Dagur


Dagur - 09.10.1990, Qupperneq 10

Dagur - 09.10.1990, Qupperneq 10
11' — — noot o 10 - DAGUR - Þriðjudagur 9. október 1990 íþróffir Siggi Jóns góður hjá Arsenal daglegt brauð hjá Liverpool - gott hjá Wimbledon Gary Mabbutt, fyrirliði Tottenham, róar hér Paul Gascoigne. Markalaust jafntefli gegn Q.P.R. fór í taugarnar á kappanum og var hann bókaður í íeiknum. Ensku iiðin Aston Villa og Manchester Utd. komust áfram í Evrópumótunum í vikunni, Villa sigraði Banik Ostrava 2:1 og Man. Utd. vann Pecsi Munkas 1:0, bæði lið léku á útivelli. Wrexham sigraði Lyngby frá Danmörku 1:0 og mætir Man. Utd. í næstu um- ferð. Aðeins átta leikir fóru fram í 1. deild á laugardag, leikur Nottingham For. gegn Everton var sjónvarpsleikur á sunnudegi og Ieikur Luton gegn Manchester Utd. úr þess- ari umferð hafði verið leikinn fyrr í haust og lauk sem kunn- ugt er 0:1 fyrir Utd. En þá eru það leikirnir átta á laugardag- inn í 1. deild. Liverpool hélt áfram sigur- göngu sinni er liðið lagði neðsta lið deildarinnar, Derby að velli 2:0 á Anfield. Gestirnir gáfust þó ekki upp án baráttu og gáfu allt sitt í leikinn, en mörkin tvö hjá Liverpool voru falleg og vel að þeim unnið. Á 36. mín. gaf varn- armúr Derby loks eftir er Peter Beardsley renndi knettinum út til Ray Houghton sem af miklu öryggi sendi hann í netið hjá Pet- er Shilton markverði Derby. Síðara markið kom ekki fyrr en á 85. mín. er John Barnes tók góða rispu á kantinum og sendi fyrir markið þar sem Beardsley af- greiddi boltann í markið. Örugg- ur sigur meistaranna í leiknum og vandséð hverjir verða fyrstir til að taka af þeim stig svo ekki sé nú talað um að sigra þá. Arsenal vann einnig 2:0 heima- sigur gegn Norwich þar sem bæði mörkin komu í fyrri hálfleik og Arsenal hefði hæglega getað skorað tvö í viðbót í hálfleiknum. Paul Davis skoraði bæði mörkin eftir góðan undirbúning frá vinstri vængnum. Anders Limpar átti skot í stöng Norwich marks- ÚrsKt 1. deild Arsenal-Norwich 2:0 Aston Villa-Sunderland 3:0 Cryslal Palace-Leeds Utd. 1:1 Liverpool-Derby 2:0 Manchester City-Covcntry 2:0 Q.P.R.-Tottenham 0:0 Sheffield Utd.-Wimbledon 1:2 Southainpton-Chelsea 3:3 Nottingham For.-Everton 3:1 2. deild Barnsley-Oxford 3:0 Brighton-Swindon 3:3 Bristol Kovcrs-Sheflield Wed. 0:1 Leicester-Notts Countv 2:1 Millwall-W.B.A. 4:1 Newcastle-Portsmouth 2:1 Oldham-Blackburn 1:1 Plymouth-Ipswich 0:0 Port Vale-Charlton 1:1 Watford-Middlesbrough 0:3 West Ham-Hull City 7:1 Wolves-Bristol City 4:0 Úrslit í vikunni. 