Dagur - 11.10.1990, Page 14

Dagur - 11.10.1990, Page 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 11. október 1990 Stjómmála- ályktun SUF - samþykkt á 23. þingi SUF að Núpi í Dýrafirði Frjálslyndi og framtíð Skær ljómi frelsis og framfara kemur frá meginlandi Evrópu þar sem hver þjóðin af annarri varpar af sér áratuga oki úreltrar stjórnskipunar. Pótt ófriðlega horfi sem fyrr í ríkjum Miðaust- urlanda er ljóst að þegar hafa orðið meiri breytingar í Evrópu en nokkurn óraði fyrir og enn má búast við meiri tíðindum. Fram- undan blasir við ríkjasamsteypa Stór-Evrópu sem mun snúa sér innávið fyrst um sinn, byggja upp efnahag bræðraríkja í austri en standa síðan gríðarlega sterk meðal stórvelda heims í austri og vestri. Stórkostlegar framfarir í samskiptatækni hvers konar eru af mörgum taldar kveikjan að vakningu fólksins þar sem stjórn- kerfið herti að og þessi sam- skiptatækni mun áfram gera öli- um kleift að fylgjast með þróun mála, ekki aðeins í Evrópu, held- ur um allan heim. Á lítilli eyju í nyrsta hafi mun fámenn þjóð geta fylgst með vaxandi hagsæld annarra Evrópu- þjóða og bættum lífskjörum almennings, framförum á sviði viðskipta, menntunar og menn- ingar hvers konar, samgangna og vísinda, stórauknum tækifærum einstaklingsins til þess að spreyta sig á nýjum sviðum og fá útrás fyrir sköpunargleði sína í öruggu umhverfi. Það er við þessar aðstæður, sem við munum þurfa að svara oftar spurningunni: Af hverju eigum við að vera ísiendingar? Unga fólkið í þessu landi mun oftar velta því fyrir sér hvort hag þess sé betur borgið annars staðar, hvort lífið yfirleitt sé inni- haldsríkara annars staðar. Það er hlutskipti okkar í þessu lífi að vera Islendingar. Það er okkar að vera fámenn þjóð á harðbýlli eyju. Það er okkar að viðhalda rúmlega ellefu hundruð ára menningarsögu sem á sér enga líka í veröldinni. Það er okkar að varðveita íslenskt tungu- mál sem stendur á ævafornum merg. Það er okkar að vernda fágæta íslenska náttúru. Það er okkar að lifa í íslensku nútíma- þjóðfélagi sem á margan hátt er frábrugðið pví sem annars staðar gerist. Það er okkar að vernda og nýta á skynsamlegan hátt ein auðugustu fiskimið heims og geta á þann hátt boðið öðrum þjóð- um ómengaða og holla fæðu. Og það hefur jafnan orðið hlutverk okkar að fara með friði þjóða á meðal og stuðla að auknum sam- skiptum. Þessar skyldur okkar verðum við að rækja við erfið skilyrði. Við heyjum eilíft stríð við óblíð máttarvöld á strjálbýlli eyju. Fábreytilegt atvinnulíf setur okk- ur skorður. Fámennt þjóðfélag okkar hefur ekki ráð á að nýta sér til fulls allar þær greinar vís- inda og mennta, sem hugur okk- ar stendur til og að menningu okkar er sótt í sívaxandi mæli erlendis frá. Efnahagslíf okkar hefur einkennst af miklum sveifl- um, að hluta vegna aðstæðna sem við höfum ekki ráðið við, að hluta vegna mistaka okkar sjálfra. Það er hlutverk Framsóknar- flokksins að auðvelda okkur að vera íslendingar. Framsóknar- flokkurinn hefur verið nátengdur menningar- og atvinnulífi þessar- ar þjóðar í áratugi. Hann hefur boðað frjáislynda umbótastefnu og verið í fylkingarbrjósti við uppbyggingu atvinnulífs á land- inu öllu, unnið stórvirki á sviði menntunar og menningar og stuðlað að jöfnuði milli byggða. Framsóknarflokkurinn hefur jafnan leitt ríkisstjórnir á örlaga- tímum íslenskrar þjóðar og tekist með hófsömum málflutningi að sætta sjónarmið stríðandi afla, jafnt innanlands sem í samskipt- um við erlendar þjóðir. Það er því hlutverk Framsókn- arflokksins að leiða íslenska þjóð áfram inn í framtíð mikilla breyt- inga. í samskiptum okkar við bræðraþjóðir í Evrópu sem og við aðra heimshluta verður Framsóknarflokkurinn að standa vörð um þá sérstöðu sem ísland hefur í samfélagi þjóðanna. Framsóknarflokkurinn á að benda á leiðir til þess að lífsgæði og lífskjör í þessu landi verði ekki lakari en best gerist í ná- grannalöndunum. Hann á að benda á leiðir til þess að auka stórlega fjölbreytni atvinnulífs í landinu, draga úr sveiflum í efna- hagsmálum. Framsóknarflokkur- inn á að hafa forgöngu um að auðga menningarlíf þjóðarinnar og