Dagur - 03.04.1991, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 3. apríl 1991 - DAGUR - 5
Guðmundur Bjarnason.
Ef litið er á samanburðartölur
frá 1985 kemur í ljós að fjölgun á
þessu rúmlega 5 ára tímabili hef-
ur orðið eftirfarandi:
Hjúkrunarrýmum hefur fjölgað um 486
Vístrýmum um 97
Dagvistum um 204
Þessi samanburður sýnir að
verulega hefur áunnist í upp-
byggingu þjónustu fyrir aldraða á
seinustu árum.
V. Kostnaður við sér-
fræðilæknishjálp
Kostnaður á föstu verðlagi við
sérfræðilæknishjálp, greiddur af
Tryggingastofnun ríkisins, rúm-
lega tvöfaldaðist frá árinu 1983 til
1988. Um áramótin 1988-1989
var gerður nýr samningur við
lækna með því nýmæli að tekinn
var upp afsláttur sem sérfræðing-
ar gefa sjúkratryggingum eftir að
þeir hafa náð vissu tekjumarki.
Þetta leiddi m.a. til þess að
kostnaður við sérfræðilæknis-
hjálp dróst saman á föstu verð-
lagi milli áranna 1988 og 1989 um
135 milljónir króna og til viðbót-
ar um 44 milljónir króna milli
áranna 1989 og 1990, sbr. með-
fylgjandi töflu.
markvissrar verkaskiptingar milli
þeirra sem mun, þegar fram líða
stundir, leiða til stóraukinnar
hagkvæmni í rekstri sjúkrahús-
anna, bættrar þjónustu og sparn-
að fyrir skattborgarana.
VII. Lyfjamál
Hinn 20. nóvember 1989 skipaði
ég vinnuhóp sem vinna skyldi til-
lögur um lækkun lyfjakostnaðar,
gera tillögur að fyrirkomulags-
breytingum og vera samvinnuað-
ili við ráðuneytið um framkvæmd
þessara breytinga. Meðal þess,
sem vinnuhópurinn lagði til og
komist hefur í framkvæmd, eru
eftirtalin atriði:
1. Álagning í heildsölu var
lækkuö.
2. Álagning í smásölu var
lækkuð.
3. Þak var sett á álagningu á dýr-
ustu lyfin.
4. Apótek gefa Tryggingastofn-
un ríkisins stighækkandi af-
slátt eftir veltu apóteks.
5. Gefin var út samheitaverðskrá
lyfja.
6. Gefinn var út listi með skrá
yfir ódýrustu sambærileg lyf.
7. Sjúklingagjaldi var breytt
þannig að nú greiðir sjúkl-
ingurinn lægra gjald, ef keypt
er lyf sem er á „Bestukaupa-
lista“.
8. Reynt var með auglýsingum
að hvetja til notkunar ódýrári
lyfja og minni lyfjanotkunar.
Talið er að ofannefndar að-
gerðir muni spara ríkissjóði um
300 m.kr. á ári.
í október 1990 var síðan skip-
uð nefnd til að gera tillögur um
skipulag lyfjamála og kanna m.a.
stofnun hlutafélags er annist inn-
kaup og dreifingu lyfja hér á
landi. Nefndin skilaði áliti 16.
desember 1990.
í framhaldi af því nefndarstarfi
hefur í ráðuneytinu verið samið
frumvarp að nýjum lyfjalögum,
sem m.a. felur í sér:
Ár: 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990
M.kr: 467 440 590 690 878 979 844 800
VI. Samstarfsráð sjúkra-
húsanna í Reykjavík
I desember sl. var samþykkt á
Alþingi breyting á lögum um heil-
brigðisþjónustu samkvæmt til-
lögum nefndar sem ég skipaði ár-
ið 1989 um aukið samstarf sjúkra-
húsanna á höfuðborgarsvæðinu. í
kjölfar lagasetningar hefur nú
verið skipað Samstarfsráð sjúkra-
húsanna í Reykjavík, þ.e.a.s.
Ríkisspítala, Borgarspítala og
Landakotsspítala. Hlutverk ráðs-
ins er að gera tillögu um mótun
framtíðarstefnu áðurnefndra
sjúkrahúsa, gera þróunar- og
fjárfestingaáætlanir fyrir þau og
stuðla að sem hagkvæmastri
verkaskiptingu milli þeirra.
Með þessu hefur verið stigið
afar mikilvægt skref til aukins
samstarfs milli sjúkrahúsanna og
Mí ÉL4
Almennur
stjórnmálafundur
í Gamla skólahúsinu á Grenivík föstudaginn 5.
apríl kl. 20.30.
Frambjóðendur okkar, Guðmundur Bjarnason, Valgerður
Sverrisdóttir, Jóhannes Geir Sigurgeirsson og Guðmundur
Stefánsson mæta á fundinn.
