Dagur - 22.01.1991, Blaðsíða 2

Dagur - 22.01.1991, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 22. janúar 1991 Rauði krossinn kemur flóttafólki og særðum til hjálpar við Persaflóa: Hjúkrunarfræðingur frá Akureyri til Jórdaníu eða Saudi-Arabíu - flóttafólk frá írak hefur nærst á norðlensku ærkjöti fréftir h Ásdís Guðmundsdóttir, 28 ára hjúkrunarfræðingur frá Akur- eyri, fer í vikunni á vegum Rauða krossins til annaðhvort Jórdaníu eða Saudi-Arabíu. Ásdís, sem starfað hefur á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, er ein þriggja hjúkr- unarfræðinga sem Rauði krossinn á íslandi sendir til hjálparstarfa í nálægð við átakasvæðin við Persaflóa. Hannes Hauksson, fram- kvæmdastjóri Rauða krossins, sagði í gær að ekki væri ljóst hvert hjúkrunarfræðingarnir yrðu sendir. Ákvörðun um það yrði tekin í höfuðstöðvum Rauða krossins í Genf í Sviss. „Við fáum að vita það með 24 klukku- stunda fyrirvara hvert hjúkrun- arfræðingarnir verða sendir,“ sagði Hannes. „Þetta er ennþá allt mjög óljóst og fer eftir því hvernig mál þróast. Eftir daginn í dag eru þær klárar í að fara með engum fyrirvara. Við bíðum eftir grænu Ijósi frá Genf. Búið var að ákveða að þær yrðu sendar til Jórdaníu, en frá þeirri ákvörðun var horfið vegna þess að það gæti orðið meiri þörf fyrir hjúkrun annars staðar á þessu svæði,“ sagði Hannes. Ekki var ljóst í gær hvort hjúkrunarfræðingarnir yrðu sendir til aðstoðar á spítölum, sem sinna eingöngu særðum, eða í neyðarbúðir fyrir fólk sem flýr frá Irak yfir til Jórdaníu undan hremmingum stríðsins. Ásdís sótti námskeið á vegum Rauða krossins með góðum vitn- isburði og var skráð á svokallaða „veraldarvakt". Pað þýðir að hún skuldbindur sig til starfa erlendis ef þörf er fyrir hjúkrunarmennt- að fólk. Að sjálfsögðu er undir Ásdísi komið hvort hún tekur að sér þessi störf, í þessu tilfelli skammt frá átakasvæðunum við Persaflóa. Að sögn Hannesar er samið um dvöl hjúkrunarfræðinganna ytra í einn mánuð í senn, en hún gæti dregist á langinn ef stríðið við Persaflóa stendur svo vikum eða mánuðum skiptir. Hannes sagði að íslensku hjúkrunar- fræðingarnir væru áhættutryggðir þann tíma sem þeir dvelja við átakasvæðin við Persaflóa. „Peir eru mjög vel tryggðir af trygging- arfélagi erlendis. Rauði krossinn leitast alltaf við að lágmarka áhættu starfsfólks á hans vegum og í samningum er ákvæði þess efnis að ef eitthvað gerist sem stofnar lífi þess í hættu eru flug- vélar sendar á staðinn og það sótt,“ sagði Hannes. Eins og fram hefur komið sauð Kjötiðnaðarstöð KEA á Akur- eyri niður mikið magn af ærkjöti í haust, sem sent var til flótta- mannabúða í Jórdaníu. Ekki var þörf fyrir kjötið þá, en Hannes segir að flóttafólk frá írak hafi neytt þess undanfarna daga í Asrak-flóttamannabúðunum, skammt frá landamærum íraks og Jórdaníu. „í þessum flótta- mannabúðum er pláss fyrir um 40 þúsund manns og ætlunin er að stækka þær þannig að hægt verði að taka á móti 60 þúsund manns,“ sagði Hannes. óþh Endurhæfingarstöðin á Bjargi er vel tækjum búin. Akureyri: Sérhæfð endurhæfíngarstöð stoftiuð - fyrir hjarta- og lungnasjúklinga Endurhæfíngarstöð