Dagur - 10.11.1990, Qupperneq 15
Laugardagur 10. nóvember 1990 - DAGUR - 15
bœkur
Nautnastuldur
- ný skáldsaga eftir
Rúnar Helga Vignisson
Bókaútgáfan FORLAGIÐ hefur
sent frá sér skáldsöguna Nautna-
stuldur eftir Rúnar Helga Vignis-
son. Þetta er önnur skáldsaga
Rúnars Helga, en fyrir sex árum
gaf hann út skáldsöguna Ekkert
slor.
Egill Grímsson er hetja þessar-
ar sögu - drengur úr dreifbýlinu,
skólaður í Reykjavík, tvístígandi
í Kaupmannahöfn, á framabraut
í Bandaríkjunum. Feiminn, full-
ur sjálfsvorkunnar og finnst hann
hvergi eiga heima. Því hann er
erfiður sá veruleiki sem nútíminn
leggur ungum manni á herðar.
En getur nokkur maður orðið
heilsteyptur einstaklingur í sam-
félagi mótsagnanna'? Og ástin
sjálf- hvað þá girndin! Varla get-
ur talist neitt grín að velja sér
konu og lynda við hana á tímum
jafnréttis og framafíknar.
í kynningu FORLAGSINS
segir m.a.: „Rúnar Helgi Vignis-
RÉKAR HELGIVIGNISSON
son ber margar spurningar á borö
í sögunni um Egil Grímsson-því
eins og allar snjallar sögur er
þessi ekki öll þar sem hún er séð.
Hún er allt í senn - táknræn og
sértæk. nautnaleg og hrollvekj-
andi. ærslafull og sorgleg. Sann-
kallaður nautnafundur!"
Nautnastuldur er 228 bls. Auk
hf./Björn Jónsson hannaði kápu.
Prentsmiðjan Oddi prentaði.
Útvörður gefur út bók:
Byggðamál á
Byggðasamtökin Útvörður gáfu
fyrir skömmu út bók sem nefnist
„Byggðamál á Noröurlöndum". í
undirtitli segir að hér sé um
samantekt á byggðaþróun á
Norðurlöndunum að ræða, og
sérstaklcga gerö grein fyrir lýð-
ræðislega kjörnum héraðsstjórn-
um og þróun byggðamála. Rit-
stjóri bókarinnar og þýöandi er
Sigurður Helgason.
Fyrsti kafli bókarinnar fjallar
unt ömtin í Danmörku. Síðan cr
fjallaö um landsþingin í Svíþjóð,
finnsk sveitarstjórnarmál, fylkin í
Noregi og að síðustu íslcnsk
sveitarstjórnarmál. í síðast-
nefnda kaflanum eru þrjár grein-
ar cftir Sigurð Hclgason; saga
sveitarstjórna, sameining sveitar-
Norðurlöndum
félaga og fjárlög árins 1990. Skúli
G. Johnsen ritar um hcraðavald
og breytingu á skipun hcilbrigðis-
mála. Magnús B. Jónsson ritar
kafla undir heitinu Hvers vegna
norska kerfiö'? Gunnlaugur A.
Júlíusson skrifar kaflann Starfs-
hættir verða að breytast, Sjöfn
Halldórsdóttir kafla sem nefnist
Berum sjálf ábyrgð á verkum
okkar, Þórarinn Lárusson ritar
um byggðaþróun, áhrif fólks-
flutninga og atvinnumál, og loka-
kaflinn er eftir Hlöðver Þ.
Hlöðversson, og nefnist hann
Heimanfylgd.
Bókin er 169 blaðsíður að
stærð. prentuð hjá Stensli. Hún
fæst hjá bókabúðinni Eddu á
Akureyri, og kostar 1500 krónur.
□ RÚN 599011127=7
I.O.O.F. 15=172111381/2 = Atkv.
I.O.G.T.
