Dagur - 11.10.1990, Side 7

Dagur - 11.10.1990, Side 7
Fimmtudagur 11. október 1990 - DAGUR - 7 Æft fyrir samsöng Geysis og Kariakórs Akureyrar í Skemmunni í maí 1978. Litið inn á æfingu hjá Geysi undir stjórn iMichaels Clarkc. starfi í þessum söngbæ. Við telj- um bara ekki grundvöll fyrir báða kórana. Staðreyndin er sú að á undanförnum árum hefur verið barist við að starfrækja báða kórana með misjöfnum árangri. Núorðið er í mörg horn að líta. Ég býst við að auðveldara sé að halda úti kór í sveitum en hér í þéttbýlinu.“ Stjórn nýs sameinaðs kórs verður kjörin í kvöld og verður hún skipuð fulltrúum beggja kóra. Þá verður gengið frá lögum kórsins. En hvað hyggst nýi karlakór- inn taka sér fyrir hendur í vetur? Ingvi Rafn segir að ekki hafi ver- ið gengið frá því, en líklega verði stefnan í byrjun tekin á árlega Lúsíuhátíð í desember. Þá hafi menn hug á því að gera skil hundrað ára afmæli Björgvins heitins Guðmundssonar, tón- skálds, eftir áramót. Ekki hefur verið gengið frá ráðningu stjórnanda kórsins. Skólastjóri Tónskólans í Ólafs- firði hefur verið nefndur í því sambandi, en þau mál ættu að skýrast á næstu dögum. óþh Akureyri-Dalvík: Dagur lögreghmnar Sunnudaginn 14. október nk. verður haldinn um allt land Dag- ur lögreglunnar. Hugmyndin með þessum degi er sú að kynna fyrir almenningi eftir því sem hægt er hið fjölþætta starf lög- reglunnar. Fyrirmynd þessa dags er fengin erlendis frá, en þar er þetta velþekkt. Á Akureyri verður reist tjald sunnan lögreglustöðvarinnar og þar verða til sýnis búnaður og tæki lögreglunnar. Lögreglu- menn munu vera þar til staðar og útskýra búnaðinn fyrir gestum. Þá mun lögreglustöðin vera opin fyrir almenning til skoðunar á tímabilinu frá kl. 14.00 til 18.00. Þar munu allir sem koma fá leiðsögn um lögreglustöðina og lögreglumenn munu svara öll- um þeim spurningum sem fólk vill fá að vita um starfið. Öll börn sem koma í heimsókn fá lögreglumerki, og þá geta þau einnig látið taka af sér mynd á lögreglumótorhj óli. Á Dalvík verður lögreglustöð- in opin fyrir almenning á sama tíma og á Akureyri, og þar munu lögreglumenn staðarins lciða Dalvíkinga í sannleikann um lög- reglustarfið. Lögreglumennirnir vonast til að sjá sem flesta gesti á lögreglu- stöðvunum á sunnudaginn. (Fréttatilkynning.) Leiðrétting: Rangfærsla í tilvitnun Ég finn mig knúinn til að koma á framfæri leiðréttingu í sambandi við þanka mína um agaleysi ís- lendinga í Efst í huga sl. laugar- dag. Þar sagði ég tilvitnun rnína vera úr íslensku leikverki. Einn góður maður benti mér síðan réttilega á það að þessi setning væri úr íslenskri skáldsögu, sem aldrei hefði verið leikgerð. Betur hefði ég því sagt hana úr skáld- verki en leikverki. Rétt skal vera rétt, ekki síst í sambandi við tilvitnanir, svo þessu er hér með komið á fram- færi, en ég vona að þessi þekk- ingarvilla mín hafi hvorki sært lesendur djúpum sárum né dreg- ið athyglina frá efni pistilsins. Skúli Björn Gunnarsson. Barnaskákmót Taflfélags Reykjavíkur: Góður árangur Akureyringa Föstudaginn 5. október lögðu 19 ungir skákmenn og konur auk tveggja fararstjóra land undir fót og héldu til Reykjavíkur. Þetta unga fólk hafði verið valið til að tefla fyrir hönd Skákfélags Akur- eyrar á Barnaskákmóti Taflfélags Reykjavíkur sem halda átti dag- inn eftir. í mótið voru skráðir u.