Dagur - 23.11.1990, Síða 13

Dagur - 23.11.1990, Síða 13
np “fscionsvon 'UíJÍ: ibuísöT — FIUOAQ — fif' KFUM og KFUK, Sunnuhlíð. Sunnudaginn 25. nóvember: Almenn samkoma kl. 20.30. Ræðumaður: Jón Viðar Guðlaugs- son. Allir velkomnir. HVITASUtmjmmtl wsmmshlIð Föstudagur 23. nóv. kl. 20.30, bænasamkoma. Sunnudagur 25. nóv. kl. 13.00, barnakirkjan (sunnudagaskóli). Öll börn velkomin. Sama dag kl. 15.30, vakningasam- koma. ræðumaður Vörður L. Traustason. Samskot tekin til innanlandstrú- boðsins. Mikill og fjölbreyttur söngur. Allir eru hjartanlega velkomnir. SJÓNARHÆÐ HAFNARSTRÆTI 63 Laugardagur 24. nóv.: Laugardags- fundur fyrir 6-12 ára krakka á sjón- arhæð kl. 13.30. Biblíusögur, söngur, leikir. Unglingafundur kl. 20.00. Sunnudagur 25. nóv.: Sunnudaga- skóli í Lundarskóla kl. 13.30. Almenn samkoma á Sjónarhæð kl. 17.00. Allir hjartanlega velkomnir. Hjálpræðisherinn, HvannavöIIum 10. Föstudagur 23. nóv. kl. 18.30, fundur fyrir 12 ára og eldri, kl. 20.30, Æskulýður. Laugardagur 24. nóv. jólabasar kl. 15.00-17.00. Sunnudagur25. nóv. kl. 11.00, helg- unarsamkoma, kl. 13.30, sunnu- dagaskóli, kl. 19.30, bæn, kl. 20.300, almenn samkoma. Mánudagur 26. nóv. kl. 16.00, heimilasamband. Þriðjudagur 27. nóv. kl. 17.30, yngriliðsmannafundur, kl. 20.30, hjálparflokkur. Fimmtudagur 29. nóv. kl. 20.30, Biblía og bæn. Allir eru hjartanlega velkomnir. Gjafír til Akureyrarkirkju og Safnaðarheimilisins: Kr. 10.000 frá Garðari Jónassyni, kr. 20.000 frá Leó Sigurðssyni, kr. 100.000 frá Alfreð Möller til minningar um konu hans Friðnýju S. Möller og kr. 100.000 frá Helgu Svanlaugsdóttur til minningar um mann hennar Finnboga Jónsson, sem svo mikið vann fyrir kirkjuna. Þessum kirkjuvinum öllum eru færðar bestu þakkir. Birgir Snæbjörnsson. Saga Akur- eyrarkirkju - athugasemd vegna greinar í morgun birtist í Degi grein um Sögu Akureyrarkirkju, og er þar stuðst við viðtal, sem fram fór í vikunni sem leið við okkur Jón Oddgeir Guðmundsson, ritara sóknarnefndar. Gerði ég fastlega ráð fyrir, að okkur gæfist kostur á að lesa handrit að greininni, áður en hún birtist, en svo varð ekki. En þar sem ég sé mér til hryggðar, að mikils misskilnings gætir í henni og á nokkrum stöð- um er beinlínis ranglega eftir haft, sé ég mig knúinn til að biðja fyrir nauðsynlegustu leiðrétting- ar, því að annars mætti ætla eftir lestur greinarinnar, að bókin væri morandi í villum og ónákvæmni. 1. í frásögn af aðdraganda og undirbúningi söguritunarinnar, þar með heimildaöflun og tíma- setningu einstakra verkþátta, gætir nokkurrar ónákvæmni, en segja má, að hún skipti minna máíi en sumt annað, þó áð hún eigi ekki að vera. Um þetta atriði skal vísað til formála bókarinnar. - Rétt er, að mjög var leitað til munnlegra og ritaðra heimilda, en þó má ekki gleyma að nefna prentaðar heimildir, sem notaðar voru, enda hlutur þeirra mikill. 2. „Prestakallið“ var ekki flutt frá Hrafnagili til Akureyrar, heldur var „prestssetrið", þ.e. aðsetur prestsins, flutt þangað árið 1881. 3. Kirkjan í Fjörunni var ekki rifin, „þegar núverandi kirkja var vígð“, heldur tveimur árum síðar (1942/1943). 4. Bygging núverandi kirkju hófst ekki sumarið 1939, heldur í september 1938. 5. Sóknarnefndarmenn og safnaðarfulltrúar eru ekki ráðnir starfsmenn Akureyrarkirkju, heldur kjörnir á aðalsafnaðar- fundi til þess að gegna trúnaðar- störfum á vegum safnaðarins, stjórna málefnum hans í samráði við sóknarpresta og hafa umsjón með eignum hans og fjárreiðum, ellegar sitja héraðsf ind prófasts- dæmisins fyrir höi.d safnaðarins (safnaðarfulltrúi). 