Dagur - 22.01.1991, Side 10

Dagur - 22.01.1991, Side 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 22. janúar 1991 Marlon Brando aftur í guðíbðurhlutverkinu kvikmyndarýni Umsjón: Jón Hjaltason Borgarbíó sýnir: Nýnemann (The Freshman). Leikstjóri: Andrew Bergman. Aðalhlutverk: Marlon Brando og Matt- hew Broderick. Tri-Star Pictures 1990. Ég var búinn að bíða þó nokkuð spenntur eftir þessari kvikmynd og ég varð ekki fyrir vonbrigð- um. Veikleiki Nýnemans er um leið styrkleiki hennar, nefnilega söguþráðurinn. Lengst af er þetta sterkur þráður. Matthew Broder- ick kemur til stórborgarinnar að nema kvikmyndafræði við há- skólann í New York. Strax á brautarstöðinni er hann rændur aleigunni. í framhaldinu leiðir glæpurinn til þess að náms- maðurinn ungi kemst í kynni við mafíósann Marlon Brando. Leik- ur þessara tveggja er með slíkum ágætum að ekki er hægt að hugsa sér að aðrir hefðu gert betur. Annar er kominn á efri ár, þung- lamalegur og djúpvitur; hinn er í æskublóma, ómótaður og lifir fyrir líðandi stund. Báðir eru heiðarlegir á sinn hátt, annar gagnvart lögunum, hinn í garð vina sinna. Þetta samspil gefur Nýnemanum ákaflega létt og við- kunnanlegt yfirbragð. En þessi sami söguþráður er um leið akkilesarhæll Nýnemans. Það kemur hins vegar ekki í ljós fyrr en á seinustu mínútum myndarinnar að atburðarásin er samsett á ákaflega hæpnum for- sendum; plottið í myndinni er svo yfirgengilegt að joað er nánast óhugsandi að kapallinn gangi upp. Þetta skemmir þó myndina sáralítið því að hún er á enda þegar augu bíófarans uppljúkast fyrir sannleikanum. Hann er þá búinn að skemmta sér ágætlega í 90 mínútur eða svo. Svo er auðvitað sá möguleiki til í dæminu að rýninn hafi skort vitsmuni til að skilja ráðabruggið til fullnustu - og því misskilið það sem hann gat á annað borð mis- skilið. Árshátíð f.h. .U.E. verður í Lóni v/Hrísalund laugardaginn 26. janúar nk. og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Fjölbreytt skemmtiatriði. Félagar, fjölmennið í þorramatinn og takið með ykkur gesti. Húsið opnað kl. 19.00 og lokað kl. 20.30. Miðaverð kr. 2.000,- Upplýsingar í símum 21940, Jóhannes, og 23732, Þórdís, eftir kl. 19.00. Miðar seldir þriðjudaginn 22. janúar í Lóni frá kl. 18.00-20.00. Félag harmonikuunnenda. Menntamálaráðuneytið Laus staða Við Raunvísindastofnun Háskólans er laus til umsóknar rannsóknastaða við reiknifræðistofu sem veitt er til 1 -3ja ára. Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1. mars nk. Fastráðning kemur til greina. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi eða til- svarandi háskólanámi og starfað minnst eitt ár við rannsóknir. Starfsmaðurinn verður ráðinn til rannsóknastarfa, en kennsla hans við Háskóla íslands er háð samkomulagi milli deildarráðs raunvísindadeildar og stjórnar Raun- vísindastofnunar Háskólans, og skal þá m.a. ákveðið, hvort kennsla skuli teljast hluti starfsskyldu viðkomandi starfsmanns. Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum um menntun og vísindaleg störf, auk ítarlegrar lýsingar á fyrirhuguðum rannsóknum skulu hafa borist mennta- málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 15. febrúar nk. Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnir frá 1 -3 dómbær- um mönnum á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og vísindaleg störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál og má senda þær beint til menntamálaráðuneytisins. Menntamálaráðuneytið, 18. janúar 199L Bili bíllinn getur rétt staðsettur VIÐVÖRUNAR ÞRÍHYRNINGUR skipt öllu máli ...ii: UMFERÐAR Iráð ■ _____ . ...........................