Dagur - 11.10.1990, Side 9
Fimmtudagur 11. október 1990 - DAGUR - 9
Steingrímur Hcrinannsson, forsaetisráðherra, í ræðustól. Til hliðar má sjá fundarstjóra ráðstefnunnar, þá Jón Sig-
urðsson, skólastjóra í Bifröst og Þóri Pál Guðjónsson, kaupfélagsstjóra í Borgarncsi.
magni sem því sé treyst fyrir. Þá
segir að möguleikar landsmanna
eigi að vera jafnir með þeim
skorðum sem búseta setur. Að
lokum er bent á að smábæir á
landsbyggðinni eigi meiri von en
margur hyggur sem aðlaðandi
búsetukostur.
Frjáls verðmyndun opnar
fjölbreyttari möguleika
til sérvinnslu sjávarafla
Guðjón A. Kristinsson, formað-
ur Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins, benti á t' erindi sínu á
ráðstefnunni að tilraunir til að
jafna aðstöðu byggða hér á landi
hafi einkennst meira af aðgerð-
um til að bæta fyrir afleiðingar af
skyndilegri byggðaröskun, frem-
ur en að fyrirbyggja hana. Hann
nefndi kerfisbundna breytingu á
verðmyndun í sjávarfangi sem
dæmi um slíkar lausnir. Guðjón
sagði að eins og kunnugt sé fari
verðmyndun á fiski fram með
ýmsum hætti á landinu. Upp-
boðsmarkaðir hafi skotið djúpum
rótum á suðvesturhorninu, en í
öðrum landshlutum reyni fisk-
kaupendur enn að halda í lág-
marksverð ákveðið af Verðlags-
ráði sjávarútvegsins. Hann sagði
að nauðsynleg skilyrði hins
frjálsa markaðar, nægilegur
fjöldi kaupenda og seljenda,
væru sjaldan fyrir hendi á útgerð-
arstöðum landsins. Úr því mætti
hins vegar bæta með því að sam-
eina aðskilda markaði með bætt-
um samgöngum. I því sambandi
benti Guðjón á að sennilega yrði
að tryggja með lagaboði að allur
fiskur sem að landi bærist verði
seldur á markaði eða með mark-
aðstengdu verði. Slík lagasetning
væri róttæk breyting á rekstrar-
umhverfi sjávarútvegsins þannig
að sem flestir, óháð búsetu, nytu
þeirra kosta sem fylgja frjálsri
verðmyndun sjávarafla.
Guðjón A. Kristinsson sagði
það vera skoðun Farmanna- og
fiskimannasambandsins að verð-
myndun alls fersks sjávarafla eigi
að fara fram á fiskmörkuðum.
Hann benti á að tölvutenging
milli útgerðarstaða gæti leyst
nokkuð af þeim vanda sem skap-
ist við það að ekki sé unnt að láta
allan fisk fara á uppboð á gólf-
markaði. Guðjón sagði að fisk-
markaðir opni tvímælalaust nýja
og fjölbreyttari atvinnumögu-
leika við sérvinnslu sjávarafla en
nú eigi sér stað. Hann benti einn-
ig á að ferskfiskmarkaður muni
auðvelda stjórnun fiskveiða og
verða til samræmingar með frjáls-
um hætti á afköstum veiða og
vinnslu.
Fjórðungssamband Norðlendinga
í svari til byggðanefndar forsætisráðherra:
Undirstöðuatviimuvegirfflr búi við
eðlilegt Ijármagnsumhverfi
- samin verði byggðaáætlun til ársins 2000 er
taki mið af samdrætti vegna stóriðju á Suðurnesjum
stæði ríkisbankanna til ákvarð-
Meginþættirnir í svari Fjórð-
ungssambands Norðlendinga
við spurningum byggðanefnd-
ar forsætisráðherra eru tveir. í •
fyrsta lagi að efnahagslegt við-
horf verði þannig að undir-
stöðuatvinnuvegirnir, gjald-
cyrisöflun og nýting landkosta,
búi við eðlilegt fjárhagslegt
umhverfi, til að þeir verði leið-
andi afl í efnahagskerfinu, og
ráðandi um nýtingu búsetu-
skilyrða í landinu. Og í öðru
lagi að stjórnsýslulegt mótvægi
skapist í landinu í samræmi við
búsetuhagsmuni. Þetta kom
kom fram á ráðstefnu nefndar-
innar í Borgarnesi síðastliðinn
mánudag.