2. deild Port Vale-Notts County 0:1 Barnsley-Ipswich 5:1 Oldham-Swindon 3:2 Plymouth-W.B.A. 2:0 Watford-Hull City 0:1 Wolves-Charlton 3:0 Brighton-Sheffield Wed. 0:4 Bristol Rovers-Blackburn 1:2 Leicester-Bristol City 3:0 Millwall-Portsmouth 2:0 Newcastle-Middlesbrough 0:0 West Ham-Oxford 2:0 ins í upphafi síðari hálfleiks og það virtist tímaspursmál hvenær Arsenal bætti við mörkum. En af því varð ekki þrátt fyrir að Nor- wich sé nú aðeins skugginn af því liði sem áður var. Ársenal lék hins vegar mjög vel og Davis, Sigurður Jónsson og David Roc- astle réðu öllu á miðjunni auk þess sem Lee Dixon var mjög góður í bakvarðarstöðunni. Aston Villa átti í vök að verj- ast allan fyrri hálfleikinn gegn Sunderland, en komst þó yfir mín. fyrir lok hálfleiksins. Sama sagan var í síðari hálfleik, Sund- erland sótti, en klúðraði færun- um og Villa gerði síðan tvö mörk á sjö mínútum og gerði út um leikinn. Eftir að Sunderland' hafði átt leikinn og Marco Gabbiadini hafði skotið í stöng um miðjan fyrri hálfleik skoraði Ian Olney fyrir Villa á síðustú mín. hálfleiksins. Gordon Cow- ans sendi að marki Sunderland, Stuart Gray skallaði fyrir markið og Olney þurfti aðeins að reka tána í boltann. Tony Daley bætti síðan öðru marki við með skoti af löngu færi sem Tony Norman í marki Sunderland missti miili handa sinna í markið. David Platt átti síðan lokaorðið fyrir Villa með þriðja marki liðsins, -gegn Á sunnudag léku Nottingham For. og Everton. Þeim leik lauk með öruggum sigri For- est, 3:1 og var leikurinn einnig sigur fyrir Steve Hodge sem lék með Forest að nýju eftir meiðsli. Pað tók Hodge aðeins 1 mín. að ná forystu fyrir Forest með marki af stuttu færi eftir góðan undirbúning Nigel Clough og Gary Parker. Neil McDonald jafnaði fyrir Everton með þrumuskoti af 30 metra færi, eitt þriggja langskota hans sem komu Mark Crossley í marki Forest í vanda, en hann var eini leikmað- ur Everton sem ógnaði sterkri vörn Forest í leiknum. í síðari hálfleik gerðu leik- menn Forest út um leikinn með tveim mörkum. 7 mín. eftir hlé skoraði Nigel Jemson með lag- legu skoti og á 68. mín. gull- tryggði Hodge sigurinn með föstu skoti eftir að varnarmönnum Everton hafði mistekist að hreinsa frá marki sínu. Lið For- sem sýndi Sunderland að þessu sinni hvernig nýta eigi tækifærin sem gefast í leikjum. Skemmtilegasta leik dagsins lauk með 3:3 jafntefli Southamp- ton og Chelsea. Besti maður leiksins, miðherji Chelsea Kerry Dixon, skoraði þó ekki í leiknum, en lagði upp tvö fyrstu mörk Chelsea og var síðan nærri að vinna leikinn fyrir lið sitt. Hann átti þá skot í stöng og dæmt var af honum skallamark þar sem dóm- arinn taldi hann hafa hrint frá sér. Alan Shearer kom Sout- hampton í 1:0 snemma í leikn- um, en Chelsea hafði 2:1 yfir í hléi með mörkum Steve Clarke og sjöunda marki Kevin Wilson í sex leikjum. Neil Ruddock jafnaði fljótlega í síðari hálf- leik fyrir Southampton og Rodney Wallace kom liðinu yfir 3:2 með fallegasta marki leiksins er hann þrumaði inn eftir send- ingu Shearer. Chelsea sem hefur fengið margar vítaspyrnur á sig að undanförnu fékk eina til sín 17 mín. fyrir leikslok, Gordon Dur- ie var felldur af Russell Osman og Dennis