Dagur - 22.01.1991, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 22. janúar 1991 - DAGUR - 7
Heitt í kolunum í leik KA og Stjörnunnar:
Dómaramistök kostuðu KA sigur
Slæm mistök dómara komu í
veg fyrir sigur KA-manna á
Stjörnunni í VÍS-keppninni í
handknattleik á Akureyri á
laugardag. Þegar 37 sekúnd-
ur voru til leiksloka höfðu
KA-menn eins marks forystu,
24:23, og náðu boltanum.
Þegar 16 sekúndur voru eftir
var dæmd töf á KA, Stjörnu-
menn hófu sókn og á síðustu
sekúndunni fengu þeir dæmt
vítakast eftir að Axel Stefáns-
son, markvörður KA, hafði
varið skot af línunni. Magnús
Sigurðsson skoraði örugglega
úr vítakastinu og tryggði
Stjörnunni annað stigið en
Egill Már Markússon, annar
dómarinn, játaði eftir leikinn
að það hefðu verið mistök að
dæma töf og bað KA-menn
afsökunar.
Stjörnumenn voru sterkari í
fyrri hálfleik og náðu þá mest
fjögurra marka forystu en stað-
an í leikhléi var 10:12. KA-
menn áttu alltaf undir högg að
sækja enda varnarleikurinn
slakur og mistökin í sókninni
alltof mörg.
í seinni hálfleik voru KA-
menn mun ákveðnari og þegar 7
mínútur voru liðnar náðu þeir
að jafna, 14:14. Þeir fengu síð-
an fjölmörg tækifæri til að kom-
ast yfir en það tókst ekki fyrr en
2 mínútum fyrir leikslok. Eftir
það virtust þeir hafa sigúrinn í
hendi sér en þá kom til kasta
dómarans eins og fyrr segir og
leiknum lauk því 24:24.
KA-liðið lék allt annan leik í
seinni hálfleik, sérstaklega í
vörninni. Axel átti mjög góðan
leik og varði 13 skot, mörg á
mikilvægum augnablikum. Hans
Guðmundsson byrjaði illa en
átti stórleik í seinni hálfleik og
skoraði þá 8 mörk.
Hjá Stjörnunni var Skúli
Gunnsteinsson geysisterkur á
línunni og Sigurður Bjarnason
alltaf mjög ógnandi fyrir utan.
„Ég gerði mistök og viður-
kenni það. Ég hreinlega sá
ekki Jóhannes. Ég geri mér
grein fyrir því að þetta kost-
aði KA-menn stig og mér
þykir það afar leitt,“ sagði
Egill Már Markússon, dóm-
ari, að leik loknum.
Eins og fyrr segir gerðist
umrætt atvik þegar 16 sekúndur
voru til leiksloka og höfðu þá
KA-menn haft boltann í um 20
Pétur Bjarnason 6/3. Sigurpáll Árni
Aöalsteinsson 3/1, Erlingur Kristjáns-
son 2, Andrcs Magnússon I. Guö-
mundur Guömundsson 1. Jóhanncs
Bjarnason 1.
Mörk Stjörnunnar: Skúli Gunnstcins-
sekúndur. Friðjón Jónsson
hafði boltann, snéri sér við og
hugðist senda á Jóhannes
Bjarnason sem var inni á lín-
unni. „Ég sá ekki að Friðjón var
að sækja til Jóhannesar og taldi
að hann væri að tefja vísvitandi.
Þess vegna dæmdi ég Stjörn-
unni boltann. Það voru mistök
en vítið var hárrétt," sagði
Egill.
„Þetta er ótrúlega gremjulegt
son S, Axel Björnsson 4. Guðmundur
Alhertsson 3. Siguröur Bjarnason 3.
Patrckur Jóhannesson 2. Magnús Sig-
urösson 2/2. Hilmar Hjaltason 1.
Magnús Eggertsson 1.
Dómarar: Egill Már Markússon og Örn
Markússon.
og maður er bæði sár og svekkt-
ur yfir þessu,“ sagði Pétur
Bjarnason, fyrirliði KA. „í
fyrsta lagi dæmir hann töf sem
er auðvitað rugl. í öðru lagi
dæmir hann víti eftir að Axel er
búinn að verja frá manni sem
var algerlega frír. Við reynum
að berjast og gefa okkur alla í
leikinn til að standa okkur fyrir
framan áhorfendur og svo ræð-
ur dómarinn úrslitum á þennan
hátt. Hvað getur maður sagt?“
Mörk KA: Hans Guðmundsson 10/1.
„Gerði mistök og viðurkeimi það“
- sagði Egill Már Markússon, dómari
Urvalsdeildin í körfuknattleik:
Óvæntur sigur Þórsara
á toppliði Tindastóls
Blak, 1. deild karla:
Ekkert lát á sigur-
göngu KA-manna
KA-menn gefa ekkert eftir í
1. deild karla í blaki. Liðiö
vann tvo góða útisigra um
heigina á HK og Fram og sit-
ur í efsta sæti deildarinnar
með 6 stiga forskot á næsta
lið, Þrótt frá Reykjavík, en
hefur leikið einum leik meira.
Fimm hrinur og nærri tvær
klukkustundir þurfti til að Ijúka
leik HK og KA á laugardegin-
um. Viðureignin var þó ekki
jafn tvísýn og það bendir til.
