Dagur - 04.12.1990, Blaðsíða 1

Dagur - 04.12.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur Akureyri, þriðjudagur 4. desember 1990 233. tölublað Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 ^ • ........ i Sambýli fyrir aldraða á Akureyri: Byggingíidcild Akureyrar sér um verklegar framkvæmdir við Bakkahlíð 39. Ágúst Berg, deild- ararkitekt, var spurður um þessar framkvæmdir, hver réði því hvaða iðnaðarmenn væru ráðnir til starfa við slík verkefni hjá bænum, og eftir hverju væri farið í því sambandi. Ágúst segir að hér sé um lítið verkefni að ræða á mælikvarða Akureyrarbæjar. Fastráðnir tré- smiðir bæjarins hafi verið fengnir til að vinna trésmíðavinnuna, en auk þess hafi verið ráðnir aðrir iðnaðarmenn. „Við völdum þessa menn því þeir eru vanir að vinna saman og við höfum góða reynslu af samvinnu þeirra. Við hjá byggingadeildinni og tækni- deildinni ráðum því venjulega hvaða menn eru ráðnir til starfa hverju sinni, og auðvitað má endalaust deila um mannaráðn- ingar. Við reynum að dreifa þess- ari vinnu meðal iðnaðarmanna, en þegar harðnar á dalnum með atvinnu í bænum eru alltaf ein- hverjir óánægðir. Við getum ekki útvegað öllunt atvinnu sem vilja, en maður verður að fá að vinna sín störf, annað gengur ekki upp. Hér er urn svo lítið verk að ræða að ekki tekur því að hafa útboð, en í útboðum þarf að vinna út- boðsgögn og velja hönnuði til þeirra starfa,“ segir Ágúst Berg. EHB Tölvumiðstöðin Kópaskeri: Um 40 skólar hafa tengst tölvukerflnu Nú eru um 40 skólar komnir í samband við móðurtölvuna á Kópaskeri og eru samskipti gegnum hana því orðin æði lífleg. Eins og við greindum frá um daginn eru grunnskólarnir á Akureyri að tengjast þessu tölvuneti sem teygir sig víða um land og einnig til annarra landa. Að sögn Péturs Þorsteinsson- ar, skólastjóra grunnskólans á Kópaskeri, eru þeir skólar sem tengjast netinu flestir á Norð- austurlandi. Nokkrir eru á Aust- urlandi og einnig Suðurlandi og Reykjanesi. Útlit er fyrir að um 150 skólar verði komnir í samband um áramótin. Pétur sagði að markmiðið væri að fá sem flesta skóla og skyldar stofnanir á landinu til að tengjast tölvukerfinu. Tækjakostur hefur verið aukinn og geta mörg hundr- uð notendur haft samskipti gegn- um tölvukerfið. Að sögn Péturs eru samskiptin smám saman að þróast og aukast eftir því sem menn læra betur á tölvurnar. í fyrstu nota menn kerfið aðallega sem tölvutækt pósthús en möguleikarnir eru margir og tölvumiðstöðin er í stöðugri uppbyggingu. SS Sæplast hf.: Þessa dagana eru iðnaðarmenn að vinna við húsið Bakkahlíð 39 á Akureyri, en eins og kunnugt er þá festi bæjarfélagið kaup á eigninni til nota fyrir sambýli aldraðra. Reiknað er með að íbúarnir flytji inn fljótlega eftir næstu áramót, að sögn Björns Þórleifssonar, forstöðumanns öldrunarþjónustu bæjarins. Björn sagði í samtali við Dag að Helga Frímannsdóttir, nýráð- inn forstöðumaður sambýlisins, væri tekin til starfa, og meðal fyrstu verkefna hennar er að kaupa ýmis húsgögn og búnað. Helga mun síðan, ásamt þjónustu- hópi aldraðra, kanna hvaða ein- staklingar veljast til dvalar á sam- býlinu. Þessa dagana er unnið að því að prufukeyra sprautusteypuvélarnar hjá Sæplasti hf. Hvor vél vegur 35 tonn. Stefnt er að því að framleiðsla á trollkúlum verði komin á fullt fyrír jólin. Mynd: óþh Tilbúið fljótlega eftir áramót Sprautusteypuvélamar úr Plast einangrun komnar til Dalvíkur - stefnir í enn eitt metárið hjá Sæplasti hf. Þessa dagana er verið að prufukeyra sprautusteypuvélar fyrir plast hjá Sæplasti hf. á Dalvík, sem fluttar voru í síð- ustu viku úr húsakynnum Plasteinangrunar á Akureyri Krossanesverksmiðjan tók á móti 120 tonnum af loðnu úr Þórði Jónassyni EA á föstu- daginn. Þegar Dagur hafði samband við Jóhann Pétur Andersen framkvæmdastjóra í gær var verksmiðjan hráefnis- laus, og biðu menn eftir meiri loðnu. Loðnu hefur tvisvar verið land- að í Krossanesi á vertíðinni. Starfsmenn hafa unnið við að samstilla tæki og vélar, en slíkt er umtalsverð vinna í