Dagur - 09.10.1990, Blaðsíða 13

Dagur - 09.10.1990, Blaðsíða 13
/ Þriðjudagur 9. október 1990 - DAGUR - 13 Minning: öf Sigtryggsdóttir Fædd 7. febrúar 1932 - Dáin 2. október 1990 Mörgum finnst haustið fegurst allra árstíða, fyrir aðra er það merki hins gagnstæða. Þeir hinir síðari sjá fölnað gras og gulnuð laufblöð falla til jarðar. Það minnir þá á að líf okkar mann- anna svipar svo mjög til náttúr- unnar allrar og þeir fyllast von- leysi og óvissu um hið ótrygga mannlíf. Haustið er því í margra huga tími hins gróðursnauða og dauðvona í umhverfi okkar. Aðr- ir líta á haustið og veturinn sem tákn hins gagnstæða, að öll nátt- úran þurfi á hvíld að halda áður en komi að upphafi nýs lífs og vaxtar. Kona á miðjum aldri er látin. Hún átti langa haustdaga. Við hefðum kosið að þeir dagar hefðu ekki komið í hennar líf, en það er ekki okkar að ákveða stað og stund þegar þjáningar og dauði eru annars vegar. Mikið reyndi á þrek hennar, hver grein á hennar meiði lét undan, skipti litum og fölnaði. Hetjulegri bar- áttu er lokið. Ólöf eða Lalla, eins og hún var oftast kölluð af vinum sínum, fæddist að Þrúðvangi við Akur- eyri þann 7. febrúar 1932 dóttir hjónanna Sigtryggs Þorsteinsson- ar og Sigurlínu Haraldsdóttur. Hún var næst elst 5 systkina, tvö þeirra létust í bernsku hin eru Sigtryggur búsettur hér í bæ og Sigríður sem lést árið 1979. Auk þess átti Ólöf tvö hálfsystkini, Þorgerði og Hallgrím, sem bæði eru látin. Ólöf lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar árið. 1949 og stundaði því næst nám við Kvennaskólann að Laugum 1950-1951. Árið 1951 giftist hún eftirlif- andi eiginmanni sínum Jóhanni Guðmundssyni málarameistara frá Eiði á Langanesi. Hófu þau búskap að Aðalstræti 20 á Akur- eyri og bjuggu þar í 14 ár. Dætur þeirra fjórar fæddust þar en þær eru: Sigurlína (fædd 1952) mat- ráðskona gift Jóni Hermannssyni þau eiga 5 börn, Hólmfríður (fædd 1954) sjúkraliði gift Þór- arni Thorlacius þau eiga 3 börn, Þorgerður Ásdís (fædd 1956) kennari og Ólöf María (fædd 1963) verslunarmaður hún á eina dóttur, sambýlismaður hennar er Þórður Þórðarson. Árið 1968 keyptu Ólöf og Jó- hann gróðrarstöðina Brúnalaug í Öngulsstaðahreppi þar sem þau stunduðu grænmetisrækt í 18 ár. Ólöf tók strax miklu ástfóstri við þann stað og þótt þau Jóhann hefðu ekkert fengist við ylrækt áður, náðu þau fljótt ótrúlega góðum árangri. Umhyggja Ólaf- ar fyrir hinum viðkvæma gróðri var einstök enda virtist allt vaxa og dafna í kringum hana, en það átti ekki bara við um blóm og plöntur, börnin löðuðust að henni og nutu umhyggju hennar og elsku. Gestkvæmt var oft á Brúnalaug og alltaf var tími til samverustunda þótt verkefni væri ærin. Ólöf tók virkan þátt í félags- störfum og var ætíð boðin og búin að starfa. Hún var í stjórn kvenfélagsins í sveitinni um tíma og einnig í stjórn Héraðssam- bands eyfirskra kvenna. Árið 1986 fluttust þau hjónin aftur til Akureyrar. Þá gafst Ólöfu betri tími til þess að sinna hugðarefnum sínum og listsköp- un. Hún málaði postulin af mikilli natni og þær eru ófár brúðurnar sem hún skapaði. Barnabörnin voru tíðir gestir hjá henni og Jóhanni og eitt þeirra Ellen Ósk er alin upp hjá þeim. Þau sakna nú sárt elskulegrar ömmu. Ólöf bar veikindi sín af mikilli stillingu, þess urðu allir áskynja er komu að sjúkrabeði hennar. Hún naut góðrar umhyggju sinna nánustu og hjúkrunarfólks en átti sjálf mikið að gefa bæði huggun og von. Jóhann, dætur og öll fjölskylda hennar, við syrgjum sárast það sem áður veitti okkur mesta gleði, minning um góða konu verður frá engum tekin, þið eigið samúð mína alla. Mágkona min hafi hjartans þökk mína og minna. Guð blessi minningu Ólafar Sigtryggsdóttur. Magnús Jónsson. Nú er ið fagra lífið liðið, lengur ei bærist hjarta milt, óskipað rúm og autt er sviðið, aldrei það skarð mun verða fyllt; mannkosta lifir minning ein mætari hverjum bauta-stein'. K.J. Miðvikudaginn 2. október sl. andaðist