Framsóknarflokkurinn.
1. ÖII framkvæmd lyfjamála
verði gerð markvissari s.s.
eftirlit með innflutningi, fram-
leiðslu og dreifingu. Gæða-
eftirlit svo og öll upplýsinga-
skylda verði falin Lyfjastofn-
un ríkisins.
2. Lyfjastofnunin semji við
framleiðendur og innlíytjend-
ur um verð, afhendingu, birgða-
hald og dreifingu lyfja til not-
enda. Stofnunin er útboðs- og
innkaupaaðili, en er ekki ætl-
að að sjá um dreifingu og
birgðahald.
3. Samið verði við apótekin um
sérstakt gjald - þóknun - fyrir
sölu lyfja, en núverandi form
á lyfjaverðlagningu verði lagt
niður.
4. Heimilt verði að fela deildar-
skiptum sjúkrahúsum og heilsu-
gæslustöðvum að afhenda lyf,
þar sem þörf er talin á, að
mati Lyfjastofnunarinnar.
Frumvarp þetta var lagt fyrir
Alþingi, en hlaut ekki afgreiðslu.
VIII. Breyttar aðferðir
við fjárlagagerð
Komið hefur verið upp öflugri
fjármálaskrifstofu innan ráðu-
neytisins, sem annast undirbún-
ing fjárlagagerðar og eftirlit með
framkvæmd fjárlaga fyrir þær
stofnanir sem heyra undir ráðu-
neytið. Ábyrgð og eftirlit með
fjármálum stofnana ráðuneytis-
ins hefur þannig verið fært út í
fagráðuneytið frá fjármálaráðu-
neyti.
Auk þess að fjalla um rekstur
heilbrigðisstofnana gerir fjármála-
skrifstofan tillögur um fjárveit-
ingar til stofnana vegna fjárfest-
inga, tækjakaupa og viðhalds.
Undanfarið hefur verið lögð sér-
stök áhersla á að auka fjárveit-
ingar til viðhaldsverkefna og er
nú unnið að úttekt á viðhaldsþörf
húsnæðis heilbrigðisstofnana.
Af þessu má sjá að ýmislegt
hefur verið gert til að styrkja
þann mikilvæga velferðarmála-
flokk sem heilbrigðis- og trygg-
ingamálin eru, en þó reynt að
gæta þess að útgjöldin haldi ekki
áfram að aukast. Margt fleira
mætti vissulega nefna sem gert
hefur verið og mörg úrlausnar-
efni eru enn framundan, ekki síst
siðfræðilegs eðlis þegar heilbrigð-
isþjónustan stendur frammi fyrir
því að þurfa að velja og hafna
milli þess sem mögulegt er annars
vegar og hins vegar því hvað það
má kosta.
Framsóknarflokkurinn mun
áfram beita sér fyrir því að allir
þjóðfélagsþegnar eigi aðgang að
og rétt á sömu heilbrigðisþjón-
ustu, þeirri bestu sem völ er á, á
hverjum tíma.
Glæsibæjarhreppur
Kjörskrá vegna alþingiskosninga sem fram eiga aö
fara 20. apríl nk. liggur frammi á Sílastööum frá 2.
apríl til kjördags.
Kærur við kjörskrána skulu hafa borist oddvita, eigi
síöar en kl. 12.00 á hádegi 9. apríl nk.
Oddviti Glæsibæjarhrepps.
Auglýsing um utankjör-
fundaratkvæðagreiðslu
Utankjörfundaratkvæöagreiðsla vegna alþingis-
kosninga 20. apríl 1991 hófst 20. þ.m.
Kosið er á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti
107, Akureyri, 3. hæö, alla virka daga á venjulegum
skrifstofutíma frá kl. 9:30 til kl. 12:00 og kl. 13:00 til
kl. 15:30 svo og kl. 17:00 til 19:00 og kl. 20:00 til kl.
22:00, laugardaga og sunnudaga kl. 13:00 til kl.
16:00.
Á skrifstofu embættisins í Ráðhúsinu, Dalvík er kos-
ið kl. 16:00-18:00 alla virka daga svo og kl. 11:00-
12:00 á laugardögum svo og á öðrum tímum eftir
samkomulagi við Gíslínu Gísladóttur, fulltrúa á
Dalvík.
Kosið er hjá hreppstjórum eftir samkomulagi við þá.
Kjósendur eru sérstaklega hvattir til að
nota tímann utan hins venjulega skrif-
stofutíma, því þá má vænta skjótari
þjónustu.
Akureyri, 27. mars 1991.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík,
sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Vefnaðarvörudeild
Nýkomin
stór sending af fallegum
vor- og sumarfatnaði frá
'EfmutíeK,