fyrir hjarta- og lungnasjúklinga í Bjargi, húsi Sjálfsbjargar við Bugðu- síðu á Akureyri, var vígð á laugardaginn að viðstöddu tjölmenni. Stöðin er sjálfseign- arstofnun og stofnaðilar eru Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, Hjarta- og æðaverndarfélag Akureyrar og nágrennis og Landssamtök hjartasjúklinga. í erindi Kristínar Sigfúsdóttur, formanns Hjarta- og æðaverndar- félags Akureyrar og nángrennis kom fram að upphafið að stofnun endurhæfingarstöðvarinnar mætti rekja til fræðslufundar vor- ið 1989 á Hótel KEA, en á þann fund komu þrír stjórnarmenn SÍBS. PJvatti Oddur heitinn Ólafsson,' formaður sambands- ins, mjög til stofnunar slíkrar stöðvar á Akureyri. Annar hvatningarfundur var haldinn í október sama ár, á vegum Lands- sambands hjartasjúklinga. Undirbúnginsnefnd var stofnuð í mars í fyrra, og seinna fulltrúa- ráð og framkvæmdastjórn. Landssamband hjartasjúklinga lagði fram 2 milljónir króna, SIBS 2 milljónir og Hjarta- og æðaverndarfélag Akureyrar og nágrennis og Hjarta- og æða- verndarfélag Islands einnig 2 milljónir sameiginlega. Stöðin er búin mörgum góðum tækjum, þótt enn vanti nokkuð. Keyptur hefur verið skjár með línurita og hlaupabraut, Danika ECG telementýri með 4 rásum, defebrilerator og súrefnismælir. Auk þess nýtast ýmis tæki í endurhæfingarsalnum ásamt þessum sérhæfðu tækjum. Endurhæfingarstöðin leigir aðstöðuna að Bjargi. Framkvæmdastjóri og starfs- fólk hefur verið ráðið til stöðvar- Norðurland: GjóskufaJl á svæðínu frá Bakka- fírði að Reykjum í Hrútafirði - Norræna eldfíallastöðin efnagreinir gjóskusýni úr Heklugosinu regnvatn sem gjóska hefur fallið Ekki varð vart við frekara gjóskufall á Norðurlandi um helgina frá gosinu í Heklu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu íslands, sem skráð hefur allar upplýsingar um dreifíngu gjóskunnar, var gjóskufallið áberandi mest fyrstu klukkustundirnar eftir gosið í Bárðardal og Mývatns- sveit, en aðfaranótt föstudags og á föstudag snérist vindur til suðaustlægrar áttar og þá féll gjóska um landið norðvestan- vert. Veðurstofan hefur heimildir um gjóskufall víða á Norður- landi, allt frá Reykjum í Hrúta- firði í vestri til Bakkafjarðar í austri. Framan af gosi var gjóskufallið mest í Bárðardal og Mývatns- sveit. Síðar um kvöldið varð jósku t.d. vart í Reykjadal, xarfirði, á Raufarhöfn, Sauða- nesi við Pórshöfn og Tjörnesi. Aðfaranótt föstudags féll gjóska víða í Eyjafirði, t.d. inni í Eyjafjarðarsveit og á Akureyri. Sömu sögu er að segja úr Skaga- firði. Þar féll gjóska í Skagafjarð- ardölum og út undir sjó. Á föstudaginn fór síðan að falla gjóska í Húnaþingi. Veður- stofan hefur heimildir fyrir gjóskufalli á Blönduósi, í Blöndudal, Svartárdal, Víðidal og Vatnsdal. Dýralæknar á Norðurlandi ráðlögðu bændum að taka inn búpening, þar sem því varð við komið, vegna hættu á flúoreitr- un. Bárður Guðmundsson, dýra- læknir í S.