á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri mágkona mín, Ólöf Sigtryggsdóttir. Fyrir 30 árum lá leið okkar Ólafar fyrst saman, og tengdumst við vináttuböndum er aldrei bar skugga á. Ólöf var vel gefin og glæsileg kona, vönduð og traust. Hún var dásamleg móðir og amma. Manni sínum bjó hún fal- legt og notalegt heimili. Á heim- ili þeirra hjóna var ætíð gott að koma og áttum við margar góðar stundir sem aldrei gleymast. Fyrir rúmu ári kenndi Ólöf sér meins af þeim sjúkdómi sem ekki var við ráðið. í veikindum sínum sýndi Ólöf frábæra stillingu og æðruleysi sem einkenndi allt hennar líf. Mér finnst ég hafa verið lán- söm að hafa kynnst svo mikil- hæfri konu sem Ölöf var og sakna ég hennar sárt. Elsku Jóhann og fjölskylda. Ég og fjölskylda mín vottum ykkur dýpstu samúð. Minningin um góða konu lifir. Aðalbjörg Guðmundsdóttir. Karlakór Akureyrar - Geysir Sameining kóranna fer fram í Lóni, fimmtudag- inn 11. október n.k. kl. 20.30. Félagar beggja kóranna eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega. Nýir félagar eru velkomnir. Á fundinum verður gengið frá lögum fyrir hinn sam- einaða kór. Þá fara fram venjuleg aðalfundarstörf og vetrarstarf- ið verður rætt. Stjórnir kóranna. Vélstjórafélag Islands Félagar í Vélstjórafélagi íslands á Norð- urlandi! Almennur félagsfundur verður haldinn að Skipagötu 14, Akureyri, 4. hæð, miðvikudaginn 10. október nk. kl. 20.00. Félagar fjölmennið. Stjórnin. Framsóknarmenn Akureyri. |||| Aðalfundur Framsóknar- r félags Akureyrar verður haldinn mánudaginn 15. október kl. 20.30. í Hafn- arstræti 90. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar. Kosning fulltrúa á flokksþing. Tilnefning fulltrúa í prófkjör vegna alþingiskosninga. Önnur mál. Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar. Okkar innilegustu þakkir sendum við fyrir þann fjárhagslega stuðning og hlýhug sem þið veittuð okkur vegna utanlands- ferðar dóttur okkar SÖRU KATRÍNAR. Guð blessi ykkur öll. Margrét Guðbrandsdóttir og Stefán Gíslason. Menntamálaráðuneytið Lausar stöður Við Stofnun Árna Magnússonar á íslandi er lausar til umsóknar eftirtaldar stöður: 1. Staða styrkþega. 2. Staða sérfræðings. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf sin, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 5. nóvember n.k. Menntamálaráðuneytið, 5. október 1990. |||l Framsóknarmenn í Norðurlandskjördæmi-eystra 35. kjördæmisþing K.F.N.E. verður haldið að Hótel Húsavík daga 10. og 11. nóvember n.k. Þann 11. nóvember verður einnig haldið aukakjör- dæmisþing. Dagskrá verður nánar auglýst síðar. Skrifstofa K.F.N.E. að Hafnarstræti 90, Akureyri er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 17.00 til 19.00 og föstudaga frá kl. 15.00 til 17.00. Starfsmaður er Sigfríður Þorsteinsdóftir og mun hún veita allar upplýsingar í síma 21180. Stjórn K.F.N.E. Vetrarorlof til Benidorm! Verkalýðsfélagið Eining vili minna félagsmenn sína á ódýru orlofsferðirnar til Benidorm á Spáni í vetur sem Alþýðusamband íslands hefur gert samninga um, fyrir hönd aðildarfélaga þess við Samvinnuferðir-Landsýn h.f. Farnar verða sex ferðir til Benidorm á tímabilinu 11. október nk. fram í mars á næsta ári. Almennt eru undirtektir við sölu vetrarferðanna góðar. Sérstaklega viljum við benda á ferðina sem hefst 2. nóvember n.k., sem stendur fram til 19. desember og hentar því vel þeim, sem vilja taka sér langt vetrarfrí, en vilja þó halda jólahátíð heima. Á þessum tíma er veðurfar milt á Benidorm, þægi- legt hitastig og hæfilegt sólfar. Boðið er upp á ýmislegt til skemmtunar meðan dval- ið er ytra. fslenskir fararstjórar skipuleggja m.a. verslunar og skoðunarferðir um Benidorm og nærliggjandi staði. Vert er að benda á, að í sumar ferðirnar getur orðið uppselt næstu daga. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Samvinnuferð- ar-Landsýnar h.f., Skipagötu 14, Akureyri, sími 27200. Stjórn Vlf. Einingar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.