Dagur - 12.12.1990, Blaðsíða 1
Norðurland:
Góð færð á flestum vegum
en nokkuð um hálku
Færð hefur ekki spillst veru-
lega þrátt fyrir norðanáttina í
gær. Fært var um flesta vegi á
Norðurlandi í gærkvöld en
nokkuð um hálku og smádriftir
að sögn Vegagerðarmanna.
Ólafsfjarðarmúli var aðeins
fær stórum bílum og jeppum í
gærkvöld en aðrir vegir á
Norðurlandi voru greiðfærir.
Fært var yfir Öxnadalsheiði og
vestur um Vatnsskarð. Einnig
vegurinn um Víkurskarð. Austan
Húsavíkur var leiðindaveður í
gær og mátti búast við að færð
gæti spillst. Að sögn Vegagerð-
armanna var nokkuð um hálku á
vegum og nauðsynlegt að vera á
bílum vel búnum til vetrarakst-
urs. Þl
Hrísey:
Skortir fleiri
vinnsludaga til jóla
„Það er meira en nóg að gera
hér í fiskvinnslunni fram að
jólum og ef vel ætti að vera
vantar fleiri daga fram að
jólum,“ sagði Jóhann Þór
Halldórsson, útibússtjóri
Kaupfélags Eyfirðinga í Hrís-
ey.
Jóhann Þórsagði fyrirsjáanlegt
að mikið hráefni bærist á land á
næstu dögum og því Ijóst að unn-
ið yrði af kappi fram að jólum.
„Við eigum ennþá talsvert af fiski
í sjónum, sem við erum að baksa
við að ná. Það verður því fyrir-
sjáanlega mikið að gera hér fram
að jólum og þó að það sé ekki
æskilegt vil ég ekki útiloka vinnu
milli jóla og nýárs," sagði Jóhann
Þór.
Hann sagðist ekki nákvæmlega
vita hversu mikinn kvóta Súlna-
fellið ætti eftir, en hann myndi
meira en nægja frant að áramót-
urn. Þá hefur frystihúsið fengið
fisk úr Dalvíkurtogurunum til
vinnslu. Um er að ræða kvóta
sem togararnir veiða fyrir Hrís-
eyinga. óþh
Blönduvirkjun:
Vetrarfrí hafin og
vinna minnkar
Útivinnu er nú nær lokið þetta
haustið við Blönduvirkjun.
Starfsmenn Hagvirkis og Stíg-
anda eru hættir og aðalvinnan
fer fram innandyra eða neð-
anjarðar. Verktakarnir sem sjá
um undirstöður og slóðagerð í
tengilínunni niður Blöndudal
eru einnig hættir enda komnir
Höllustaðaland á enda.
Að sögn Ólafs Jenssonar, yfir-
staðarverkfræðings, er nú m.a.
unnið við innviði í stjórnhúsinu og
rafbúnaði í sambandi við fyrsta
rafalinn er einnig verið að koma
fyrir undir stjórn tveggja Japana.
Ólafur sagði þetta árið hafa geng-
ið vel og allir fara í jólafrí um 20.
des. en koma síðan til starfa aftur
eftir áramótin. Hann sagði vinnu
við virkjunina trúlega ekki hefj-
ast aftur af fullum krafti fyrr en í
maí. Það færi þó allt eftir veður-
fari, en undanfarin tvö ár hefur
ekki verið hægt að byrja fyrr en í
maf.
Hreppsnefnd Svínavatnshrepps,
hefur fengið senda frá Lands-
virkjun nýja skipulagsteikningu
af tengilínu virkjunarinnar og
Byggðalínu. Að sögn Sigurjóns
Lárussonar, oddvita, sendi skipu-
lag ríkisins einnig bréf þess efnis
að hreppsnefndin reyndi að af-
greiða málið. Sigurjón sagði ekk-
ert hafa breyst frá upphafi nema
lega línunnar, enn hefði ekki ver-
ið reynt að ganga til samninga við
landeigendur á Löngumýrarbæj-
unum. Hann sagðist ekki vita
hvenær hreppsnefndin tæki málið
fyrir, en það yrði gert. SBG
,Augun“ opnuð.
Mynd: Golli
Slippstöðin hf. á Akureyri:
Tilboð gert í viðgerð verk-
smiðjutogara í Iitháen
- „flármögnunarhliðin er vandamál,“
segir Sigurður Ringsted, forstjóri stöðvarinnar
Slippstöðin hf. á Akureyri
mun á næstunni gera tilboð í
viðgerð á stórum verksmiðju-
togara fyrir fyrirtæki í Sovét-
lýðveldinu Litháen. Stöðin
liefur verið í sambandi við
útgerðaraðila togarans síðustu
mánuði og í síðustu viku fóru
forsvarsmenn Slippstöðvarinn-
ar út til viðræðna við þessa
aðila. Niðurstaða þeirrar
heimsóknar er sú að lokið
verður við útboðsgögn fyrir
viðgerðina og því næst gerir
Slippstöðin formlega tilboð í
verkið. Ljóst er að stöðin þarf
að keppa við nokkrar erlendar
skipasmíðastöðvar um þetta
verk en stærsta vandamálið er
þó það hversu Iitlu fé Litháar
hafa yfír að ráða.