6. Eitthvað hefir skolast til, þegar ég gat um störf þau, sem einstakir Akureyrarprestar hafa unnið kirkjunni utan venjulegr- ar prestþjónustu. Ég nefndi bar- áttu séra Geirs Sæmundssonar vígslubiskups fyrir því að fá sam- þykki bæjaryfirvalda fyrir núver- andi kirkjulóð, baráttu hans og séra Friðriks fyrir afhendingu Sýning á tölvubúnaði á Hótel KEA dag kl. 10-18 og laugardag kl. 10-16. Sýndar verða Hyundai tölvur og bókhalds- og upplýsingakerfið. Bústjóri/Ps - raunverulegt stjórntæki. Endurskoðun kval Akureyri h. f. kirkjunnar til safnaðarins með álagi úr ríkissjóði vegna fyrrver- andi jarðeigna kirkjunnar, sem runnið höfðu til ríkisins, og dugnað og hyggindi hins síðar- nefnda við byggingu núverandi kirkju. í þriðja lagi gat ég um hið mikla starf þeirra presta, sem síð- an hafa þjónað á Akureyri, við hið innra safnaðarlíf í Akureyr- arsókn. Pau orð hafa fallið niður við ritun greinarinnar, en mega gjarnan koma fram. Mér þykir leitt, að svona hefir tekist til, og vildi því bæta úr eftir föngum. Besta leiðréttingu fá menn þó vitanlega með því að lesa bókina sjálfa. Með þökk fyrir birtinguna og vinsemd alla. Akureyri, 21. 11. 1990, Sverrir Pálsson. Föstudagur 23. nóvember 1990 - DAGUR - 13 S.A.A.N. Félagsvist Fyrsta kvöldið af þriggja kvölda keppni verður laug- ardaginn 24. nóvember kl. 20.30 í Húsi aldraðra. Nú verða kvöldverðlaun og heildarverðlaun. Allir velkomnir. Nefndin. Viðtalstímar bæjarfulltrúa Mánudaginn 12. nóvember 1990, kl. 20-22 verða bæjarfull- trúarnir, Sigurður J. Sigurðsson og Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem að- stæður leyfa. Síminn er 21000. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum fer fram á eignunum sjálfum, á neðangreindum tíma: Hafnarstræti 77,3. og 4. hæð, Akur- eyri, þingl. eign Jónu Ákadóttur og Rolf J. I. Svard, en talin eign Sigurð- ar Ákasonar, miðvikud. 28. nóv. '90, kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru: Húsnæðisstofnun ríkisins og Bæjarsjóður Akureyrar. Móasíða 1, íbúð 02-06, Akureyri, þingl. eign Kristjáns Gunnarssonar, miðvikud. 28. nóv., '90, kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl. Helgi Sigurðs- son hdl., Ásgeir Thoroddsen hdl., Benedikt Ólafsson hdl., Hróbjartur Jónatansson hdl., Sigríður Thorla- cíus hdl. og Ólafur Axelsson hrl. Móasíða 8 a, Akureyri, þingl. eign Hannesar Sigurðssonar og Guðrún- ar Hansen, miðvikud. 28. nóv., ’90, kl. 90, kl. 14.00. Uppboösbeiðendur eru: Halldór Þ. Birgisson hdl., Gunnar Sólnes hrl., Benedikt Ólafsson hdl., Húsnæðisstofnun ríkisins og Bæjarsjóður Akureyrar. Tjarnarlundur 14 i, Akureyri, þingl. eign Málfríðar Hannesdóttur, mið- vikud. 28. nóv„ '90, kl. 16.30. Uppboðsbeiðendur eru: Húsnæðisstofnun ríkisins, inn- heimtumaður ríkissjóðs, Gunnar Sólnes hrl. og Ólafur Birgir Árnason hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri ' ög'Dálvlk, Sýslumaðurinn í Eyjafjaröarsýslu. Hljómsveitin DANSFÉLAGAR Akureyri Danstónlist við flest tækifæri. Upplýsingar í símum 25010 og 33163. Lifandi tónlist er skemmtilegri tónlist AKUREYRARBÆR HundaeigencJur Akureyri Aukadagur í hundahreinsun á Akureyri árið 1990 verður í áhaldahúsi Gróðrarstöðvarinn- ar, laugardaginn 24.11.90. kl. 10-12. Þeir hundaeigendur sem ekki hafa komið með hunda sína til hreinsunar eru hvattir til að mæta. Heilbrigðisfulltrúi. iti Sambýlismaður minn og bróðir okkar, JÓHANN HALLMAR RAGNARSSON, frá Hallfríðarstaðakoti, Hörgárdal, Engjavegi 1, Selfossi, lést í Sjúkrahúsi Selfoss 19. nóvember. Jarðsett verður frá Selfosskirkju, mánudaginn 26. nóvember kl. 13.30. Halla Þorsteinsdóttir og systur hins látna. Hjartans þakkir til allra sem studdu okkur við andlát og útför, BJARNA LOFTSSONAR, Seljahlíð 3 f, Akureyri. Innilegar þakkir fyrir blóm og kransa. Sérstakar þakkir til séra Birgis Snæbjörnssonar og kórsins. Guð blessi ykkur öll. Fanney Jónsdóttlr og aðstandendur. I

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.