Dagur - 11.10.1990, Síða 13
Fimrntudagur 11. október 1990 - DAGUR - 13
fyrrverandi prófastur
Fæddur 14. apríl 1915 - Dáinn 20. september 1990
Séra Bjartmar Kristjánsson
andaðist í Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri 20. september
1990 sjötíu og fimm ára að aldri.
Hann var sálusorgari rninn í 22 ár
og þess vegna get ég ekki látið hjá
líða að minnast hans með nokkr-
um orðum. Hafi gæsla sálar
minnar ekki verið nógu góð í
höndum séra Bjartmars er það
ekki hans sök, heldur hitt, hvað
hlutverkið er erfitt.
Sál mín er á sífelldu iði, flögrar
sitt á hvað eins og fugl í skógi.
Séra Bjartmar var settur prest-
ur í Mælifellsprestakalli 1946 á
því ári sem hann lauk embættis-
prófi í guðfræði. Hann kont að
norðan og fólk þekkti hann ekk-
ert eða ættmenn hans. Sumir
höfðu þó hugmynd um, að hann
var alinn upp í fögrum dal, þar
sem Eyjafjarðará liðast um græn-
ar lendur og rismikil fjöll til
beggja handa. Stundum er því
haldið fram að umhverfi hafi
áhrif á æsku- og uppvaxtarárum,
þótt ekki verði með tölum talið.
Séra Bjartmar var ekki illa
tekið, þegar hann kom í Mælifell.
Sumum fannst hann dulur í
skapi, en hann var það ekki á
góðri stund. Honum lét það vel,
að láta lítið á sér bera og hlusta,
þegar aðrir töluðu þar sem menn
komu saman.
Árið eftir 1947 var prestskosn-
ing og séra Bjartmar fékk góða
kosningu. Ég gat ekki tekið þátt í
þeirri kosningu, sem ég gjarnan
vildi, því ég var þá uppi á
fjöllum, að snúast í kringunt
mæðiveikina.
Pegar séra Bjartmar var á
Mælifelli fannst mér hann vera
fyrirmaður presta í Skagafirði og
víst hafði hann margt til þess, en
ég mætti ekki segja það, því þá
yrðu hinir móðgaðir og svo er
erfitt að gera upp á milli manna.
Gáfur séra Bjartmars voru á
breiðu skeiði. Hann var stærð-
fræðingur að eðlisfari. Hann tal-
aði og skrifaði svo góða íslensku,
að til fyrirmyndar mátti telja,
hafði góðan málróm og flutti vel.
Hann hafði yfirunnið tvo kónga
Mantmon og Bakkus. Hann var
sanngjarn í viðskiptum við
náungann og lét heldur á sjálfan
sig ganga. Hann var ekki bind-
indismaður, en fór með vín og
naut þess að gefa gestum í staup,
en ég minnist þess ekki að hafa
séð hann undir áhrifum áfengis.
Séra Bjartmar hafði ekk'i stórt
bú á Mælifelli, virtist ekki hafa
hug á að vera stórbóndi, eins og
margir Mælifellsprestar voru á
fyrri tíð, því jörðin er góð. Heim-
ilið var mannmargt og miðstöð
sveitarinnar. 6 börn þeirra hjóna
ólust þar upp og þar var líka gest-
kvæmt í meira lagi. Símstöð var á
Mælifelli og þar átti símaafgreiðsla
að vera 6 tímar á dag, en var í
raun allan sólarhringinn. Heimil-
ið var í fáum oröum sagt fyrir-
myndarheimili og þar átti stóran
hlut, hin fallega og hógværa
prestskona Hrefna Magnúsdótt-
ir. Hún var búsýslukona mikil og
vildi gjarnan ræða um búskap.
Eitt sinn ræddum við um bernsku-
minningar og það sem við mund-
unt fyrst eftir var það sama hjá
okkur báðum. Pað var rokkhljóð-
ið hennar mömmu, rokkhljóð
aldanna.
Árið 1954 var séra Bjartmar
kosinn í hreppsnefnd Lýtings-
staðahrepps og átti þar sæti til
1968 að hann hvarf úr héraði.
Fyrir sveitarstjórnarkosningar
1958 var búið að ræða það við
mig, að ég reyndi að taka að mér
oddvitastarf. Ég var þá illa fær
um það, að mér fannst, kominn
yfir fimmtugt og hafði varla kom-
ið nálægt félagsmálastörfum.
Þessar kosningar voru pólitískar
listakosningar og fóru svo að
Framsóknarflokkurinn fékk 3
menn kjörna en Sjálfstæðisflokk-
urinn 2. Svo kom að oddvitakjöri
og fékk ég 4 atkvæði, cn átti ekki
að fá nema 3. Þar kom til mín
atkvæði séra Bjartmars og hann
sagði við mig á eftir, að nú fengi
ég verk að vinna. Séra Bjartmar
var eindreginn stuðningsmaður
Sjálfstæðisflokksins, hreinn og
beinn og undirhyggjulaus, hvar
sem hann kom fram. Ég hef löng-
Vöruskiptin við útlönd janúar-ágúst 1990:
Vöruskiptajöftiuðuriim
hagstæður um 3,6 milljarða
í ágústmánuði voru fluttar út vör-
ur fyrir tæpar 7.400 millj. kr. og
inn fyrir röskar 7.900 millj. kr.
fob. Vöruskiptajöfnuðurinn í
ágúst var því óhagstæður um nær
600 millj. kr. en í ágúst í fyrra var
hann hagstæður um 1.800 millj.
kr. á sama gengi.
