Dagur - 04.12.1990, Blaðsíða 10

Dagur - 04.12.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 4. desember 1990 íþróttir Heppni Man. Utd. gegn Everton - Crystal Palace hafði sætaskipti við Tottenham Eftir fjöruga markaleiki í deildabikarnum í vikunni fengu áhorfendur á Englandi vænan skammt af því sama í deildaleikjum laugardagsins. Það er því ekki að undra þótt aðsókn að leikjum sé góð og það er ekki allt enska landslið- inu að þakka frá í sumar á Ital- íu. Ensku liðin leika nú mun opnari og skemmtilegri leik en oft áður og það kunna áhorf- endur vel að meta. En þá eru það leikir laugar- dagsins. Við fengum að sjá leik Everton og Man. Utd. í beinni útsendingu í Sjónvarpinu og má því fara fljótt yfir sögu þar. Eftir stórsigur Utd. gegn Arsenal í vikunni í deildabikarnum bjuggust margir við öruggum sigri liðsins gegn Everton, en það gekk ekki átaka- laust. Leikurinn var mjög fjörug- ur og spennandi, en lið Everton hafði yfirburði í fyrri hálfleik án þess þó að skapa sér nógu góð færi. Tony Cottee kom þó bolt- anum í mark Utd. í lok fyrri hálf- leiks, en markið var dæmt af þar sem Mike Newell var talinn hafa brotið á Les Sealey markverði Utd. Everton sótti mjög í upp- hafi síðari hálfleiks án árangurs og síðan fékk liðið á sig mark eft- ir 19 mín. Skyndisókn Utd., Mark Hughes sendi til Lee Sharpe sem óvaldaður skoraði af öryggi sigurmark Utd. Sharpe hefur því gert það gott í vikunni því hann skoraði þrjú mörk gegn Arsenal. Lið Everton var mjög óheppið í leiknum og hefði hæg- lega getað unnið öruggan sigur með smá heppni. Hið sterka lið Tottenham tap- aði nokkuð óvænt gegn Chelsea í leik sem tafðist vegna umferðar- óhapps sem leikmenn Tottenham lentu í. Lið Chelsea nýtti sér vel fjarveru Steve Sedgley úr vörn Tottenham vegna meiðsla og hafði yfir 2:0 í hléi. Kerry Dixon í upphafi leiks og John Bumstead í lok hálfleiksins skoruðu fyrir Chelsea. Dave Tuttle lék sinn fyrsta deildarleik fyrir Totten- ham, en hann fór útaf í hléi og Mitchell Thomas lék í stöðu mið- varðar í mjög svo fjörugum síðari hálfleik. Paul Gascoigne lagaði stöðuna fyrir Tottenham með marki beint úr aukaspyrnu er 35 mín. voru til leiksloka og allt gat enn gerst. En strax á eftir bætti Gordon Durie þriðja marki Chelsea við með skoti sem fór af varnarmanni í netið. Gary Linek- er fiskaði síðan vítaspyrnu fyrir Úrslit 1. deild Aston Vllla-Sheffield Utd. 2:1 Chelsea-Tottenham 3:2 Crystal Palace-Coventry 2:1 Everton-Manchester Utd. 0:1 Leeds Utd.-Southampton 2:1 Manchester City-Q.P.R. 2:1 Norwich-Wimbledon 0:4 Nottingham For.-Luton 2:2 Sunderland-Derby 1:2 Arsenal-Liverpool 3:0 2. deild Bristol City-Charlton 0:1 Leicester-Newcastle 5:4 Middlesbrough-Hull City 3:0 Millwall-Bristul Rovers 1:1 Oldham-Brighton 6:1 Port Vale-Plymouth 5:1 Portsmouth-Oxford 1:1 Shcffield Wed.