Fundur í stúkunni Brynju
nr. 99 ntánudaginn 12.
nóv. kl. 20.00.
Ath. breyttur fundartími.
Kosning í stjórn fyrirtækja
I.O.G.T.
Æðsti templar.
Möðruvallaprestakall:
Sameiginleg barna- og æskulýðs-
guðsþjónusta fyrir allt prestakallið
verður í Möðruvallakirkju n.k.
sunnudag II. nóvember kl. 11.00
f.h.
Sóknarprestur.
Glerárkirkja:
Barnamessa kl. 11.00. Öll börn og
foreldrar velkomin.
Messa kl. 14.00. Prestur séra Lárus
Halldórsson.
Kvenl'élagið Baldursbrá verður með
basar að lokinni guðsþjónustu.
Sóknarnefnd.
Glerárkirkja:
í veikindaforföllum séra Péturs
Þórarinssonar mun séra Lárus
Halldórsson gegna störfum hans
næstu tvo mánuöi
Sóknarnefnd.
Samkomur
HVITASUntlUKIfíKJAtl wsmhðshuð
Föstudagur 9. nóvember kl. 20.30:
iBænasamkoma.
Sunnudagur 11. nóvember kl.
13.00: Bænakirkjan (sunnudaga-
skóli).
Öll börn velkomin.
Kl. 15.30: Vakningarsamkoma.
Ungt fólk mun vitna og syngja.
Mikill og fjölbreyttur söngur.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
rTTTT'] -_____________
! G □ □[
SJÓNARHÆÐ
HAFNARSTRÆTI 63
Laugardagur 10. nóv.: Laugardags-
fundur fyrir 6-12 ára krakka á
Sjónarhæð kl. 13.30. Fjölbreytt
efni.
Unglingafundur kl. 20.00.
Sunnudagur 11. nóv.: Sunnudaga-
skóli í Lundarskóla kl. 13.30.
Almenn samkoma á Sjónarhæð kl.
17.00.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
KFUM og KFUK,
Sunnuhlíð.
Samkomur á föstudags-,
laugardags- og sunnu-
dagskvöld kl. 20.30 öll kvöldin.
Ræðumaður föstudágs- og laugar-
dagskvöld, Jónas Þórisson. frarn-
kvæmdarstjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar og fyrrverandi kristni-
boði.
Ræöumaður á sunnudagskvöld er
séra Ingólfur Guömundsson.
Tekið verður á móti gjöluin til
kristniboðsins á samkomunum.
Allir eru velkomnir.
dagskrá fjölmiðla
i
Annar þáttur islenska myndaflokksins Líf í tuskunum er á dagskrá Sjón-
varps í kvöld.
Sjónvarpið
Laugardagur 10. nóvember
14.30 íþróttaþátturinn.
14.30 Úr einu i annað.
14.55 Enska knattspyrnan.
Bein útsending frá leik Crystal Palace og
Arsenal.
16.45 Hrikaleg átök 1990: Fyrsti þáttur.
17.20 Barcelona - Fram.
Helstu atriði úr leik liðanna í Evrópu-
keppni bikarhafa og mörk úr öðrum leikj-
um í Evrópumótunum í knattspyrnu.
17.50 Úrslit dagsins.
18.00 Alfreð önd (4).
18.25 Kisuleikhúsið (4).
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Poppkorn.
19.30 Háskaslódir.
(Danger Bay.)
20.00Fréttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Lif í tuskunum.
Annar þáttur: Háskaleg tíska.
21.00 Fyrirmyndarfaðir (2).
(The Cosby Show.)
21.30 Fólkið í landinu.
Guðrún á Sellátrum.
Óli Örn Andreassen "ræðir við blómakon-
una Guðrúnu Einarsdóttur, bónda á Sel-
látrum við Tálknafjörð.
22.00 Síðustu afrek Ólsenliðsins.
(Olsen bandens sidste bedrifter.)
