Dagur - 10.10.1990, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 10. október 1990 - DAGUR - 9
íbúðir fyrir aldraða við Víðilund á Akureyri seni (eknar voru í notkun ekki alls fyrir löngu.
Yfir 90% hjóna á Norður-
landi eystra eiga fasteign
Á Norðurlandi eystra eiga 90,4%
hjóna, 65 ára og eldri, fasteign.
Aðeins í Reykjavík og á Suður-
landi er að finna hærra hlutfall
hvað þetta varðar. Um 9,5%
hjóna á Norðurlandi eystra eiga
ekki fasteign en 53,8% einstakl-
inga yfir þessum aldursmörkum
eiga hins vegar fasteign. Heildar-
eignir eldra fólks í kjördæminu
er 7,1 milljarður króna.
Á Norðurlandi vestra eiga hins
vegar um 87,9% hjóna yfir 65 ára
aldri fasteign en 12,1% hjóna
á ekki fasteign. Um 52% ein-
staklinga yfir 65 ára aldri eiga
fasteign en 47,5% þeirra eiga
ekki fasteign. Heildareign þessa
aldurshóps fólks í kjördæminu er
2,8 milljarðar króna.
Um 30.000 manns á
landinu yfir 65 ára aldri
Á landinu öllu búa 29.600 manns
sem náð hafa 65 ára aldri. Stærst-
an hluta þessa fólks er að finna í
Reykjavík og á Reykjanesi enda
þarf að byggja þar verulegan
hluta þeirra íbúða sem rætt er um
í framangreindri 5 ára fram-
kvæmdaáætlun í húsnæðismálum
aldraðra. Utan þessara kjör-
dæma búa 10.500 manns yfir
þessum aldursmörkum, eða um
35%. Yfir 91% af þessu fólki á
fasteignir en rúm 8% eiga ekki
fasteignir. Að jafnaði eiga um
56% einstaklinga á þessum aldri
fasteignir en um 43% eiga ekki
fasteignir. Hér er eðlilega minni
munur en hjá hjónum.
Heildareignir fólks á þessum
aldri eru tæpir 100 milljarðar. í
Reykjavík og á Reykjanesi eru
76,7% þessara eigna að verðmæti
um 75 milljarðar króna en í öðr-
um kjördæmum eru 23% eign-
anna sem að verðmæti eru um 23
milljarðar króna.
Ibúðarréttur og
Sunnuhlíðarsamtök
Nokkrir kostir eru fyrir hendi
hvað varðar fjármögnun á íbúð-
um fyrir aldraða, allt eftir því
skipuíagi sem gildir um eignafyr-
irkomulag og rekstur íbúðanna.
Möguleikarnir eru eignaríbúðir,
kaupleiguíbúðir, leiguíbúðir og
íbúðir sem úthlutað er með sk.
íbúðarrétti.
í skýrslunni er nokkuð fjallað
um síðastnefnda atriðið í upp-
talningunni hér að framan, þ.e.
íbúðir með íbúðarrétti. Hér er
átt við fyrirkomulag það sem í
gangi er hjá Sunnuhlíðarsam-
tökunum í Kópavogi. í skýrsl-
unni segir:
„Sunnuhlíðarsamtökin í Kópa-
vogi hafa tekið upp nýtt form
hvað varðar fjármögnun og eigna-
fyrirkomulag íbúða eldri borg-
ara. Gert er ráð fyrir að íbúðirn-
ar séu af mismunandi stærð og á
hóflegu verði.
Einnig að verulegur hluti eldra
fólks eigi íbúðir fyrir og selji þær
til að fjármagna nýjar og án þess
að stofna til langtímaskulda, en
þeim sem eru eignalausir eða
eignalitlir sé gert kleift að flytja í
leiguíbúðir, sem sé dreift meðal
eignaíbúða í sambýlishúsum
þannig að hinir eignaminni eigi á
efri árum kost á að búa við sama
öryggi, þjónustu og húsnæðiskost
og hinir sem hafa betri eigna-
stöðu. Jafnframt hefur verið
stefnt að því að forða deilum og
árekstrum innanhúss milli íbú-
anna, vegna samrekstrar og við-
halds íbúðanna með nýju eigna-
eða íbúðarréttarfyrirkomulagi.
Til að auðvelda eldri borgurum
eigna- eða íbúðaskiptin gerðu
Sunnuhlíðarsamtökin sérstakan
samning við Búnaðarbanka ís-
lands þess efnis að bankinn ann-
aðist ráðgjöf og lánafyrirgreiðslu
til skamms tíma til þeirra eldri
borgara sem þyrftu á skammtíma-
aðstoð að halda vegna íbúðaskipta
en ekki var gert ráð fyrir að eldri
borgarar stofnuðu til langtíma-
lána komnir á lífeyrisaldur.