Wise skoraði örugg- lega úr vítaspyrnunni og jafnaði 3:3. Frábær leikur og sanngjörn úrslit. Everton est lék vel í leiknum og er greini- lega að ná sér á strik eftir daufa byrjun, en lið Everton sem undanfarið hafði sýnt framfarir féll nú aftur í gamla farið og nú má búast við tíðindum frá Goodi- son Park fljótlega. P.L.A. Stcve Hodge lék að nýju með Forest og reyndist Everton erflður. Crystal Palacer er enn ósigrað í 1. deild eftir 1:1 jafntefli gegn Leeds Utd., en gestirnir voru þó nærri að stela sigri eftir köflótta frammistöðu. Leeds Utd. lék mjög illa í fyrri hálfleik, en lið Palace var létt og leikandi, en Ian Wright var ekki á skotskónum að þessu sinni. Palace náði þó for- ystu á 54. mín. með marki fyrir- liðans Geoff Thomas eftir send- ingu Wright. Þetta hleypti nýju blóði í leikmenn Leeds Utd. og framkvæmdastjórann Howard Wilkinson sem var sótsvartur á bekknum og 4 mín. síðar jafnaði Gary Speed fyrir Leeds Utd. er hann renndi sér framhjá mið- vörðum Palace og skallaði inn hornspyrnu frá Gordon Strach- an. Leeds Utd. hafði síðan undirtökin allt til leiksloka, en tókst þó ekki að knýja fram sigur. Sheffield Utd. og Wimbledon háðu harðan slag í sínum leik. Dave Bassett stjóri Sheffield var lengi við stjórn hjá Wimbledon og hann horfði með hryllingi á sína fyrrum lærisveina gera það sem hann hafði svo oft dáðst að þeim fyrir áður. Marki undir og leikmanni færri, en fóru þó heim með öll stigin. Dave Barnes náði forystu fyrir Sheffield á 13. mín., en Carlton Fairweather jafnaði með glæsilegri hjólhestaspyrnu fyrir Wimbledon rétt fyrir hlé. Sheffield lék undan sterkum vindi í síðari hálfleik og það ásamt því að John Gayle var rek- inn útaf hjá Wimbledon strax á 5. mín. síðari hálfleiks gaf liðinu góðar vonir um sigur. En heppn- in var ekki með liðinu og þeir Bob Booker og Paul Beesley áttu báðir skot í stöng og Hans Segers í marki Wimbledon varði mjög vel frá Brian Deane, Tony Agana og Booker. Bassett fór því að gruna hvað í vændum var og það kom frá John Fashanu sem hafði komið inná í fyrri hálfleik sem varamaður. Hann skoraði sigur- mark Wimbledon á 71. mín. með skoti af löngu færi og Bassett og reyndar Vinnie Jones einnig fengu því að bragða á eigin blöndu í þessum leik. Manchester City stendur sig vel og vann sanngjarnan 2:0 sigur á heimavelli gegn Coventry eftir markalausan fyrri hálfleik. Alan Harper skoraði fyrra mark City á 6. mín. síðari hálfleiks eftir send- ingu Peter Reid og Niall Quinn bætti því síðara við undir lokin eftir góðan undirbúning Clive Allen. Lundúnaliðin Q.P.R. og Tott- enham gerðu markalaust jafntefli í leik sínum og hafa stjörnur Tottenham örugglega ekki verið ánægðar með það. Paul Gas- coigne var reyndar bókaður í leiknum og við jafnteflið missti liðið erkifjendur sína Arsenal tveimur stigum upp fyrir sig. 2. deild • Oldham heldur