-....... VVarren Beatty leikur Dick Tracy og er maðurinn á bak við þessa stórskemmtilegu barna- og fullorðinskvikmynd. Dick Tracy Borgarbíó sýnir: Dick Tracy. Leikstjóri: Warren Beatty. Aðalhlutverk: Warren Beatty, Madonna og fleiri nær óþekkjanlegir stórleikarar svo sem Dustin Hoffman og Al Pacino. Touchstone Pictures 1990. Söguþráður þessarar kvikmyndar um leynilögreglumanninn snjalla Dick Tracy er ekki ýkja merki- legur. Það fylgir starfinu að eltast við glæpamenn og standa á hengi- fluginu mikla er skilur á milli lífs og dauða. Inn í þetta venjulega sjónarpil lögreglumynda blandast ást og drengskapur. Tracy tekur að sér ungan götupilt sem meira reynist í spunnið en útlitið segir til um. En látið mig ekki leiða ykkur á villigötur - enda þótt sögu- þráðurinn sé kannski ekki upp á marga fiska þá er kvikmyndin um Dick Tracy allt annað en venju- leg bíómynd. Hún er ævintýri. Góðu mennirnir eru góðir og vondu mennirnir bæði drullu- sokkar og afspyrnu ljótir. Þeir eru afskræmdir og líkjast ekki venjulegu fólki. Allt yfirbragð kvikmyndarinnar er eilítið óraunverulegt án þess þó að verða afkáralegt. Borgin er hjúpuð ævintýrablæ, sterkir litir setja svip sinn á allt, jafnt umhverfið sem klæðnað fólksins. í mörgu minnir Dick Tracy á Batman, þó er ég ekki frá því að fyrri myndin sé jafnvel enn betur gerð en sú síðarnefnda. En fyrir hverja er þá kvik- myndin um lögreglumanninn Dick Tracy? Er hún full ofbeldis- kennd fyrir börn yngri en 12 ára? Ég svara þessari spurningu hiklaust neitandi. Dick Tracy er ein af þessum sárasjaldgæfu barnamyndum sem fullorðnir geta einnig skemmt sér við að horfa á. Hún minnir um sumt á Tomma og Jenna. Ofbeldið er óraunverulegt og blóð er ekkert. Ævintýrið um Dick Tracy mætti því sýna jafnt klukkan 21 á kvöldin sem klukkan 15 á sunnu- dagseftirmiðdögum. Hollustuvernd ríkisins: Til umhugsunar fyrir framleið- endur og neytendur þorramatar Nú líður senn að þorra og verður þá þorramatur á borðum margra landsmanna, bæði í heimahúsum og á stærri samkomum, eða þorra- blótum. Þar sem framleiðsla og fram- reiðsla á þorramat er með nokk- uð öðrum hætti en tíðkast með daglega rétti telur stofnunin þarft að benda á vissa þætti, sem geta komið í veg fyrir ranga meðferð hans. Margir réttir á þorrablóts- matseðlinum teljast til við- kvæmra matvæla og verður því að fara með þá samkvæmt því. Grundvailaratriðin við með- ferð á þorramat byggjast á hrein- læti, kæligeymslu, hitun þeirra rétta þar sem það á við og stutt- um aðdraganda að undirbúningi þorramatarins. Ráðleggingar um meðferð þorramatar og viðkvæmra mat- væla almennt: Hreinlæti • Gætið ítrasta persónulegs hreinlætis við tilbúning og framreiðslu, svo sem að þvo hendur með sápu. • Notið hreina hnífa og skurð- bretti við matseldina. • Þvoið áhöld og skurðbretti oft með sápu og skolið með heitu rennandi vatni. • Notið pappír í stað eldhús- klúta og svampa. Hitun matvæla • Sjóðið kjöt, sérstaklega létt- saltað og úrbeinað, og svið þannig að það gegnumhitni upp í 70° C eða hærra. • Kjötrétti, sem á að halda heit- um, sé haldið við 60° C eða hærra. Soðið kjöt eða rétti úr þeim má ekki geyma lengi við stofuhita. Varast skal að hrúga heitu og volgu kjöti saman í ílát, því þá kólnar það of hægt. • Kartöflu- og rófustöppur eru viðkvæmar því í þær er bætt mjólk, sykri og kryddi sem bæta skilyrði fyrir gerlagróður. • Eigi að endurhita kjötrétti, t.d. pottrétti, skulu þeir hitað- ir í 70° C eða hærra. Sýrð matvæli • Sýrðan (súrsaðan) mat er best að setja í mysublöndu (mysa blönduð ediki) og geyma í kæliskáp þar til hann er borinn fram. Afganga á að láta aftur í mysublöndu og geyma í kæli- skáp. • Mat, sem súrsaður er í heima- húsum, þarf fyrst að sjóða vel og kæla áður en hann er sýrður. Súrsun fari fram á köldum stað, helst í kæliskáp. • Súrmatur, sem fluttur er á milli staða, á að vera í mysu- blöndu og flutningur á að taka sem stystan tfma. ■ . 1. • t- •. Ife Ósýrður þorramatur • Sérstaka aðgæslu þarf að hafa við meðferð á ósýrðum þorra- mat svo sem slátri og sviða- sultu, því þessi matur hefur mun skemmra geymsluþol en súrmatur. Kæling matvæla • Geymið soðið kjöt og kjötrétti í kæli frá framleiðslu, eða matreiðslu þar til réttirnir eru bornir fram. • Geymið allan súrmat í kæli þar til hann er borinn fram. • Sýnið sérstaka aðgæslu við geymslu á ósýrðum mat svo sem sviðasultu og geymið sem mest í kæli. • Geymið alla afganga í kæli. Látið viðkvæm matvæli ekki standa lengur en 4-5 klukku- stundir við stofuhita. Munið að geyma viðkvæm matvæli í kæli þar til þeirra er neytt og setja afganga í kæli. Með því að fylgja þessum ráð- leggingum ætti að vera hægt að minnka líkur á, að okkar þjóð- legi þorramatur valdi matareitr- unum eða matarsýkingum þetta árið. I

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.