Dagur - 11.10.1990, Page 3

Dagur - 11.10.1990, Page 3
Fimmtudagur 11. október 1990 - DAGUR - 3 fréttir Fasteignir Álafoss hf. á Akureyri seldar fyrir 300 milljónir: „Gert samkvæmt samkomulagi okkar við lánardrottna“ segir Ólafur Ólafsson forstjóri Landsbanka íslands og Iðn- Iánasjóði voru slegnar allar helstu fasteignir Álafoss hf. á Akureyri á opinberu uppboði rétt fyrir síðustu helgi. Um var að ræða Iokauppboð eignanna, en heildarupphæðin sem fékkst fyrir þær var 300 milljónir króna. Álafoss hf. mun áfram hafa afnot af þeim byggingum sem þörf er á vegna rekstursins á Akureyri. Ólafur Ólafsson, forstjóri Ála- foss, var spurður um þessi uppboð. Hann segir, að þau séu í samræmi við það samkomulag sem tókst í upphafi ársins um heildarlausn á vanda fyrirtækis- ins. Álafoss hefði selt eignirnar, Hótel Blönduós: Hlutafé auMð um fimm milljónir „Lausn á málum hótelsins er komin í megindráttum. Það er Ijóst að samvinnufélögin á Blönduósi munu reka það áfram, en hlutafé verður vænt- anlega aukið um fimm milljón- ir. Blönduósbær mun leggja fram þrjár milljónir og aðrir aðilar trúlega tvær, en það er ekki endanlega frágengið,“ sagði Guðsteinn Einarsson, kaupfélagsstjóri á Blönduósi. Hótel Blönduós hefur undan- farið verið rekið með töluverðum halla, svo að ákveðið var í sumar að reyna að gera eitthvað því til bjargar. Hótelinu hefur ekki ver- ið lokað og ekki er reiknað með að svo fari, þó sagði Guðsteinn að e.t.v. yrði því lokað í tæpan mánuð yfir háveturinn. Að sögn Guðsteins verða ein- hverjar áherslubreytingar á starf- semi, en engar stórvægilegar. Einungis verður reynt að koma rekstrinum upp að eða yfir núllið. Starfsfólki hótelsins var sagt upp í sumar og er nú að vinna út uppsagnarfrest sinn. Reiknað er með að einhver fækkun verði á starfsfólki eftir breytingar á rekstr- inum. SBG Akureyri: Kvefpestir og magakvillar Að sögn Hjálmars Freysteins- sonar, læknis á Heilsugæslu- stöðinni á Akureyri, hafa ýms- ar kvefpestir og magakvillar hrjáð íbúa Akureyrar á þessu hausti, en alltaf er tilviljunum háð hvað fer inn á skrá Heilsu- gæslustöðvarinnar, því fólk er mjög misduglegt að leita lækn- is. Lítið ber á inflúensu það sem af er vetri, en hennar tími er frekar eftir áramótin. í skýrslu Heilsugæslustöðvar- innar á Akureyri um smitsjúk- dóma o. fl. fyrir september kem- ur fram, að greind lungnabólgu- tilfelli eru 302, en kvef- og háls- bólgutilfelli 21. Aðeins 7 inflú- ensutilfelli eru skráð. Þá voru sex veikir af hlaupabólu og einn sjúklingur er skráður með rauða hunda og annar með hettusótt. Enteritis acuta s. mb. diarrhoicus eða iðrakvefsótt greindist í 87 til- fellum og kláði og kláðamaur í 15 tilfellum. ój sumar beint en aðrar á uppboði, en jafnframt væru fyrirtækinu tryggð afnot af þeim húsum, sem það þyrfti á að halda á Akureyri. „Þetta er ekkert sem kemur á óvart, og engin ástæða til að örvænta. Það hafði dregist að framkvæma þessi uppboð, þar sem gæta þurfti lagalegs réttar allra aðila sem að málum koma. Þetta varð að vera opinber sala, og átti hún sér stað 5. október. Þetta var allt í samræmi við það samkomulag sem Álafoss gerði við lánardrottna sína sl. vetur og vor. Þessi uppboð þýða alls ekki endalok rekstursins á Akureyri. Verkefnastaðan hjá okkur hefur aldrei verið betri, og ljómandi góður uppgangur hjá fyrirtækinu. Núna erum við að tryggja okkur samninga fyrir næsta ár,“ segir Ólafur. Viðræður Álafoss við Sovét- menn ganga samkvæmt áætlun, en samningar við ríkisfyrirtæki eru ekki nema um 25% af sovét- viðskiptum fyrirtækisins. Afgangurinn er til annarra aðila. Ólafur Ólafsson telur allar líkur benda til að Álafoss haldi a.m.k. sínu á Sovétmarkaðinum. Samkvæmt upplýsingum frá bæjarfógetanum á Ákureyri, Elíasi I. Elíassyni, fór aðalhús Gefjunar á 170 milljónir kr. til Landsbankans, vinnslusalur Gefjunar og ketilhús voru slegin Iðnlánasjóði á 50 milljónir, Landsbankinn eignaðist verslun- arhús Álafoss fyrir eina milljón, skrifstofuálman var seld Iðnlána- sjóði á 70 milljónir og hluti Dalsbrautar 1 var sleginn Lands- bankanum á 10 milljónir króna. í öllum tilvikum var um að' ræða lokasölu eignanna til þess- ara tveggja aðila. Áður var búið að ganga frá sölu á verksmiðju- húsi Fataverksmiðjunnar Heklu. EHB Hf. Eimskipafélag íslands býður nú til sölu á almennum markaði hlutabréf í félaginu að nafnverði 41.315.802 kr. UTBOÐ A HLUTAFÉ EIMSKIPS Bréfín eru seld með áskrift. Öllum er gefinn kostur á að skrá sig íyrir hlutafé að nafhverði 5.000-25.000 kr. á genginu 5,60. Þeir sem óska eftir að kaupa fyrir hærri fjárhæð geta gert tilboð í hlutabréf á hærra gengi. Eigið fé EIMSKIPS hinn 30. júní sl. var 3,2 milljarðar króna. Áætluð velta félagsins árið 1990 er um 7 milljarð- ar króna og fyrstu 6 mánuði ársins nam hagnaður samtals 257 milljónum króna. Nánari upplýsingar um útboðið liggja frammi hjá Verðbréfa- markaði íslandsbanka hf., Armúla 13a, Reykjavík, útibúum íslandsbanka hf. og Fjárfestingarfélagi íslands hf., Hafnarstræti 7, Reykjavík. EIMSKIP Umsjónaraðili útboðsins er Verðbréfamarkaður (slandsbanka hf., Ármúla 13a, 108 Reykjavík, sími: 681530.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.