Dagur - 22.01.1991, Side 1
74. árgangur Akureyri, þriðjudagur 22. janúar 1991 14. tölublað
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Norðurland:
Mestur vindhradi mældist
á Akureyrarflugvelli
-105 hnútar eða tæplega 200 km á klst.
Veðurstofa íslands gerir ráð
fyrir að í dag og næstu daga
verði ríkjandi vestlægar og
suðlægar áttir um norðanvert
landið. Lægðirnar flengjast að
landinu hver á fætur annarri
með tilheyrandi hvassviðri og
hlýindum.
Guðmundur Hafsteinsson, veð-
urfræðingur, sagðist reikna með
Norðurland vestra:
Víða skemmdir
í ofsarokinu
- bátur sökk á Hofsósi
Nokkrar skcmmdir urðu í rok-
inu í gærmorgun á Sauðár-
króki. Björgunarsveitin var
nokkrum sinnum kölluð út til
að aðstoða fólk við að berjast
við rokið. Þakplötur fuku af
einu íbúðarhúsi og forðuðu
björgunarsveitarmenn frekari
skemmdum og tókst að negla
niður þakið sem var byrjað að
losna.
Gróðurhús losnaði upp og
munaði litlu að það fyki. Björg-
unarsveitarmönnum tókst að
njörva það niður áður en það
fauk. Rúður í húsum brotnuðu
og aðstoðuðu björgunarsveitar-
menn fólk við að negla fyrir
gluggana.
Þjónustuskúr fyrir tjaldstæði í
Steinsstaðahverfinu í Lýtings-
staðahreppi fauk í gærmorgun og
stórskemmdist. I skúrnum var
eldunaraðstaða og salerni fyrir
um tuttugu manns. Hús þetta var
í eigu Sigurðar Friðrikssonar eig-
anda Hótel Bakkaflatar sem
einnig er í Steinsstaðahverfinu.
Húsið kostar hundruð þúsunda
og er það stórskemmt. Rúður í
gróðurhúsum í nágrenninu
brotnuðu en ekki mun um stór-
tjón að ræða.
Þriggja tonna plastbátur slitn-
aði upp í höfninni á Hofsósi og
rak upp í fjöru og brotnaði þar í
spón. Pak fauk af útihúsi í
nágrenni Hofsóss og einhverjar
minni skemmdir urðu á fleiri
bæjum. kg
heldur minni vindi en var í
áhlaupinu í gærmorgun, en gera
mætti ráð fyrir snörpum vind-
hviðum annað slagið.
Veðurhæð var gífurleg um
norðanvert landið í gærmorgun
þegar verst lét. Samkvæmt upp-
lýsingum Veðurstofunnar mæld-
ist mestur vindhraði á Akureyr-
arflugvelli um kl. 9, hvorki meira
né minna en 105 hnútar eða tæp-
lega 200 kílómetrar á klukku-
stund. Á bæði Þingeyri og
Vopnafirði mældist um 90 hnúta
vindur og gera má ráð fyrir að
vindur af þessari gráðu hafi verið
mjög víða á Norðurlandi í gær.
óþh
Hluti af þaki á fjölbýlishúsi við Skarðshlíð á Akureyri fauk í
ufsaveðrinu í gærmorgun og tjón varð á nokkrum húsum í
bænum. Á innfelldu myndinni er unnið við að negla niður
járn á húsi við Hafnarstræti. Myndir: Goiii
Fárviðri á Akureyri:
Tjón á húsum og bifreiðum víða um bæinn
Talsvert tjón varð í hvassviðr
inu á Akureyri í gærmorgun.
Þakjárn fauk af húsum og
skemmdir urðu á bifreiðum og
ýmislegu lauslegu í bænum.
Lögreglan lokaði hluta Gler-
árgötu þegar vegfarendum
stafaði hætta af þakplötum
sem fuku af fjölbýlishúsi.
Matthías Einarsson, lögreglu-
varðstjóri, segir að lögreglan hafi
átt mjög annríkt um morguninn,
og varð að kalla út fleiri menn á
vaktina. Klukkan 7.55 var til-
kynnt að þakjárn væri farið að
fjúka af fjölbýlishúsinu Skarðs-
hlíð 14-16-18. Vindhraði fór upp
í 68 hnúta skömmu síðar, en það
eru 12 vindstig.
Um svipað leyti fauk skor-
steinn af Hafnarstræti 88, og lenti
hluti af honum á bíl sem stór-
skemmdist. Þakplötur fuku
einnig af Hafnarstræti 84 og
Aðalstræti 10.
Lögreglan fékk margar til-
kynningar um skemmdir á bif-
reiðum sem fuku saman á bíla-
stæðum. Matthías segir að eig-
endunum hafi verið vfsað beint á
tryggingafélögin, því lögreglan
komst ekki yfir að sinna því þá.
Bílar fuku in.a. saman í miðbæ
Akureyrar, á Brekkunni, í Gler-
Mannlaus trilla fannst við Gjögurtá sl. sunnudag:
Þrjátíu og finun ára sjómanns
frá Grenivík er saknað
- víðtæk leit á sjó, landi og úr lofti
Þrjátíu og fímm ára gamais
manns frá Grenivík er saknað
eftir að Eyfell ÞH-62, fímm
tonna trilla fannst mannlaus
við Gjögurtá sl. sunnudag.
