðsetningar- málið. Hitt er annað mál, að margir endar eru enn lausir í álmálinu, og opinber meðferð þess hefur orðið til að auka byggðatogstreitu í landinu, sem var þó ærin fyrir. Iðnaðarráðherra hefur hlotið margvíslega gagn- rýni fyrir meðferð sína á álversmálinu, kannski fyrst og fremst fyrir að standa fyrir eins konar uppboðs- markaði meðal sveitarfélaga um álver. Sú tog- streita sem verið hefur milli byggðarlaga um álver- ið er langt frá því að vera æskileg, og hlutur iðnað- arráðuneytisins í því efni hefur langt í frá lægt öldurnar. Stjórn Landsvirkjunar hefur ekki lýst sig reiðu-. búna á þessu stigi málsins til að veita samþykki fyr- ir orkusölu til álversins, og mjög skiptar skoðanir eru innan stjórnarinnar um þessi mál, eins og ber- lega sést af gagnrýni sem þar kom fram á málsmeð- ferð iðnaðarráðherra. Einnig eykur andstaða margra Austfirðinga til þess að láta orku Fljótsdals- virkjunar renna til álvers á Suðurnesjum á óviss- una. Einleikur iðnaðarráðherra í álversmálinu og eftir- farandi viðræður Alþýðuflokksforystunnar við Sjálf- stæðisflokkinn á dögunum er ekki til þess falinn að auka traust kjósenda á flokknum. Alþýðuflokkurinn virðist nú horfa aðallega til suðvesturhorns lands- ins um fylgi kjósenda, og læðist að mörgum sú til- finning að forystan sem þar situr nú í fyrrirúmi muni bera aðra hagsmuni en landsbyggðarinnar mest fyrir brjósti. Fulltrúar Framsóknarflokks og Alþýðubandalags í stjórn Landsvirkjunar létu bóka að þeir væru ósáttir við þau vinnubrögð iðnaðarráðherra að standa í samningaviðræðum um orkuverð til nýja álversins, án samráðs við Landsvirkjun. Páll Péturs- son segir í sinni bókun að samningsdrögin við Atl- antsál tryggi ekki að orkuverð til almenningsveitna muni ekki hækka, og því þurfi að búa betur um hnútana. Alþýðubandalagsfulltrúarnir benda á að verið sé að binda alla bestu virkjunarkosti þjóðar- innar til langframa á verði sem er umtalsvert lægra en gerist til flestra álvera á vesturhveli jarðar. Sú staðreynd blasir því við, að iðnaðarráðherra skuldar landsmönnum skýringar á málsmeðferð sinni í álmálinu. Landsmenn hljóta að vera sam- mála um að þjóðhagsleg hagsemi til langframa sé skilyrði þess að álver verði á annað borð reist hér á landi. Eins og staðan er í dag eru of margir þræðir lausir í þeirri mynd. Þótt hægt sé að sýna fram á að mikið fé muni renna í ríkissjóð frá nýja álverinu, hef- ur enginn sýnt fram á hversu miklu fé þurfi að veita til landsbyggðarinnar til að spoma við þeim byggða- röskun sem þegar er alltof langt gengin. EHB Eflum ísland sem eina þjóð Ég sá þátt í Svíþjóð í vor, þar sem Stokkhólmsbúar veltu því fyrir sér á skoplegan hátt, hvort þeir hefðu nokkuð með íbúa Skánar að gera, og hvort Skánn væri yfir höfuð nauðsynlegur. Þetta rifjaðist upp fyrir mér þeg- ar ég las fyrstu spurningu byggða- nefndar forsætisráðherra þar sem Fjórðungssamband Norðlend- inga er spurt að því hvort það telji þörfá að draga úr fólksflutn- ingum úr fjórðungnum. Það er sem sagt ekkert gefið mál að það að draga úr fólksflótt- anum af landsbyggðinni eigi að vera stefna, og kannski stefna stjórnvöld í þveröfuga átt, a.m.k. hefur mér virst svo vera nú í seinni tíð. Grínistar forsætisráðherra eru engu síðri en grínistarnir í Stokk- hólmi. Við verðurn sífellt alþjóð- legri, íslendingar og höfum vænt- anlega þess vegna sífellt minni þörf fyrir að vera að púkka upp á þessa landsbyggð. Ef svo við sleppum nú öllu gríni, þá má lesa það út úr spurn- ingum byggðanefndar að hún á sér þá ósk að Fjórðungssamband Norðlendinga sjái sér fært, að