Dagur - 08.12.1990, Side 3

Dagur - 08.12.1990, Side 3
 Laugardagur 8. desember 1990 - DAGUR - 3 Tindar, meðferðarheimili fyrir unglinga í vímuefnavanda: „Um 10 ungmeimi af Norðurlandi þurfa hjálp árlega“ - segir Ingjaldur Arnþórsson, ráðgjafi SÁÁ-N á Akureyri Vímuefnavandi unglinga hefur farið vaxandi á undanförnum árum. Er nú svo komið að stór hópur unglinga á aldrinum 13- 18 ára er nánast í daglegri neyslu, er ýmist dottinn út úr skóla eða stendur þar mjög höllum fæti, tengsl við fjöl- skyldu ýmist rofin með öllu eða mjög slæm. Þannig mætti lengi telja ýmsar alvarlegar hliðarverkanir mikillar neyslu. Þessi hópur skiptir a.m.k. tug- um hér á landi. Líf þessara ungmenna er undirlagt af vímu- efnaneyslu, sem í allmörgum tilfellum leiðir til dauða eða varanlegs tjóns. Um mitt ár 1989 ákváðu stjórnvöld að bregðast við þessum vanda og fólu Unglingaheimili ríkisins að koma á fót meðferðarheimili fyrir unga vímuefnaneytendur. Meðferðarheimilið verður opnað að Tindum á Kjalarnesi strax í byrjun næsta árs að sögn Ingjalds Arnþórssonar, ráðgjafa hjá SÁÁ-N á Akur- eyri. í febrúar sl. var ráðinn fjögurra manna starfshópur við Unglinga- heimili ríkisins til að vinna að undirbúningi að rekstri meðferð- arheimilis fyrir unga vímuefna- neytendur. Aðalfundur íþróttafélagsins Völsungs: Starfsstjóm kjörín og boðað til nýs aðalfimdar Aðalfundur íþróttafélagsins Völsungs á Húsavík var hald- inn sl. fímmtudagskvöld. Á fundinum var kjörin starfsstjóm sem ganga mun í að endur- skipuleggja rekstur félagsins og ganga frá samningum við Húsavíkurbæ og skila síðan af sér á framhaldsaðalfundi 28. feb. nk. Á fundinum reyndust menn ekki tilbúnir til að gefa kost á sér til stjórnunarstarfa í félaginu við núverandi kringumstæður. í stjórn félagsins voru enn: Helga Kristinsdóttir, sem flutti skýrslu formanns á fundinum, Hlífar Karlsson, Birgir Steingrímsson og Garðar Jónasson. Þau voru öll kjörin í starfsstjórnina og síðan var hverju hinna átta starfandi ráða falið að kjósa fulltrúa í stjórnina að auki. Ný lög voru samþykkt á fund- inum og taka þau gildi eftir fram- haldsaðalfundinn, markmiðið með lagabreytingunni var að færa lögin í nútímalegra horf. Samningar félagsins við Húsa- vi'kurbæ voru ekki ræddir á fund- inum en starfsstjórninni fengið umboð til að ganga frá þeim. Að sögn Hlífars Karlssonar var ekk- ert ýkja slæmt hljóð í fundar- mönnum en 30-40 félagar mættu á fundinn. IM Verslanir á Akureyri opnar kl. 10-18 í dag: Jólaverslunin að heíjast fyrir alvöru - segir formaður Kaupmannafélags Akureyrar Verslanir á Akureyri verða opnar í dag frá kl. 10 til 18. Ragnar Sverrisson, formaður Kaupmannafélags Akureyrar, segir næsta víst að dagurinn í dag marki upphaf hinnar eigin- legu jólaverslunar og ef að lík- um lætur verði stígandi í henni þegar nær dragi jólum. Laugardaginn 15. desember veröa verslanir opnar kl. 10-22, fimmtudaginn 20. verður opið frá 9 til 22, föstudaginn 21. desem- ber kl. 9 til 22, laugardaginn 22. desember verður opið kl. 9 til 23. Á aðfangadag verður síðan opið frá kl. 9 til 12. Ragnar segir að reynslan sýni að jólaverslunin sé hvað mest á laugardögum og því megi reikna með að fjöldi fólks leggi leið sína í verslanir í dag, ekki síst ef veðr- ið verði skaplegt. óþh Nýr þáttur í helgarblaði: Hinn seinheppni Spói sprettur Ný teiknimyndasyrpa hefur göngu sína í helgarblaðinu í dag og nefnist hún Spói sprettur, í höfuðið á aðalsögu- hetjunni. Spói verður fastur gestur í helgarblaðinu og ætti hann að höfða til lesenda á öll- um aldri. Spói sprettur er skemmtilega mislukkaður íþróttamaður en hann skortir ekki áhugann, það er víst. Með viljann að vopni hellir hann sér út í hvers kyns íþróttabrölt með afleiðingum sem lesendur eiga eftir að sjá. Spói þessi býr í Sprettlandi og þar eru allir sama markinu brenndir; yfirmáta áhugasamir um íþróttir en gjörsamlega von- lausir þegar á hólminn er komið. Fylgist með frá byrjun. SS Fyrsta verkefni starfshópsins var 12 vikna náms- og kynnisferð til Minnesota í Bandaríkjunum á meðferðarstofnun sem nefnist Fairview Deaconess. Stofnun þessi hefur í 15 ár sérhæft sig í meðferð unglinga í