Dagur - 11.10.1990, Síða 1
Fyrsti túr Ásgeirs Frímanns ÓF:
„Framar björtustu vonum“
„Við vorum heppnir, þetta er
óvenjugóður túr. Þetta var eig-
inlega framar björtustu
vonum,“ segir Helgi Már
Reynisson, annar aðaleigandi
línubátsins Ásgeirs Frímanns
Óf 21 en skipið kom til hafnar
í vikunni með um 80 tonna afla
eftir mánaðar útivist í sínum
Norður-Þingeyjarsýsla:
Mikið að gera
í sölu líflamba
Óvenjulega mikil lítlambasala
hefur verið úr Norður-Þingeyj-
arsýslu í haust og koma lömbin
úr Sauðanes- og Svalbarðs-
hreppi.
Bændur í þessum hreppum
hafa unnið að því síðustu dægur
að velja líflömb til sölu á þau
svæði, sem skorið hefur verið
niður á undanförnum árum vegna
riðuveiki, og mun fjárflutningum
þaðan væntanlega ljúka einhvern
næstu daga.
Vigfús Jósefsson, bóndi í Sæ-
túni í Sauðaneshreppi, segir að
lömb komi nrjög feit og falleg af
fjalli og bændur sem kaupi fé úr
hreppnum ættu ekki að vera
sviknir af þeim viðskiptum. Auk
Sætúns eru seld lömb frá Syðri-
Brekkum, Hallgilsstöðum, Tungu-
seli, Sauðanesi og Efra-Lóni í
Sauðaneshreppi. óþhj
fyrsta túr.
Útgerð Ásgeirs Frímanns er
sérstök hér á landi því hér er um
að ræða eina skipið sem útbúið er
sérstaklega til veiða á lúðu, löngu
og keilu. Aflinn nú var um 55
tonn af lúðu, 30 tonn af keilu og
öðrum tegundum.
Aflinn var allur seldur áður en
skipið lagðist að bryggju en hann
fer á markað í Evrópulöndum og
Norðurlöndunr og sér útgerðin
sjál'f um útflutninginn. Verðmæti
aflans er um 25 milljónir króna.
í þessum fyrsta túr voru 6
norðmenn sem allir hafa þekk-
ingu til línuveiða af þessu tagi.
Helgi Már segir að berlega hafi
komið í ljós að miklu skipti að
hafa vel þjálfaða áhöfn og einnig
að hafa gott skip eins og Ásgeir
Frímanns ÓF sé. ,
JÓH
Garðveisla að Stekk. Grillaðar pylsur og leikir í léttri norðanhríð til að fagna nýgerðri lóð og leikvelli.
Mynd: Golli
Mikil sala á framleiðslu Striksins í ár:
„Reikna frekar með fjölgun starfsfólks en hitt“
- segir Haukur Ármannsson, framkvæmdastjóri
„Segja má að vertíðin hjá okk-
ur standi nú yfir. Verksiniöjan
er keyrð á 50 starfsmönnum en
þeir voru 36 þegar við byrjuð-
um og ég reikna ekki með að
starfsfólki fækki hér á næst-
unni heldur bætist frekar við
en hitt,“ segir Haukur Ár-
mannsson, framkvæmdastjóri
skóverksmiðjunnar Striksins á
Akureyri, en nýlega réð fyrir-
tækið sjö manns í vinnu og var
þar að hluta til um ný störf að
ræða.
Haukur segir meginskýringu á
fjölgun starfa hjá verksmiöjunni
þá að salan er mun meiri en í
fyrra og meiri en forsvarsmenn
Hafnfirskt fyrirtæki kaupir Hafnarstræti 100 á Akureyri:
Skemmtistaður rekirni þar áfram
- stefnt að opnun eftir 1-1V2 mánuð
Þeir félagar Baldur Ellerts-
son og Rúnar Gunnarsson,
eigendur H-100 sf., hafa selt
fyrirtækinu ístan hf. í Hafn-
arfirði, húseign sína í Hafnar-
stræti 100 á Akureyri. Um er
að ræða 900 fermctra húsnæði
á 5 hæðum. Frá árinu 1979
hefur verið rekinn veitinga-
og skcmmtistaður í Hafnar-
stræti 100, nú síðast Bleiki
fíllinn.
Forsvarsmenn ístan hf. voru
staddir á Akureyri í gær til að
ganga frá^kaupunum en þeir
hyggjast reka áfram veitinga- og
skemmtistað í húsinu. Þeir
vildu þó ekki tjá sig á þessu stigi
um það hvernig rekstrinum yrði
nákvæmlega háttað. Stefnt er
aö því að opna nýjan skemmti-
stað í húsnæðinu eftir 1-1'/2
ntánuð.
Árið 1979 hófu þeir félagar
Baldur Ellertsson og Rúnar
Gunnarsson rekstur veitinga-
og skemmtistaðar í Hafnar-
stræti 100. Staðurinn fékk nafn-
ið H-100 og ráku þeir hann í sjö
ár. Þá tók nýr aöili viö veiting-
arekstri í húsnæðinu undir nafni
Zebra og nú síðast var þar
Bleiki fíllinn, sem varð gjald-
þrota nýlega. -KK
fyrirtækisins þorðu að vona.
