Dagur - 12.12.1990, Page 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 12. desember 1990
bœkur
i
Bamagælur
Örn og Örlygur hafa sent á mark-
að bókina Barnagælur - Amma
yrkir fyrir drenginn sinn eftir
Jóhönnu Á. Steingrímsdóttur
með teikningum eftir Hólmfríði
Bjartmarsdóttur.
„Hér er á ferðinni einstaklega
falleg bók með ljóðum Jóhönnu.
Hér eru ljóðin hennar ömmu
komin með gullfallegum mynd-
um og ljóðin og myndirnar tengja
saman gamalt og nýtt. Svona er
hægt að flytja menningararf okk-
ar milli kynslóða,“ segir í frétt frá
Erni og Örlygi vegna útkomu
bókarinnar.
Horfnir
starfshættir
- og leiftur frá
liðnum öldum
Árið 1975 gáfu Örn og Örlygur út
bókina Horfnir starfshættir eftir
Guðmund Þorsteinsson frá
Lundi. Dr. Kristján Eldjárn,
forseti íslands, ritaði formála
bókarinnar. Þar sagði hann m.a.:
„Það er alveg víst að hver sá
HORFNIR
STARFSHÆTTIR
.. , ’ h
glöggur fróðleiksmaður sem
dregur upp sína mynd af því
gamla lífsmunstri sem eitt sinn
var allsráðandi en er nú með öllu
horfið mun óhjákvæmlega leggja
eitthvað af mörkum til þeirrar
heildarmyndar sem seinni menn
munu vilja setja saman af þessum
gamla íslenska heimi og aldrei
þykja nógu ítarleg... Af þessu
tagi er þetta framlag Guðmundar
Þorsteinssonar frá Lundi, þátta-
safn til íslenskrar menningar-
sögu.“
Nú eru Horfnir starfshættir
komnir út í 2. útgáfu hjá Erni og
Örlygi. í fyrri útgáfu voru engar
ljósmyndir en hin nýja útgáfa er
prýdd ótrúlegum fjölda gamalla
ljósmynda sem ívar Gissurarson
þjóðfræðingur og fyrrum for-
stöðumaður Ljósmyndasafnsins
safnaði. Auk þessa mikla mynd-
efnis sem birtist í þessari útgáfu
og stóreykur fræðslugildi verks-
ins eru í því vandaðar skrár m.a.
atriðisorðaskrá. Þá fylgir því við-
bætir sem Guðmundur hafði sent
útgáfunni skömmu fyrir andlát
sitt. f þeim viðbæti er m.a. merk-
ur þáttur um jársmíðar sem mun
ekki eiga sér hliðstæðu á prenti
og vera gott innlegg í íslenska
iðnsögu.
Sunnudaginn 16. desember nk. býð-
ur íslandsbankinn á Akureyri öllum
ungum viðskiptavinum sínum á „Litlu
jólin“ með Óskari og Emmu.
Skemmtunin hefst kl. 15.00 og stendur til kl. 17.00,
og er haldin í íþróttahöllinni.
Miðar verða afhentir í útibúum bankans í Skipagötu
og Hrísalundi, og gilda þeir einnig sem happdrættis-
miðar.
Munið að sækja
■MlBPk. miðana. Jm
Dagskrá:
Bjartmar Guðlaugsson
Ingimar Eydal
Kórsöngur
Óskar og Emma
Jólasaga
Happdrætti
Jólasveinar
Svaladrykkur og gott í poka
Jóladans og fl. .
iWftwpiiii jjjiQ;
Örn og Örlygur hafa sent frá sér
bókina Hundalíf Lubba.
Þetta er fjörleg saga með lit-
skrúðugum myndum. Lubbi er
kátur, loðinn og lubbalegur
hundur sem á heima á ruslahaug-
um. Þar hittir Lubbi kisu og þó
að hundar og kettir séu ekki
miklir vinir gera þau með sér
félag til þess að standa betur að
vígi í lífsbaráttunni. Félags-
skapurinn gefst vel og Lubbi
skynjar hvers virði það er að eiga
sér vin og félaga.
Á bláþræði
Komin er út hjá Vöku-Helgafelli
nýjasta bók metsöluhöfundarins,
Victoríu Holt, Á bláþræði. Þetta
er rómantísk spennusaga í þeim
stíl sem aflað hefur höfundinum
einstakra vinsælda um allan
heim. Víst er að bókin mun ekki
valda hinum fjölmörgu aðdáend-
um höfundarins hér á landi von-
brigðum.
I bókinni segir frá Elenóru sem
eyðir barnæsku sinni í húsi hinn-
ar valdamiklu Sallonger-ættar í
Bretlandi. Uppruni hennar er
leyndardómur sem hún fær ekki
vitneskju um fyrr en hún er orðin
gjafvaxta. Þá tekur líf hennar
miklum breytingum og hamingj-
an ríkir um sinn.
Á bláþræði er 228 bls. og kost-
ar 1.790 krónur.
Heiða
Komin er út hjá Vöku-Helgafelli
hin sívinsæla barnasaga um
Heiðu. Sagan er meira en hundr-
að ára gömul, en er hér endur-
sögð af Anne de Graaf á þann
hátt að hún er skiljanlegri nútíma-
lesendum. Bókin er skreytt lit-
myndum á hverri síðu eftir list-
málarann Chris Molan.
Heiða er munaðarlaus stúlka
sem flyst til afa síns í svissnesku
ölpunum. Hún hafði ekki séð afa
sinn fyrr og rétt þegar henni er
farið að þykja vænt um hann og
nýja heimilið sitt er hún tekin frá
honum og send til ókunnugs fólks
í fjarlægri borg. Borgarlífið á
ekki við Heiðu og hún saknar afa
síns, fjallanna og frelsisins. Þrátt
fyrir það lærir Heiða ýmislegt í
borginni sem á eftir að reynast
henni dýrmætt eftir að hún kemst
aftur heim til afa síns.
Bókin um Heiðu er 94 bls. og
kostar 978 krónur.