-Notts Country 2:2 Swindon-Blackburn 1:1 Watford-Barnsley 0:0 West Ham-W.B.A. 3:1 Wolves-Ipswich 2:2 Tottenham, en hann tók hana sjálfur og brenndi af. Hann brenndi síðan af úr dauðafæri áður en honum tókst að skora er 8 spennandi mín. voru eftir. En leikmönnum Chelsea tókst að halda út til loka og sigra í leikn- um 3:2. Crystal Palace nýtti sér tap Tott- enham og skaust upp í þriðja sæt- ið með 2:1 sigri gegn Coventry. Palace hefur leikið vel að undan- förnu og gerði það einnig á Iaug- ardag gegn seigu liði Coventry. Mark Bright um miðjan fyrri hálfleik og Andy Gray 5 mín. fyr- ir leikslok skoruðu mörk Palace. Bright eftir aukaspyrnu frá Eddie McGoldrick og Gray með góðu skoti eftir að hafa leikið vörn Coventry grátt. Leikmenn Coventry höfðu þó ekki heppn- ina með sér, Cyrille Regis átti skot í stöng og Nigel Martyn í marki Palace varði þrfvegis mjög vel. Regis náði þó að laga aðeins stöðuna fyrir Coventry með marki á síðustu mín., en það var of seint fyrir liðið sem missti David Speedie útaf 9 mín. fyrir leikslok með rautt spjald. Man. City vann sinn fyrsta sig- ur síðan Peter Reid tók við stjórn liðsins er liðið lagði Q.P.R. að velli 0:1. en Reid lék með Q.P.R. áður en hann fór til City. Þetta var sjötti tapleikur Q.P.R. í röð í deildinni, liðið er í vandræðum vegna meiðsla og hefði getað tap- að leiknum með meiri mun. Niall Quinn skoraði bæði mörk City í leiknum og átti vörn Q.P.R. í mestu erfiðleikum með hann í leiknum. Andy Sinton skoraði eina mark Q.P.R. á síðustu mín. leiksins, en sigur City var mjög verðskuldaður og aldrei í hættu. Aston Villa átti í basli með Á sunnudag mættust tvö efstu lið 1. deildar, Arsenal og Liverpool á Highbury í London. Þarna varð eitthvað undan að láta því bæði lið voru taplaus í 1. deildinni í vetur. Og það varð Liverpool sem lét undan, heimamenn voru ákveðnari, sigruðu 3:0 og eru nú aðeins þrem stigum á eftir botnlið Sheffield Utd. sem sakn- aði 7 fastamanna í leiknum, en lék af miklum krafti þrátt fyrir það. David Platt náði forystu fyr- ir Villa með skalla eftir horn- spyrnu snemma í leiknum, en þrátt fyrir góðan leik Platt og Gordon Cowans neituðu leik- menn Sheffield að gefast upp og náðu betri tökum á leiknum. Bri- an Deane miðherji Sheffield var stöðugt á ferðinni og Vinnie Jon- es færðist í aukana eftir því sem leið á leikinn. Það var Jones sem náði að jafna fyrir Sheffield með skalla rétt eftir hlé og mín. síðar varði Nigel Spink í marki Villa frábærlega frá Jones. Sigurmark Villa kom 10 mín. fyrir leikslok þó að liðið ætti það ekki skilið. Ian Ormondroyd sendi þá bakvörðinn Chris Price í gegn með góðri sendingu og Price átti ekki í vandræðum með að skora. Sheff. Utd. hefur því enn ekki unnið leik í 1. deild. Wimbledon heldur áfram að koma á óvart og sigraði nú Nor- wich 4:0 á útivelli og voru öll mörkin skoruð í fyrri hálfleik. John Fashanu miðherji Wimble- don er alinn upp í Norwich og kann vel við sig þar. Strax eftir 26 sek. náði hann boltanum af Paul Blades í vörn Norwich og sendi hann í netið. Leikmenn Norwich náðu sér ekki af áfallinu og vörn liðsins var mjög slök. Warren Barton, John Scales og Fashanu aftur nýttu tækifæri sín vel og bættu við mörkum fyrir Wimble- don. Baulað var á