Dagur - 10.11.1990, Qupperneq 3
I
i-
l.
»
»
»
Laugardagur 10. nóvember 1990 - DAGUR - 3
-i
fréttir
Hermann Guðjónsson, vita- og hafnamálastjóri:
Ovissa ríkir um haftiarframkvæmdir á næsta ári
- rætt um að skattur af inn- og útflutningi renni til hafnargerðar
Mikillar óvissu gætir með
hafnarframkvæmdir á Norður-
landi á næsta ári. I fjárlaga-
frumvarpi fyrir næsta ár er gert
ráð fyrir lágum framlögum til
hafnarframkvæmda og ef þau
hækka ekki í meðförum
Alþingis þykir sýnt að skera
verður verulega niður fyrir-
hugaðar hafnarframkvæmdir.
Mörg stórverkefni hafa verið
unnin á Norðurlandi á þessu ári.
Nægir þar að nefna höfnina í
Grímsey, Ólafsfirði og á Dalvík.
Kaupvangsstræti:
Rætt um að
takmarka
umferð
Samkvæmt heimildum Dags
eru uppi hugmyndir í bæjar-
kerfinu á Akureyri um að tak-
marka umferð um Kaup-
vangsstræti, eða Grófargil,
með því að loka efsta hluta
götunnar.
Pað sjónarmið hefur verið
viðrað að óæskilegt sé að hafa
mikla umferð um Kaupvangs-
stræti. Til greina gæti komið að
mjókka neðri hluta Kaupvangs-
strætis og breyta umferðarleiðum
þannig að ekki yrði unnt að aka
beint niður Þingvallastræti
fráhihjá Sundlaug Akureyrar og
áfram niður Kaupvangsstræti.
Bent hefur verið á nauðsyn þess
að minnka slysahættu í nágrenni
Barnaskóla Akureyrar, í þessu
sambandi. Oddeyrargata yrði þó
áfram í sambandi við Þingvalla-
stræti. EHB
Félagsbúið Þristur:
Eirni stofn-
enda hættir
um áramót
Breyting verður á félagsbúinu
Þristi í Hrafnagilshreppi í
Eyjafirði um næstu áramót en
þá dregur Úlfar Steingrímsson
á Kroppi, einn stofnenda, sig út
úr búinu. Óljóst er hvort búið
leigir kvóta Úlfars áfram eða
ekki. Líklegt er að þrátt fyrir
þessar breytingar verði búið
áfram rekið undir nafninu
Þristur.
Félagsbúið Þristur var sem
kunnugt er stofnað með því að
steypt var saman í eitt bú fram-
leiðslu Hrafnagils, Kropps og
Merkigils. Nýlega var bætt við
mjólkurkvótann þegar félagsbúið
tók kvóta jarðarinnar Stóra-
Hamars í Öngulsstaðahreppi á
leigu.
Að sögn Benedikts Hjaltason-
ar á Hrafnagili, eins stofnenda
Þrists, verður búið rekið áfram
með sama sniði en um 70 þúsund
lítra minni kvóta, verði kvóti
Úlfars Steingrímssonar á Kroppi
ekki leigður. Heildarkvóti yrði þá
um 400 þúsund lítrar. Benedikt og
þriðji stofnandi búsins, Þorsteinn
Pétursson, munu því reka búið
eftir áramót en jafnframt mun
Þorsteinn hefja á ný rekstur
Kjötiðjunnar Búa á Hrafnagili,
sem hann rak áður en félagsbúið
Þristur var stofnað. JÓH
Engin viðlíka stórverkefni eru á
óskalista Vita- og hafnamála-
stofnunar á næsta ári. en þó bíða
töluvert stór verkefni úrlausnar.
I hafnaáætlun fyrir næstu fjög-
ur árin er gert ráð fyrir að halda
áfram með uppbyggingu hafnar-
innar í Ólafsfirði. Einnig er á
döfinni að reka niður stálþil við
bryggjuna á Grenivík og sömu-
leiðis á Litla-Árskógssandi.
Stærsta verkefnið í Norðurlands-
kjördæmi eystra í áætluninni er
dýpkun hafnarinnar á Húsavík.
Á Norðurlandi vestra eru
nokkur hafnarverkefni á
dagskrá. Eins og frá hefur verið
skýrt í Degi er fyrirhugað að
setja Skagastrandarhöfn í líkan-
prófun hjá Vita- og hafnamála-
stofnun á næstunni og í framhaldi
af henni verða mótaðar tillögur
um endurbætur á höfninni, sem
er mjög illa útleikin.
Á Siglufiröi er á áætlun að reka
niður viðlegukant á næsta ári.
Siglufjörður var á áætlun á st'ð-
asta ári, eins og Grenivík, en datt
út. Blönduóshöfn hefur lengi ver-
ið á teikniborðinu og er vonast til
að þess verði ekki langt að bíða
að alvara verði gcrð úr fram-
kvæmdum þar.
Hermann Guðjónsson, vita- og
hafnamálastjóri, segir að engir
peningar fáist á næsta ári til hafn-
argerðar nema fáist samþykktur
nýr tckjustofn sem renni óskertur
til hafnarframkvæmda. í því
sambandi hafi verið nefndur nýr
skattur af öllum inn- og útflutn-
ingi. „Þctta er á umræðustigi
ennþá og því er alveg óráðiö með
hafnarframkvæmdir á næsta ári.
Máliö er í eins mikilli óvissu og
hugsast getur, en það skýrist von-
andi á næstu vikum," sagði
Hermann. óþh
sBÍÍilÍJ
'v'‘"
k úmkm ú ■ . * < i ( Æ
^ pf ■ i
x ii
- lHpif
"V '
'
. ' * -- :'V-T V '
I BÆNDATRYGGINGU
-ALMENNRA
SAMEINAST EINKATRYGGINGAR
FJÖLSKYLDUNNAR 0G VÁTRYGGINGAR
SNIÐNAR AÐ ÞÖRFUM LANDBÚNAÐARINS
Bændatrygging SJÓVÁ-ALMENNRA er
nýjung sem gerir tryggingamál bænda bæði
einfaldari og hagkvæmari. Þar er sérstakt tillit
tekið til þeirrar sérstöðu sem skapast af því að
bændur stunda vinnu sína í mjög nánum
tengslum við heimili sitt - oftast með fjölskyldu
sinni. Atvinnurekstrartrygging vegna búsins
ásamt tryggingum sem fjölskyldan þarfnast em
settar saman á eitt tryggingai-skírteini og
aílientar í einni möppu. Þannig fæst góð
heildarsýn yfir tryggingarmálin og þar með
ömggari og betri trygging.
SJOVAnlDALMENNAR
Kringlunni 5, sími 91-692500