í svari fjórðungssambandsins
segir ennfremur að stjórnsýslu-
þjónusta og velferðarþjónusta,
sem kostuð er af almennu fé,
verði veitt á sama kostnaðarverði
hvar sem er á landinu. Þá segir að
stefnan í staðarvali stóriðjufyrir-
tækja miðist við að saman fari
byggðahagsmunir þjóðarinnar,
þegar erlendum stórfyrirtækjum
er látið í té ívilnanir fram yfir
rekstur innlendra aðila í landinu.
Fjórðungssamband Norðlend-
inga telur að hætta verði við þá
starfshætti sem einkennt hafa
vinnulag Byggðastofnunar að
undanförnu. Aðskilja verði
hjálparaðgerðir vegna aðkallandi
atvinnuvanda og ráðstafanir
vegna langtíma byggðaaðgerða.
Verði það ekki gert gleypi björg-
unaraðgerðirnar allt fjármagn
sem ætlað sé til varanlegra
aðgerða. Fjórðungssamband
Norðlendinga leggur til að fram-
lög af fjárlagafé til byggðamála
verði á ný 2% allra ríkistekna,
eins og ákveðið var þegar laga-
ákvæði um Framkvæmdastofnun
ríkisins, forvera Byggðastofnun-
ar, voru sett í upphafi.
í svari fjórðungssambandsins
við spurningum byggðanefndar
kemur einnig fram að sambandið
leggur til að tekjustofnakerfi
sveitarfélaga verði breytt á þann
veg að það ósamræmi, sem nú er
í tekjuöflun þeirra, skapi ekki
varanlegt misvægi gagnvart
höfuðborginni. Með samteng-
ingu fjárfestingarsjóða verði
stofnuð útibú í landshlutum, sem
hafi sjálfstæða yfirstjórn og sjálf-
anatöku verði aukið.
Þá er lagt til að sérstakar ráð-
stafanir verði gerðar til að koma
á raunverulegri valddreifingu frá
ríkiskerfinu til heimaaðila.
Byggðar verði upp þjónustu-
stofnanir í hverjum landshluta,
sem ásamt dreifðari þjónustu-
aðstöðu færi þjónustuna nær
starfsvettvangi þeirra er nú verða
að sækja hana í fjarlægari
byggðir.
Sérstök byggðaþróunaráætlun
er nái til næstu aldamóta, vegi á
móti fyrirsjáanlegri búsetu- og
atvinnuröskun sem verður í
kjölfar í nýrrar stóriðju á
Suðvesturlandi og hluti þeirrar
áætlunar verði sérstakar ráðstaf-
anir til að koma í veg fyrir að
fyrirhugaðar samdráttaraðgerðir
vegna stóriðjuframkvæmda bitni
eingöngu á landsbyggðinni utan
Suðvesturlands.
Markmið þeirrar áætlunar
verði að árið 2000 verði tímabili
núverandi búseturöskunar lokið
og þá verði tryggður varanlegur
árangur til inótvægis í byggð
landsins til framtíðar f>I
Landsbyggðin má ekki
vera í varnarstöðu
Guðjón A. Kristinsson sagði að
landsbyggðin mætti ekki undir
nokkrum kringumstæðum halda
áfram að vera í þeirri varnar-
stöðu gagnvart stór-Reykjavíkur-
svæðinu sem væri í dag. Skýrt
mótuð byggðastefna fyrir hvert
landsvæði, sem ekki fæli ein-
göngu í sér að jafna búsetuskil-
yrði fólks út frá hverjum einstakl-
ingi séð, yrði að koma til. Jöfnun
orkukostnaðar og niðurgreitt
vöruverð myndi duga skammt í
framtíðinni ef ekki koma til
framkvæmdir sem leiða til nýrra
atvinnutækifæra og jákvæðra
breytinga á högum fólks á lands-
byggðinni.
Iðnþróun - við erum að
dragast aftur úr
Ásgeir Leifsson, iönráðgjafi Iðn-
þróunarfélags Húsavíkur, segir í
svari til byggðanefndar að vöxtur
í íslenska hagkerfinu liafi verið
alltof lítill á undanförnum árum.