Dönsk gamanmynd frá árinu 1974 um
ýmis uppátæki Olsen-félaganna.
23.30 Dauðasök.
(Dadah is Death.)
Seinni hluti.
01.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarpid
Sunnudagur 11. nóvember
14.00 Meistaragolf.
15.00 íslendingar í Kanada.
Landar í borgum.
15.30 Maður er nefndur: Valur Gíslason.
Jónas Jónasson ræðir við Val Gíslason
leikara, en auk þess er brugðið upp atriði
úr sjónvarpsleikritinu í Skálholti.
16.15 Rokkverðlaunahátíðin 1990.
(International Rock Awards.)
Breskur tónlistarþáttur.
Meðal þeirra sem koma fram eru Eric
Clapton, David Bowie, Dave Stewart og
Melissa Etheridge.
17.50 Sunnudagshugvekja.
18.00 Stundin okkar.
18.30 Mikki (5).
(Miki.)
18.45 Ungir blaðamenn (2).
(Deadline.)
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Dularfulli skiptineminn.
(Alfonzo Bonzo.)
Leikinn breskur myndaflokkur í léttum
dúr fyrir börn og unglinga.
19.30 Fagri-Blakkur (2).
(The New Adventures of Black Beauty.)
20.00 Fréttir og Kastljós.
20.50 Ófriður og örlög (5).
(War and Remembrance.)
21.40 í 60 ár.
Útvarpið - Rás 2.
21.55 Séra Matthías á Akureyri.
Gísli Jónsson fyrrverandi menntaskóla-
kennari leiðir sjónvarpsáhorfendur um
slóðir séra Matthíasar Jockumssonar á
Akureyri.
22.40 Úr Listasafni íslands.
Hrafnhildur Schram fjallar um verkið Frá
Vestmannaeyjum eftir Júlíönu Sveins-
dóttur.
22.50 Fyllibyttan.
(Fallet Sten Anderson.)
Sænsk sjónvarpsmynd eftir Lars Molin,
byggð á leikriti finnska skáldsins Henriks
Tikkanens.
Aðalhlutverk: Tommy Johnson, Bi
Lundberg, Margareta Olsson og Regina
Lund.
23.45 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarpið
Mánudagur 12. nóvember
17.50 Töfraglugginn.
Blandað erlent barnaefni.
Endursýndur þáttur frá miðvikudegi.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Fjölskyldulíf (5).
(Families).
Ástralskur framhaldsmyndaflokkur.
19.20 Úrskurður kviðdóms (23).
19.50 Dick Tracy.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Svarta naðran (2).
Breskur gamanmyndaflokkur.
Aðalhlutverk: Rowan Atkinson.
21.05 Litróf.
Þáttur um listir og menningarmál.
21.35 íþróttahornið.
Fjallað um íþróttaviðburði helgarinnar og
sýndar svipmyndir úr knattspyrnuleikj-
um í Evrópu.
22.00 Þrenns konar ást (6).
(Tre Kárlekar).
Sjötti þáttur.
Sænskur myndaflokkur eftir Lars Molin.
Aðalhlutverk: Samuel Fröler, Ingvar
Hirdwall, Mona Malm og Gustav Levin.
23.00 Ellefufréttir.
23.10 Þingsjá.
23.25 Dagskrárlok.
Stöð 2
Laugardagur 10. nóvember
09.00 Með Afa.
10.30 Biblíusögur.
10.55 Táningarnir í Hæðagerði.
11.20 Herra Maggú.
11.25 Teiknimyndir.
11.35 Tinna.
12.00 í dýraleit.
(Search for the Worlds Most Secret
Animals.)
12.30 Kjallarinn.
13.00 Á uppleið.
(From the Terrace).
Þriggja stjömu mynd byggð á skáldsögu
John O'Hara. Paul Newman er hér í hlut-
veiki ungrar stríðshetju sem reynir að
ávinna sér virðingu föður síns með þvi að
ná góðum árangri í fjármálaheiminum.