Fyrstu átta mánuði þessa árs
voru fluttar út vörur fyrir 62,1
milljarð kr. en inn fyrir 58,5 millj-
arða kr. fob. Vöruskiptajöfnuð-
urinn á þessum tíma var því hag-
stæður um 3,6 milljarða kr. en á
sama tíma í fyrra var hann hag-
stæður um 7 milljarða kr. á sama
gengi.
Fyrstu átta mánuði þessa árs
var verðmæti vöruútflutningsins
3% meira á föstu gengi en á sama
tíma í fyrra. Sjávarafurðir voru
um 78% alls útflutningsins og
voru um 10% meiri en á sama
tíma í fyrra. Útflutningur á áli
var 12% minni og útflutningur
kísiljárns var 34% minni en á
sama tíma á síðastliðnu ári.
Útflutningsverðmæti annarrar
vöru (að frátöldum skipum og
flugvélum) var 5% meira janúar-
ágúst en á sama tíma í fyrra,
reiknað á föstu gengi.
Verðmæti vöruinnflutningsins
fob fyrstu átta mánuði ársins var
10% meira en á sama tíma í
fyrra. Þetta stafar m.a. af miklum
flugvélakaupum á árinu. Verð-
mæti innflutnings til stóriðju var
26% meira en í fyrra, og verð-
mæti olíuinnflutnings var um
15% meira en á sama tíma í
fyrra, reiknað á föstu gengi. Þess-
ir innflutningsliðir ásamt inn-
flutningi skipa og flugvéla
eru jafnan breytilegir frá einu
tímabili til annars, en séu þeir
frátaldir reynist annar innflutn-
ingur (71% af heildinni) hafa
orðið um 4% rneiri en í fyrra,
reiknað á föstu gengi.
Vísitala
framfærslukostnaðar:
0,6% hækkun á
þremur mánuðum
Kauplagsnefnd hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar
miðað við verðlag í októberbyrj-
un 1990. Vísitalan í október
reyndist vera 147,2 stig (maí 1988
= 100), eða 0,3% hærri en í sept-
ember. Samsvarandi vísitala
samkvæmt eldra grunni (febrúar
1984 = 100) er 361,0 stig.
Verðhækkun ýmissa vöru- og
þjónustuliða olli um 0,4% hækk-
un vísitölunnar frá september til
október og þar af stöfuðu 0,2% af
verðhækkun fatnaðar, en á móti
vó lækkun fjármagnskostnaðar
um 0,1%.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkað um 10,1%. Undanfarna
þrjá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 0,6% og jafngildir sú
hækkun 2,2% verðbólgu á heilu
ári.
Kennarafélag MA:
Mótmælir setn-
ingu bráðabirgða-
laganna 3. ágúst sl.
Fundur Kennarafélags Mennta-
skólans á Akureyri, sem hald-
inn var á setningartíma Al-
þingis í gær, mótmælir harð-
lega setningu bráðabirgðalaga
til að nema úr gildi meginatriði
kjarasamninga BHMR við ijár-
málaráðuneytið frá 18. maí
1989.
í bréfi fundarins, sem undirrit-
að var af 27 kennurum við skól-
ann og sent Alþingi íslendinga,
er skorað á Alþingi að fella þegar
úr gildi bráðabirgðalög ríkis-
stjórnarinnar frá 3. ágúst sl. „og
sýna þar með að þingræði sé í
fullu gildi á íslandi,“ eins og segir
orðrétt í bréfinu.
BHMR-félagar við MA sendu
einnig baráttufundi BHMR á
Austurvelli í gær baráttukveðjur
þar sem skorað var á samtökin
„að láta hvergi deigan síga til að
freista þess að hnekkja bráða-
birgðalögum ríkisstjórnarinnar
frá 3. ágúst í sumar.“ óþh
um haldið í pilsfald Framsóknar,
sem er góður faldur ef hann
blaktir rétt.
Við séra Bjartmar vorum 10 ár
santan í sveitarstjórn og stóðum
vel saman í öllum stærri málum.
Ég man aðeins eftir einu, að við
vorum ekki sammála. Ég vildi
láta loka einhverju hliði við
Steinsstaðaskóla til þess draga úr
óþarfa untferð, en hann vildi það
ekki og ég lét undan. Við vorum
hvorugur rökheldir.
