Dagur


Dagur - 11.10.1990, Qupperneq 6

Dagur - 11.10.1990, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 11. október 1990 Mikilvægast í imnum huga að halda uppi karlakórsstarfi í þessum söngbæ Hér gefur að líta Karlakór Akureyrar árið 1984. - segir Ingvi Rafn Jóhannsson, fráfarandi formaður Geysis Segja má að dagurinn í dag marki ákveðin tímamót í sögu kórtónlistar á Akureyri. í kvöld verður stigið það formlega skref að sameina tvo rótgróna karlakóra á Akur- eyri, Karlakór Akureyrar og karlakórinn Geysi, undir einn hatt. Fundurinn verður í húsakynnum Geysis-manna í Lóni 02 hefst kl. 20.30. Umræða um sameiningu karla- kóranna hefur skotið upp kollin- um á mörgum undanförnum árum, en það var fyrst á nýliðn- um vetri sem skriður komst á málið. Síðastliðið vor voru hnýtt- ir saman margir lausir endar varðandi sameininguna, t.d. var að mestu gengið frá peningamál- unum. Það þarf margs að gæta í þessu sambandi, t.d. eiga kór- arnir báðir umtalsverðar eignir, Geysis-menn hafa sína aðstöðu í Lóni, en félagar í Karlakór Akureyrar í húsnæði að Óseyri. Niðurstaðan varð sú að framtíð- arhúsnæði sameinaðs karlakórs í bænum skyldi vera í Lóni. Grunnurinn að sameiningu kór- anná er fyrst og fremst sá að á und- anförnum árum hefur reynst sífellt erfiðara að halda kórunum gang- andi vegna mannfæðar. Það er af sem áður var þegar tugir inanna sungu í kórunum báðum og töldu ekki eftir sér að mæta dag eftir dag á kóræfingar. En nú er öldin önnur. Félagastarfsemi er mun fjölbreyttari en áður og þá tekur sjónvarpið, þessi makalausi tíma- þjófur, sinn toll. Ingvi Rafn Jóhannsson er frá- farandi formaður karlakórsins Geysis. Hann var fyrst spurður að því hvaða nafn nýjum samein- uðum kór yrði gefið. „Ég þori ekki alveg að segja til um hvaða nafn nýi kórinn fær. Það liggur þó fyrir að hann mun annað- hvort heita Karlakór Akureyrar - Geysir eða öfugt. Að minnsta kosti er öruggt að bæði nöfnin verða notuð.“ Ingvi segir að erfitt sé að segja fyrir um hversu margir munu stilla saman strengi sína í hinum sameinaða kór. Hann segir að um 40 menn hafi verið starfandi í báðum kórum á sl. vetri. „Okkur er tjáð, ekki síst úr röðum Karla- kórs Akureyrar, að eftir samein- ingu kóranna muni fleiri söng- menn leggja okkur lið.“ Ingvi neitar því ekki að tölu- vert erfitt sé að sameina svo rót- gróna kóra. „Auðvitað er það erfitt. Báðir kórarnir hafa starfað lengi og getið sér gott orð. Fyrir Margar góðar söngkempur í Geysi saman komnar. marga eldri félaga kóranna er það viðkvæmt mál að leggja þá niður. Við sem að sameiningunni höfum unnið teljum það hins vegar ekki. Ég lít svo á að við séum ekki að leggja niður kórana sem slíka. Sjálfur hef ég verið félagi í báðum kórum, í Karlakór Akureyrar í 17 ár og annan eins tíma í Geysi. Sameining er því ekki viðkvæmt mál fyrir mér. Aðalmálið í mínum huga er að hægt sé að halda uppi karlakórs- Karlakór Akureyrar hélt upp á 50 ára afmæli sitt með pompi og pragt árið 1980. Karlakórsmenn hafa til margra ára sungið á Lúsíuhátíð í Akureyrarkirkju. Hér eru félagar í Karlakór Akureyrar í flokki fríðra meyja á æfingu fyrir Lúsíuhátíð árið 1982. €

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.