gera eitthvað í málinu, í sínum landshluta. Og þar virðumst við vera á sömu nótum. Það þarf að koma á meira sjálfsforræði úti á landi, auka ábyrgð heimamanna, koma því á að við fáum að ráðstafa því sem við öflum sjálf. Koma á valdameiri stjórn heima fyrir, sent berst fyrir því að efla atvinnu og styrkja búsetu í sínum fjórð- ungi. Togstreitunni sem ríkt hefur á milli landsbyggðar og höfuðborg- arsvæðisins verður að linna. Hún er engu líkari en valdabarátta milli hjóna, sem búið hafa saman um árabil og sitja pikkföst og spóla í sama hjólfarinu, kenna hvort öðru um flest sem aflaga fer og hrópa hvort á annað: „Pað ert þú sem verður að breyta þér ef þetta á að ganga!“ Við köllum þetta ástand Tímabil ömurleikans, innan sál- fræðinnar og það er ákaflega mis- jafnt hvað þetta tímabil varir lengi í sambúð, en það er gott til þess að vita að það er hægt að ná sér upp úr eymdinni með því að báðir aðilar leggi niður vopn og taki jafna ábyrgð á að ná fram viðunandi lausn. „Ömurleikatímabilinu" í sam- búð landsbyggðar og höfuðborg- arsvæðis verður að ljúka. Við verðum að taka höndum saman, höfuðborgarbúar, háir sem lágir og landsbyggðarmenn, allir sem einn, og hætta að agnúast hver út í annan eins og smákrakkar og fara að vinna saman eins og full- orðið fólk. Vinna að því að efla samkennd með okkur sem ein þjóð, efla ísland. Við þurfum að ná upp miklu meiri samvinnu á milli höfuð- borgarbúa og landsbyggðar- manna á öllum sviðum og auðvit- að á þann máta að báðir aðilar sjái sér hag í því. Það þarf að komast á gagnkvæm virðing og væntumþykja, til þess að rofi til og taki að birta í þjóðarsálinni. Ef ég ber saman niðurstöður byggðanefndar forsætisráðherra og Fjórðungssambands Norð- lendinga, þá erum við sammála í öllum meginatriðum: Við teljum nauðsynlegt að auka sjálfstæði landsbyggðarmanna, efla atvinnu og skapa meiri fjölbreytni í atvinnutækifærum úti um land, jafna aðstöðu fyrirtækja til rekstrar og þá ekki síst þeirra sem eru í frumatvinnugreinunum og útflutningi, jafna búsetu- ntöguleika fólks með því að Ingunn St. Svavarsdóttir. draga úr þeim mismun, sem er á kostnaði við að lifa úti á landi og á höfuðborgarsvæðinu. Ég hef tínt til aðalatriðin á lista sem við getum rennt yfir í sam- einingu: Ríkisstjórn og Alþingi annars vegar og landshlutasamtök og sveitarfélög hins vegar vinni sam- an að eftirfarandi. Stjórnsýsla • Aukum sjálfstæði landshlut- anna, hvaða leið sem við veljum í því efni. Með því drögum við úr miðstýringu og komum á vald- dreifingu. • Ýtum undir sameiningu sveit- arfélaga, þar sem það er augljós- lega hagkvæmt, það er að segja, það verður tekjuaukning í sam- einuðu sveitarfélagi og þar með meiri möguleiki á að bæta þjón- ustuna við íbúana. • Flytjum fleiri verkefni og jafn- framt tekjustofna yfir til sveitar- félaganna. Aukum þannig sjálf- stæði sveitarfélaganna. Sam- kvæmt úttekt Sigurðar Helgason- ar, fyrrverandi sýslumanns á Seyðisfirði, þá hafa sveitarfélög á íslandi einungis 20% opinberrar þjónustu með höndum, á meðan hin Norðurlöndin hafa helmingi hærri tölu. • Eflum sjálfstæði opinberra þjónustumiðstöðva á lands- byggðinni, svo sem héraðslæknis- embætta, umdæmisskrifstofa húsnæðismála, umhverfismála og Tryggingastofnunar, sem nú er verið að tala um að skipta upp eftir landshlutum. • Flytjum höfuðstöðvar opin- berrar þjónustu, sem augljóslega eiga heima út á landi, þangað. Tökum dæmi: Vegagerð ríkisins, Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins, Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins, Landmælingar