Þetta markmið hans veldur því að hann
vanrækir eiginkonu sina og hún leitar á
önnur mið.
Aðalhlutverk: Paul Newman og Joanne
Woodward.
15.25 Dáðadrengur.
(All the Right Moves).
Þetta er ein af fyrstu myndum stórstirnis-
ins Tom Cruise en hér fer hann með hlut-
verk ungs manns sem dreymir um að
verða verkfræðingur. Faðir hans og bróðir
eru báðir námuverkamenn og eina leið
hans til að komast í háskóla er að fá
skólastyrk út á hæfni sína í fótbolta.
Aðalhlutverk: Tom Cruise, Lea Thomp-
son og Christopher Penn.
17.00 Falcon Crest.
18.00 Popp og kók.
18.30 Hvað viltu verða?
Endurtekinn þáttur þar sem fjallað er um
kennarastaríið og þá menntun sem krafist
er en kröfurnar eru misjafnar eftir því á
hvaða skólastigi kennt er.
19.19 19.19.
20.00 Morðgáta.
(Murder She Wrote.)
20.50 Spéspegill.
21.15 Tvídrangar.
(Twin Peaks).
Vandaðir framhaldsþættir um samvisku-
lausan morðingja sem gengur laus í litl-
um bæ rétt sunnan við landamæri Kan-
ada. Þetta er annar þáttur.
22.05 Milli skinns og hörunds.#
(The Big Chill).
Sjö vinir frá því á menntaskólaárunum
hittast aftur þegar sameiginlegur vinur
þeirra deyr. Við endurfundina rifja þau
upp gamla tíma og segja frá því, sem þau
hafa verið að fást við, og kemur þá vel í
ljós hve ólik þau eru. Einn er fíkniefnasali,
annar er sjónvarpsstjarna, önnur er
læknir, hin er húsmóðir og svo framvegis.
Hér á ferðinni frábær mynd sem enginn
ætti að láta fram hjá sér fara enda stór-
stirni i öllum aðalhlutverkum.
Aðalhlutverk: William Hurt, Kevin Kline,
Tom Berenger, Glenn Close, Meg TUly og
Jeff Goldblum.
23.50 Ærsladraugurinn III.#
(Poltergeist III].
í þessari þriðju mynd um ærsladrauginn
flytur unga stúlkan, sem er búið var að
hrella í fyrri myndum, til frænda sins en
allt kemur fyrir ekki, draugurinn gefst
ekki upp. Það sem er dularfyllst við þetta
allt saman, er það að leikkonan unga,
Heather O’Rourke, lést á sviplegan hátt
fjórum mánuðum áður en myndin var
frumsýnd. Er kannski ærsladraugur í þinu
sjónvarpi?
Aðalhlutverk: Heather O'Rourke, Tom
Skerritt, Nancy Allen og Zelda Rubin-
stein.
Stranglega bönnuð börnum.
01.25 Milljónahark.
(Carpool).
Myndin segir frá fjórum ólíkum mann-
eskjum sem valdar eru af handahófi af
tölvu til að verða samferða hvern dag til
vinnu. Samskiptin eru fremur lítil og
mæla þau vart orð af vörum en breyting
verður skynilega þar á þegar þau finna
milljón dollara falda í bifreiðinni sem þau
eru ávallt samferða í.
Aðalhlutverk: Harvey Korman, Ernest
Borgnine og Stephanie Faracy.
03.00 Dagskrárlok.
Stöð 2
Sunnudagur 11. nóvember
09.00 Geimálfarnir.
09.25 Naggarnir.
09.50 Sannir draugabanar.
10.15 Mímisbrunnur.
11.10 Perla.
11.35 Skippy.
12.00 Popp og kók.
(Endurtekinn þáttur frá því i gær).
12.30 Jane Fonda.
13.20 ítalski boltinn.
