Dagur - 23.11.1990, Blaðsíða 16
Úrval nýrra rétta
á helgarseðli Smiðjunnar
nm helgina.
Sítnl 21818
Batnandi rekstrarafkoma Kaupfélags Eyfirðinga:
Rekstraruuihverfi var betra
en við reiknuðum með“
- segir Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri
„Það er bati hjá okkur í öllum
greinum. Rekstrarumhverfið
var betra á árinu en við gerð-
um ráð fyrir um síðustu áramót
og þar réðu kjarasamningar og
þjóðarsáttin, ásamt hækkandi
fiskverði, mestu. Til viðbótar
er búið að grípa til ýmissa
aðgerða sem hafa skilað tölu-
verðum árangri. Það er ástæða
til að þakka starfsfólki félags-
ins fyrir hvernig það hefur
brugðist við þessum aðgerðum
enda á það sinn þátt í því að
tekist hefur að snúa rekstrin-
um svona við,“ segir Magnús
Gauti Gautason, kaupfélags-
stjóri KEA, vegna frétta um
afkomu félagsins á fyrstu níu
mánuðum ársins. Eins og fram
kom í blaðinu í gær skilar
félagið eftir þennan tíma 139
milljóna króna rekstrarhagn-
aði eftir skatta.
„í verslun, iðnaði og þjónustu
er bati vegna þess að tekjur auk-
ast og tekst að halda kostnaði
niðri. Fjármagnskostnaður í
þeim greinum breytist lítið en í
Veðurhorfur:
Batnandi
veður um
Utlit er fyrir að veður fari
batnandi þegar á helgina
líður. Samkvæmt veðurhorf-
um í gærkvöld er reiknað
með snjókomu um norðan-
vert land á morgun en á
sunnudag verði éljagangur á
annesjum.
Veðurfræðingar spáðu í gær
stífri norðan og norðaustan átt
á Norðurlandi á morgun, að
mestu þurru veðri um norð-
vestanvert landið en snjó-
komu um norðaustanvert
land. Á sunnudag er reiknað
með hægri norðan og norð-
austan átt, éljum á annesjum á
Norðurlandi en léttskýjuðu
veðri á sunnanverðu landinu.
JÓH
sjávarútvegi er um að ræða mik-
inn magnsamdrátt en veltan helst
uppi á hærri afurðaverði. Fisk-
verðið hækkar þó meira á þessum
tíma og því erum við ekki með
afkomubata í sjávarútveginum
fyrr en kemur að fjármagns-
kaflanum en þar lækka vextir
verulega vegna þess að fiskurinn
selst hratt og einnig fáum við
gengishagnað á afurðalánum í
fiskinum vegna falls dollarans,“
segir Magnús Gauti.
Hann segir að afkoma í slátur-
húsi sé þokkaleg og um afkomu
mjólkursamlagsins segir Magnús
Gauti að hún sé betri vegna þess
að um meira magn sé að ræða
auk þess sem vextir lækki vegna
afurðalána.
Magnús Gauti segir að í þessu
uppgjöri séu ekki komin fram
áhrif allra breytinga sem gerðar
voru hjá félaginu á árinu. Því
megi búast við að áhrifa síðustu
skipulagsbreytinga gæti ekki að
marki fyrr en á fyrri hluta næsta
árs.
Þeirri spurningu hvort búast
megi við að þessi bati haldist út
árið svarar Magnús Gauti þannig
að margt geti þar spilað inn í.
Reikna megi með aukinni sölu
fyrir jólin en á móti geti komið
minni afurðir bæði í sjávarútvegi
og landbúnaði. JÓH
Miklar annir eru nú hjá Súkkulaðiverksmiðjunni Lindu á Akureyri enda
framleiðsla á jólakonfckti komin á fullan skrið. Samkvæmt upplýsingum frá
Lindu er konfektsala nær eingöngu orðin um jólin og fer stöðugt vaxandi að
konfekt sé keypt til jólagjafa. Þá verður sífellt algengara að fyrirtæki kaupi
konfekt til að gefa starfsmönnum sínum í jólagjöf. Unnið er frá kl. 7 á
morgnana til kl. 22 á kvöldin vegna jólakonfektsins. JÓH/Mynd: Golli
Óvissa ríkir um starfsemi Einangrunarstöðvarinnar í Hrísey:
Get ekkí annaö séö en landbúnaðar-
ráöuneytiö ætli að leggja stöðina niður
segir Magnús Guðjónsson, formaður Dýralæknafélags íslands
„Ég get ekki annað séð en
landbúnaðarráðuneytið stefni
að því að leggja stöðina niður
vegna þess að það hefur með
dæmalausum vinnubrögðum
fælt frá sér eina dýralækninn í
landinu sem er sérmenntaður í
fósturvísaflutningum,“ sagði
Magnús Guðjónsson, formað-
ur Dýralæknafélags íslands,
þegar hann var inntur álits á
því að Sigurborg Daðadóttir
hefur nú endanlega sagt skilið
við Einangrunarstöð holda-
nauta í Hrísey og hafið störf
sjálfstætt á „meginlandinu“.
