Dagur - 23.11.1990, Blaðsíða 1
Kópasker er miðstöð tölvusamskipta:
Gruimskólamir á Akureyri
eru að komast í samband
í grunnskólanum á Kópaskeri
hefur Pétur Þorsteinsson
skólastjóri komið upp móður-
tölvu fyrir aðra skóla á landinu
og hafið tölvusamskipti. I
gegnum þessa móðurtölvu er
hægt að miðla upplýsingum og
einnig að komast í gagnabanka
erlendis. Allmargir skólar eru
þegar komnir í samband við
Kópasker, sem er „nafli
alheimsins“ á þessu sviði, og
nú eru grunnskólarnir á Akur-
eyri að bætast í hópinn.
Skólanefnd Akureyrar fékk til-
boð um tölvutengingu grunnskól-
anna á Akureyri og skólaskrif-
stofu við móðurtölvuna á Kópa-
skeri og á fundi í síðasta mánuði
var ákveðið að taka tilboðinu
sem hljóðaði upp á 100 þúsund
krónur. Gagnfræðaskólinn hefur
þegar verið tengdur og Glerár-
skóli og Síðuskóli komast í sam-
band á næstunni. Aðrir skólar og
skólaskrifstofan fylgja í kjölfarið
í vetur og verður tengingu lokið
snemma á næsta ári.
Að sögn lngólfs Ármannsson-
ar, skólafulltrúa, opnar tenging
við móðurtölvuna ýmsa mögu-
leika fyrir grunnskólana á Akur-
eyri. í fyrsta lagi má nefna skipti
á kennsluverkefnum við aðra
skóla, t.d. fyrir nemendur sem
eru með tölvufræðslu sem val-
grein. { öðru lagi má nefna ýmis
Veður og ísing
hamlaði flugi
Flug milli Akureyrar og
Reykjavíkur lá niðri í gær
vegna veðurs og ekkert var far-
ið að hreyfa Fokker-vélar
Flugleiða þegar Dagur hafði
síðast spurnir af í gærkvöld.
Um 120 manns biðu flugs á
Akureyri, en nokkru færri biðu
eftir flugi í Reykjavík norður.
Ástæðan fyrir þessum erfið-
leikum var slæmt veður og mikil
ísing í háloftunum.
Ekki var heldur flogið á vegum
Flugfélags Norðurlands í gær.
óþh
Hljóðmúrsrof:
„Hér hristist
aflt og skalf ‘
„Hér hristist allt og skalf.
Þetta var eins og sprenging og
stutt var á milli hvellanna,“
sagði húsmóðir í Olafsfirði
þegar hún lýsti því er tvær þot-
ur frá Bandaríkjaher á Kefla-
víkurflugvelli rufu hljóðmúr-
inn úti fyrir Eyjafirði síðdegis í
ga*-
Þetta átti sér stað síðdegis og
varð fólk í ÓÍafsfirði og á Dalvík
mjög vart við þegar þetta gerðist.
Það var engu líkara en hefðu orð-
ið stórkostlegar sprengingar, svo
mikill hávaði skapaðist af þessu.
óþh
upplýsingatengsl milli skóla á
Akureyri gegnum tölvuna og í
þriðja lagi nefndi Ingólfur að
hægt væri að komast í gagna-
banka í öðrum löndum.
„Hvað af þessu fer í gang og
hvenær er ekki gott að segja. Það
er líka mismunandi hve kennarar
eru vel í stakk búnir til að not-
færa sér þessa þjónustu og við
reiknum með að næsta ár fari í
það að koma sambandinu á og
læra að nota það,“ sagði Ingólf-
ur.
Aðspurður sagði hann að með
tölvutengingunni væru grunn-
skólarnir á Akureyri að fylgja
þróuninni.
„Það að geta notfært sér þenn-
an tæknibúnað til að nálgast upp-
lýsingar er í rauninni orðinn einn
þáttur í því fyrir nemendur að
vera læsir,“ sagði Ingólfur. SS
Starfsmenn Akureyrarbæjar eru nú að vinna við uppsetningu gangbrautarljósa á Hörgárbraut, en gangbrautin á
þessum stað sem myndin sýnir hefur löngum þótt varhugaverð. Að sögn bæjarverkfræðings er markmiðið með þess-
um framkvæmdum að tryggja betur öryggi gangandi vcgfarenda. Mynd: Golli
KEA kaupir fiskpökkunarlínu úr Hafnarfirði til uppsetningar á Dalvík:
Mun væntanlega skapa átta ný
störf við frystihúsið á Dalvík
1 ••11 1 ✓ w x , , / i ••• . Il-'j 1 ' •
- fiskpökkunarlínan verður sett upp í kjötsal sláturhússins
Kaupfélag Eyfirðinga mun
kaupa fiskpökkunarlínu af
Samherja hf. á Akureyri og
verður þessi tækjabúnaður
settur upp á Dalvík. Þessi bún-
aður er í Hvaleyri í Hafnarfirði
en sem kunnugt er keypti Sam-
herji fyrirtækið fyrir skömmu.