KA-menn voru sterkari aðilinn
en lentu þó í vandræðunt.
Hávörnin hjá þeim skilaði litlu
og HK-ingar vörðu vel aftur á
vellinum. HK vann fyrstu hrinu
15:13 eftir að KA hafði verið
yfir framan af en norðanmcnn
svöruðu fyrir sig í tveimur
næstu, 15:8 og 15:11. í fjórðu
hrinu voru KA-menn enn yfir
en HK-ingar náðu að jafna og
vinna 16:14. í síðustu hrinunni
var síðan aldrei spurning um úr-
slitin og unnu KA-menn 15:9.
Pað þarf ekki að fara mörg-
um oröum um leikinn gegn
Fram á sunnudeginum. KA
vann í þremur hrinum, 15:0,
15:6 og 15:9. Fram-liðið er afar
slakt eins og staða þess gefur til
kynna og KA-menn tóku því
rólega. Varamennirnir spiluðu
mikið og stóðu sig vel en eins og
tölurnar gefa til kynna fór að
bera á kæruleysi þegar á leikinn
leið.
1. deild kvenna:
Fyrsti sigur KA á ÍS
Síðastliðinn sunnudag leiddu
saman hesta sína í Urvalsdeild-
inni Þór og Tindastóll. Leikur-
inn fór fram á Sauðárkróki og
var íþróttahúsið fullskipað
áhangendum Tindastóls.
Skemmst er frá að segja að
Þórsarar sigruðu Tindstælinga
með níu stiga mun 102-93 í
skemmtilegum leik.
Tindastóll fór mun betur af
stað og hafði forystu allan fyrri
hálfleikinn og náði mest fjórtán
stiga forskoti 30-16. Á síðustu
sekúndu fyrri hálfleiks komust
Þórsarar yfir og var munurinn tvö
stig þegar fyrri hálfleikur var
flautaður af.
Tindastól vantaði Pétur hinn
hávaxna Guðmundsson en hann
er meiddur. Yfirburðamaðurinn
Ivan Jonas gekk heldur ekki heill
til skógar. Hann er meiddur í
baki og greinilegt var að þau
meiðsli angruðu hann í leiknum.
Valur Ingimundarson var nokk-
uð frá sínu besta enda nýstiginn
upp úr flensu og var á tímabili
óvíst hvort hann léki með.
Þórsarar voru hinsvegar við
hestaheilsu og kom það þeim til
góða í síðari hálfleik. Þegar Ivan
Jonas var farinn út af með fimm
villur var Dan Kennard nánast
einráður undir körfunni og hirti
hann flest sóknar og varnar
fráköst. Þegar á þurfti að halda
sýndi Jón Orn Guðmundsson að
hann getur skorað þriggja stiga
körfur þegar hann vill og einnig
voru þeir Björn Sveinsson og
Konráð Óskarsson góðir.
Sturla Örlygsson beitti sér ekki
mikið en átti nokkuð af góðum
stoðsendingum. Munurinn var
sem fyrr segir níu stig í leikslok
og má segja að þau úrslit hafi ver-
ið nokkuð sanngjörn.
Dómarar voru þeir Bergur
Steingrímsson og Jón Otti Óláfs-
son og dæmdu þeir nokkuð vel en
voru full smámunasamir á
köflum.
Stig Tindastóls: Ivan Jonas 34, Valur Ing-
mundassn 31, Einar Einarsson 9, Sverrir
Sverrirsson 8, Haraldur Leifsson 5, Krist-
inn Baldvinsson 5, Karl Jónsson 1.
Stig Þórs: Dan Kennard 40, Jón Örn
Guðmundsson 26, Björn Sveinsson 13,
Konnráð Óskarsson 13, Sturla Örlygsson
8, Helgi Jóhannesson 2.
KA vann um helgina sinn
fyrsta sigur frá upphafi á ÍS í 1.
deild kvenna í blaki. Leikurinn
fór fram í Hagaskóla í Reykj-
avík og urðu lokatölurnar 3:2.
Daginn áður vann KA öruggan
sigur á HK, 3:0.
Sigur KA á HK var aldrei í
hættu og unnu norðanstúlkur í
þremur hrinum, 15:4, 15:11 og
15:10. KA-liðið átti ekkert sér-
stakan dag en það þurfti ekki til
enda HK-liðið neðst í deildinni,
hefur ekkert stig hlotið og aðeins
unnið sex hrinur.
KA byrjaði af feykilegum
krafti gegn stúdínum á sunnudeg-
inum og vann fyrstu hrinu 15:0 og
aðra 15:4. ÍS vann þriðju hrinu
15:13 og KA komst síðan í 14:5 í
þeirri fjórðu. En það ótrúlega
gerðist, allar aðgerðir KA runnu
út í sandinn og ÍS vann hrinuna
16:14. Því þurfti oddahrinu og
þar hafði KÁ forystuna allan tím-
ann og vann að lokum 15:12.
KA hefur nú hlotið jafn mörg
stig og ÍS og Völsungur en hefur
leiki fleiri leiki og staðan því vart
marktæk.
Dan Kennard átti frábæran leik gegn Tindastól og skoraði 40 stig.