Dagur


Dagur - 07.11.1990, Qupperneq 4

Dagur - 07.11.1990, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 7. nóvember 1990 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUFI: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. íslenski prhundurinn: Húsbóndahollur, glaðlegur, skynsamur og trúverðugur RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON DREIFINGArtSTJÓRI: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Tímamót í EB umræðuimi í umræðum í sameinuðu Alþingi um skýrslu utanríkisráð- herra varðandi samningaviðræðurnar við Evrópubanda- lagið lagði alþingismaður til í fyrsta skipti að ísland sækti um inngöngu í bandalagið. Ragnhildur Helgadóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sagði að íslend- ingar ættu nú að notfæra sér þann skilning sem þjóðir bandalagsins sýni málefnum íslendinga. Ragnhildur taldi einnig að taka bæri upp samninga um sérhagsmunamál okkar og væri þeim betur borgið í viðræðum um aðild en í samflotsviðræðum með öðrum þjóðum. Þótt miklar umræður hafi átt sér stað hér á landi um þróunina í Evrópu og á hvern hátt við getum treyst nauð- synleg viðskipti okkar við ríki Evrópubandalagsins hefur enginn lagt til að ísland sækti um beina inngöngu í bandalagið fyrr en nú. Með samningum um sameiginleg- an markað bandalagsríkjanna er í raun verið að mynda sérstaka yfirríkisstjórn, sem fer með ýmis sameiginleg mál þeirra. Allar hömlur um viðskipti bandalagsríkjanna eiga að hverfa. Auðlindir, vinnumarkaður og fjármagns- markaður hvers ríkis verður allra. Framleiðsluvörur bandalagsríkjanna eiga þannig beínan aðgang að mörk- uðum allra ríkjanna. íbúar þeirra eiga rétt á að flytjast óhindrað innan bandalagsríkjanna, leita sér að atvinnu og setjast að. Fjármagnseigendur geta fjárfest í hvaða bandalagsríki sem er að eigin vild og nú er rætt um að taka upp einn gjaldmiðil fyrir bandalagssvæðið. Afstaða íslendinga til Evrópubandalagsins er misjöfn. Skoðanir eru skiptar, bæði á meðal almennings og einnig innan stjórnmálaflokkanna. Ljóst er að við eigum mikið undir viðskiptum við ríki Evrópubandalagsins á komandi árum. Því verðum við að tryggja hagsmuni okkar eins og við best getum. Ýmis skilyrði fyrir þátttöku í Evrópu- bandalaginu eru þó með þeim hætti að þjóð, sem aðeins á eina meginauðlind og íbúafjöldi er aðeins brot af íbúa- fjölda annarra þjóða, er margvísleg hætta búin. Getum við veitt öðrum hlutdeild í fiskimiðum okkar? Getum við leyft erlendum fjárfestingaraðilum að kaupa meirihluta í íslenskum framleiðslutækjum? Getur íslenskt atvinnulíf tekið við einhverjum fjölda útlendinga? Spurningar á borð við þessar valda okkur verulegum vanda þegar rætt er um samskipti við Evrópubandalagið. Hingað til höfum við kosið að standa að samningum við Evrópubandalagið í samvinnu við önnur EFTA ríki. Þau mál verður að leiða til lykta áður en við íhugum hver verða næstu skref í málinu. Sjávarútvegsstefna Evrópu- bandalagsins er á engan hátt aðgengileg fyrir okkur. Þrátt fyrir mismunandi skoðanir hefur verið nokkur eining um að íslendingar feti þessa leið. Mcð ummælum Ragnhildar Helgadóttur vaknar sú spurning hvort Sjálf- stæðisflokkurinn hyggst gera aðild að Evrópubandalag- inu að kosningamáli í komandi alþingiskosningum. Var hún að segja það sem aðrir hugsa eða er þetta einkaskoð- un hennar? Fari svo að stjórnmálaflokkur, í þessu tilfelli Sjálfstæðisflokkurinn, geri beina umsókn um aðild að Evrópubandalaginu að kosningamáli mun það hafa veru- leg áhrif á komandi kosningabaráttu. Með tillögu Ragn- hildar Helgadóttur hafa orðið tímamót í umræðunni um Evrópubandalagið hér á landi. Þótt við eigum ekki að ein- angra okkur varðandi efnahagssamvinnu og viðskipti við Evrópu er umsókn um fullkomna aðild að Evrópubanda- laginu langt frá því að vera tímabær verði hún það nokk- urn tímann. ÞI Þá er gluggað er í sögu íslenska hundsins kemur í ljós, að þegar Eggert Ólafsson, skáld og fræði- maður, ferðaðist um ísland um miðja 18. öld, greindi hann þrjár mismunandi gerðir hunda, fjár- hund, dýrhund og dverghund. Ræktendur hunda hafa fallist á þessa skiptingu og eins að mögu- Íeiki hefði verið fyrir valræktun þriggja íslenskra hundategunda, en fjárhundurinn var aðeins ræktaður. Þessi hundur er Spíss- hundur með oddhvasst trýni og eyru og upphringað skott. Kvikur, forvitinn, blíðlegur, glaðlegur, oft brosleitur og úthaldsgóður. Liturinn er hvít- flekkóttur, en allir litir eru leyfðir og á seinni