Dagur - 08.12.1990, Side 8
8 - DAGUR - Laugardagur 8. desember 1990
Snorri Sturluson „tæknitröll“.
Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki:
RÁS FÁS orðin að
alvöruútvarpsstöð
Fjölmiðlar eru stór þáttur af daglegu Hfi fólks nútímans. Þar
eru meðtaldar allar þær útvarpsstöðvar sem sprottið hafa
upp frá því útvarpsrekstur var gefínn frjáls. Allt verður þetta
að teljast til menningar, því menning er flest það er sið-
menntað samfélag tekur sér fyrir hendur.
Enn ein útvarpsstöðin hóf
útsendingar sínar fyrir skömmu.
Stórhuga nemendur í Fjölbrauta-
skólanum á Sauðárkróki hafa
ráðist í það að útvarpa efni um
utanverðan Skagafjörð nokkur
kvöld í viku. Á efstu hæð húss
KS við Ártorg á Sauðárkróki, þar
sem Fjölbrautaskólinn leigir
kennsluhúsnæði, er lx'til hljóð-
stofa og tækjabúnaður sem til
þarf fyrir útsendingar.
Fjárfest í sendi
„Góðir áheyrendur, þá eru
útsendingar hjá RÁS FÁS form-
lega hafnar."
Svona hóf Einar E. Einarsson,
útvarpsstjóri hinnar nýju
stöðvar, fyrstu útsendinguna að
kvöldi fimmtudagsins 29. nóv-
ember sl. RÁS FÁS er samt í
raun og veru ekki ný útvarpsstöð,
FYRIR ■ ALLA- FJÖLSKYLDUNA
« Stinga ekki
•Úr fínustu merinóull
• Mjög slitsterk
• Má þvo við 60°C
111EYFJÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
því á svokölluðum „opnum
dögum" í skólanum, allt frá því
1986, hefur verið starfrækt
útvarp. Pá hefur verið dagskrá
allan daginn í allt að því viku.
Munurinn er sá að hingað til hef-
ur alltaf þurft að leigja útvarps-
sendi af Pósti og síma, en sl. vor
var fjárfest í fullkomnum sendi.
En hvernig var undirbúningi fyrir
upphaf útsendinga háttað?
„Undirbúningur hófst sl. vetur
þegar sendirinn var pantaður. Þá
voru einnig keypt hljómflutnings-
tæki eins og geislaspilari, plötu-
spilari og segulband. í suma
kom svo sendirinn til landsins, er
hann var keyptur frá Ítalíu, og þá
leigðum við hann á Landsmót
hestamanna þar sem hann var
notaður til útsendinga á Útvarp
Vindheimamelar. í haust þegar
við ætluðum að fara að byrja hér
í skólanum vildu síðan Póstur og
sími fá sendinn í eftirlit suður til
Reykjavíkur. Par var hann í einn
og hálfan mánuð og tafði það
mikið fyrir því að við gætum
byrjað. Norður kom hann þó að
lokum og undirbúningur fyrir
alvöru hófst ekki fyrir nema
u.þ.b. tíu dögum,“ segir Einar
útvarpsstjóri.
Bylgjan með í dæminu
- Er ekki dýrt dæmi að setja á
stofn útvarpsstöð?
„Stofnbúnaðurinn er keyptur
af nemendafélaginu með styrk
frá skólanum og öðrum. Eignir
útvarpsins eru komnar yfir 800
þúsund krónur og það er því
óhætt að segja að þetta sé mjög
dýrt fyrirtæki, því að endalaust er
hægt að bæta við tækjakostinn."
- Hvernig er það með tóniist-
ina, verðið þið að kaupa allar
hljómplötur og diska sem ykkur
vantar í safn útvarpsins?
„Við fáum allt íslenskt efni
gefins frá útgáfufyrirtækjunum
Steinari hf. og Skífunni. Erlent
efni kaupum við einnig frá þeim á
kostnaðarverði. Hugulsamt fólk
hefur einnig gefið okkur hljóm-
plötur og m.a. gaf einn nemandi
skólans útvar.pinu 120 plötur um
Jón F. Hjartarson skóla-
meistari í hljóðstofu.
daginn. Hótel Áning veitti okkur
síðan styrk að andvirði tíu geisla-
diska.“
Útvarpsstöðin Bylgjan hefur
samið við RÁS FÁS um afnot af
sendinum þegar nemendur eru
ekki með útsendingar. Ætlunin
var að á miðnætti þess 29. nóv.
hæfust útsendingar hennar í
Skagafirði en eitthvað fór öðru-
vísi en ætlað var.
„Útsendingar Bylgjunnar átti
að taka í loftlínu frá Akureyri, en
það gekk ekki upp vegna tækni-
örðugleika. E.t.v. verður hún
tekin í ljósleiðara frá Reykjavík,
en öruggt er að Bylgjan verður
með útsendingar í gegnum okkar
sendi á okkar senditíðni áður en
langt um líður.“
- Hver er framtíð þessarar
útvarpsstöðvar?