leikmenn heimaliðsins í leikslok, en Nor- wich náði aldrei að ógna marki Wimbledon í síðari hálfleiknum. Nottingham For. varð að láta sér nægja 2:2 jafntefli á heima- velli gegn Luton. Leikmenn For- Liverpool. Þessi sanngjarni sigur Arsenal hleypir nýju lífi í deildina og er fagnað af flestum öðrum en fylg- ismönnum L.iverpool. En margir vilja kenna Kenny Dalglish fram- kvæmdastjóra Liverpool um hvernig fór. Val hans í liðið hefur oft vakið undrun, en hann hefur þó getað réttlætt það með hag- est hófu leikinn nteð miklum lát- um og virtust ætla að ganga frá gestunum strax í upphafi. Franz Carr náði forystu fyrir Forest á 7. mín., en Daninn Lars Elstrup jafnaði fyrir Luton með glæsilegu marki aðeins 8 mín. síðar. Elstrup náði síðan forystu fyrir Luton með enn betra marki á fyrstu mín. síðari hálfleiks. Nigel Clough jafnaði í 2:2 fyrir Forest með góðu skallamarki á 75. mín. og lið Forest náði fyrri yfirburð- um í leiknunt. Leikmenn Luton voru þó ekkert á því að tapa leiknum og tókst að hanga á jafn- teflinu. Fyrstu 10 mín. í leik Leeds Utd. og Southampton á Elland Road voru viðburðaríkar, Chris Fairclough og Carl Shutt skoruðu fyrir Leeds Utd. en hinum ntegin varði John Lukic markvörður Leeds Utd. þrívegis mjög vel úr dauðafærum. Leeds Utd. hafði 2:0 yfir eftir fjörugan fyrri hálf- leik, en munurinn þó of mikill. Gary McAUister fór útaf í hléi meiddur hjá Leeds Utd. og hafði það slæm áhrif á liðið, ekki síst Gordon Strachan samherja hans á miðjunni. Southampton náði betri tökum á leiknum og Paul Rideout lagaði stöðuna fyrir liðið með skalla eftir sendingu frá Matthew Le Tissier. Það kom í hlut Lukic að koma í veg fyrir að Southampton jafnaði leikinn, en hann átti stórleik í marki Leeds Utd. að þessu sinni. Sunderland og Derby mættust í fallbaráttuleik þar sem mikið var í húfi. Dean Saunders náði forystu fyrir Derby í fyrri hálfleik og Mick Harford bætti öðru marki liðsins við í þeim síðari. Gordon Armstrong skoraði eina stæðum úrslitum, en ekki nú. Peter Beardsley, Ray Hought- on og Steve McMahon voru ekki í byrjunarliðinu fyrir leikinn, McMahon að vísu lítillega meiddur. Dagskipun Dalglish var greinilega varnarleikur til að ná jafntefli og liðið gaf Arsenal eftir frumkvæðið í leiknum. Eftir 20 mín. hafði Paul Merson náð for- ystu fyrir Arsenal er hann kom boltanum í netið hjá Liverpool í annarri tilraun. Sjálfstraust leikmanna Arsenal jókst, þeir réðu gangi leiksins og fengu víta- spyrnu á 2. mín. síðari hálfleiks er Anders Limpar var felldur af Gary Gillespie. Lee Dixon var ekki í vandræðum með að skora úr vítaspyrnunni fyrir Arsenal. Enn hikaði Dalglish við að gera breytingar á liði Liverpool þar sem Ian Rush var einn frammi. Hann sendi þó loks Houghton inn á og síðan Ronnie Rosenthal og leikur liðsins batnaði til muna, en lánið vildi þó ekki ganga þeim á hönd. Tveim mín. fyrir leikslok bætti Alan Smith síðan við þriðja marki Arsenal með föstu skoti framhjá Bruce Grobbelaar í marki Liverpool. Þessi sigur Arsenal er athygl- isverður eftir að