Minnisstæður er mér almennur
sveitarfundur 1963 mjög fjöl-
mennur. Þar var til umræðu,
hvort byggja ætti félagsheimili
við Steinsstaðalaug. Þetta var
rnikið hita- og kappsmál. Séra
Bjartmar skrifaði fundargerðina,
sem er margar blaðsíður og svo
glögg, að getið er um aðalatriði í
ræðum fundarmanna. Niðurstaða
fundarins varð sú, að 46 greiddu
atkvæði með en 27 á móti. Krafa
kom um nafnakall, svo skrifaö
var í fundargerð, hverjir greiddu
atkvæði með og hverjir á móti.
Félagsheimilið var byggt og mér
þykir gaman að lesa þessa fund-
argerð nú. Ég áfellist ekki þá sem
greiddu atkvæði á móti. Það var
hin gamla og góða varúð, að ætla
sér ekki of mikið, reisa sér ekki
hurðarás um öxl. Þegar við séra
Bjartmar fórum úr sveitarstjórn,
voru miklar skuldir hjá sveitar-
sjóði en það virðist ekki hafa gcrt
mikið til. Það er búið að borga
þær nú. Eitt sinn gengum við séra
Bjartmar með kirkjugarðinum í
Goðdölum. Ég benti á að hér
væri einhver partur af þeim, sem
farnir væru. Hann væri 10 árum
yngri en ég og það myndi koma í
hans hlut, að tala yfir mér dauð-
um. Hann sagði ekki neitt, eins
og honum var tamt, þegar það
átti við. Hér sannaðist hið forn-
kveðna að enginn veit hver ann-
an grefur.
Stundum ræddum við um störf
presta, svo sem þar er kallast lík-
ræðulof. Hann sagðist tína til það
sem hann vissi gott um hinn dána
því almenningur væri búinn að
sjá fyrir hinu.
Eftir að séra Bjartmar fluttist
norður brást það ekki, að ég
heimsótti hann j)egar leið mín lá
til Akureyrar. I einni þeirri ferð
spurði ég bónda í Saurbæjar-
hreppi, hvernig þeim líkaði við
prestinn. Nú, þeim líkaði vel við
hann, en hann væri svo sem ekki
með neinar nýjar kenningar. Mér
fannst þetta óþörf athugasemd.
Siðgæðiskenning Krists er gömul
og líka alltaf ný.
Séra Bjartmar var raunsæis-
maður í hugsun og kom það fram
í ræðum hans. Hann reyndi ekki
að bregða bandi yfir hornið á
skýinu, en hélt sig við jörðina og
mannlífið þar, eins og það birtist
fyrir sjónum manna. Kenningin
um eilífa útskúfun var honum
fjarlæg. Hann sagði að það væri
ljót kenning.
Séra Bjartmar var jarðsettur
að Munkaþverá 29. september,
að viðstöddu fjölmenni. Tveir
prestar fluttu ræður. Séra Birgir
Snæbjörnsson rakti starfsferil og
lýsti mannkostum hins látna í
stuttu máli. Það var ekki lfkræðu-
lof. Séra Bjartmar átti með réttu
það sem um hann var sagt.
Kirkjugarðurinn á Munka-
þverá er til fyrirmyndar. Hann er
rennslétt tún í litlum halla, með
krossum hér og þar og svo þetta
stórkostlega listaverk, minn-
isvarða um Jón biskup Arason.
Sjálfsagt hafa munkar helgað
þennan stað með bænagerð, þó að
þeir flyttu ekki fjöll.
Sagan geymir eitt og annað.
Mér hefur verið sagt, að í kirkju-
garðinum á Munkaþverá sé
Sturlungareitur og þar hafi Sturl-
ungar verið jarðaðir, sem féllu á
Örlygsstöðum. Það hefur löngum
verið svo, að syndaselir og betri
menn fá sama hvíldarstað.
Útfarardagur séra Bjartmars
var sérstakur á þessu þokusæla
hausti. Það var logn og glamp-
andi sólskin allan daginn.
Ég lít svo á, að þetta hafi verið
kvittun frá Drottni fyrir því, að
þessi þjónn hans hafi verið góður
þjónn og farið í friði. Þegar séra
Bjartmar er farinn til feðra vorra
„klerkurinn heimagróni" fylgja
honunt þakkir og blessunaróskir
frá þeim sem þekktu hann og
nutu starfa hans.
5. október 1990.
Björn Egilsson.
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
« Stinga ekki
«>Úr tínustu merinóull
->Mjög slitsterk
j Má þvo við 60°C
EYFJÖRÐ
Hjaltcyrargotu 4 • Simi 22275
Karlakór Akureyrar - Geysir
Sameining kóranna fer fram í Lóni, í kvöld,
fimmtudaginn 11. október n.k. kl. 20.30.
Félagar beggja kóranna eru hvattir til að mæta vel
og stundvíslega.
Nýir félagar eru velkomnir.
Á fundinum verður gengið frá lögum fyrir hinn sam-
einaða kór.
Þá fara fram venjuleg aðalfundarstörf og vetrarstarf-
ið verður rætt.
Stjórnir kóranna.