Dagur - 08.12.1990, Side 13

Dagur - 08.12.1990, Side 13
Laugardagur 8. desember 1990 - DAGUR - 13 poppsfðan „Aðalatriðið að hafa gaman af því sem við erum að gera‘ - hljómsveitin Hrafnar í spjalli við Poppsíðuna Eins og vel hefur komið fram á síðum Dags að undanförnu, bæði hér á Poppsíðunni og annars staðar, þá hefur hlaup- ið nýtt líf í flutning á lifandi rokktónlist hér á Akureyri. Nýjar hljómsveitir hafa nú sprottið upp hver af annarri og er mikið líf í tuskunum eins og glögglega kom í ljós á Dyn- heimatónleikunum fyrir mán- uði. Ein af þessum hljómsveit- um er tríóið Hrafnar en það skipa þeir Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson sem lemur húðir, Hans Wium sem plokk- ar bassann og Sigurjón Bald- vinsson sem syngur og teygir gítarstrengi. Umsjónarmanni Poppsíðunnar lék forvitni á að vita meira um þá félaga og skundaði því á fund þeirra nú fyrir skömmu og tók þá tali. - Strákar, hvernig urðu Hrafn- ar til? Rögnvaldur verður fyrstur fyrir svörum. „Siggi og Hans voru að glamra saman um hríð án fasts trommuleikara, en þeim hafði gengið erfiðlega að finna einn slíkan enda eru þeir ekki á hverju strái hér í bæ. En svo kom ég á æfingu til þeirra og byrja að glamra með þeim til að gera eitthvað og eftir tvö skipti ákváð- um við að halda þessu áfram og Hrafnar urðu til.“ Hans: „Það varð fylling að fá Rögga inn því annar trommari sem var með okkur mætti ekki og með Rögga kom allt annað út úr því sem við vorum að gera.“ Sig- urjón: „Þetta passaði allt saman miklu betur þegar Rögnvaldur kom til.“ - Tónlistin ykkar, hvernig skil- greinið þið hana ? Rögnvaldur „Við erum allir aldir upp í pönkinu og eru Utangarðs- menn og Fræbbblarnir áhrifa- valdar.“ Hans: „Óbeint hafa þessar hljómsveitir haft áhrif á okkur því það voru þeir tímar að maður var að móta sig sjálfur og þá var það þessi tónlist sem hreif og hef- ur setið í okkur síðan.“ Rögnvaldur: „Þetta er einfald- lega bara rokk og ról sem við höf- um gaman af og sem við vonum að aðrir hafi gaman af líka.“ - Nú er allt frumsamið hjá ykkur, hverjir semja og hvernig gengur það fyrir sig? Sigurjón: „Þetta er samvinna hjá okkur og oftast verða lögin oftast þannig til að cinhver kemur með hugmynd, glamrar hana, hinir taka undir sem svo þróast út í einhvern kjarna sem við byggjum Umsjón: Magnús Geir Guömundsson Hrafnar eru Sigurjón Baldvinsson gítarleikari, Rögnvaldur Bragi Rögnvalds- son trommuleikarí og Hans Wium bassaleikari. Mynd: Golli afganginn af laginu út frá.“ - Hvað um textana ? Rögnvaldur: „Textarnir verða stundum til þannig að við setj- umst í hring við borð, setjum blað á borðið, síðan kemur ein- hver með hugmynd og síðan er unnið með hana.“ - Hvað um innihald textanna, eru þeir pólitískir? Sigurjón: „Textarnir eru ýmiss konar, einn til dæmis um ýmsa hluti sem koma fyrir alla ein- hvern tírnann og annar um skemmtilega unga stúlku sem platar mann. Annars erum við enn að mótast því við erum að- eins sjö vikna gamlir." (Um tveggja mánaða þegar þetta birtist). - Eftir þennan tíma, eruð þið komnir með mikið efni? Rögnvaldur: „Það eru átta lög til- búin og þrjú sem við erum að æfa að auki og af þessum átta spiluð- um við sex í Dynheimum. Svo eigum við fullt af köflum sem hægt er að búa til lög úr.