vímucfna- vanda og er ein sú virtasta á sínu sviði í Bandaríkjunum. Milli- göngu um þessa ferð hafði Dr. Harvey Milkmann, prófessor í sálarfræði við Denver háskóla, en hann er jafnframt ráðgjafi varðandi mótun meðferðarstefnu að Tindum. Nýlega voru ráðnir 10 starfs- menn til viðbótar þeim fjórum, scm áður er getið. I þessum hópi er einn læknir í 20% starfi. í sumar og haust hafa staðið yfir gagnlegar endurbætur á húsnæö- inu að Tinduni og allt verður til- búið í byrjun næsta árs. Meðferðarheimilið verður ætl- að 12-14 unglingum á aldrinum 13-18 ára, sem hafa vegna vímu- efnaneyslu misst stjórn á lífi sínu. Tindar verða reknir eftir fyrir- mynd Fairview Deaconess, sem hefur að leiðarljósi 12 spora kerfi í anda A.A.-samtakanna. Meðfcrðin skiptist í 4 stig: I. Móttaka og greining: Með- ferðarþörfin er metin og unn- ið að því að gera unglinginn móttækilegan fyrir meðferð. Þetta undirbúningsstarf getur tekið 1-2 vikur. 2. Meðferð: Unglingnum er hjálpað að skilja og viður- kenna vanmátt sinn gagnvart vímuefnum og að líf hans sé orðið óviðráðanlegt vegna vímuefnaneyslunnar. Megináhersla er lögð á að hjálpa unglingnum að sjá afleiðingar neyslu sinnar og glæða hjá honum skilning á því að hann sjálfur beri ábyrgð á árangri meðferðarinnar. Með- ferðin byggir á hópvinnu og ein- staklingsviðtöium og mun taka að jafnaði 6-10 vikur. 3. Fjölskyldumeðferð: Meðan unglingurinn er innritaður cr fjölskyldu hans boðið upp á mcðfcrð sem felst í fræðslu og stuðningi í 5 daga samfleytt. Einnig verður fjölskyldunni boðið upp á fyrirlestra og við- töl fyrir og eftir fjölskylduvik- una. 4. Eftirmeðferð: 3-6 mánuðum eftir útskrift sækir unglingur- inn hópmeðferð og fyrirlestra. Fyrst til að byrja með mun hann mæta daglega, en síðan fer skiptunum fækkandi. „Við fögnum þessum áfanga mjög. Af Norðurlandi leita sér hjálpar árlega urn 10 ungmenni á aídrinum 15-20 ára. Úrræði fyrir þennan aldurshóp hefur vantað og Tindar eru skref í rétta átt," sagði Ingjaldur Arnþórsson, ráð- gjafi hjá SÁÁ-N á Akureyri. ój Smábátafélagið Skalli: Veiðiheimildimar A fundi í smábátafélaginu Skalla á Norðurlandi vestra sl. miðvikudag er þeirri áskorun beint til stjórnvalda að leiðrétta úthlutaðar veiðiheimildir til smábáta. Áskorun fundarins er svo- hljóðandi: „Fundur í smábáta- féíaginu Skalla Norðurlandi vcstra 5.12. 1990 skorar á stjórnvöld að leita allra leiða til leiðréttinga á veiðihcimild- um hjá þeirn smábáta- eigendum sem fara sé.rstaklega illa út úr þeirri úthlutun sem framkvæmd hefur veriö. Fundurinn bendir á að sjáv- arkuldi hcfur valdið sáralítilli fiskigcngd á grunnslóð fyrir Norðurlandi viömiöunarárin." óþh Ljósritunarvélar ¥ Bókabúðin Edda Hafnarstraeti 100 Akureyri Simi 24334 Útgefandi: HLUTABREFASALA UIF* Útgerðarfélag Akureyringa hf. Nafnvirði hlutabréfa: 33.418.100 krónur. Sölugengi: Fyrsti söludagur: Aðalsöluaðilar: 3,6. 10. desember 1990. Kaupþing hf., Kringlunni 5, 103 Reykjavík, sími (91) 68 90 80. Kaupþing Norðurlands hf., Ráðhústorgi 1, 600 Akureyri, sími (96) 2 47 00. Stjórn Útgerðarfélags Akureyringa hf. hefur ákveðið, að hámark þess hlutafjár sem ein- stakir kaupendur geta skráð sig fyrir verði 1.000.000 krónur að nafnverði. Þær óskir sem berast dagana 10.-14. desember verða afgreiddar í einu lagi þann 17. desember. Ef samanlagðar óskir um hlutabréfakaup á þessu tímabili nema hærri fjárhæð en til sölu er, verður kauprétti úthlutað sem hér segir: Fyrst verður öllum umsækjendum úthlutað kauprétti að hlutum fyrir 35.000 krónur að nafnverði (eða umbeðna upphæð, ef hún er lægri). Síðan verður eftirstöðvunum úthlutað hlutfallslega til allra þeirra sem óska eftir hærri upphæð en 35.000 krónum að nafnverði. Tilkynning um kauprétt, ásamt gíróseðli, verður send hverjum kaupanda þann 17. des- ember. Óskir sem berast eftir 14. desember verða því aðeins afgreiddar, að enn sé óráðstafað einhverjum hlutabréfum. Þær verða afgreiddar í þeirri röð sem þær berast. Upplýsingar: Upplýsingar um rekstur og afkomu félagsins liggja frammi hjá aðalsöluaðilum. Umsjón með sölu: KAUPþlNG HF iMggilt i en)bréfafyrirt(rii

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.