„Stefnt er að fjögurra tíma
útsendingu tvö til þrjú kvöld í
viku til að byrja með. Það sem
ræður öllu er samt áhugi nem-
enda á að starfa við útvarpið. Á
opnu dögunum verður síðan
dagskrá allan daginn eins og ver-
ið hefur frá ’86. í sambandi við
dagskrána er öruggt að engum
verður hleypt að með einhvern
hálfvitagang og við ætlum að
reyna að halda þær reglur að
minnst 40% efnis verði talað
mál.“
- Munu aðrir en skólafólk
Fjölbrautaskólans komast að
með efni og þætti á RÁS FÁS?
„Um það hefur ekki verið tek-
in endanleg ákvörðun, en við mig
hafa talað aðilar sem ekki eru í
skólanum og spurst fyrir um
hvernig þessu verði háttað.
Áhugi hjá fleirum en nemendum
er því fyrir að vera með útvarps-
þætti og ég reikna frekar með að
það verði boðið upp á slíkt, þó að
ákvörðun um það fiafi ekki verið
tekin enn.“
Álit skólameistara
- Verður þetta þá alvöruútvarps-
stöð?
„Ja, hvað er alvöruútvarps-
stöð?“ sagði Einar E. Einarsson
útvarpsstjóri.
Þetta fyrsta útsendingarkvöld
RÁSAR FÁS með eigin sendi
fengu þáttagerðarmenn m.a. Jón
F. Hjartarson, skólameistara, til að
segja nokkur orð í tilefni útsend-
ingarinnar. Hvað finnst honum
um þennan rekstur?
„Mér líst mætavel á þetta
uppátæki nemenda og tel það
þroskavænlegt viðfangsefni fyrir
þá að annast eitthvað sem um
þarf að hugsa frá upphafi til
enda. Það er ákveðin reynsla að
fá hugmynd og koma henni síðan
í framkvæmd. Ég er sannfærður
um að þetta mun hugsanlega
gagnast nemendum í öðrum við-
fangsefnum, jafnvel óskyldum, að
hafa haft áræði til að takast á við
útvarpsflutning, þess utan að
vera áhugavekjandi fyrir nem-
endur að leggja stund á fjöl-
miðlafræðina," sagði Jón.
Einar E. Einarsson útvarpsstjóri
ávarpar hlustendur.
- Hvað með kennslu í fjöl-
miðlun við skólann?
„Við vorum með einstaka
áfanga hér á árum áður í fjöl-
miðlafræði, en það hafa einungis
verið nokkurs konar stuðnings-
áfangar við nemendur á mála-
braut. Vel getur komið til greina
að stofnun þessa útvarps verði til
þess að við bjóðum eitthvað við-
líka á næstunni."
Mjór er mikils vísir
- Telurðu framtíð í þessu
útvarpi?
„Ég minnist þess að þegar við
vorum að stofna fréttablaðið
Feyki fyrir mörgum árum, var
hugmynd um útvarpsrekstur
fleygt fram, en þótti þá ekki vera
heppileg. Nú er þetta farið að
spíra, en enn er langt í land með
að þetta verði annað en mjór
vísir. Við skulum samt muna að
mjór er mikils vísir.“
- Á skólameistari einhver orð
til hinna fullhuga fjölmiðlamanna
FÁS?
„Ekki nema e.t.v. að aðgæslu
er þörf í öllum efnisflutningi.
Einliæfni í efnisvali má ekki vera,
heldur þarf breiddin að vera fyrir
hendi,“ sagði Jón F. Hjartarson,
skólameistari að lokum.
Fjölmiðlamenn
framtíðarinnar
Að sögn Einars var hart deilt um
hvaða lag ætti að vera leikið á
undan öðrum lögum á sögulegri
stundu sem opnunarútsendingu.
Að lokum var ákveðið að það
yrði eitthvað sem hæfði stað og
jafnvel stund og lagið Skaga-
fjörður í flutningi karlakórsins
Heimis varð fyrir valinu. Þetta
fyrsta kvöld hinnar nýju skag-
firsku útvarpsstöðvar var einung-
is leikin íslensk tónlist og verður
það að teljast til fyrirmyndar fyrir
útvarpsstöð ungs fólks.
RÁS FÁS útvarpar efni sínu í
steríó á senditíðni FM 93,7. Ekki
er alveg vitað hvað útsendingin
næst víða um Skagafjörð, en það
er e.t.v. ekki fyrir mestu, því í
litlu hljóðstofunni við. Ártorg
eiga fjölmiðlamenn framtíðar-
innar kannski eftir að stíga sín
fyrstu spor á öldum ljósvakans,
áhugi sem endist ævilangt, að
kvikna. SBG