þ.b. 1300 keppendur og vegna fjöld- ans var nauðsynlegt að skipta hópnum í tvo hluta. Fytri hlutinn u.þ.b. 700 krakkar átti að hefja taflið klukkan 10 á laugardags- morguninn, en sá seinni klukkan 16 sama dag. Það kom í hlut okk- ar manna/kvenna að tefla í fyrra mótinu ásamt öðru landsbyggð- arfólki auk Breiðholts- og Árbæj- arhverfis í Reykjavík. Fyrirkomulag mótsins var með þeim hætti að til að byrja mcð var hópnum skipt niður í marga, u.þ.b. 25 manna, hópa og fyrstu þrjár umferðirnar tefldar innan hvers hóps. Þetta reyndist vel og tókst skákstjórum að hafa góða stjórn á hlutunum. En síðan var hópunum blandað saman þannig að þeir voru í sama hópi sem höfðu jafnmarga vinninga. Það er skemmst frá því að segja að eftir þetta lcystist mótið upp í eina allsherjar vitleysu. Eftir hverja umferð þurftu krakkarnir að færa sig utn set, jafnvel á aðta hæð í húsinu og það varð til þess að í hverri umferð voru 30-40 börn sem ekki fundu rétta stað- inn og það kom jafnvel fyrir að krakkar týndust og kæmu svo í leitirnar eftir tvær umferðir. Þessi hringavitleysa varö til þess að TR-menn styttu mótið um eina umferð. Árangur Akureyringanna var sem hér segir: Örvar Arngrímsson 6 v. af 6 Helgi Gunnarsson 6 v. af 6 Baldur H. Sigurðsson 51/: v. af 6 Aðalsteinn Sigurðsson 51/: v. af 6 Pétur Grétarsson 5 v. af 6 Magnús D. Ásbjörnsson 5 v. af 6 Einar Jón Gunnarsson 5 v. af 6 Þorbjörg Þórsdóttir 5 v. af 6 Þórleifur Karlsson 5 v. af 6 Sigurjón Jónasson 5 v. af 6 Gestur Einarsson 4'A v. af 6 Hafþór Einarsson 41/: v. af 6 Bjarki Albertsson 41/: v. af 6 Sigtryggur Símonarson 4 v. af 6 Páll Þórsson 4 v. af 6 Birkir Magnússon 4 v. af 6 Halldór Ingi Kárason 4 v. af 6 Hlynur Erlingsson 4 v. af 6 Örvar og Helgi unnu allar skák- irnar sex og komust því í auka- keppni um fyrstu verðlaun ásamt 5 öðrum. Teflt var um flugferð á millilandaleiðum Flugleiða. í aukakeppninni voru tefldar sex skákir og fékk Örvar 4 vinninga og hafnaði í öðru sæti en Helgi 2 vinninga og hafnaði í 5.-6. sæti. Auk þeirra náðu Baldur og Aðal- steinn í bókaverölaun. Sigurveg- ari í mótinu varð Helgi Áss Grétarsson. Á heildina litið er árangur Akureyringanna tnjög góður og voru þeir sjálfum sér og félagi sínu til mikils sóma. Örvar Arngriinsson stóð sig nieð aDirigðum vel á barna- og unglingaskák' mótinu í Rcykjavík, eins og raunar akureyrski hópurinn allur. BYGGINGAVORUR LÓNSBAKKA LEIÐIN ERGREIÐI Teppi |Vj Dúkar Sl Parkett Flísar Loft- og veggklæðningar □ Hreinlætistæki E Málningarvörur fii Verkfæri tó Boltar og skrúfur 0 Innréttingar VÍ Skrifstofuhúsgögn BÖ Eldhúsborð og stólar ^ Timbur Plötur - margar gerðir _ Steypustál tíl Einangrunarefni ... og ótal margt fleira Lónsbakki - Þægileg verslun fyrir þá sem vilja breyta, eru að byggja eða eru bara forvitnir! - Næg bílastæði - Heitt á könnunni! - Opið frá mánudegi til föstudags frá kl. 08 til 18. 601 Akureyri • -ssr 96-30321 & 96-30326 • Fax 96-27813

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.