ís- lands, Orkustofnun, embætti veiðistjóra og eflaust má tína fleira til. Hér skal tekið fram að ekki er verið að tala um að flytja starfsfólk þessara stofnana nauð- ug - viljug út á land, heldur flytja stofnanirnar sjálfar, en mönnun- in kæmi svo í aðra hönd. • Byggjum allar nýjar ríkisstofn- anir, sem þjónusta eiga lands- byggðina þar. Þetta er skýlaus krafa og á til dæmis við um hina nýju umhverfisverndarstofnun með 4 deildum, sem á að fara stofna, undir umhverfisráðuneyt- inu. Búsetuskilyrði Jöfnum aðstöðu íslendinga til búsetu, hvar sem er á landinu með því að: • Jafna raforkuverð um landið. Það gengur ekki að fjölskylda á Kópaskeri þurfi að borga allt að því fimm sinnum hærra verð fyrir rafmagn og hita á ntánuði, en ef miðað er við jafn stórt húsnæði á Seltjarnarnesi. • Jafna símakostnað um landið. Þetta ætti að vera jafn sjálfsagt og með burðargjöldin hjá Pósti og síma. • Tryggj a ráðningu fagfólks til heilsugæslustöðva. Það lætur enginn bjóða sér það til lengdar og hafa ekki aðgang að lækni eða hjúkrunarfræðingi, síst af öllu aldraðir og barnafólk. • Auka bundið slitlag á vegum til að stækka þjónustu- og at- vinnusvæði. • Tryggja áframhald flugsam- gangna við alla landsmenn, þrátt fyrir auknar öryggiskröfur, sem eru í því fólgnar að frá og með áramótum verða alltaf 2 flug- menn í hverri ferð. Sá kostnaður sem hlýst af þessu hlýtur að verða að koma úr sameiginlegum sjóð- um, því litlu flugfélögin geta eng- an veginn staðið undir honum ein. Fjármálastjórn Aukum fjármagn í umferð á landsbyggðinni: • Tryggjum að gengisskráning verði þannig að framleiðslu- og útflutningsfyrirtæki skili hagnaði. Það dugar ekkert minna! • Athugum með tengingu fs- lensku krónunar við annan gjald- miðil t.d skandinavíska krónu. Kannski það sé leiðin? • Leiðréttum það misrétti að höfuðborgin fái allar skatttekjur af fyrirtækjum og stofnunum, sem þar eru, en í raun þjóna öllu landinu. • Göngum til samstarfs, ríki og sveitarfélög, um stofnun gjald- heimtna út um land, í samræmi við vilja sveitarfélaga á hverjum stað. • Stöðvum lífeyrisgreiðslur landsbyggðarfólks í fjórðungun- um með því að skipta lífeyris- sjóðunum upp í sjálfstæðar ein- ingar eftir landshlutum. Atvinna Bætum atvinnuöryggi lands- byggðarmanna og aukum fjöl- breytni í atvinnurekstri út um allt land með því að: • Auka úrvinnslu afurða sem næst framleiðslustað. Með því aukum við verðmæti vörunnar og atvinnu heima í héraði. • Hvetja fyrirtæki úti á landi til sjálfstæðs innflutnings, milliliða- laust. Það ætti að draga úr kostn- aði. • Hvetja fólk til að nýta sér þá þekkingu og þjónustu sem fæst í þeirra heimabyggð. • Stuðla að samvinnu fyrirtækja og stofnun fyrirtækjaneta, jafnt innan landshluta sem utan. • Kortleggja landið m.t.t. beit- arþols og útdeila framleiðslu- kvóta í landbúnaði í samræmi við það. Öll viljum við lifa í sátt við umhverfið og náttúruna. • Koma á atvinnuþróunarsjóð- um í hverju kjördæmi og tryggja þeim fjárframlög. Síðast en ekki síst. Vera vakandi fyrir því sem er að gerast í at- vinnumálum. Tökum sem dæmi smábátaútgerðina, sem virðist eiga í vök að verjast með tilkomu kvótasölumála, en þar með eru líka heilu byggðarlögin í hættu hvað atvinnu snertir. Að lokunt þetta: Það er aumt til þess að vita að nú skuli menn ræða um það í fullri alvöru að draga verði úr framkvæmdum alls staðar á land- inu, til þess að sporna við þeirri þenslu sem álver á Keilisnesi komi til með að valda. Ingunn St. Svavarsdóttir. Höfundur cr fonnaður Fjórðungssam- bands Norðlendinga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.