-Þingeyjarsýslu, segist hafa af því spurnir að bændur hafi orðið við þessum tilmælum. Hann segir að út af fyrir sig sé hættan ekki liðin hjá, en úr henni dragi þegar gjóskan seytli ofan í jarðveginn. Búpeningi stafar hvað mest hætta af því að drekka a. Norræna eldfjallastöðin er nú að efnagreina gjóskusýni úr Heklugosinu, en niðurstöður þeirrar athugunar lágu ekki fyrir í gær, að sögn Karls Grönvold, jarðfræðings. óþh Vandi loðnuútgerðarinnar: Rætt um að veita loðnuskipum bolfisk- og rækjukvóta - bein aðstoð frá Fiskveiðasjóði kemur einnig til greina Vandi loðnuútgerðarinnar er nú til umræðu í sjávarútvegs- ráðuneytinu og í þingflokkum stjórnarflokkanna. Rætt hefur verið um leiðir til að veita loðnuskipum þorsk- og rækju- kvóta, auk þess sem möguleiki er á stuðningi frá Fiskveiða- sjóði. Jón B. Jónasson, skrifstofu- stj óri sj ávarútvegsráðuneytisins, segir að samkvæmt lögum um stjórnun fiskveiða sé hægt að út- hluta 8.000 tonna þorskkvóta til Ioðnuskipa vegna aflabrests og loðnuveiðibanns. Einnig er inni í myndinni að veita aukinn rækju- kvóta, en lágt verð á rækju veld- ur því að margir eru vantrúaðir á þá lausn fyrir flotann í heild. Um beina fjárhagsaðstoð gæti einnig orðið að ræða til útgerðarinnar frá sjóðum sjávarútvegsins, eink- um Fiskveiðasjóði. „Ýmsar hugmyndir hafa verið reifaðar í þessum efnum, en þetta þarf að fara í gegnum alþingi og krefst lagabreytinga. ÖIl umfjöllun um málið er í raun eftir. Menn hafa verið að tala um þetta sem pakka til útgerðarinn- ar, þ.e. þorsk- og rækjukvóta, en Fiskveiðasjóður og fleiri sjóðir geti einnig komið til aðstoðar. En þessi mál eru öll óljós ennþá, og ekki verið lagðar fram neinar ákveðnar tillögur ennþá,“ segir Jón B. Jónasson. EHB innar. Æfingatímar verða tvisvar í viku fyrir hjarta- og lungna- sjúklinga í mismunandi erfiðri þjálfun. Sjúklingar verða þrek- prófaðir og síðan skipt í hópa. Auk stofnfélaganna þriggja, sem nefnd hafa verið, fengu dóms- og kirkjumálaráðuneytið og heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið þakkir fyrir veittan stuðning við stofnunina og veit- ingu starfsleyfis. EHB Kjör sveitarstjórnar ÖxarQarðarhrepps 2. febrúar nk.: Óhlutbundin kosning - björgunarsveitin Núpar með hrepps- nefndargetraun Engin listaframboð komu fram í Oxarfjarðar- og Presthóla- hreppi vegna kjörs hrepps- nefndar hins nýja Öxarfjarðar- hrepps 2. febrúar nk. Fram- boðsfrestur rann út á miðnætti sl. föstudag. Því verður óhlut- bundin kosning, það vill segja að allir kosningabærir íbúar hreppanna verða í kjöri. Að sögn Ingunnnar St. Svav- arsdóttur, oddvita Presthóla- hrepps, er ekki fyrirfram ákveðið hversu margir fulltrúar í nýrri fimm manna hreppsnefnd koma úr hvoru sveitarfélagi. Það er á valdi þeirra sem ganga að kjör- borðinu að ákveða það. Miðað við stærð hreppanna þykir þó ekki óeðlilegt að Presthólahrepp- ur fái þrjá fulltrúa í nýja samein- aða hreppsnefnd Öxarfjarðar- hrepps en Öxarfjarðarhreppur tvo fulltrúa. Getspökum íbúum hreppanna gefst nú kostur á að spá fyrir um hvaða fólk skipi fyrstu hrepps- nefnd sameinaðs Öxarfjarðar- hrepps. Björgunarsveitin Núpar selur nú einskonar getraunamiða þar sem fólki er boðið upp á að skrá nöfn þeirra fulltrúa sem það telur líklegast að verði kjörið í hreppsnefnd. Síðan verður sá eða þeir getspöku verðlaunaðir. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.