nýuppsettri og breyttri verksmiðju. Jóhann Pét- ur var spurður hvernig það verk gengi, og sagði hann að því væri ekki lokið. „Þetta er ekki orðið nægilega gott ennþá, við erum í vandræðum með stillinguna á kælingunni á reyknum, og erum að fara yfir það mál núna. Þetta er ekki í því horfi sem við viljum hafa það. En segja má að vinnan við verksmiðjuna hafi annars gengið áfallalaust, en smáhnökr- ar eru á þessu ennþá sem við erum að laga. Verksmiðjan vinn- ur ágætlega, og er komin upp undir þau afköst sem við var búist. Við eigum samt eftir að fínslípa þetta betur,“ segir hann. Aðfaranótt mánudags var smá- vegis kropp á loðnumiðunum milli Kolbeinseyjar og Grímseyj- til Dalvíkur. Ætlunin er að framleiða trollkúlur í þessum vélum, en að sögn Péturs Reimarssonar, framkvæmda- stjóra Sæplasts hf., kemur til greina að framleiða fleiri gerð- ar, en ekki nægilega mikið til að neinn bátur færi í land. Súlan EA fékk t.d. 150 tonn þá um nóttina. Lítið varð vart við loðnu í gærdag á þessum slóðum. EHB „Neytendasamtökin teija óhjá- kvæmilegt að þegar verði breytt um stefnu í landbúnað- armálum. Samtökin telja nauðsynlegt að núverandi kerfi verðstýringar, kvóta og verð- miðlunar verði afnumið. Bænd- um verði gert kleift að fram- leiða vörur sínar án framleiðslu- takmarkana á eigin ábyrgð og jafnframt verði gerður skýr greinarmunumr á framleiðslu og vinnslu búvara. Um leið verði tryggt með aðgerðum stjórnvalda að jarðnýting verði með þeim hætti að umhverfinu sé ekki hætta búin,“ segir í ályktun sem samþykkt var á ir vara í vélunum. í þessari viku er ætlunin að flytja fleiri vélar út á Dalvík og er stefnt að því að framleiðslan verði komin í fullan gang á nýj- um stað fyrir jól. Allur suðursal- ur Sæplasts hf. fer undir þessa nýju framleiðslu, en í norðursal verður framleiðsla á fiskikerun- um, sem hefur verið uppistaða í framleiðslu fyrirtækisins. Pétur segir að auk nýrrar fram- leiðslu í húsakynnum Sæplasts á Dalvík sé ætlunin að auka afköst í framleiðslu fiskikeranna. Steypt hafa verið um 75 ker á sólar- hring, en með bættum búnaði verður unnt að steypa ríflega 100 ker á sólarhring. Með flutningi á sprautusteypu- landbúnaðarráðstefnu Neyt- endasamtakanna um helgina. Samtökin árétta í yfirlýsingu sinni að oft hafi þau bent á að röng stjórnun í landbúnaði hafi leitt af sér allt of hátt verð á landbúnaðarvörum. Jafnframt hafi fjölmörgum bændum verið gert nær ókleift að lifa af því sem þeim sé heimilt að framleiða. Þá segir einnig: „Neytendur sætta sig ekki við það háa verð sem er á búvörum. Af þeim sökum er stefnubreyting nauðsynleg. Neytendasamtökin benda jafnframt á að stefnu- breyting í landbúnaði er ekki síð- ur mikilvæg til að auðvelda ís- vélunum og öðrum tækjabúnaði frá Akureyri til Dalvíkur verða húsakynni Sæplasts hf. þar fullnýtt. Raunar hefur fyrirtækið haft til umráða geymslurými í húsi Blika hf. Pétur segir að stefni í metár hjá Sæplasti hf. Hann áætlar að á þessu ári verði framleidd öðru hvoru mej>in við 20 þúsund fiskikör. A bilinu 40 til 50% þeirrar framleiðslu fara á erlend- an markað og hefur hlutur hans í framleiðslu Sæplasts hf. aukist ár frá ári. Flutningur á sprautusteypuvél- unum til Dalvíkur gekk mjög vel, að sögn Péturs, þrátt fyrir að hvor vél vigti um 35 tonn. óþh lenskum landbúnaði að mæta þeirri auknu samkeppni sem alþjóðlegir viðskiptasamningar munu leiða til á næstu árum. Neytendasamtökjin telja mikil- vægt að sú samkeppni verði á jafnréttisgrundvelli. Markmiðið með kröfunni um stefnubreytingu í landbúnaðar- málum er tvíþætt, að lækka verð til neytenda og að gera bændum kleift að lifa af framleiðslu sinni. Neytendasamtökin lýsa sig reiðu- búin og hvetja til samstarfs neyt- enda, bænda og annarra framleið- enda, aðila vinnumarkaðarins og stjómvalda, til að ná þessum markmiðum.“ JÓH| Beðið eftir loðnu í Krossanesi Landbúnaðarráðstefna Neytendasamtakanna: „Neytendur sætla sig ekki við það háa verð sem er á búvörum"

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.