Jafnframt var gerður samning-
ur við Kópavogskaupstað um að
bærinn fengi 10% af öllum
byggðum íbúðum samtakanna til
ráðstöfunar og leigu fyrir aldr-
aða. Kópavogsbær tekur lán úr
hinu opinbera lánakerfi til fjár-
mögnunar á þeim íbúðum sem
bærinn hefur til leiguráðstöfunar
fyrir eldri borgara. Bærinn ann-
ast síðan greiðslu vaxta og
afborgana af lánum og hinir öldr-
uðu greiða leigu fyrir afnot íbúð-
arinnar en þurfa ekki sjálfir að
stofna til skulda á efri árum.
Jafnframt framangreindum
samningum var gerður samning-
ur við Búnaðarbanka íslands um
að hann gæfi út bankatryggingu
til hvers og eins íbúa sem fjár-
magnað hafði sína íbúð, þar sem
bankinn ábyrgðist endurgreiðslu
íbúðarinnar til viðkomandi eða
erfingja hans á gangverði sams-
konar íbúða í Kópavogi á hverj-
um tíma, skv. mati skipaðra
matsmanna en í stað afsals frá
Sunnuhlíðarsamtökunum, sem
byggjanda, fær viðkomandi í
hendur íbúðarréttarsamning
óuppsegjanlegan af hálfu Sunnu-
hiíðar, er gildir til æviloka, eða
þess tíma sem viðkomandi óskar.
Enginn sem fjármagnað hefur
íbúðarréttinn greiðir húsaleigu, en
allir íbúðarréttarhafar svo og
leigjendur bæjarins greiða í sam-
eiginlega hússjóð, sem Sunnu-
hlíðarsamtökin annast um en
þau sjá um allt viðhald innanhúss
og utan, sameiginlega ræstingu,
hitakostnað og öryggisvörslu all-
an sólarhringinn fyrir andvirði
hússjóðsins.
Stjórn Sunnuhlíðar tekur all-
ar ákvarðanir um viðhald og
rekstur, en ekki þarf að boða
sérstaka húsfundi íbúanna inn-
byrðis en slíkt er mjög óheppilegt
fyrir fólk á efri árum, sem þarf að
búa við frið og öryggi. íbúarnir
beina því athugasemdum eða
beiðni um úrbætur beint til fram-
kvæmdastjórnar Sunnuhlíðar,
sem ber að bæta úr því sem
aflaga fer. Þessu íbúðarréttarfyr-
irkomulagi er ætlað að auðvelda
alla stjórnun í vernduðu
umhverfi og auðvelda íbúða-
skipti og samskipti íbúðarréttar-
hafa.“ JÓH
S.A.A.N.
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir, ráðgjafi mun starfa
við göngudeildina vikuna, 15.-19. október.
Skráning viðtala fer fram á skrifstofunni, Glerárgötu
28, 2. hæð, sími 27611.
H Auglýsing
um aðalskipulag Ólafsfjarðar
1 1990-2010
Samkvæmt 17. gr. skipulagslaga nr. 19/1964 er hér
með lýst eftir athugasemdum við tillögu að aðal-
skipulagi Ólafsfjarðar 1990-2010.
Skipulagstillaga þessi nær yfir núverandi byggð og
fyrirhugaða byggð á skipulagstímabilinu.
Tillaga að aðalskipulagi Olafsfjarðar 1990-2010
ásamt greinargerð liggur frammi á skrifstofu bæjar-
ins í 6 vikur frá birtingu auglýsingar þessarar, á opn-
unartíma skrifstofunnar.
Athugasemdum við skipulagstillöguna skal skila til
bæjarstjórans í Ólafsfirði innan 8 vikna, frá 5. okt-
óber til 30. nóvember 1990 að telja, og skulu þær
vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir
innan tiltekins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Ólafsfirði, október 1990,
Bæjarstjórinn í Óiafsfirði,
Skipulagsstjóri ríkisins.
Stúlkur óskast
til starfa
Vaktavinna.
Upplýsingar á staðnum frá kl. 17.00-19.00, ekki
síma.
Skipagötu 12, Akureyri.
AKUREYRi
Vantar konur til starfa
nú þegar eða seinna
Greiðum PREMÍU á alla vinnu.
Upplýsingar hjá verkstjórum á staðnum.
K. Jónsson & Co. hf.
Niðursuðuverksmiðja, Akureyri.
Dags.:
SVARSEÐILL
Beiðni um millifærslu
áskriftargjaids
□ Er áskrifandi
□ Nýr áskrifandi
Undirritaöur óskar þess að
áskriftargjald Dags verði
framvegis skuldfært mánaðarlega
á greiðslukort mitt.
Kortnr.:
Gildir út:
Kennit.:
ASKRIFANDI:
HEIMILI:
PÓSTNR.-STAÐUR:
SIMI:
Strandgötu 31 Sími 96-24222
UNDIRSKRIFT.