Dagur - 03.04.1991, Side 1
74. árgangur Akureyri, miðvikudagur 3. apríl 1991 62. tölublað
Vel klæddur
í fötum frá
BERNHARDT
The Tailor-l.onk
roDuoiin
HAFNARSTRÆTI92 • 602 AKUREYRI ■ SÍMI96-26708 ■ BOX 397
Dvalarheimilið Hlíð:
Skotið á þjónustuíbúð
Friðjón Tryggvason, íbúi í þjón-
ustuálmu dvalarheimilisins
Hlíðar á Akureyri, varð fyrir
þeirri óskemmtilegu reynslu að
riffilkúla braut rúðu í íbúð
hans á laugardag fyrir páska.
Atburður þessi varð um kl.
16.00. Riffilkúlan braut tvöfalt
einangrunargler, og reyndist
hún vera úr byssu með hlaup-
vídd cal. 22.
Hár hvellur varð þegar skotið
lenti ofarlega í rúðunni, og gler-
brotin sáldruðust um herbergið.
Tvær konur voru í heimsókn hjá
Friðjóni þegar þetta gerðist, og
varð fólkinu að vonum illa við.
Rannsóknarlögreglan var kvödd
á staðinn, og fundust leifar af
Björgunarsveitin
Stefán í Mývatnssveit:
riffilkúlunni. Ekki er vitað hver
er valdur að þessu, en hugsanlegt
er að hér hafi verið um óhapp að
ræða, þ.e. að skoti hafi verið
hleypt af fyrir slysni af löngu færi.
Þó er alls ekki útilokað að um
ásetning hafi verið að ræða. Lög-
reglan biður vitni um að gefa sig
fram, ef einhver eru.
Halldór Pétursson, húsvörður í
Hlíð, segir að skotið hafi líklega
komið úr norðvestri, með all-
margra gráðu halla, yfir íbúða-
byggðina á suðurbrekkunni. íbúð
Friðjóns er á 2. hæð þjónustu-
álmunnar.
„Sem betur fór varð ekkert slys
af þessu. Lögreglan kom, gler-
brotin voru fjarlægð og gert við
rúðuna til bráðabirgða. En það
er óhætt að segja að við höfum
hrokkið við, því smellurinn var
mikill þegar rúðurnar brotnuðu,“
segir Friðjón. EHB
íbúðarhúsið á Klöpp á Svalbarðsströnd er illa farið eftir bruna. Á innfelldu
myndinni sést bifreið sem brann þegar logandi hurð féll á hana, og er bif-
rciðin mikið skemmd. Mynd: F. Vestmann.
Foreldrum og
fimmböraum
hjálpaö til byggöa
Austfirðingar á fólksbíl og
jeppa ientu í ófærð og
yonsku veðri á Möðrudals-
öræfum á annan í páskum. I
bílunum voru fjórir full-
orðnir og fimm börn á aldr-
inuin frá 5 mánaða til 7 ára.
Fólkinu varð ekki meint af
ferðalaginu en var þreytt er
það kom til byggða kl. 02.00
um nóttina.
Það var um kaffileytið á
mánudag scm bílarnir fóru úr
Mývatnssvcit áleiðis til
Egilsstaða og Norðfjarðar. Á
Jökuldalsheiði festi fólksbíll-
inn sig og þar keyrði jeppinn
fram á hann og sat einnig
fastur. Aðstandendur ferða-
langanna fylgdust með ferðum
þeirra og hringdu í Möðrudal
en þaðan fór bóndi á dráttar-
vél til hjálpar og aðstoðaði bíl-
ana í Möðrudal cn þaðan
héldu þeir áleiðis til Mývatns-
sveitar.
Um níuleytið um kvöldið
óku vélsleðamenn frá Húsa-
vík, sem voru að koma úr
Kverkfjöllum, fram á fólkið.