enn efsta sæt- inu eftir 1:1 jafntefli gegn Blackburn. Paul Moulden kom Oldham yfir í fyrri hálfleik, en Blackburn jafnaði undir lokin. • Trevor Francis 36 ára gamall lék með Sheffield Wed. gegn Bristol Rovers í stað David Hirst sem var meiddur og skoraði eina mark leiksins. • Alan McLaughlin kom Swind- on yfir gegn Brighton, en Steve Gatting, Small og Burn breyttu stöðunni í 3:1 fyrir Brighton. Undir lokin náði þó Swindon að jafna í 3:3 með mörkum Steve White. • David Oldfield og David Kelly skoruðu mörk Leicester gegn Notts County. • Teddy Sheringham og Alex Rae skoruðu tvö mörk hvor fyrir Millwall gegn W.B.A. • Mike Quinn skoraði fyrir Newcastle gegn Portsmouth sem einnig gerði sjálfsmark. • Ekkert gengur hjá Watford á botni deildarinnar, Tony Mow- bray og Ian Baird hjá Middles- brough juku enn á vanda Wat- ford með mörkum. • West Ham átti einn af sínum góðu dögum gegn Hull City og sigraði 7:1. Hull City náði þó að jafna í 1:1, en mörk West Ham gerðu Jimmy Quinn tvö, Julian Dicks tvö, Trevor Morley, Steve Potts og George Parris. • Steve Bull skoraði þrjú mörk fyrir Wolves gegn Bristol City, en fyrsta markið gerði Ándy Thompson. • Southend er efst í 3. deild með 24 stig, Grimsby hefur 22 og Reading 18 stig. • Á botninum eru Crewe, Shrewsbury, Fulham og Bolton með 7 stig, en Rotherham hefur aðeins 5 stig. • Torquay er efst í 4. deild með 21 stig, en Burnley, Stockport og Rochdale hafa 16 stig. • Neðst eru York City og Alder- shot með 7 stig, Wrexham 6 og Halifax 2 stig, en Halifax hefur enn ekki skorað mark í deildinni. P.L.A. Staðan 1. deild Liverpool 8 8-0-0 19: 5 24 Arsenal 8 5-3-0 16: 5 18 Tottenham 8 4-4-0 11: 3 16 Crystal Palace 8 4-4-0 13: 6 16 Manchester City 8 4-3-1 11: 8 15 Manchester Utd 8 4-1-3 10:10 13 Luton 8 4-1-3 10:12 13 Leeds Utd. 8 3-3-2 11: 8 12 Nottingham For. 8 3-3-212:1112 Aston Villa 8 3-2-3 13:10 11 Wimbledon 8 2-4-2 8: 9 10 Q.P.R. 8 2-3-312:11 9 Chelsea 8 2-3-313:16 9 Coventry 8 2-2-4 9:11 8 Southampton 8 2-2-411:15 8 Sunderland 81-3-410:15 6 Norwich 8 2-0-6 7:17 6 Everton 81-2-512:16 5 Sheffield Utd. 8 0-3-5 6:14 3 Derby 8 0-2-6 4:15 2 2. deild Oldham 10 7-3-0 18: 7 24 Sheffield Wed. 9 7-2-0 22: 6 23 West Ham 10 5-5-019: 7 20 Millwall 9 5-4-018: 819 Notts County 96-0-317:1218 Wolves 10 4-4-2 18:10 16 Barnsley 9 5-1-318:1316 Middlesbrough 9 4-3-2 15: 6 15 Newcastle 9 4-3-2 10: 7 15 Swindon 10 4-3-3 15:14 15 Brighton 9 4-2-3 15:18 14 Bristol City 8 4-1-3 11:13 13 Ipswich 10 3-3-410:1612 Port Vale 10 3-2-5 16:17 11 Plymouth 10 2-5-311:1311 Blackburn 10 3-1-6 16:18 10 Hull City 10 2-4-4 14:24 10 W.B.A. 9 2-3-4 9:12 9 Leicester 10 3-0-7 12:25 9 Portsmouth 10 2-2-615:21 8 Charlton 91-3-5 8:13 6 Bristol Rovers 81-2-510:14 5 Oxford 91-2-612:22 5 Watford 9 0-2-7 4:15 2 Öruggt hjá Forest

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.