Dagur - 07.11.1990, Qupperneq 5
Miðvikudagur 7. nóvember 1990 - DAGUR - 5
lesendahornið
Norskur strákur vill
eignast pennavin á Akureyri
Degi barst á dögunum efirfar-
andi bréf frá Noregi, þar sem
óskað er eftir pennavini á
Akureyri.
„Mig langar til að biðja ykkur
á Degi að hjálpa mér við að eign-
ast pennavin á Akureyri. Astæð-
an fyrir því að ég vil helst komast
í samband við pennavin á Akur-
eyri er fyrst og fremst sú að fyrir
nokkrum árum var ég með fjöl-
skyldu minni á sjávarútvegs-
sýningu í Þrándheimi og hitti þar
m.a. fólk frá Akureyri.
Þá hefur pabbi heimsótt Akur-
eyri (hann hitti t.d. Kristján,
Reyni, Víði og öll hin hjá DNG)
og þótti mikið til staðarins og
fólksins þar koma. Ég vona að ég
fái einnig einhvern tímann tæki-
færi til að koma til Akureyrar.
Ég heiti Aril og er níu ára
gamall. Ég bý í Norður-Noregi,
nánar tiltekið í Skaland, sem er á
Senja, næststærstu eyju Noregs.
íbúar þar lifa á fiskveiðum og
námugreftri.
Áhugasvið mitt er breitt. Pó
hef ég mestan áhuga á knatt-
spyrnu. skíðum, tölvuspilum,
lestri, veiði og frímerkjum.
Helst vildi ég skrifast á við
krakka á mínum aldri og ekki
sakaði að þeir skrifuðu á norsku.
Ensku kann ég ekki, en það
stendur til bóta á næsta ári, þegar
ég byrja að læra ensku í skólan-
um. Mér þætti vænt um að fá bréf
frá bæði strákum og stelpum.
Skrifið til
Aril Skogland
Bergsbotn
9385 Skaland
Norge
BÆNDATRYGGING
■nmnH9É»mnn
í BÆNDATRYGGINGU
SJÓVÁ-ALMENNRA
SAMEINAST
EINKATRYGGINGAR
FJÖLSKYLDUNNAR 0G
VÁTRYGGINGAR
SNIÐNAR AÐ ÞÖRFUM
LANDBÚNAÐARINS
sjóváqPalmennar
Við bjóðum persónulegr jólakort
með þínum eigin myndum.
☆ Einföld kort eru á sérstöku tilboðsverði.
☆ Tvöföld kort eru með 10-20% afslætti, eftir magni.
☆ Bendum á að það borgar sig að panta tímanlega.
☆ Afslátturinn gildir út nóvembermánuð.
Athugið! Þeir sem eiga myndir hjá
okkur úr ljósmyndakeppninni,
vinsamlegast hafið samhand.
^Peóiomyndir
Hafnarstræti 98, sími 23520.
Hofsbót 4, sími 23324.
Hlutabréf
Höfum til sölu hlutabréf í Sæplasti hf.
og Auðlind hf.
Leitið frekari upplýsinga á skrifstofunni eða
í síma 24700.
Lindin við Leiruveg:
Býður upp á
fastan fjöl-
breyttan
matseðil
„Lindin er veitingahús í alfara-
leið. Hér á efri hæðinni er
fagurt útsýni hvar Akureyri
skartar sínu fegursta. Eyja-
fjörðurinn, Fjaran, Leiran og
Pollurinn gleðja augað. Ekki
skemmir maturinn. Hér berum
við fram allan daginn rétti fyrir
sælkerana á afar góðu og sann-
gjömu verði,“ sagði Aðalsteinn
Guðmundsson, umsjónarmað-
ur Esso-nestanna á Akureyri.
Að sögn Aðalsteins var sumar-
ið mikill annatími. Ferðafólk
jafnt sem heimamenn sóttu
staðinn. Nú á haustdögum, þegar
ferðamönnunum hefur fækkað,
er hægt að sinna bæjarbúum bet-
ur og að því er stefnt. „Lindin við
Leiruveginn býður upp á fastan
fjölbreyttan matseðil, hvar hægt
er að fá gómsætan fiskrétt, kjúkl-
inga, buffsteik, hamborgarkóte-
lettur, grillsteiktar lambakóte-
lettur auk smárétta í úrvali. Við
veitum ódýrasta og besta bjór á
íslandi auk eðalvína með mat.
Réttir úr eldhúsi Lindarinnar
kitla bragðlaukana og ekki
skemma fjölbreyttir ísréttir sem
ábætir,“ sagði Áðalsteinn Guð-
mundsson. ój
Þórhalla Jónsdóttir og Aðalsteinn Guðmundsson umsjónarmaður Esso-
nestanna.
LEGO - PLAYMO - FISHER PRICE - BAMBOLA - BARBIE - SINDY
100% angóra
nærfatnaður
Hlýr og notalegur
fatnaður við leik
og störf.
íslensk framleiðsla.
Leikfangamarkaóurinn
BÍLABRAUTIR - FJARSTÝRÐIR BÍLAR - MODEL - RAMBQ~
PflRIS
Hafnarstræti 96 • Sími 27744
Sölugengi verðbréfa þann 7. nóv.
Einingabréf 1 5.147,-
Einingabréf 2 2.792,-
Einingabréf 3 3.385,-
Auðlind hf 1 ,00
Skammtímabréf 1,731
^ KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700