Bein útsending frá ítölsku fyrstu deild-
inni. Umsjónarmenn eru þeir Heimir
Karlsson og Jón Örn Guðbjartsson.
15.10 Golf.
16.10 Beverly Hills ormarnir.
(Beverly Hills Brats).
BráðskemmtUeg gamanmynd um auðug-
an strák sem lætur ræna sér til að ná
athygli fjölskyldunnar.
Aðalhlutverk: Burt Young, Martin Sheen
og Terry Young.
17.45 Veðurhorfur veraldar.
18.35 Viðskipti í Evrópu.
(Financial Times Business Weekly).
Þáttur um viðskiptalíf Evrópu.
19.19 19.19.
20.00 Bernskubrek.
(Wonder Years.)
20.25 Lagakrókar.
(L.A. Law).
Fyrsti þáttur nýs framleiðsluárs af þess-
um vinsæla þætti um störf lögfræðinga á
lögfræðiskrifstofu i Los Angeles.
21.15 Björtu hliðarnar.
Skemmtilegur spjallþáttur þar sem litið er
á björtu hliðarnar á lifinu og tilverunni.
21.45 Akureldar III.
(Fields of Fire III).
Við skildum við þau Bluey og Dusty i lok
seinni heimsstyrjaldarinnar sem óneitan-
lega skildi eftir sig djúp ör á þessu litla
ástralska samfélagi. Við tókum aftur upp
þráðinn árið 1951 og bæjarlifið hefur verið
tiltölulega friðsælt og velmegandi. Þegar
tillaga um allsherjaratkvæðagreiðslu um
ný lög, sem banna kommúnistískan áróð-
ur, er kunngjörður fer allt i bál og brand
og það kemur til uppgjörs hjá fjölskyldum
og vinum.
Aðalhlutverk: Todd Boyce, Peta Topano,
Cris McQuaide, Noni Hazlehurst og Ollie
Hall.
Annar hluti er á dagskrá annað kvöld.
23.25 Spilltvald.
(The Life and Assassination of the
Kingfish).
Sannsöguleg mynd þar sem greinir frá
þrem siðustu árum stjórnmálamannsins
Huey P. Long en hann var oft á öndverð-
um meiði við aðra stjórnmálamenn og var
myrtur árið 1935.
Aðalhlutverk: Edward Asner, Nicholas
Pryor og Diane Kagan.
Bönnuð börnum.
01.00 Dagskrárlok.
Stöð 2
Mánudagur 12. nóvember
16.45 Nágrannar.
(Neighbours.)
17.30 Depill.
17.40 Hetjur himingeimsins.
18.05 í dýraleit.
18.30 Kjallarinn.
19.19 19.19.
20.10 Dallas.
21.05 Sjónaukinn.
21.35 Á dagskrá.
21.50 Akureldar III.
(Fields of Fire 3).
Þetta er seinni hluti áströlsku framhalds-
myndarinnar um smábæ i Ástralíu, þar
sem kemur til uppgjörs vina og ættingja
vegna nýrra laga.
Aðalhlutverk: Todd Boyce, Peta Topano,
Cris McQuaide, Noni Hazlehurst og Ollie
Hall.
23.30 Fjalakötturinn.
Sláturhús fimm.#
(Slaughterhouse Five).
Þessi kvikmynd er gerð eftir samnefndri
metsölubók Kurt Vonnegut. Hér segir frá
fyrrverandi hermanni sem lifði af vistina i
fangabúðum nasista í Dresden. Leik-
stjóranum, George Roy Hill, tekst á eftir-
minnilegan hátt að opna okkur hugar-
heim þessa manns og láta okkur skynja
þann raunveruleika sem hann upplifir,
ásamt sterkum hrifum fantasíunnar sem
að halda honum gangandi.
Aðalhlutverk: Michael Sacks, Ron Leib-
man, Eugene Rochej og Valerie Perrine.
01.10 Dagskrárlok.