Kaupfélag Eyfirðinga gerði til-
boð í þessa pökkunarlínu og
var tilboðinu tekið í gær. Að
sögn Magnúsar Gauta Gauta-
sonar, kaupfélagsstjóra KEA,
er ráðgert að tækin verði kom-
in í notkun á Dalvík í janúar og
bætast þá væntanlega átta ný
störf við hjá Frystihúsi KEA á
Dalvík.
Að sögn Magnúsar Gauta
verður þessi lína notuð til að
pakka fiski í neytendapakkningar
sem sendar verða á markaði í
Bandaríkjunum og Evrópu.
Hvaleyri hefur þróað þessa
vinnslu og er hún enn í gangi í
Hafnarfirði en reynt verður að
koma henni af stað á Dalvík um
miðjan janúar.
Ráðgert er að nota gamla kjöt-
salinn í Sláturhúsi KEA á Dalvík
undir þessa pökkun en sláturhús-
ið er sambyggt Frystihúsi KEA.
Ekki verður stofnað sérstakt
fyrirtæki um framleiðsluna held-
ur mun þessi starfsemi falla undir
frystihúsið.
„Menn reikna með að á næstu
árum verði kvóti ekki aukinn og
eina vopnið til þess að auka
umsvif í frystihúsunum er að
skapa aukin verðmæti úr aflan-
um. Markaðurinn virðist einmitt
kalla á smápakkningar," sagði
Gunnar Aðalbjörnsson, frysti-
hússtjóri KEA á Dalvík.
Gunnar sagði að uppsetning
pökkunarlínunnar myndi styrkja
atvinnulífið á Dalvík, því með
tilkomu hennar myndu væntan-
lega skapast átta ný störf.
JÓH/óþh
Póstsendingar fyrir jól:
Tími til að huga að jólapóstinum
Nú eru síðustu forvöð að senda
bögglapóst sem fara á með
skipum til útlanda fyrir jól því
eindagi slíkra sendinga er 25.
nóvember. Þeir sem hafa í
hyggju að senda pakka sína
með flugi hafa lengri frest en
slíkum sendingum þarf að skila
frá 2. til 5. desember eftir því
hvar viðtakendur búa.
Bögglapóstur fyrir flug til
Norðurlanda, Evrópu og aust-
urstrandar Bandaríkjanna þarf
að berast pósthúsi fyrir 5. des-
ember og til vesturstrandar
Bandaríkjanna og Kanada fyrir
2. desember. Bréf er fara eiga
sjóleiðina erlendis verða að ber-
ast pósthúsi fyrir 25. nóvember
eigi þau að fara til vesturstrandar
Bandaríkjanna eða Kanada en
, Dalvík:
,Árekstur“ vörubfls og húss
Yörubifreið skall á horni næsta
húss norðan við hús Söltunar-
félags Dalvíkur við Hafnar-
braut á Dalvík í gær. Litlar
skemmdir urðu á bílnum og
húsinu og engin meiðsli á öku-
manm.
„Áreksturinn" varð með þeim
hætti að ökumaður mun hafa
snögghemlað á Hafnarbrautinni
er hann var að afstýra því að
lenda á gangandi vegfaranda.
Við það snerist bílinn og
„straukst“ utan í fólksbifreið og
braut annað stefnuljósið. Síðan
kastaðist hann á húshornið. óþh
fyrir 1. desember til annarra
staða. Bréf er fara eiga með flug-
pósti til vesturstrandar Banda-
ríkjanna og Kanada verða að
berast fyrir 8. desember, fyrir 10.
desember til Evrópu og fyrir 15.
desember til Norðurlandanna.
ÞI
Nýjasta vél Flugfélags Norðurlands:
Ekki væntanleg
fyrr en í desember
- ekki búist við vélinni í rekstur fyrir jól
Fairchild Metro III, hin nýja
flugvél Flugfélags Norðurlands,
kemur seinna til landsins en
ráðgert var. Upphaflega var
búist við vélinni í þessum mán-
uði en nú er Ijóst að hún kem-
ur ekki fyrr en í síðari hluta
desember.
Sigurður Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Norður-
lánds, segir að nú þegar sé búið
að mála vélina í litum félagsins
en ástæða fyrir seinkuninni sé sú
að sá aðili sem samið hafi verið
um að setja viðbótartækjabúnað
í vélina hafi ekki getað tekið við
vélinni fyrr en 24. nóvember,
þ.e. á morgun. Þetta verk muni
taka um þrjár vikur og því sé
ljóst að liðið verður á desember
þegar vélin kemur til Akureyrar.
Sigurður sagðist ekki reikna
með að vélin komist í rekstur fyr-
ir jól en þá verður einn mesti
annatími ársins í fluginu.
Þessi nýja vél er keypt frá Tex-
as í Bandaríkjunum fyrir 75
milljónir króna. Vélin er búin
jafnþrýstibúnaði og er mjög
hraðfleyg og hentar því vel á
lengri flugleiðum innanlands, svo
og í millilandaflugi. JÓH