Þá voru bílarnir i'astir í Vestari
brekku, 15 km austur af
Mývatnsöræfum. Hringdu vél-
sleðamennirnir í björgunar-
sveit Slysavarnafélagsins Stcfán
í Mývatnssveit, sem kom fólk-
inu til hjálpar. IM
Mikið annríki hjá Slökkviliði Akureyrar um páskana:
Stórbruni á Klöpp og Ijögur útköll
Slökkviliðið á Akureyri var
kallað út vegna eldsvoða á
bænum KIöpp á Svalbarðs-
strönd klukkan 15.10 á laugar-
daginn. Eldurinn kom upp í
þvottahúsi, og breiddist síðan
út um íbúðarhúsið, sem er tal-
ið ónýtt. Almenn fjársöfnun
hefur verið hafin til styrktar
fjölskyldunni, sem missti nán-
ast allt sitt í brunanum.
Steinhúsið á Klöpp er afar illa
farið eftir eldinn, en þetta er
þriðji bruninn á jörðinni á 26
árum. Eldsupptök eru ekki kunn
í smátriðum, en eldurinn mun
líkast til hafa kviknað út frá raf-
magnstækjum í þvottahúsi, en
þar var m.a. frystikista og hita-
túba. Þegar slökkviliðið kom á
staðinn var allmikill eldur, en
greiðlega gekk að ráða niðurlög-
um hans. Fimm slökkviliðsmenn
á tveimur slökkviliðsbílum voru
sendir að Klöpp.
Tjónið sem íbúar á Klöpp urðu
fyrir er tilfinnanlegt. Búið er að
opna almenna sparisjóðsbók við
Landsbanka íslands á Akureyri,
númer 117060, og geta þeir sem
vilja lagt sitt af mörkum til stuðn-
ings fjölskyldunni.
Gísli Kr. Lórenzson, aðstoð-
arslökkviliðsstjóri, segir að mikið
annríki hafi verið hjá slökkvilið-
inu á Akureyri um páskana.
Brunaviðvörunarkerfi verslun-
armiðstöðvarinnar við Sunnuhlíð
fór í gang aðfaranótt páskadags
Húsavík:
Róleg páskahelgí
Páskahelgin var mjög róleg og
góð aö sögn lögreglu á Húsa-
vík. Aðalmálið hjá lögreglunni
var eldsvoðinn að Klöpp á
Svalbarðsströnd á laugardag.
Á skírdag var einn ökumaður
tekinn í Aðaldalshrauni og var
hann grunaður um ölvun við
akstur.
Aðfaranótt mánudags brutu
tveir „guttar“ útiljós við einbýlis-
hús á Húsavík, þeir náðust og
viðurkenndu brot sitt. IM
og aftur aðfaranótt 1. apríl. í
báðum tilvikum voru brunaboðar
brotnir af mannavöldum.
Klukkan 14.25 á páskadag
varð bilun í viðvörunarkerfi í
húsnæði Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf. Utkall varð hjá
slökkviliðinu í öllum tilvikum.
Á páskadag klukkan 18.00
kviknaði í potti á eldavél í íbúð í
fjölbýlishúsinu Skarðshlíð 33 b.
Reykur fór um alla íbúðina, og
urðu allmiklar skemmdir af hans
völdum.
Slökkviliðið á Akureyri var því
kallað út fimm sinnum um pásk-
ana. EHB
Aukin harka í deilu Útgerðarfélags Akureyringa og sjómannafélagsins:
Stöður háseta á ísfisktogurum
ÚA voru auglýstar lausar í gær
Samningar Utgerðarfélags
Akureyringa hf. og sjómanna
félagsins um launakjör hafa
siglt í strand og hefur stjórn
ÚA falið þeim Gunnari Ragn-
ars og Vilhelm Þorsteinssyni,
framkvæmdastjórum ÚA, að
auglýsa stöður undirmanna á
ísfisktogurum félagsins. í sam-
ræmi við þessa samþykkt voru
stöður háseta auglýstar í gær.
