Dagur - 23.11.1990, Blaðsíða 6
hvað er að gerast
M
.
K'
t <*+\
j
TOLVU
P A P P í R
LJÓSRITUNAR
PAPPí R
FAX
P A P P í R
SÉRPRENTUN
Á TÖLVUPAPPÍR
LAUNASEÐLAR
ALLAR TÉGUNdTr
DAGBÆKUR
MEÐ NAFNI
FYRIRTÆKIS
I
J
I
I
24166 & 2 42 22
STRANDGÖTU 31 • AKUREYRI • FAX 27639
SÖLUUMBOÐ
f
Hafsteinn Guðmundsson fagottleikari og Viiberg Viggósson píanóleikari
verða með tónleika í sal Tónlistarskólans á Akureyri nk. sunnudag kl. 17.
Tónlistarskólinn á Akureyri:
Fagott- og píanótón-
leikar á sunnudaginn
Næstkomandi sunnudag, 25.
nóvember kl. 17, verða haldnir
tónleikar í sal Tónlistarskólans á
Akureyri. Fram koma Hafsteinn
Guðmundsson, fagottleikari og
Vilberg Viggósson, píanóleikari.
Auk þeirra kemur Dagbjört Ing-
ólfsdóttir, fagottleikari, fram í
einu verkanna. Á efnisskránni
verða verk fyrir fagott og píanó
eftir Vivaldi, Bozza, Elgar og
Hurlstone.
Hafsteinn Guðmundsson hefur
verið starfandi hér sem fagott-
leikari síðastliðin 20 ár og er nú
fyrsti fagottleikari Sinfóníu-
hljómsveitar íslands. Harin hefur
verið meðlimur í Blásarakvintett
Reykjavíkur frá upphafi og kom-
ið fram með ýmsum kammer-
músíkhópum. Eínnig hefur hann
komið fram sem einleikari.
Vilberg Viggósson er ísfirðing-
ur og stundaði nám í Tónlistar-
skólanum á ísafirði, hjá Ragnari
H. Ragnar og í Reykjavík, hjá
Halldóri Haraldssyni, þar sem
hann lauk burtfararprófi 1982.
Árið 1983-1984 var hann í einka-
tímum í Köln hjá rússneska
píanóleikaranum Pavel Gililov.
Haustið 1984 hóf hann nám við
Sweelinck Conservatorium í
Amsterdam og tók þaðan loka-
próf vorið 1989. Kennari hans
þar var hollenski píanóleikarinn
Willem Brons.
Vilberg starfar nú sem píanó-
leikari við Tónlistarskóla Njarð-
víkur og einnig sem píanóleikari
við söngdeild Tónlistarskóla
Garðabæjar.
Benni, Gúddi og Manni:
Síðasta sýning
Aukasýning verður á Leikritinu
um Benna, Gúdda og Manna hjá
Leikfélagi Akureyrar í kvöld,
föstudagskvöld, kl. 20.30.
Áformað var að Ijúka sýningum
um síðustu helgi en aðsókn var
það góð að ákveðið var að bjóða
upp á þessa aukasýningu. Þetta
er allra síðasta sýning á leikrit-
inu.
Eftir að sýningum á þessu
fyrsta verki Jóhanns Ævars Jak-
obssonar lýkur verður Ættarmót-
ið eftir Böðvar Guðmundsson
sett á svið, en æfingar á þessum
ærslaleik hafa nú staðið yfir í
nokkurn tíma. Ættarmótið verð-
ur jólaleikrit Leikfélags Akureyr-
ar.
Tónlistarskólinn á Akureyri:
HómMður og Juliet
Faulkner með tónleika
- á morgun á sal skólans kl. 16
Hólmfríður Benediktsdóttir syngur
íslensk og erlend sönglög, lög úr
bandarískum söngleikjum og ópcru-
aríur eftir Puccini við undirleik
Juliet Faulkner.
Hólmfríður Benediktsdóttir,
sópran, og Juliet Faulkner, píanó-
leikari, halda tónleika á sal Tón-
listarskólans á Akureyri á morg-
un, laugardaginn 24. nóvember
kl. 16. Á efnisskránni eru íslensk
og erlend sönglög, lög úr banda-
rískum söngleikjum og óperu-
aríur eftir Puccini.
Hólmfríður Benediktsdóttir
lauk mastersnámi í einsöng frá
Indiana University í Blooming-
ton nú í sumar og er nú starfandi
söngkennari við Tónlistarskólann
á Akureyri.
Juliet Faulkner nam píanóleik
við Royal Academy of Music í
London og er nú kennari við
tónlistardeild Hafralækjarskóla í
Aðaldal.