“ - Hvað finnst ykkur vera athyglisverðast í tónlistarheimin- um í dag, hverjar eru uppáhalds- hljómsveitirnar? Sigurjón: „Langi Seii og Skugg- arnir og Risaeðlan eru þær hljómsveitir íslenskar sem mér finnst vera gera eitthvað af viti, afgangurinn er meira og minna bara popp. Af erlendum hljóm- sveitum finnst mér Pixies vera langathyglisverðust og er hún ein besta hljómsveit sem komið hef- ur fram lengi að mínu mati.“ Hans: „Mér finnst eiginlega ekk- ert almennilegt að gerast í íslenskri músík. Rokkabillí Langa Sela og Skugganna er ágætt svo langt sem það nær og Risaeðlan er flippuð en það er lítið meira. Af erlendum er ég mjög hrifinn af Cure og Pixies annað er það ekki eins og er að ég held.“ Rögnvaldur: „Uppáhalds íslenski tónlistarmaðurinn minn er Kjart- an Ólafsson og þá nefni ég Boot- legs og sömuleiðis vil ég nefna Bless. Af útlendum er það Pixies eins og hjá hinum, þá held ég mikið upp á Dead Milkmen auk Ramones.“ Þá nefndu þeir félag- ar sérstaklega Helga og hljóð- færaleikarana og segja þá pilta fremsta meðal þeirra hljómsveita sem komið hafa fram í dagsljósið að undanförnu. - Dynheimatónleikarnir tókust framar vonum og fólk flykktist á þá. En er þetta ekki bara ný bóla sem síðan springurfyrr en varir? Sigurjón: „Vonandi ekki, maður vonar það besta og eftir þessa miklu mætingu í Dynheimum ætti að vera hægt að halda þcssu áfram.“ Rögnvaldur: „Við verðum ekki að næstu árin að spila, þessar sex- átta hljómsveitir, (sumar munu heltast úr lestinni), en það er vonandi að þetta poti kjark í þá sem eru búnir að hanga inni í skúr í mörg ár og þá ekki bara í þær hljómsveitir sem eru með heldur líka í þá hljómsveitarmeð- limi sem koma og fylgjast með.“ - Að lokum strákar. Eigið þið einhvern sérstakan draum eða sérstök markmið með spila- mennskunni? Allir: „Aðalmarkmiðið er að hafa gaman af því sem við erum að gera. Draumurinn er að í bæn- um verði einhvern tímann til sér- stakt húsnæði með tækjum sem hægt verður að halda tónleika í með sanngjörnum kostnaði, því þetta tvennt, gott húsnæði og góðar græjur, er forsenda þess að hægt sé að halda uppi tónleika- haldi af einhverju viti.“ Poppsíðan þakkar þeim Hröfn- um kærlega fyrir skemmtilegt spjall og hér í lokin má geta þess að þeir félagar ásamt bróður- partinum af hljómsveitunum sem fram komu í Dynheimum láta ekki deigan síga, því um síðustu helgi héldu þær tónleika á Laug- um og nú um þessa helgi spila þær á Sauðárkróki og ætlunin er að fara enn víðar, m.a. til Húsa- víkur. íslensk alþýðuskáld I Engin er sú listgrein sem jafnmikið og almennt er stunduð, sem orðsins list, og það eru íslensku alþýðuskáldin, sem að meginhluta hafa plægt jarðveginn fyrir þá menn- ingaruppskeru sem á fs- landi þrífst. í þessari bók eru Ijóð, mis- mörg og mislöng, eftir 100 höfunda. í flestum tilfell- um hafa Ijóðin ekki birst áður á prenti. Steinunn Eyjólfsdóttir safn- aði til þessarar útgáfu og ritar formála. 388 bls. Óskabók allra Ijóðaunn- enda! Bókaútgáfan HILDUR Hvetjum alla til að mæta á dagsKrá T tilefni af ári læsis í SamKomuhúsinu AKureyri laugardaginn 8. desember. Bókabúðin Edda Hafnarstræti 100 Akureyri • Sími 24334 HAUSTHAPPDRÆTTI KRABBAMEINSFÉLAGSINS VINNINGAR: SAMEIGINLEGUR VINNINGUR: 3 VOLVO 460 GLE. • öflugri krabbameinsvarnir!] 3 DAIHATSU CHARADE SEDAN SGi. 50 VINNINGAR Á 120.000 KR. OG 50 VINNINGAR Á 60.000 KR. Vörur eða þjónusta frá BYKO, Hagkaupum, Húsgagnahöllinni, Radíóbúðinni, Úrvali-Útsýn eða Útilífi. STUÐNINGUR YKKAR ER OKKAR VOPN Krabbameinsfélagi - db'

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.