Dagur - 10.10.1990, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 10. október 1990 - DAGUR - 3
Dagana 8.-19. október verða
hlutabréf í Eimskip boðin í áskrift
á genginu 5,60.
Útboðsgögn liggja frammi á
skrifstofu okkar að Ráðhústorgi 1.
Sölugengi verðbréfa þann 10. okt
Einingabréf 1 ........... 5.113,
Einingabréf 2 ........... 2.777,
Einingabréf 3 ..,......... 3.364,
Skammtímabréf ............ 1,723
mufíÞum
NORÐURLANDS HF
RáðHústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700
fréttir
Fullorðinsfræðsla Verkmenntaskólans á Akureyri:
Fjölbreytt námskeið við allra hæfi
Þessa dagana stendur yfir inn-
ritun í fullorðinsfræðslu Verk-
menntaskólans á Akureyri.
Boðið er upp á námskeið í
ýmsum greinum, bæði bókleg
og verkleg, allt frá frönsku til
fluguhnýtinga.
Margrét Kristinsdóttir, deild-
arstjóri fullorðinsfræðslunnar hjá
VMA, segir að boðið sé upp á
þrjá flokka í ensku og einn flokk
í frönsku, en síðarnefnda tungu-
málið er hvergi annars staðar
hægt að læra á Akureyri nema í
máladeild dagskóla Menntaskól-
ans. Einnig er boðið upp á dönsku-
nám og íslensku fyrir útlendinga.
Auk tungumálanámskeiða eru
námskeið í vélritun, bæði fyrir
byrjendur og framhaldsnemend-
ur, - en vélritunarnám kemur sér
einnig vel fyrir þá sem vinna mik-
ið við tölvur, t.d. ritvinnslu,
námskeið í almennum fatasaumi,
fluguhnýtingum fyrir byrjendur
og lengra komna, briddsnám-
skeið í tveimur flokkum, vefnað-
arnámskeið, þ.e. kennsla í vefn-
aði á vefstólum, námskeið í með-
ferð og notkun myndbandstöku-
véla. Fluguhnýtingarnámskeiðin
og myndbandstökunámskeiðin
eru 12 kennslustundir, en hin
námskeiðin eru mun lengri.
Að sögn Margrétar var mikið
spurt um matreiðslunámskeið, en
því miður tókst ekki að fá
kennara að þessu sinni. Pó er
stefnt að matreiðslunámskeiðum
eftir áramótin.
„Pessi fullorðinsfræðsla stefnir
ekki beint að prófum, því ekki
eru tekin próf úr áföngunum.
Þetta er fyrst og fremst fyrir fólk
sem vill bæta þekkingu sína,
óháð prófum, eða jafnvel undir-
búa sig fyrir grunnáfanga í öðru
námi. Petta er líkt og var í náms-
flokkunum, sem reyndar eru ekki
lengur til undir því nafni. Skrán-
ing fer fram út þessa viku hjá
VMA,“ segir Margrét.
Fullorðinsfræðsla Verkmennta-
skólans er byggð á samstarfi
bæjarfélagsins, skólans og ríkis-
ins. Fólk á öllum aldri hefur not-
fært sér fullorðinsfræðsluna og
tungumálin hafa t.d. verið mjög
vinsælt námsefni. EHB
Úr Fljótum:
Fé tekið aftur á fimm bæjum
I haust var tekið fé að nýju á
flmm bæjum í Fljótum. Alls
eru það rúmlega 600 lömb sem
keypt voru, en einn bóndi sem
tók fé í fyrra bætti aðeins við
sig núna. Lömbin voru flest
fengin af Ströndum, en einnig
tæpt hundrað úr Þistilfirði.
Tveir þeirra bænda sem nú
tóku fé skáru niður fyrir fjór-
um árum
Ekkert hefur verið skorið nið-
ur í Fljótahreppi síðan haustið
1988 og er sveitin nú riðulaus.
Að sögn Arnar Pórarinssonar,
oddvita, var sumarið erfitt fyrir
Fljótamenn, en hey náðust þó
inn að mestu leyti. Örn sagðist
samt ekki búast við að heyskort-
ur yrði með vorinu, nema það
yrði þeim mun þyngra.
