Dagur - 10.11.1990, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Laugardagur 10. nóvember 1990
Ekki alls fyrir löngu komu Noröanpiltar í fyrsta skipti opin-
berlega fram á Akureyri. Þeir léku þrjú kvöld á veitinga-
staönum Uppanum og ekki bar á öðru en fólki líkaði það sem
fram var reitt, alltjent var húsfyllir þótt í miðri viku væri.
Norðanpiltar eru sérstæðir um margt og ekki laust við að þeir
hafi vakið almenna athygli með frammistöðu sinni á Uppan-
um og jafnframt forvitni. Hvaða menn eru þetta? spyrja
sumir og þá er það eitt til ráða að spyrja þá sjálfa hverjir þeir
eru og jafnvei skyggnast til baka sem og fram á við. Það skal
tekið fram að viðtalið er tekið löngu áður en piltarnir komu
fram á Uppanum.
Þegar við höfðum komið okkur
vel fyrir í og meðal húsgagna af
hinum óskyldasta uppruna í
æfingahúsnæði Norðanpilta, bar
ég fram fyrstu spurninguna, sem
mér þótti bæði sjálfsögð og eðli-
leg og var bara nokkuð drjúgur
með. Hvaða menn eru í hljóm-
sveitinni?
Þeir litu hvor á annan, viðmæl-
endur mínir, og voru ekkert að
flýta sér að svara: „Jaaa, hljóm-
sveit,“ sagði annar þeirra með
vott af efa og brot af vantrú í
röddinni. Ég veit ekki hvaðan á
mig stendur veðrið. Ekki hljóm-
sveit? „Við erum eiginlega skáld
og tónlistarmenn," útskýra þeir í
sameiningu og segja að auk tón-
listarflutnings sé upplestur á
kvæðum og fleira að finna á
dagskránni. Þetta sé sem sagt
ekki bara rokkhljómsveit.
Að þessum skilgreiningaratrið-
um loknum tjáðu þeir mér að
Norðanpiltar væru þeir Kristján
Pétur Sigurðsson, Guðbrandur
Siglaugsson og Jón Laxdal Hall-
dórsson. Umboðsmaður Norðan-
pilta, sverð þeirra og skjöldur, er
svo Halldór G. Pétursson, norsk-
menntaður vísindamaður. Kristján
Pétur og Guðbrandur ieika á gít-
ar og syngja en Jón, sem var fjar-
staddur þegar spjallið fór fram,
sér um söng, dans og upplestur.
„FrumstoIin“ tónlist
Eiginlega eru Norðanpiltar ekki
tríó, því þeir sögðust leigja sér
vikapilta, sessjónmenn. Um
þessar mundir er það Guðmund-
ur Stefánsson, bassaleikari, sem
kemur fram með þeim og eykur
þéttleikann í tónlistarflutningn-
um með liprum bassaleik.
Aðspurðir um hvort þeir flyttu
eingöngu frumsamið efni svör-
uðu þeir í hálfkveðnum vísum.
„Þetta er frumstolið, beint frá
fyrstu hendi,“ sögðu þeir glott-
andi og Brandur bætti við að þar
ættu þeir við músíkina, kveð-
skapurinn væri lítið stolinn. Og
áfram var haldið að skilgreina.
„Þetta er eiginlega nýtt form á
því að representera skáldskap.
Ekki kannski nýtt, þetta er
ævagamalt, en hefur ekki verið
gert lengi,“ sagði Brandur íhug-
ull þegar ég var enn að velta fyrir
mér þessari rokktónlistarmanna-
Ijóðskáldasúpu eða ljóðskálda-
rokktónlistarmönnum.
Ljóðskáld, myndlistar-
menn og tónlistarmenn
Þegar þetta var komið á hreint
vildi ég fá að vita hvers konar list-
sköpun þeir hefðu stundað áður
og kenndi þar ýmissa grasa.
Kristján Pétur hefur verið tölu-
vert í músík, bæði komið fram
einn með gítar og einnig starfað í
Láttu fara vel um þig á meðan
við sjáum um bílinn þinn
GUMMIVINNSLAN HF. - RETTARHVAMM11 - S. 96-26776
p0tKSÖií
RAF-
GEYMAR
Mælum gamla
rafgeyma.
Seljum nýja
rafgeyma á
kynningarverði
í nóvember.
ísetning
á staðnum
HJÓLBARÐAR
Erum með mikið úrval
af dekkjum fyrir allar
gerðir ökutækja.
„ Við enun eigin-
legaskáklog
tóntistaimenn"
- segja hinir geðþekku Norðanpiltar
Norðanpiltar á sviði Uppans. Frá vinstri: Kristján Pétur Sigurðsson, Guð-
mundur Stefánsson vikapiltur, Jón Laxdal Halldórsson og Guðbrandur Sig-
laugsson.
hljómsveitum, m.a. Losti og
Kamarorghestum. Þá hefur hann
fengist við að mála og yrkja,
haldið málverkasýningar og gefið
út tvær ljóðabækur og nokkur
kver. „Ég og Jón byrjuðum á því
að fást við orðin en lentum síðan
með smá hliðarstökki í myndlist.