liðið var burstað 6:2 af Man. Utd. aðeins nokkrum dögum áður, en best gæti ég trú- að því að einhver saklaus lið muni verða fyrir barðinu á Liverpool á næstunni, sært ljón er mun grimmara en ósært. Þ.L.A. rnark Sunderland á síðustu mín. leiksins, en liðið hafði sótt af miklum krafti eftir síðara mark Derby. Sóknarmenn Sunderland fóru illa með færin og Peter Shilt- on í marki Derby varði m.a. víta- spyrnu frá Peter Davenport. Sig- ur Derby byggðist á sterkri vörn og góðri markvörslu Shilton. 2. deild • West Ham hefur forystu í 2. deild, liðið sigraði W.B.A. 3:1 með mörkunt George Parris, Trevor Morley og Frank Mc- Avennie. • Oldham er í öðru sæti eftir 6:1 sigur á Brighton, lan Marshall tvö, Nick Henry, Neil Adams, Neil Redfearn og Andy Ritchie skoruðu mörkin. • Bernie Slaven var meðal markaskorara hjá Middles- brough sem er komið í þriðja sæti eftir 3:0 sigur á Hull City. • Sheff. Wed. er með jafnmörg stig og Middlesbrough, en liðið gerði aðeins 2:2 jafntefli heima gegn Notts County. John Sheri- dan víti og David Hirst gerðu mörk Sheffield, en Mark Draper víti og Kevin Bartlett svöruðu fyrir County. • Steve Bull skoraði bæði mörk Wolves gegn Ipswich. • Leicester sigraði Newcastle 5:4, David Kelly skoraði fjögur mörk fyrir Leicester og Terry Fenwick eitt. Mick Quinn gerði þrjú marka Newcastle og Liarn O’Brien það fjórða. • Duncan Shearer kont Swindon yfir gegn Blackburn, en gamla kempan Frank Stapleton jafnaði fyrir Blackburn. Þ.L.A. Staðan 1. deild Liverpool 15 12-2- 1 32:12 38 Arsenal 15 11-4- 0 30: 6 35 Crystal Palace 15 8-6- 1 24:15 30 Tottenham 15 8-5- 2 27:14 29 Leeds Utd. 15 7-5- 3 25:16 26 Manchester City 15 5-8- 2 24:21 23 Manchester Uld. 15 7-3- 5 19:16 23 Wimbledon 15 5-6- 4 22:20 21 Chelsea 15 5-5- 5 21:24 20 Luton 15 54- 6 18:25 19 Nottingham For. 15 4-6- 5 20:21 18 Aston Villa 15 4-5- 6 16:17 17 Norwich 15 5-2- 8 18:26 17 Derbv 15 4-4- 7 12:22 16 Southampton 15 4-3- 8 20:28 15 Sunderland 15 3-5- 7 16:21 14 Coventry 15 34- 8 13:19 13 Everton 15 2-6- 7 18:21 12 Q.P.R. 15 3-3- 9 20:29 12 Sheftield Utd. 15 0-4-11 7:28 4 2. deild Wcst Ham 19 12-7- 0 32:12 43 Oldham 19 12-5- 2 38:18 41 Sheffield Wed. 18 10-6- 2 37:19 36 Middlesbrough 19 11-3- 5 36:18 36 Wolves 19 7-8- 4 29:20 29 Millwall 19 7-7- 5 30:22 28 Notts County 19 7-6- 6 27:24 27 Barnslcy 19 6-8- 5 28:21 26 Bristol Rovers 18 74- 7 25:23 25 Port Vaie 19 7-4- 8 30:30 25 Ipswich 19 6-7- 6 24:29 25 Brighton 18 74- 7 29:37 25 Bristol City 17 7-3- 7 26:28 24 Blackburn 19 64- 9 23:27 22 Plymouth 19 5-7- 7 22:28 22 Newcastle 18 5-6- 7 20:22 21 W.B.A. 19 5-6- 8 24:27 21 Swindon 19 5-6- 8 24:29 21 Leicester 19 6-3-10 29:45 21 Chariton 19 5-5- 9 24:28 20 Portsmouth 19 5-5- 9 23:32 20 Oxford 19 4-7- 8 29:37 19 Hull City 19 4-6- 9 29:46 18 Watford 18 2-5-11 13:27 11 Paul Merson, Arsenal, og Glen Hysen, Liverpool, kljást um boltann en Merson skoraði fyrsta mark Arsenal í leiknum. Mistök Dalglish og fyrsta tap Iiverpool í 1. deild

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.