Samdráttur hafi meira að segja
átt sér stað á íslandi á sama tíma
og fádæma góðæri hafi ríkt í vest-
rænum og austurlenskum hagkerf-
um. Ásgeir bendir á að með betri
samgöngum og auknum samskipt-
urn sé mikil iðnvæðing nú í gangi
í heiminum, bæði hjá iðnríkjum
en einnig hjá þróunarríkjum.
Síðan segir hann: „Undanfarin ár
hefur hallað á atvinnustarfsemi í
dreifbýli. Samdráttur hefur orðið
í sölu landbúnaðarafurða og
afkoma sjávarútvegs og fisk-
vinnslu hefur almennt verið slök
þótt ytri skilyröi hafi yfirleitt ver-
ið mjög góð. Sú staðreynd liggur
fyrir að ckki verður meiri sjávar-
afli sóttur í bráð og jafnvel í
lengd nema með gerbreyttu skipu-
lagi veiðanna og vaxtarmöguleik-
ar í landbúnaði eru fáir.“
Ásgeir telur upp nokkra þætti
sem orsaka mannflótta frá dreif-
býlinu og nefnir meðal annars
sókn í menntun þar sem sækja
þurfi alla æðri menntun til Reykja-
víkur eða útlanda. Hann nefnir
sókn í meiri þjónustu, skyld-
menni og hagstæðara veðurlag,
ásamt sókn í fjölbreyttari atvinnu
og síðan nefnir hann að sveita-
dvöl og sumarvinna úti á landi
hafi stórlega dregist saman.
Þannig hafi tengsl fólks við dreif-
býlið rofnað og orsaki það dreif-
býlisfælni á meðal margra íbúa
þéttbýlisins.
Ásgeir ræðir um mein í atvinnu-
uppbyggingunni á íslandi. Smæð
hins íslenska markaðar veldur
því að mörg athafnasviö í fram-
leiðsluiðnaði eru varla til hér á
landi. Reynsluheimur athafna-
manna á landsbyggðinni er ntjög
þröngur og því varla von að
menn séu tilbúnir að velta fyrir
sér nýrri útflutningsstarfsemi þó
svo að markaður eigi að vera
tryggur.
Ásgeir bendir á að á næstu
árum muni alþjóðleg verslun og
samkeppni stóraukast. Leið til
aukinnar hagsældar á íslandi
hljóti því að liggja í því að skapa
ný verðmæti í staðinn fyrir að
troða skóinn hver af öðrum.
Auðveldasta leið íslendinga sé að
efla útflutning vara og þjónustu.
En til þess að svo rnegi verða
þurfi samkeppnishæfni íslenskra
framleiðsluþátta að byggjast á
innlendum auðlindum, það er að
segja staðsetningu landsins, fiski-
miðurn, orku fallvatna, jaröhita,
lítilli mengun, innri uppbyggingu
landsins og menntun fólksins.
ÞI
Tilboð
Tesco leggur áherslu á aö þeirra vör-
ur þ.m.t. þvottaefni og sprey séu ekki
náttúruspillandi.
Tesco Majones 500 ml...........................kr. 122,50
Tesco Hnetusmjör 340 g.........................kr. 119,50
Tesco Súkkulaöidropar 100 g....................kr. 85,00
Tesco Jurtaolía 11.............................kr. 94,00
Tesco Kornolía.................................kr. 114,00
Tesco Relish 5 teg. 300 g......................kr. 97,00
Tesco Bolognesesósa 455 g......................kr. 118,00
Tesco Bolognesesósa m/pipar 455 g..............kr. 93,50
Tesco Pizzabotn mix 140 g......................kr. 44,00
Tesco Egg lasagne 375 g........................kr. 128,50
Tesco Bran flakes morgunverður 750 g........kr. 237,50
Tesco Golden puffs morgunverður 375 g........kr. 157,00
Tesco Whole wheat cereal morgunkorn 430 g......kr. 133,00
Tesco Beef curry w/rice réttur 208 g...........kr. 138,00
Tesco Chili con carne réttur 215 g.............kr. 138,00
Kálfasnitsel í raspi pr. kg....................kr. 879,00
Hvítlaukspylsa pr. kg..........................kr. 398,00
Opið mánud.-föstud. 10.30-18.30
Laugard. 10.00-14.00