unt stórfelldar endurbætur og menntunarkerfi þjóðarinnar. Framsóknarflokkurinn á með endurbótum á samgöngukerfi, með stjórnvaldaaðgerðum og með samráði við samtök sveitar- félaga að þétta búsetu og koma upp sterkum þjónustukjarna í hverjum landshluta. Þetta gerum við með því * að byggja efnahagslíf þjóðar- innar á blönduðu hagkerfi einka- rekstrar, samvinnurekstrar og opinberrar þjónustu, þannig að framtak einstaklinganna og sam- taka þeirra njóti sín til fulls. * efla menntun sem hið mikil- vægasta afl í baráttunni gegn félagslegu og efnahagslegu órétti, hleypidómum og hverskonar ofstæki sem og í baráttunni fyrir friði og mannréttindum. * að skapa fjölskyldunni ávallt sem besta aðstöðu til að gegna hlutverki sínu sem hornsteinn þjóðfélagsins. * að standa vörð um íslenska tungu og þjóðmenningu sem og að stuðla að blómlegu menning- arlífi sem aðgengilegt er öllum landsmönnum. * að stuðla að jafnræði með mönnum hvar sem þeir búa á landinu. * að skila landinu til komandi kynslóða í sem bestu ástandi. * að standa við þá skyldu ríkis og sveitarfélaga að stuðla að heil- brigðu og fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi fólks á öllum aldri sem best gerist í höndum frjálsra félaga og samtaka áhuga- fólks. * að láta stjórn náttúruauðlinda íslands, lands og landsnytja, sjávarfangs, orkulinda og alls þess er þjóðin hefur sér til fram- færis aldrei úr höndum íslend- inga. * að gæta þess ávallt að góð lífs- kjör byggist á lifandi og öflugu atvinnulífi. * að íslendingar styðji hvers kyns viðleitni til að koma á var- anlegum heimsfriði og hvetji í því sambandi þjóðir heims til þess að afvopnast. Jl íþróttir ~J Knattspyrna: Fjölmenni á uppskeru- hátíð Þórs í Hamri Uppskcruhátíð knattspyrnu- deildar Þórs fór fram í Hamri sl. sunnudag. Farið var yfir gengi flokkanna í mótum sumarsins og mestu marka- skorurum og bestu leikmönn- um hvers flokks veittar viður- kenningar. Mæting var mjög góð og var fullt hús af knattspyrnufólki úr öllum flokkum. Hér á eftir má sjá hverjir voru kjörnir bestu knatt- spyrnumenn flokkanna og einnig hverjir skoruðu mest. Meistaraflokkur karla: Besti leikmaðurinn var kjörinn Hlynur Birgisson en markahæst- ur varð Árni Þór Árnason með 4 mörk. 2. flokkur karla: Besti leikmaðurinn var kjörinn Axel Gunnarsson en Axel Vatnsdal skoraði mest, 13 mörk. 3. flokkur karla: Markakóngur varð Guðmund- ur Benediktsson sem skoraði 43 mörk. Hann var jafnframt kjör- inn besti leikmaðurinn. 4. flokkur: Markakóngur varð Atli Þór Samúelsson með 22 mörk en besti leikmaðurinn var kjörinn Kristján Örnólfsson. 5. flokkur: Markakóngur varð Tryggvi Valdimarsson með 9 mörk. Besti leikmaðurinn var kjörinn Elmar Sveinbjörnsson. 6. flokkur: Markahæstur varð Andri Albertsson með 48 mörk. Tveir leikmenn voru kjörnir bestir, Hörður Rúnarsson og Jóhann Þórhallsson. 7. flokkur: Besti leikmaðurinn var kjörinn Albert Ásvaldsson. Meistaraflokkur kvenna: Gerður Guðmundsdóttir var kjörin besti leikmaðurinn en Ell- en Óskarsdóttir varð markahæst með 9 mörk. 2. flokkur kvenna: Soffía Frímannsdóttir var kjör- in besti leikmaðurinn en marka- hæstar urðu Harpa Örvarsdóttir og Brynhildur Smáradóttir með tvö mörk hvor. 3. flokkur kvenna: Markakóngur varð Harpa Frímannsdóttir með 5 mörk. Hún var jafnframt kjörin besti leikmaðurinn. Markakóngur Þórs á stórum velli var Guðmundur Benedikts- son með 43 mörk en á litlum velli Andri Albertsson með 48 mörk. Þá fengu 8 leikmenn viður- kenningar fyrir góða frammi- stöðu í knattþrautum KSÍ. Þeir eru: Jónatan Þór Magnússon, Orri Freyr Óskarsson, Jóhann Þórhallsson, Hörður Rúnarsson, Þórður Halldórsson, Andri Albertsson, Einar M. Ólason og Eiríkur Jónsson. Bestu leikmönnum flokkanna voru afhentar viðurkenningar. Hér er hluti af hópnum, f.v.: Elmar Sveinbjörnsson, 5. flokki; Jóhann Þórhallsson og Hörður Rúnarsson, 6. flokki; Guðmundur Benediktsson, 3. flokki; Harpa Frí- mannsdóttir, 3. flokki kvenna og Soffía Frímannsdóttir, 2. flokki kvenna. Markakóngar Þórs, Andri Albertsson t.v. og Guðmundur Benediktsson. Myndin kl

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.