Að sögn Sigurðar Ringsted,
forstjóra Slippstöðvarinnar, felst
þetta verkefni í að skipta um fisk-
vinnslubúnað í stórum verk-
smiðjutogara. Sem dæmi um
stærð þessa skips má nefna að
hann er um 100 metrar að lengd.
Til viðbótar við endurnýjun á
Smábátafélagið Vörður:
Skjálfandaflói sé veiðisvæði Húsavíkurbáta
,Okkur smábátaeigendum
þykir tímabært, að Skjálfanda-
flói sé veiðisvæði Húsvíkur-
báta, enda lítum við svo á að
flóinn sé undirstaða smábáta-
útgerðar frá Húsavík og at-
vinnusköpunar, sem átti sér
stað hér fyrr á árum.“ Svo seg-
ir í erindi Smábátafélagsins
Varðar á Húsavík til bæjarráðs.
Heimir Bessason kom á fund
bæjarráðs sl. fimmtudag með
erindi frá Verði um lokun Skjálf-
andaflóa fyrir veiðum í snurvoð.
í erindinu kemur fram að Heimir
hefur að undanförnu átt viðræður
við bæjarráðsmenn og bæjar-
stjóra um hugsanlega lokun á
hluta Skjálfandaflóa fyrir veiðum
með dragnót. Einnig hefur hann
átt viðræður við skipstjóra á
stærri bátum, sem hafa stundað
dragnótaveiðar. Þess er farið á
leit að bæjarráð taki málið fyrir
til umræðu sem allra fyrst.
Bæjarráð samþykkti að fresta
afgreiðslu erindisins. IM
þessum búnaði eru talsverðar
viðgerðir á skipinu.
„Ég geri mér ekki fyllilega
grein fyrir hvaða möguleika við
eigum í stöðunni," sagði Sigurð-
ur. „Mér virðist þó að þeir horfi
til Islands vegna þess hve við
erum framarlega sem fiskveiði-
þjóð. Ég veit að þeir eru að leita
að nútíma fiskvinnslu til að setja
í skipið og þar hafa íslendingar
verið framarlega og Slippstöðin
þar í fremstu röð. Vandamálið er
hins vegar fjármögnunarhliðin og
hvort þeir geti borgað fyrir það
sem þeir vilja láta gera. Á því
höfum við ekki fundið lausn
ennþá en erum að vinna í að
finna þessa lausn. Þessu til við-
bótar erum við að keppa við
þjóðir sem niðurgreiða sinn
skipasmíðaiðnað og því er spurn-
ingin sú hvað þær gera í þessari
stöðu," sagði Sigurður.
Sigurður segir að hér sé um
mjög stórt verk að ræða, senni-
lega eitt það stærsta sem stöðin
hafi tekið að sér. Niðurstaða fáist
í málinu innan tíðar því skipið
hafi nú legið við bryggju í 14
mánuði en eigendur skipsins hafi
tekið þá ákvörðun að endur-
byggja það og leiti nú að aðila til
að vinna verkið. Hann segist
vænta þess að gert verði tilboð
strax um áramót og svars sé að
vænta fljótlega á nýja árinu því
rætt sé um að byrja á verkinu síð-
ar í vetur. JÖH
Fiskeldi Eyjafjarðar hf.:
„Hlýrimi er mjög
álitlegur eldisfiskur“
- segir Ólafur Halldórsson, framkvæmdastjóri
„Hlýrinn verður alger auka-
búgrein. Við erum að safna
klakfíski, allt byrjar þetta með
því. Hlýranum sinnum við eftir
efnum og aðstæðum og sjáum
síðan til hvað verður. Lúðueld-
ið er númer eitt, tvö og þrjú
hjá okkur,“ sagði Ólafur Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri
Fiskeldis Eyjafjarðar hf.
Að sögn Ölafs hafa togararnir
Harðbakur og Kaldbakur safnað
saman um 250 hlýrum, sem oft er
nefndur steinbítsbróðir. Hlýrinn
er fiskur af sæúlfaættkvísl (anarr-
hichas minor), sem hentar vel til
eldis. „ Þeir vaxa hratt við lágt
hitastig, mun hraðar en steinbít-
urinn. Mjög gott er að fóðra hlýr-
ann og seiðin taka fóðrið strax.
Þau eru strax vel þroskuð ekki
eins og lúðuseiðin, sem mjög erfitt
er að fá til að éta þegar kviðpok-
anum sleppir. Gott verð fæst fyrir
hlýra á mörkuðum erlendis og
með markaðsátaki er hlýrinn
mjög álitlegur eldisfiskur," sagði
Ólafur Halldórsson. ój