Eins og fram kom í Degi sl.
miðvikudag hefur Sigurborg tek-
ið endanlega ákvörðun um að
hætta störfum í Hrísey vegna
þess að hún hefur ekki fengið
launakjör sín bætt. Viðmælend-
um Dags sem komið hafa að
þessu máli ber saman um að sú
staða sem upp er komin sé mjög
alvarleg. Magnús Guðjónsson
segir að lögum samkvæmt verði
dýralæknir að starfa við stöðina
og í ljósi þess sé ríkið nú að
brjóta lög. Hann segir að þau
boð hafi verið látin út ganga í
dýralæknastétt að sækja ekki um
stöðu framkvæmdastjóra Ein-
angrunarstöðvarinnar, verði hún
auglýst á næstunni, nema að
höfðu samráði við stjórn félags-
ins.
Guðmundur Sigþórsson, skrif-
stofustjóri í landbúnaðarráðu-
neytinu, segir að ef þetta sé
endanleg ákvörðun Sigurborgar
liggi beinast við að auglýsa stöð-
una lausa til umsóknar. Hann
segir að ráðuneytið verði að leita
að manneskju í starfið sem geti
sætt sig við þau launakjör sem
ríkið geti boðið. Guðmundur
tekur fram að slæmt sé að missa
Sigurborgu og ráðuneytið sjái
eftir henni.
Ólafur Stefánsson, ráðunautur
Vegagerðin:
Mikil hálka á Öxnadalsheiði
Mikil hálka var á vegum á
Norðurlandi í gær. Vegir lok-
uðust þó hvergi nema í Ólafs-
fjarðarmúla, en þar féll snjó-
flóð í gærmorgun.
Hjá vegaeftirlitinu fengust þær
upplýsingar síðdegis í gær að
mikil hálka hafi verið á Öxna-
dalsheiði, en umferðin þó gengið
áfallalaust. í gærmorgun var þar
töluverður skafrenningur, en
ekki náði að festa snjó á veginn
að marki.
Veðurspá síðdegis í gær var
heldur óárennileg og því mátti
allt eins gera ráð fyrir versn-
andi færð á Öxnadalsheiði í nótt.
Að sögn vegaeftirlitsmanns verð-
ur mokað í dag á leiðinni milli
Akureyrar og Reykjavíkur, ef
þess gerist þörf og þá verður
mokstur hafinn í bítið. Næsti
fasti mokstursdagur Vegagerðar-
innar á þessari leið er síðan á
mánudag. óþh
hjá Búnaðarfélagi íslands, tekur
undir það og segir að ef ekki finn-
ist nein lausn á þessu máli hið
bráðasta sé rekstri Einangrunar-
stöðvarinnar stefnt í tvísýnu.
í bréfi sem Sigurborg Daða-
dóttir sendi Steingrími J. Sigfús-
syni í vikunni, dagsett 20.
nóvember, lýsir hún samskiptum
sínum við embættismenn í land-
búnaðarráðuneytinu og segir
greinilegt að ekki sé vilji í ráðu-
neytinu að hafa hana áfram í.
starfi framkvæmdastjóra Ein-
angrunarstöðvarinnar. Hún segir
að ráðuneytið hafi dregið sig á
asnaeyrunum og lofað sér bót á
máli sínu hvað eftir annað. „Nú
er svo komið að ég hef verið
atvinnulaus í 7 vikur vegna þess
að þeir hafa lofað og lofað, þann-
ig að ég gat ekki byrjað í öðru
starfi þar sem ég átti von á því að
fara aftur út í Hrísey þegar þeir
stæðu við það sem þeir lofuðu,“
segir Sigurborg orðrétt í bréfi
sínu.
Um þetta mál er ítarlega fjall-
að í Baksýn í Degi á morgun.
óþh
Kjörbúð KEA er opin til kl. 20.00
alla daga nema sunnudaga
A laugardögum eru allar verslanir opnar til kl. 16.00
SUNNUHIID