Dagur - 10.11.1990, Side 19
Laugardagur 10. nóvember 1990 - DAGUR - 19
poppsíðon
Jimmy Page í viðtali:
Útilokar ekki að Led
Zeppelin komi saman á ný
Eftir aö ein stærsta og merkasta
.hljómsveit rokksins fyrr og síðar,
Led Zeppelin, hætti störfum áriö
1980 hafa alltaf annað slagiö
komist á kreik sögur um aö end-
urreisn hennar væri í vændum
sem síðan hafa ávallt reynst
rangar.
Nú í nýliðnum október hafa
komö út tvö söfn meö Led
Zeppelin mikil aö vöxtum. Er
annars vegar um að ræða
þriggja platna settið Remasters
en hins vegar fjögurra diska/sex
platna kassa undir nafninu Re-
masters Boxed. Haföi gítarleikar-
inn Jimmy Page yfirumsjón með
lagavalinu í samvinnu við hina
tvo eftirlifandi meðlimi hljóm-
sveitarinnar, þá Robert Plant
söngvara og John Paul Jones
bassaleikara. í tilefni af útgáfunni
tók rokktímaritið Kerrang ítarlegt
viðtal við Jimmy Page og fara
glefsur úr því hér á eftir.
Page var fyrst spurður að því
hvernig hugmyndin að útgáfunni
hafi komið til. „Ég veit eiginlega
ekki hver stakk upp á þessu fyrst,
en a.m.k. var það útgáfan Atlant-
ic sem kom hugmyndinni á fram-
færi við okkur og leist mér strax
vel á hana sérstaklega með tilliti
til þess að geisladiskarnir sem
gefnir hafa verið út með plötun-
um hafa ekki verið góðir."
- Hvernig fórstu svo að því að
velja lögin, var það erfitt?
„Nei, þetta var ekki erfitt val og
i raun var ég búinn að leggja
Jimmy Page útilokar ekki endur-
komu Led Zeppelin.
þetta niður fyrir mér áður en ég
settist niður og fór að hlusta á
lögin. Þetta varð listi upp á sam-
tals 54 lög sem þeir Robert og
John samþykktu umyrðalaust.
Það tók mig síðan um fimm daga
að endurvinna þessi 54 lög og
var það mikið puð.“
- Það hafa væntanlega vakn-
að ótal minningar við vinnuna?
„Ójá, heldur betur. Til dæmis
man ég að tilurö lagsins Battle of
Evermore varð með þeim sér-
stæða hætti að eitt sinn þegar við
Umsjónr
Magnus Geir
Guömundsson
vorum að hljóðrita í Headley
Grange var John Paul með
mandólín þar, en á slíkt hljóðfæri
hafði ég aldrei prófað að spila.
Ég greip það í hálfkæringi og
byrjaði að gutla og varð lagið til
upp úr því.“
- í Ijósi þess að mun eldri
hljómsveitir en Led Zeppelin,
eins og Rolling Stones og The
Who, hafa byrjað aftur og gert
það gott, gætir þú séö fyrir þér að
þið þremenningarnir byrjið upp á
nýtt?
„Það eru örugglega margir
sem vilja sjá það gerast og ég er
reyndar einn af þeim. Ég tel það
alls ekki útilokað að við munum
koma saman og gera eitthvað í
náinni framtíð því við höfum allt-
af annað slagið unnið hver með
öðrum auk þess að hafa komið
fram nokkrum sinnum við ýmis
tækifæri."
Svo mörg voru þau orð hjá
Jimmy Page og geta menn því
e.t.v. farið að hlakka til endur-
komu Led Zeppelin.
Hitt og þetta
Stone Roses sluppu með sekt.
Stone Roses
í urnfjöllun um rokkhljómsveitina
efnilegu frá Manchester Stone
fíoses hér á Poppsíöunni, hefur
komið fram að meðlimir hennar
eru ekki beint barnanna bestir og
að oftar en einu sinni hafi þeir
komist í kast við lögin. Nú fyrir
skömmu var hljómsveitin dæmd
af rétti í Wolverhampton til að
greiða 300.000 króna sekt vegna
skemmda sem meðlimir hennar
ollu á skrifstofu fyrrum útgáfufyr-
irtækis síns í janúar sl.
