Dagur - 10.11.1990, Síða 13
Laugardagur 10. nóvember 1990 - DAGUR - 13
Rob Lowe í hlutvcrki eiturnöðrunnar í Bad Infíuence.
Kvikmyndir í
The Field:
Jim Sheridan, írski leikstjórinn
er varð víðfrægur fyrir My Left
Foot sem var jafnframt fyrsta
kvikmyndin er hann leikstýrði,
er nú á heimaslóðum að ljúka
við gerð sinnar annarrar
myndar. Tom Berenger leikur
Bandaríkjamann er kemur til
smábæjar þar sem hann flækist
inn í lífshættulega landabaráttu
innfæddra. í The Field bregður
Sheridan upp mynd af ljósum
og dökkum hliðum kaþólsku
trúarinnar á írlandi. Mótleikari
Berengers er Richard Harris en
það er orðið æði langt síðan við
höfum séð hann á hvíta tjaldinu
og fyllilega kominn tími til að
honum bregði þar fyrir enn á
ný. Harris er bóndi kominn á
efri ár er allt í einu stendur
frammi fyrir þeirri ógn að missa
jörðina er hann hefur stritað á
alla ævi.
The Field er í þann veginn að
koma út ef hún er þá ekki þegar
komin í bíóhús vestra.
At Play In The Fields
Of The Lord:
Enn á ný fáum við að fylgjast
með Tom Berenger í átakahlut-
verki. Kvikmyndin byggir á
sögu Peter Matthiessen frá 1965
er fjallar um árekstra stétta og
menninga í Suður Ameríku.
Leikstjóri er Hector Babenco
(Kiss Of The Spider Women,
Ironweed) en aðrir helstu
leikarar auk Berengers eru
John Lithgow, Daryl Hannah
og Tom Waits.
Saul Zaentz Co. 1991.
Backdraft:
Kurt Russell og William Bald-
win leika bræður í þessari
nýjustu bófahasar mynd leik-
stjórans Rons Howard. Sögu-
sviðið er Chigago. Meðal
leikara má sjá nöfn eins og
Rebeccu De Morney, Jennifer
Jason Leigh (sem við erum
nýlega búin að sjá í Miami
Blues og þar áður í Last Exit To
Brooklyrí) - og seinast en ekki
síst Robert De Niro.
Imagine/Universal 1991.
Billy Bathgate:
Undarfarna mánuði hafa menn
mjög velt fyrir sér hvert yrði
næsta verkefni Dustins
Hoffman. Á síðum kvikmynda-
blaða hefur hann verið sendur
út og suður í hinum margvísleg-
ustu hlutverkum (rétt eins og
þegar íslenskir blaðamenn þurr-
ausa laxveiðiár og fiskimið rétt
fyrir vertíðarbyrjun). En nú er
þetta komið á hreint; Hoffman
og Nicole Kidman (Days Of
Thunder) munu fara með aðal-
hlutverkin í þessari kvikmynd
sem Robert Benton leikstýrir.
En það var einmitt í samvinnu
við Hoffman að Benton sló í
Kichard ilarri.s Ieikur írskan bónda í nýjustu kvikmynd Jims Sheridan, The
Field.
Kvikmyndasíðan
Jón Hjaltason
Að vera vits vant
„Ekkert er jafnerfitt og að hugsa.
Það er líklega þess vegna að svo
fáir leggja það á sig,“ sagði mæt-
ur maður eitt sinn. Ég og
umræddur spekingur erum að
vísu ekki samferðarmenn á ver-
aldarplaninu en engu að síður
hitta orð hans mig fyrir.
Laugardaginn 20. október birti
ég á kvikmyndasíðunni nokkur
orð um Rob Lowe, myndbandið
víðfræga og nýjustu kvikmynd
hans, Bad Influence - og í stuttu
máli sagt; mér varð illa á í mess-
unni. Vitsmunaöfl mín voru kefl-
uð (svo ég reyni nú að klóra í
bakkann og gefa í skyn að þau
séu einhver) þegar ég skrifaði að
Bad Influence væri komin á
myndbandamarkað og myndi því
aldrei koma í íslenskt bíóhús.
Fyrri staðhæfingin er að vísu
rétt, Bad Influence er fyrir
nokkru komin á bandaríska
myndbandamarkaðinn og þar
gegn sem leikstjórnandi í
Kramer vs. Kramer.
Touchstone sumarið 1991.
The Commitments:
Alan Parker (Missisippi
hefur hún gert það gott. Sam-
kvæmt vinsældalista Variety var
hún, í lok september síðastliðins,
í fjórða sæti yfir vinsælustu
myndböndin í Bandaríkjunum,
skammt á eftir Born On The
Fourth Of July og Peter Pan.
Langefst var hins vegar stór-
myndin Gloryen það var einmitt
fyrir leik sinn í henni sem Denzel
Washington fékk Óskarinn fyrir
góða frammistöðu í aukahlut-
verki.
Seinni staðhæfingin er hins
vegar staðhæfulaus með öllu og
segir raunar meira um athyglis-
gáfu undirritaðs og gáfnafar en
hann kærir sig um að gefa upp,
hvort heldur er á opinberum vett-
vangi eða í einkalífi. Sannleikur-
inn er nefnilega sá að enda þótt
kvikmynd sé sett á myndbanda-
markaðinn vestra þýðir það alls
ekki að hið sama gangi yfir hana
í Evrópu. Það sem er þó sárast
Burning) leikstýrir þessari sögu
um írska hljómsveit er reynir að
upplýsa jafnaldra sína á írlandi
um bandaríska tónlist.
20th Century Fox undir lok árs
1991.
fyrir stolt undirritaðs er að Regn-
boginn í Reykjavík byrjaði að
sýna Bad Infíuence hinn 20. júlí í
sumar og varð um leið fyrst
bíóhúsa í Evrópu að taka hana til
sýninga. Og eftir upplýsingum frá
Þorvaldi Árnasyni í Regnbogan-
um að dæma stefnir allt í það að
Bad lnfíuence verði á íslenska
topp tíu listanum yfir vinsæiustu
kvikmyndir ársins. Þorvaldur
segir jafnframt að Akureyringar
megi búast við því að Bad Infíu-
ence komi norður um heiðar upp
úr áramótunum.
Þessi velgengni Rob Lowe og
Bad Infíuence á íslandi og á
myndbandamarkaðinum banda-
ríska sýnir réttmæti þeirra orða
starfsbróður míns hjá American
Film að kalia það „scandal" þeg-
ar myndin var tekin úr bíóhúsum
vestra. Við þetta má bæta að á
hinni árlegu hátíð dulrænunnar
(,,Mystfest“) á Ítalíu í sumar er
leið var Bad Infíuence valin besta
kvikmyndin.
Þegar öll kurl eru komin til
grafar verður því ekki annað sagt
en að vegur Robs Lowe hafi vax-
ið við Bad Infíuence. Lowe sýndi
það líka í hlutverki þroskahefta
piltsins í Square Dance (1987) að
leikhæfileikar hans eru ótvíræðir
og að hann er fyllilega fær um að
yfirgefa unglingahetjuna og tak-
ast á við margbrotnari persónu-
túlkun.
burðarliðnum
Sýningar
10., 17. og 24^
Borðapantanir
sala daglega \
qe-22770 og 9
ndsson, Bjarni
'étursson og r