Björgunarbátur úr triilunni
fannst í Keflavík, sem er hin-
um megin við Gjögurtána.
Akureyri:
Böm í hrakningum
á leið í skóla
Mörg börn á Akureyri komust
við illan leik í skóla í gærmorg-
ua, enda tókust þau hreinlega
á loft í hvassviðrinu. Strætis-
vagnar reyndust gott skjól og
einnig kom til kasta hjálp-
samra bílstjóra að bjarga börn-
unum. Við aðstæður sem
þessar, þegar ekki er búið að
aflýsa skólahaldi, er það mat
foreldra hvort þeir sendi börn
sín í skólann.
Síðar um morguninn var til-
kynnt að skólahaldi væri aflýst í
Glerárskóla og Hvammshlíðar-
skóla á Akureyri og í 1.-7. bekk í
öðrum skólum í bænum. Skóla-
hald féll víðar niður eða raskaðist
í Eyjafirði og annars staðar á
Norðurlandi eystra.
í Ólafsfirði voru börn komin í
skóla í gærmorgun en óskað var
eftir því að foreldrar kæmu að
sækja þau og var þeim ekki
sleppt út í óveðrið fyrr en for-
eldrar þeirra mættu. SS
Sjómaður frá Gremvík, sem
var einnig á þessum slóðum sl.
sunnudag, lét vita um slysið og þá
þegar voru björgunarsveitar-
menn frá Grenivík og víðar kall-
aðir út. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar var fengin til að flytja fjóra
björgunarsveitarmenn frá Greni-
vík út í Keflavík og þar létu þeir
fyrir berast í slysavarnaskýli í
fyrrinótt.
Vegna veðurofsans í gær gat
hvorki þyrla Landhelgisgæslunn-
ar né bátar athafnað sig við leit
fyrr en líða tók á daginn. Freyr
ÓF komst austur í Keflavík um
miðjan dag í gær og náði í björg-
unarsveitarmennina. Hugmyndin
var að freista þess að komast á
land í Látrum og ganga þar
fjörur. Sökum hvassviðris reynd-
ist þetta ekki unnt. Um svipað
leyti í gær komst þyrla Gæslunn-
ar, sem stödd var á Akureyri,
loks á loft og leitaði fram í
myrkur. Leit hennar bar engan
árangur.
Að sögn Ara Laxdal, hjá
björgunarsveitinni á Grenivík,
verður leit haldið áfram bæði á
landi og sjó eftir því sem veður
leyfir. óþh
árhverfi og á Togarabryggjunni.
Mesti vindhraði mældist 105
hnútar á Akureyrarflugvelli, en
92 hnútar við lögreglustöðina.
Samkvæmt núgildandi reglum
eru vindstigin tólf, og er talað um
fárviðri við 68 hnúta, sem sam-
svarar 125 kílómetra meðal-
vindhraða á klukkustund. 104
hnútar myndu samsvara 16 vind-
stigum eða 193 km vindhraða, ef
farið væri upp fyrir núgildandi
mælikvarða. Trausti Jónsson,
veðurfræðingur, segir að þrátt
fyrir fárviðrið á Akureyri í gær
væri langur vegur frá að líkja
mætti því við „Linduveðrið“ í
mars 1969. Þá urðu skemmdir á
88 húsum í bænum, gras rifnaði
upp með rótum og þakið fauk af
Súkkulaðiverksmiðjunni Lindu,
einnig fuku flest sjónvarpsloftnet
í bænum. Ekki er vitað um vind-
hraðann þá, því mælir veður-
stofunnar varð óvirkur þegar
vindur fór yfir 12 vindstig. EHB
Norðurland vestra:
Skólahald féU
niötir í gær
- foreldrar keyrðu börn sín úr skóla
Margir skólar á Norðurlandi
vestra felldu niður kennslu í
gær vegna hvassviðrisins sem
geysaði. Að sögn Guðmundar
Inga Leifssonar fræðslustjóra
héldu margir foreldrar á
Blönduósi börnum sínum
heima í gærmorgun og eftir
hádegið var öll kennsla felld
niður.
Víða á Norðulandi vestra var
kennsla alveg felld niður í gær.
Engin kennsla var á Laugar-
bakka, Húnavöllum, Varmahlíð
og einhverjum minni skólum.
Þrátt fyrir rokið var kennt fyrir
hádegi í Barnaskólanum á Sauð-'
árkróki. Kennslu var hætt um
hádegi og að tilmælum skóla-
stjóra náðu foreldrar í börn sín í
hádeginu. Mikið hvassviðri var á
Sauðárkróki og víða hálka á
gangstéttum og ekki ráðlegt að
láta börn vera á ferli. Vindhraði
mældist tíu vindstig á Bergsstöð-
um í gærmorgun og í verstu
hryðjunum fauk allt lauslegt á
Sauðárkróki.
Að sögn Guðmundar Inga
Leifssonar var mjög leiðinlegt
veður á Blönduósi í gær, hávaða
rok með rigningu og náðu for-
eldrar í börn sín í hádeginu og
engin kennsla var eftir hádegi.
kg