árum gætir svarta litarins í æ ríkara mæli. Höfuðið er breitt milli eyrna, kollur hvelfdur og brúnavik greinilegt. Trýnið er stutt og oddmjótt eins og fyrr greinir og varirnar strengdar, snoppan svört eða brún. Skottið langt, loðið og upp- hringað. Fæturnir beinir, vöðva- sterkir og helst tvöfaldir sporar að aftan. Nokkrar tilraunir voru gerðar til að rækta íslenska hundinn um og eftir síðustu aldamót en ekk- ert framhald varð á. Það var ekki fyrr en á árunum 1955 og 1956, að Mark Watson, enskur hunda- ræktunarmaður og mikill íslands- vinur, ferðaðist um ísland með Kristjáni Eldjárn, fv. forseta íslands, og leitaði að frumlægum gerðum íslenska fjárhundsins. Mark studdist við eldri viður- kenningu sem kynið hafði fengið, endurnýjaði hana og endurskoð- aði ræktunarmarkmiðið. Á af- skekktum sveitabæjum á Aust- fjörðum og Vestfjörðum fann hann hunda, sem hann var ánægður með, og flutti þá til Kaliforníu, hvar hann hóf ræktun. Heima á íslandi fann Birgir Kjaran fleiri hunda af sömu gerð. Þessir hundar urðu sá stofn sem Sigríður Pétursdóttir á Ólafsvöll- um á Skeiðum tók að rækta með góðum árangri og eru dreifðir um allt land. í dag er íslenski hund- urinn ræktaður markvisst nokkuð víða á íslandi og er afar vinsæll, enda augnayndi og nokkuð með- færilegur. Utbreiðsla hundsins er töluverð erlendis og margir eru þeir á Norðurlöndum og í Þýska- landi sem halda íslenska hesta og íslenskan hund. ój Tíkin Snotra er af íslensku hundakyni og eins og fram kemur í frétt á baksíðu hefur hún staðið sig mjög vel á hunda- sýningum og unnið til fjölda verðlauna. Hér gefur að líta hið glæsilega verðlaunasafn Snotru frá Rauðuvík. Mynd: ój Undraheimur IBM - hugvití til heiðurs - IBM á íslandi gengst fyrir viðburði í Reykjavík 7.-11. nóv. Dagana 7. til 11. nóvember nk. gengst IBM á íslandi fyrir við- burði í nýja Hekluhúsinu við Laugaveg 174 í Reykjavík sem hlotið hefur heitið Undraheimur IBM. Þetta er ekki tölvusýning í eiginlegri merkingu, því áhersla er fyrst og fremst lögð á það mannlega hugvit sem felst í tölvutækninni og þær andlegu afurðir sem út úr tölvunni koma þegar hinn skapandi hugur tekur hana í þjónustu sína. Markmiðið er að örva sköpunargleði og veita innblástur til nýrra verka. Öllum er frjáls aðgangur að því hlað- borði hugmynda og tækifæra sem Undraheiniur IBM er. Undraheimur IBM er sniðinn að börnum jafnt og fullorðnum og að þörfum bæði innvígðra kunnáttumanna á ýmsum sér- hæfðum sviðum sem og þeirra er aldrei hafa komið nálægt tölvu. Fyrir minnstu börnin verður sér- stakt barnahorn, þar sem fóstra gætir barnanna meðan foreldr- arnir skoða Undraheiminn. f Undarheimi IBM verða fimmtán viðkomustaðir. Þeir eru m.a. á sviði iðnaðar, hönnunar, ferðamála, verslunar, skrifstofu- tækni, sjávarútvegs, skólamála og heilbrigðismála. Fjölmargar hagnýtar og áhugaverðar ný jung- ar á þessum sviðum verða kynntar. Að auki verður lögð sérstök áhersla á þá tjáskiptabyltingu sem tölvutæknin hefur hrundið af stað og er hverjum sem kynnir sér hana undrunar- og fagnaðar- efni. Örar framfarir eru á þessu sviði og verður þeim gerð góð skil í Undraheiminum. Þá verður greint frá því veiga- mikla þýðingarstarfi sem fram fer í Þýðingarstöð Orðabókar Háskólans og IBM. Þar vinna 20 manns að jafnaði að íslenska tölvumál, smíða nýyrði og þýða forrit og er óhætt að fullyrða að vart mun annars staðar unnið árangursríkara verk við að koma í veg fyrir að íslenskan verði enskunni að bráð. Listamenn á sviði myndlistar og tónlistar koma mikið við sögu í Undraheimi IBM. Bjarni Hin- riksson myndlistarmaður hefur urn nokkrra ára skeið unnið athyglisverð myndverk á tölvu og gefur hann gestum Undraheims- ins innsýn inn í listsköpun sína. Þá er Þórir Baldursson líklega sá tónlistarmaður íslenskur sem náð hefur mestum árangri við að nýta sér tölvuna við tónsmíðar sínar. Tónlistarmenn jafnt og tölvu-- áhugamenn fá í Undraheimi IBM einstakt tækifæri til að kynnast nýstárlegum vinnubrögðum hans. Flugleiðir veita íbúum lands- byggðarinnar sem vilja heim- sækja Undraheim IBM afslátt á innanlandsfargjöldum. Þá býður IBM skólum að sjá um akstur á stærri hópum nemenda til og frá sýningarstað. í tengslum við Undraheim IBM verða sérstakir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands, en IBM á Islandi er aðalstyrktar- aðili Sinfóníunnar og jafnframt fyrsta einkafyrirtækið til að axla þá menningarlegu ábyrgð.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.