Munu málavextir vera nánar
tiltekið þeir að í heimsókn til
gamla fyrirtækisins FM/Revolver
lentu þeir fjórmenningarnir í
Stone fíoses í hörkurifrildi við for-
stjóra þess Paul Birch út af
myndbandi sem hafði verið gefið
út með laginu Sally Cinnamon árið
1987 og sem þeir félagar töldu
hafa skemmt fyrir framgangi
hljómsveitarinnar. í kjölfarið
brutu þeir síðan og brömluðu
húsgögn og fleira á skrifstofunni
og fyrir utan skemmdu þeir bíl
Birch sem þar stóð. auk tveggja
annarra bíla sem þar voru. Þykir
sumum að hljómsveitin hafi
sloppið vel með að fá einungis
sekt því fyrir annað eins hafa
menn hlotið fangelsisdóm áður.
The Mission
Ekki er hægt annað en að segja
að margt sé í tónlistarheiminum
hverfult. Nú í sumar sagði
Poppsíðan frá því að gítar-
leikaraskipti hefðu orðið í rokk-
sveitinni The Mission, þ.e. að í
stað Simons Hinkler sem hætti á
miðri tónleikaferð i Bandaríkjun-
um væri kominn maður að nafni
Tim Bricheno sem áður var gítar-
leikari i skosku þjóðlagarokk-
sveitinni All About Eve. Það hefur
hins vegar komið á daginn að
þessi breyting hefur gengið til
baka og að því er best fæst vitað
er WM/eraftur orðinn meðlimur í
Mission. Bricheno er aftur á móti
genginn til liðs við The Sisters of
Mercy sem Andrew Eldrich, for-
Wayne Hussey og Simon Hinkler
eru að því er virðist samherjar á ný.
sprakki hennar (og eitt sinn Miss-
iorí), endurreisti fyrr á þessu ári.
Það er frekar af The Mission að
segja að ný plata, sú önnur í röð-
inni á þessu ári, er nú nýkomin
út. Er þar um að ræða plötu með
áður útgefnum B- hliðalögum
auk laga sem tekin voru upp fyrir
Carved in Sand plötuna sem út
kom fyrr á árinu en af einni eða
annarri ástæðu voru ekki notuð á
hana og nefnist hún Grains of
Sand.
Soul II Soul
Og talandi um að tónlistarheim-
urinn sé hverfull þá virðist sem
yfirlýsing höfuðpaurs Soul II Soul
Jazzie B. um að í kjölfar hrakfara
hljómsveitarinnar á fyrstu tón-
leikaferö sinni myndi hún ekki
koma fram á sviði framar og
Poppsíðan skýrði frá í síðustu
viku, ekki vera í gildi lengur. Aö
sögn talsmanns útgáfufyrirtækis
hljómsveitarinnar þá hefði hún
einfaldlega verið útkeyrð eftir
ferðina og hafi yfirlýsing Jazzie
markast af því. Nú væri hljóm-
sveitin hins vegar búin að jafna
sig og væri tilbúin að halda í aðra
ferð með tíð og tíma.
Robert Palmer
Popp/rokkarinn Robert Palmer
sem naut mikilla vinsælda hér á
landi og annars staðar meö lag-
inu Addicted to Love auk þess að
vera frægur fyrir veru sína í Pow-
erStation m.a. er nú rétt búinn að
senda frá sér nýja tvöfalda breið-
skífu undir nafninu Don’t Explain
Geymir hún meðal annars útgáfu
af lagi Soulkonungsins Marvin
Gaye, Mercy, Mercy me auk
lagsins /7/ be your baby tonight
sem Palmer tók upp meö UB40 og
er jafnframt fyrsta smáskífulag
plötunnar.
r-----------------—----------------------
k Þakklæti til ættfólks mfns og allra þeirra sem
I heiðruðu mig að Hótel KEA á 85 ára
afmælisdaginn minn 31. október
síðastliðinn, með blómum, heillaskeytuni,
kortum og nytsömum gjöfum.
Ennfremur þakkir til Karls II fyrir
blómvönd, ásamt fleiru.
Lifið heil!
PÓRODDUR SÆMUNDSSON,
Lyngholti 4, Akureyri.
■t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
BJARNI LOFTSSON,
Seljahlíð 3f, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 8.
nóvember.
Fanney Jónsdóttir
og dætur.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA S. HAFDAL,
frá Akureyri,
verður jarðsungin þriðjudaginn 13. nóvember kl. 13.30 frá
Akureyrarkirkju. Þeir sem vildu minnast hennar er bent á
hjúkrunarheimilið Skjól Reykjavík.
Ríkarður Hafdal, Corrie Hafdal,
Árni Hafdal, Joan Hafdal,
Gunnar Hafdal, Þóra Flosadóttir,
Sveinn Hafdal, Edda Sigfúsdóttir,
Elfa Hafdal, Haraldur Sighvatsson,
barnabörn og barnabarnabörn.