Landað var úr Hrímbak í gær
og von er á síðasta ísfisktogar-
anum, Kaldbaki, inn til
löndunar í dag. Gunnar Ragn-
ars segir Ijóst að nóg hráefni
verði til vinnslu hjá ÚA út
þessa viku, en eftir það gæti
óvissu um vinnsluna. Gunnar
segir fyrirfram ekki vilja spá
um hvernig gangi að manna
skipin, það verði að koma í
Ijós.
Mikil harka hefur hlaupið í
deilu Útgerðarfélagsins og sjó-
mannanna. Hvorugur deiluaðila
virðist á þeim buxunum að slaka
á og erfitt er að sjá á þessari
stundu að úr rætist á næstunni.
Þorleifur Ananíasson, útgerð-
arstjóri hjá ÚA, sagði að fjöl-
margir sjómenn víðsvegar að af
landinu hafi haft samband við
allar líkur á að vinnsla stöðvist eftir næstu helgi
skrifstofu félagsins í gær og óskað
eftir skipsplássi. Hann sagði að
bæði væri um að ræða vana
togara- og bátasjómenn og
nýliða. Þorleifur sagðist á þessari
stundu ekki trúa öðru en samn-
ingar myndu takast og þeir sjó-
menn sem sagt hafa upp störfum
hjá fyrirtækinu kæmu aftur til
starfa. Þarna væri um að ræða
marga af bestu togarasjómenn
landsins sem mikil eftirsjá væri í.
Á blaðamannafundi sem for-
svarsmenn Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf. héldu sl. mánudag
sagði Gunnar Ragnars að sjó-
menn krefðust 80-90% heima-
löndunarlags samanborið við
48% heimalöndunarálag í upp-
runalegu kröfunum 20. febrúar
sl. Þessum fullyrðingum vilja
sjómenn mótmæla. Konráð
Álfreðsson, formaður Sjómanna-
félags Eyjafjarðar, segir að
kjaranefnd sjómanna hafi í gær
farið í saumana á uppgjöri Harð-
baks frá 13. febrúar sl. Aflaverð-
mæti túrsins var tæpar 7,9 millj-
ónir, skiptaverð 5,5 milljónir, þar
af rann 1,7 milljón til sjómanna.
„Samkvæmt vinnuplaggi sem
við höfum kallað tilboð 2 frá
sjómönnum gerir sama veiðiferð
10,8 milljóna aflaverðmæti, 7,6
milljóna skiptaverð, 2,4 milljónir
koma í hlut sjómanna. Þetta til-
boð er því 55,69% hækkun frá
skilyrtu verði í febrúar þar sem
12% heimalöndunarálag er inni.
Ef við löndum afla þessa
febrúartúrs Harðbaks til fisk-
vinnslu á Vestfjörðum fengist
41,05% meira fyrir aflann en hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa eða
Útgerðarfélagi Dalvíkinga.
Eina svar útgerðarinnar við til-
raunum kjaranefndarinnar til
þess að koma á sáttum í þessu
máli er á sama veg; að sjómenn
séu að leggja fiskvinnslu á Akur-
eyrí í rúst og riðla peningakerfi
þjóðfélagsins. Þessu erum við að
mótmæla.“
Kjaranefnd sjómanna, sem
eiga í deilu við ÚA og ÚD, sendi
í gær frá sér auglýsingu í útvarp
þar sem skorað var á sjómenn að
ganga ekki í störf sjómanna sem
stæðu í þessari kjaradeilu.
Þess má geta að sjómönnum á
ísfisktogurum ÚD og Björgúlfi
EA hafa borist baráttukveðjur í
þessari deilu frá áhöfnum fjöl-
margra skipa og báta.
Nánar er fjallað um deilu ÚA
og sjómanna félagsins á blaðsíðu
7. óþh