Það var nánast kák hjá mér en
entist hjá Jóni,“ sagði Brandur.
„í staðinn fyrir myndlistina, því
að ég hef nú enga hæfileika í þá
veru, fór ég að athuga hvort ég
hefði einhverja tónlistarhæfi-
leika. Það kom nú heldur betur á
daginn Kristján Pétur, ekki satt,“
sagði hann og glotti til Kristjáns
Péturs sem samsinnti því með
stuttu hneggi. Laxdal hefur sent
frá sér tvær ljóðabækur og nokk-
ur kver en Brandur sex ljóðabæk-
ur og útskýrði hann afköstin með
því að segja að þeir hinir hafi allt-
af verið að sýna og ekki haft
tíma til að yrkja.
„Ahrifín koma allt frá
upphafí tímans“
Talið barst nú aftur að tónlistinni
sem þeir spila og áréttaði Brand-
ur að hún væri ekki eins og hjá
mörgum skáldum sem vilja hafa
jassundirleik og vísaði til Krist-
jáns Péturs, rokkfræðings hljóm-
sveitarinnar, um nánari skilgrein-
ingu. Fræðingurinn var helst á
því að músíkin væri best skil-
greind sem rytma- og blústónlist.
Aðspurðir um helstu áhrifa-
valda kváðust þeir vera orðnir of
gamlir til að viðurkenna utanað-
komandi áhrif. „Við vorum á
staðnum þegar þið voruð enn
með bleiu,“ sagði Dóri umboðs-
maður við blaðamann og ljós-
myndara og sagðist telja að áhrif-
in kæmu alveg frá upphafi
tímans. Hinir nefndu blúsinn og
Kristján Pétur vildi meina að enn
eimdi eftir af Dylaninum í Brandi
en sá var tregur til að samþykkja
það.
„. . . þá værum við ekkert
ad þessu vafstri“
Norðanpiltar eru ekki ýkja göm-
ul hljómsveit (ef ég þori að nota
það orð) en hún hefur starfað
með með núverandi hljóðfæra-
skipan frá því í maf sl. Fram að
uppákomunni á Uppanum höfðu
þeir einungis komið fram á
Húnavershátíðinni, þar sem Sig-
tryggur Baldursson Sykurmoli
laumaðist upp á svið og tromm-
aði með þeim, á Húsavík og í
Hrísey. Það var samdóma álit
þeirra að þeir hefðu alls staðar
slegið í gegn, þar sem áheyrend-
ur hefðu verið tiltölulega allsgáð-
ir, en tóku fram að í Húnaveri
hefðu menn ekki verið mjög alls-
gáðir. Einnig léku þeir á Lista-
hátíð í Reykjavík í vor og þar
voru áheyrendur ekki allsgáðir
heldur. Orsökin var að vísu ekki
brennivtn heldur menning, sögðu
þeir. „En einnig höfum við oft og
iðulega komið fram í einkasam-
kvæmum, bæði á Akureyri og í
öðrum hreppum,“ sagði Brandur
Að lokum leitaði ég eftir ein-
hverjum vísdómi frá þeim, ein-
hverjum boðskap sem þeir vildu
koma á framfæri. Brandur
afgreiddi það snögglega: „Boð-
skapur okkar kemur fram þegar
við erum að performera. Ef við
gætum komið boðskapnum í eina
setningu, þá værum við ekkert að
þessu vafstri."
Þeim sem áhuga hafa á boð-
skap þessara geðþekku pilta,
gefst tækifæri til að hlýða á þá
í kvöld. Það verða stórtónleikar í
Dynheimum kl. 21 í kvöld og
niun rjóminn af akureyrskum
hljómsveitum koma fram. Að
mér skilst verða einar átta sveitir
með tónlistarflutning og engin
ástæða til annars en hvetja sem
flesta til að láta sjá sig. -vs
Getraunafundir
íslenskar getraunir halda fundi fyrir íþrótta- og
ungmennafélög ásamt sölufólki á eftirtöldum
stöðum: Húsavík miðv. 7. nóv. kl. 20.00 Grunnskólinn
Akureyri fimmt. 8. nóv. kl. 20.00 KA-heimilið
Ólafsfjörður föst. 9. nóv. kl. 20.00 Félagsheimilið
Akureyri laug. 10. nóv. kl. 12.00 Þórsheimilið
Sauðárkrókur sunn. 11. nóv. kl. 15.00 Gagnfræðaskólinn
Blönduós sunn. 11. nóv. kl. 20.00 Grunnskólinn
Siglufjörður mán. 12. nóv. kl. 20.00 Kiwanishúsið
Allir áhugamenn um ensku knattspyrnuna -
getraunir - getraunaforrit - og margt fleira eru
velkomnir.