„Mönnum þykir veturinn leggj-
ast snemma að, því kýr voru
teknar inn um mánaðamótin og
mjög vafasamt að setja þær út
aftur. Hér er nefnilega grá jörð
alveg niður í byggð," sagði Örn
Pórarinsson.
Hamar, félagsheimili Þórs:
Opið hús fjórum sirnium í viku
- búið að koma upp gervihnattadiski
Eins og komið hefur fram í
fréttum er nú búið að taka
hluta Hamars, félagsheimilis
Þórsara við Skarðshlíö, í
notkun. Bridgefélag Akureyr-
ar hefur tekið sal hússins á
leigu eitt kvöld í viku og einnig
er danskennari með kennslu
eitt kvöld í viku.
Húsnefnd hefur tekið til starfa
og er henni ætlað að sjá um rekst-
ur hússins, m.a. útleigu og fleira.
Nú hefur verið settur upp gervi-
hnattadiskur á Hamar og því eiga
Þórsarar og aðrir áhugasamir
þess kost að koma og fylgjast
með því helsta sem gerist t.d. á
Kvennasmiðja Skagafiarðar:
Flutt inn í Gránu
- Sigrún Ástrós kemur um helgina
Kvennasmiðjukonur í Skaga-
fírði eru fluttar inn í húsnæði
það sem þær tóku á leigu.
Húsnæðið er í Gránu á Sauð-
árkróki og þar hafði myndlist-
arkona vinnustofu sína, en hún
er nú erlendis við nám. 60 kon-
ur mættu í Gránu á föstudags-
kvöldið, en félagar í kvenna-
smiðjunni eru nú orðnir fleiri
en eitt hundrað.
Kvennasmiðjan stóð fyrir
markaði um daginn, en nú þegar
húsnæðið er fyrir hendi getur
starfsemin hafist af fullum krafti
að sögn formannsins, Sigríðar
Friðjónsdóttur. Á föstudags-
kvöldið skráðu konurnar sig á
myndlistarnámskeið, í trimmhóp
o.fl. Fyrirlestur í nýaldarspeki er
fyrirhugaður og um næstu helgi
verður leikritið Sigrún Ástrós
sýnt á Sauðárkróki dag, en til
stóð að fá það til sýningar í vor.
Sigríður sagði að þær væru allt-
af að leita eftir varanlegu hús-
næði til eignar og ýmislegt hefði
komið til umræðu. Kvennasmiðj-
an verður nú með opið hús úti í
Gránu fyrir félaga einhvern hluta
dags, þrjá daga í viku og að sögn
Sigríðar er draumurinn að þar
komi þær saman, spjalli, lesi og
stundi annað félagslíf. Spilakvöld
og mömmudagar eru á dagskrá
hjá kvennasmiðjunni og sam-
kvæmt lögum félagsins á að koma
á laggirnar fjölskylduráðgjöf.
Það sagði Sigríður að væri allt í
athugun, en kæmi vonandi fljót-
lega. SBG
Sigríður Friðjónsdóttir ávarpar smiðjusystur sínar. Mynd: sbg
íþróttasviðinu í heiminum.
Ekki er hægt að koma hvenær
sem er til að horfa á sjónvarpið
en til að byrja með verður opið
hús á miðvikudögum, fimmtu-
dögum og föstudögum frá kl. 16-
22 og á laugardögum frá kl. 10-
18.
TÖKUM VEL Á MÓTI NÝJUM
REGLUM - ÞÆR MUNU BJARGA
MANNSLÍFUM.
yUMFERÐAR
RÁÐ
r ^
30%
1960-1990
afsláttur af öUum skart-
grípum frá 11. til 13. okt.
í tflefiii 30 ára afinælis
fyrirtækisins hinn 1. okt.
GULLSiYlIÐlR
Sigtiyggur & Pétur sf.
Brekkugötu 5 Akureyri
Sími 23524
Þökkum ánægjuleg viúskipti í 30 ár