Dagur - 08.12.1990, Blaðsíða 17
Laugardagur 8. desember 1990 - DAGUR - 17
efst f huga
Fólk er stimplað eins
og hvert annað kjöt
Hvaöa þættir skyldu vega þyngst þegar
atvinnurekandi ræður í vinnu einhvern ein-
stakling úr hópi umsækjenda? Jú, menn tala
um menntun og starfsreynslu viðkomandi
sem veigamikil atriði, einnig orðspor og
framkomu. Þetta er sjálfsagt eðlilegt viðhorf
en fleira virðist stundum ráða vali atvinnu-
rekenda, svo sem aldur, kyn, útlit, ætt, póli-
tískar skoðanir og sjúkdómar.
Hvað er maðurinn að fara? kunna lesend-
ur að hvá. Sennilega búast einhverjir við að
maður noti þetta tækifæri til að gagnrýna
jólaæðið í neysluþjóðfélaginu en ég hef
ákveðið að leiða það hjá mér að þessu sinni.
Ég vona bara að allir geti átt gleðileg jól,
hver á sinn hátt eftir efnum og aðstæðum og
viðhorfum til jólahátíðarinnar. Ég ætla hins
vegar að fjalla um viðhorf í garð þeirra sem
sækja um vinnu.
I tímaritinu Geðhjálp, 2. tbl. 1990, sem
kom út fyrir skömmu birtust niðurstöður úr
könnun sem Hagvangur gerði fyrir tímaritið.
Svohljóðandi spurning var lögð fyrir 771
íslending: „Hefðu einhver af þessum ein-
kennum áhrif á val þitt ef þú stæðir frammi
fyrir því að þurfa að ráða mann í vinnu:
Afengisvandamál, eyðni, geðræn vanda-
mál, eða hjartasjúkdómur?"
Niðurstöðurnar eru þær að viðmælendur
mismunuðu fólki mjög eftir sjúkdómum. Að-
eins sjötti hver aðspurðra setti hjartasjúk-
dóm umsækjenda fyrir sig og u.þ.b. fjórði
hver setti það fyrir sig að viðkomandi væri
smitaður af eyðni. Á hinn bóginn voru meira
en fjórir af hverjum tíu aðspurðra fráhverfir
því að ráða mann með geðræn vandamál I
vinnu og meira en sjö af hverjum tíu treystu
sér ekki til að ráða áfengissjúkling til starfa.
Viðmælendum var einnig gefinn kostur á
svarinu „fer eftir ýmsu“ og þegar sá þáttur er
tekinn með setja alls 40,1% fyrirvara við
ráðningu hjartasjúklinga. Hlutfallið er 40,9%
í garð eyðnismitaðra, 76,3% í garð fólks
með geðræn vandamál og 86,1% í garð
áfengissjúklinga. Atvinnumöguleikar tveggja
síðastnefndu hópanna virðast því ekki mjög
glæsilegir.
Þarna má e.t.v. sjá þverskurð af almenn-
ingsviðhorfinu alræmda. Flestir þekkja eitt-
hvað til hjartasjúkdóma og annarra líkam-
legra kvilla og skapa sér enga fordóma í
þeim efnum. Hins vegar hræðast þeir „hið
óþekkta" eins og geðsjúkdóma. Þá fara
fordómarnir á stjá með þeim afleiðingum
sem könnunin sýnir og áfengissjúklingar og
fólk með geðræna kvilla verður að víkja fyrir
þeim sem eru með „viðurkennda“ líkamlega
sjúkdóma.
í þessu sambandi er vert að benda á að
viðhorf og athöfn fara oft ekki saman. Ef
atvinnurekandi útilokar umsækjanda á þeim
forsendum að viðkomandi hafi átt við geð-
ræna erfiðleika að stríða er eins víst að
hann skipti um skoðun þegar hann sér
umsækjandann í eigin persónu. Þetta á ekki
bara við um sjúkdóma. Við setjum líka
stimpil á þá sem t.d. hafa afplánað fangels-
isdóm, en þegar á hólminn er komið geta
fordómarnir fokið út í buskann og þar eru
þeir líka best geymdir.
Stefán Sæmundsson.
Verndargripur
Sets
eftir Söru Hylton
Þetta er þriðja bók Söru
Hylton sem út kemur á
íslensku. Ensk stúlka, dótt-
ir fornleifafræðings er
gædd yfirskil vitlegum
hæfileika til að upplifa í
draumum sínum, mörg
þúsund ára atburði úr lífi
egypskrar prinsessu.
Verð aðeins kr. 1.900.
Hörkuspennandi bók
frá fyrstu til síðustu
blaðsíðu.
0Bókaútgáfan
HILDUR
Toyota Tercel ’87
Ek. 54.000 km. Rauð. Góður bill.
Verð 740.000.
Ford Sierra CL 1600 ’88
Ek. 43.000 km. Rauð. Góður bíll.
Verð 990.000.
Volvo 240 GL ’87
Ek. 52.000 km. Gott eintak.
Silfurmet. Verð 990.000.
Honda Civic ’86
Ek. 75.000 km. Silfurmet.
Verð 520.000.
Volvo 244 DL 82
Ek. 131.000 km. Blár.
Verð 370.000.
Fjöldi bíla á
söluskrá
Nýir Yamaha vélsleðar.
ÞÓRSHAHIAR HR
BÍLASALA
Glerárgötu 36, simi 11036 og 30470
VÖNDUÐM FYRIR jCíSíSI- LF.GURFÍr.MWBGl ' 1 1
0G KLEOPftTRft "SöHnititof HlLVNl) BMi'WN-BilÆMVAl 1
Leikraddir: Laddi, Sigurður Sigurjónsson o.fl. ’