Samhliða njóti verksmiðjan góðs
af mun betra rekstrarumhverfi en
í fyrra.
„Já, við seljum nú allt sem við
framleiðum og meira til,“ segir
Haukur.
Haukur segir að aukning sé í
sölunni um allt land þó að hún sé
greinilega mest í Reykjavík en
þar réð fyrirtækið sölumann í
fullt starf síðastliðið haust. Þá
sölustarfsemi segir Haukur að
skilað hafi árangri á þessu ári.
Haukur segir að markaðshlut-
deild verksmiðjunnar hafi haldist
nær óbreytt á landsbyggðinni en
segja megi að aukning sé talsvert
mikil í Reykjavík. Sé á hinn bóg-
inn litið til markaðshlutdeildar
verksmiöjunnar í heild þá sé hún
um 6% þótt í einstökum tegund-
um af skófatnaði fari hún upp í
10 til 12%.
Fyrir skömmu keypti verk-
smiðjan skóverslunina Staðarfell
á Akranesi og á verksmiðjan þá
tvær skóverslanir en hin er versl-
unin Krummafótur á Egilsstöð-
um. Skóverslunin Staðarfell er
eina skóverslunin á Akranesi en
hún hefur verið rekin síðan 1943.
Haukur segir að líkt og með
verslunina á Egilsstöðum verði
rekstrinum stýrt frá Akureyri en
starsfólk sjái um daglega umsjón
og afgreiðslu. JÖH
Virðisaukaskattur á heimtekið kjöt:
Bændur eiga að fá
hann endurgreiddan
- segir Þorgeir Hlöðversson, sláturhússtjóri
Hafþórsmálið:
Dögun missti af lestimii
- bankatrygging fékkst ekki
Það er nú orðið Ijóst að Dög-
un hf. á Sauðárkróki kaupir
ekki Hafþór, skip Hafrann-
sóknastofnunar. Lokafrestur
hennar til að fá bankatrygg-
ingu fyrir 64 milljónum króna
rann út í gær og Búnaðar-
bankinn lagði ekki út í þessa
ábyrgð. Sjávarútvegsráðu-
neytið mun ákveða í dag hver
glímir næst við máiið.
Á þriðjudaginn fengu Dög-
unarmenn frest til klukkan
11.00 á miðvikudag til að skila
inn bankatryggingu. Að sögn
Gylfa Gauts Péturssonar,
starfsmanns ráðuneytisins,
fengu þeir þann frest lengdan til
klukkan 14.00 og síðan það sem
eftir lifði af skrifstofutíma.
Ástæðuna fyrir þessum töfum
sögðu Dögunarmenn að væri
athugun Búnaðarbankans á
gögnum og að leggja þyrfti mál-
ið íyrir bankaráð í gær.
Ekki fékkst tryggingin á til-
settum tíma og Gylfi Gautur
sagði í lok vinnudags í gær að
Dögun fengi ekki lengri frest og
1' dag yrði nýjurn tilboðshafa
aflient málið. Það væri aftur á
móti ekki ljóst hvort það yrði
Ingimundur og Gjögur hf. eða
Togaraútgerð ísafjarðar hf.
Þeirra tilboö hljóðuðu bæði upp
á 200 milljónir, en mismikla
útborgun. SBG
Þorgeir Hlööversson, slátur-
hússtjóri Kaupfélags Þingey-
inga á Húsavík, segir aö bænd-
ur eigi að geta fengið álagðan
virðisaukaskatt á hcimtekið
kjöt endurgreiddan úr ríkis-
sjóði, en eins og kom fram í
Degi í gær er nokkur kurr í
bændum vegna þess að þeim er
nú gert í fyrsta skipti að greiða
24,5% virðisaukaskatt af kjöti
sem þeir taka heim úr slátur-
húsi til neyslu.
Þorgeir staðfesti að komið
hefði mörgum bóndanum á óvart
að heimtekið kjöt skuli nú skatt-
lagt og ljóst sé að þeir hafi ekki
gert sér grein fyrir þessari breyt-
ingu.
„Bændur í búrekstri eiga að fá
virðisaukaskatt af heimteknu
kjöti endurgreiddan, ef þeir hafa
þennan kostnað á búsgrundvelli
og verðreikna sér síðan kjötið til
heimanota," sagði Þorgeir. Hann
sagðist hafa sett upp auglýsingu í
sláturhúsinu þar sem bændum
væri gert þetta ljóst. „Bændur fá
útgefinn reikning hjá mér fyrir
þessari þjónustu þar sem reikn-
aður er á virðisaukaskattur. Síð-
an eiga þeir að fá þann kostnað
viðurkenndan og frádreginn í
sínu virðisaukaskattsuppgjöri,
svo fremi að þeir hafi þetta á bús-
grundvelli og reikni sér til tekna
kjötið til heimanota," sagði
Þorgeir.
Hann sagði að Framleiðsluráð
landbúnaðarins hefði unnið í
þessu máli að undanförnu og
þaðan hefði hann upplýsingar um
hvernig fara ætti með það. óþh